Fréttablaðið - 30.01.2005, Page 23
5
TYLKYNNINGAR
Sjóntækjafræðingur
Óska eftir sjóntækjafræðingi.
Umsóknir merktar „sjóntækjafræðingur“ berist
Fréttablaðinu fyrir 2. febrúar.
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVÍKUR
Fríkirkjuvegi 3 – 101 Reykjavík
Sími 570 5800 – Fax 561 11 20 – Netfang: isr@rhus.rvk.is
Viðskiptavinir Innkaupastofnunar
Reykjavíkur athugið!
Innkaupastofnun Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3,
hættir starfsemi 31. janúar n.k.
Frá 1. febrúar 2005 verður innkaupa- og útboðsmálum
Reykjavíkurborgar sinnt í Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu
11, 101 Reykjavík.
• Ný símanúmer útboðsdeildar: 563-2115 og 563-2116.
• Nýtt faxnúmer: 563- 2111.
• Nýtt netfang: utbod@reykjavik.is
Upplýsingar er einnig að finna á heimasíðu
Reykjavíkurborgar: http://www.reykjavik.is
Eldri borgarar
Nokkur sæti eru laus í 10 daga ferð FEB til
Færeyja. Lagt verður af stað frá Reykjavík
24. maí nk. og komið heim 2. júní. Siglt
verður með Norrænu frá Seyðisfirði, ekið um
eyjarnar sem státa af mikilli náttúrufegurð,
þverhníptum björgum og grösugum dölum,
og komið á sögustaði.
Gist verður á Hótel Klaksvik á Borðey og á
Hótel Hafnia í Þórshöfn. Verð um kr. 89.000.
Áhugasamir tilkynni þátttöku sína fyrir 10. febrú-
ar til skrifstofu Félags eldri borgara í Reykjavík,
Faxafeni 12, sími 588-2111.
Félag eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni.
Samkeppni
Landspítali-háskólasjúkrahús
Samkeppni um skipulag – forval nr. 13765
Framkvæmdasýsla ríkisins, fyrir hönd Land-
spítala- háskólasjúkrahúss, auglýsir eftir
teymum sérfræðinga til að taka þátt í sam-
keppni um gerð deiliskipulags og nánari út-
færslu spítalastarfseminnar ásamt starfsemis-
lýsingu bygginga og innri tengslum þeirra fyrir
Landspítala- háskólasjúkrahús við Hringbraut
í Reykjavík.
Til samkeppninnar verða valin allt að 7 teymi
og fá þau samkeppnisgögn afhent að loknu
forvali þessu.
Það teymi sérfræðinga sem verður hlutskarp-
ast í samkeppninni mun, auk vinnu við út-
færslu á deiliskipulagi svæðisins, vinna áfram
með verkkaupa sem ráðgjafi við nánari út-
færslu spítalasvæðisins.
Forvalsgögn verða einungis fáanleg á vefsíðu
Ríkiskaupa (www. rikiskaup.is) og verða fyrir-
spurnir og svör birt á sama stað.
Lykildagsetningar:
• Forvalsgögn aðgengileg frá 02.02.2005
• Umsóknum skilað inn 08.03.2005, kl. 16:00 til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Rvk.
• Samkeppnisgögn afhent 07.04.2005
• Skil samkeppnistillagna 20.08.2005, kl. 16:00 til
Ríkiskaupa, Borgartúni 7, 105 Rvk.
• Samningur undirritaður 01.11.2005
• Skipulag svæðisfullgert 01.04.2006
Viltu syngja
með okkur?
Óskum eftir söng glöðu og lagvissu
fólki, konum sem körlum í hópinn
okkar í Fríkirkjuna við tjörnin.
Áhugasamir hafi samband við Önnu Siggu
Helgadóttur söngstjóra í síma 8613843.
Fríkirkjan í Reykjavík
Í Hafnarfirði búa um 22 þúsund manns. Bærinn stendur í fallegu
umhverfi hrauns og kletta. Hafnarfjörður hefur þá bæjarsál sem
einkennir búsetu við sjó og státar um leið af hagkvæmni stærðar-
innar og staðsetningar í jaðri höfuðborgarsvæðisins. Það er gott að
búa og starfa í Hafnarfirði.
Styrkir til lista- og
menningarstarfsemi
Menningar- og ferðamálanefnd Hafnarfjarðar
auglýsir eftir styrkumsóknum og geta allir sem áætla að
standa fyrir viðburðum í Hafnarfirði sótt um.
1. Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningar
viðburðir verða að tengjast Hafnarfirði.
2. Skilgreina þarf verkefnið í umsókn.
Kostnaðaráætlun fylgi og ósk um styrkupphæð.
3. Ekki er styrkt til náms eða rekstrar (t.d. húsaleigu).
4. Nefndin áskilur sér rétt til að krefjast endurgreiðslu
styrkja, komi ekki til verkefna sem sótt er til.
Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu bæjarins
www.hafnarfjordur.is (sjá menning) og í Þjónustuveri
Hafnarfjarðar, Strandgötu 6. Nánari upplýsingar veitir
menningar- og ferðamálafulltrúi í síma: 585-5776.
Umsóknir skal merkja:
Styrkir til menningarstarfsemi 2005.
Skrifstofa menningar- og ferðamála,
Vesturgötu 8.
Skilafrestur er til 28. febrúar.
Hér með er auglýst eftir um-
sóknum um styrki úr Menning-
arsjóði skv. 1. gr. reglugerðar
um sjóðinn nr. 707/1994.
Hlutverk Menningarsjóðs er að veita útgefendum
og/eða höfundum fjárhagslegan stuðning til útgáfu
þeirra bóka á íslenskri tungu, sem verða mega til
eflingar íslenskri menningu. Sérstök áhersla skal
lögð á að efla útgáfu fræðirita, handbóka, orða-
bóka og menningarsögulegra rita. Jafnframt getur
sjóðurinn veitt fjárhagslegan stuðning annarri
skyldri starfsemi s.s. vegna hljóðbókagerðar.
Umsóknareyðublöð og reglur sjóðsins fást í af-
greiðslu menntamálaráðuneytisins. Einnig eru um-
sóknareyðublöð á heimasíðu Menningarsjóðs,
www.mmedia.is/menningarsj
Umsóknafrestur rennur út 1. mars 2005 og skal
umsóknum skilað til Menningarsjóðs, Mnntamála-
ráðuneytinu, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
28. janúar 2005
Stjórn Menningarsjóðs
www.mmedia.is/menningarsj
Menningarsjóður
Umsóknir um styrki
ATVINNA
TYLKYNNINGAR
Tilkynning um
framboðsfrest til stjórnarkjörs
Samkvæmt 32. gr. laga Félags íslenskra rafvirkja
skal fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla um kjör
stjórnar og trúnaðarráðs.
Með hliðsjón að framansögðu tilkynnist hér með að fram-
boðsfrestur hefur verið ákveðinn til kl. 12.00 föstudaginn
11. febrúar 2005 og ber að skila tillögum ásamt meðmæl-
endum fyrir þann tíma á skrifstofu félagsins.
Hverjum framboðslista skulu fylgja skrifleg meðmæli minnst
148 fullgildra félagsmanna
Reykjavík 29. janúar 2005.
STYRKIR