Fréttablaðið - 30.01.2005, Qupperneq 17
SUNNUDAGUR 30. janúar 2005 17
27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
14
6
6
4
- í gó›um málum
Opið í dag sunnudag 12-16
Mörkinni 6, 108 Reykjavík, sími 588 5518
Opið í dag sunnudag
Útsala
50%
Áður Nú
Ullarkápur 29.900 15.000
Mokkakápur 25.900 13.500
Ullarjakkar 9.900 4.900
Úlpur 12.900 5.900
Úlpakápur 22.900 11.500
Dúnúlpur 12.900 6.500
Mörg góð tilboð
hvað sem menn segja, að þetta
hafi verið rétt ákvörðun í þeirri
erfiðu stöðu sem kom upp. Flokk-
urinn gat ekki skilið Ingibjörgu
Sólrúnu eftir á berangri. Ég er
ósammála þeim sem segja að
þetta hafi verið rangt – á þessum
tíma,“ segir Össur.
Þegar hann er spurður hvort
hann telji ekki að þetta fyrir-
komulag hafi skaðað flokkinn í
kosningunum, svarar hann:
„Flokksmenn lögðust allir á eitt
og við náðum sögulegum árangri,
árangri sem flokkurinn hefur
haldið fram á þennan dag sam-
kvæmt skoðanakönnunum.“
Samfylkinguna í ríkisstjórn
Össur segir að verkefni hreyfing-
arinnar sé að leiða flokkinn til
meiri áhrifa í landsmálum og
mynda nýja ríkisstjórn með
áherslum jafnaðar og nýrrar
sóknar í menntamálum og efna-
hagsmálum.
„Við Íslendingar getum átt
bjarta framtíð fyrir höndum. Það
er spurning hvort við séum ekki
komin of langt í stóriðjustefnu og
eitt af stóru málum framtíðarinn-
ar eru umhverfismál. Við þurfum
til dæmis að taka frá ósnortin víð-
erni og leggja undir þjóðgarða þó
að þar séu virkjunarmöguleikar.
Seigustu dráttarklárar atvinnu-
lífsins eru hins vegar litlu fyrir-
tækin, smáfyrirtækin og ein-
yrkjarnir og við í Samfylkingunni
erum stolt af því að við lítum á
okkur sem stuðningsflokk þeirra
bæði til sóknar og varnar. Þetta
verður burðarvirkið í atvinnu-
stefnu nýrrar ríkisstjórnar sem
Samfylkingin leiðir,“ segir hann.
Össur bendir á að þetta tengist
jafnframt áherslum og fjárfest-
ingum í menntakerfinu. „Heimur-
inn er að breytast þannig að þeir
sem ekki hafa tækifæri á að öðlast
nýja færni og þjálfun munu í
tekjulegu tilliti færast út á jaðar
samfélagsins. Hið flókna sam-
félag sem við erum að sigla inn í
krefst símenntunar. Menntakerfið
verður jöfnunartæki framtíðar-
innar. Það eru fimmtíu þúsund
manns sem hafa grunnskólapróf
eða minna og bíða tækifæris til
frekari menntunar. Og þjóðfélag-
ið þarfnast þessa fólks til starfa,“
segir hann.
Opið samfélag og lýðræði
Spurður hvað hafi mótað stjórn-
málasannfæringu hans segir Öss-
ur að bakgrunnur hans sem stjórn-
málamanns standi föstum fótum í
lýðræðisbyltingu 68-kynslóðarinn-
ar. „Ég var leiðtogi í stúdentapóli-
tíkinni sem byggðist á því að auka
lýðræðisleg áhrif. Það varð líka
hlutskipti okkar í A-flokkunum að
vinna að lýðræðismálum og að
uppstokkun flokkakerfisins, með-
al annars að sameina vinstri flokk-
ana í einn stóran. Og það tókst,“
bendir hann á.
„Það sem hefur einkennt þetta
ferli og Samfylkinguna er lýðræði
og möguleikar einstaklinganna.
Þróunin úr stúdentapólitíkinni lá
til dæmis í gegnum lýðræðiskyn-
slóðina í Alþýðubandalaginu sem
ég var partur af. Lýðræðisáhersl-
ur Vilmundar Gylfasonar í Banda-
lagi jafnaðarmanna ófust saman
við gamlar hugmyndir í Alþýðu-
flokknum frá fyrstu tíð hans, frá
tímum Héðins Valdimarssonar og
Jóns Baldvinssonar sem lögðu
mikla áherslu á jafnan atkvæðis-
rétt. Þetta speglast í því að þessi
kynslóð sem býr til Samfylking-
una hefur lagt langmesta áherslu
á opið samfélag og lýðræði,“ segir
Össur.
Hann segir hins vegar dapur-
legt að sjá hvernig lýðræðinu hef-
ur hnignað. „Það hefur gerst und-
ir forystu eins flokks, því Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur auðvitað
öll tök Framsóknar í hendi sér. Úr
því hefur þróast svokallað ráð-
herraræði, en ekki þingræði, þar
sem örfáir menn geta þröngvað
vilja sínum í gegnum þingið. Það
er okkar erindi í pólitík, að verja
rétt þeirra sem lakar eru settir og
auka möguleika einstaklingsins
og koma á auknu frelsi,“ segir
Össur.
Hann bendir á að hægrimenn
hafi fengið að stela frá jafnaðar-
mönnum hugtakinu „frelsi“ í sinn
áróður. „Það hugtak fer jafnaðar-
mönnum betur sem bjuggu það til
í tengslum við rétt einstaklings-
ins. Við eigum að hefja aftur til
vegs frelsi einstaklingsins, ekki
bara til þess að búa til verðmæti
með frelsi í viðskiptalífinu, held-
ur ekki síður frelsi til þess að lifa
með reisn hver sem efnahagsleg
staða manns er. Það er erindi okk-
ar í pólitík,“ segir hann.
Vill spreyta sig við landstjórn
Össur er sannfærður um það að
Samfylkingin sé komin á það stig
að hún þurfi að spreyta sig við
landstjórn. „Hún er fullþroskuð
til þess að mynda ríkisstjórn og
það er meginhlutverk okkar í dag.
Þjóðin ákveður það í næstu kosn-
ingum og hvort Samfylkingin fær
nægilegt fylgi til þess að leiða
landstjórnina. Sú ríkisstjórn mun
hafa að leiðarljósi okkar gullna
þríhyrning, að ýta undir öflugt,
frjálst atvinnulíf til þess að skapa
verðmæti sem standa undir skyn-
samlegu velferðarkerfi. Hvorugt
verður að veruleika nema
okkur takist að búa til
öflugt menntakerfi
og fjárfesta í því.
Þjóðin hefur beðið
lengi eftir ríkisstjórn
jafnaðarmanna, okkar
tími mun koma,“ segir
Össur. ■
ÞEKKTUR FYRIR ÁHUGA SINN Á SKÁK
„Samfylkingin er orðin ein heildstæð
hreyfing með sameiginlegu átaki mjög
margra víðsvegar um landið, með
stofnun nýrra félaga og innri uppbygg-
ingu. Það sem við erum stoltust af er
að hafa tekist að eyða öllum flokka-
dráttum milli karla og kvenna
sem koma úr mismun-
andi flokkum. Þetta er
mikill árangur.“