Tíminn - 09.01.1975, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 9. janúar 1975.
TÍMINN
13
Svar lögreglustjóra:
Stöðumælarnir
á Grettísgötu
LÖGREGLUSTJÓRINN i
Reykjavik hefur svarað bréfi
Guðlaugar Sveinbjarnardóttur,
sem ákvað á dögunum að láta
sverfa til stáls i deilum þeim er
orðið hafa út af stöðumælunum á
Grettisgötu.
Lögreglustjóri segir, að stöðu-
mælavörðurinn á Grettisgötu
starfi á ábyrgð Reykjavikurborg-
ar, en stöðumælaverðir hafi bæki-
stöð i lögreglustöðvum, og skuli
aukaleigugjald til stöðumæla-
stjóðs greiðast i skrifstofu lög-
reglustjóra, þótt greiðslan renni
til Reykjavikurborgar. Auka-
leigugjald vegna brota á reglum
um notkun stöðumæla hafi verið
ákveðið samkvæmt ákvæði i um-
ferðarlögum, en auglýsing um
hækkun þessa gjalds i fyrravetur,
hafi birzt I Lögbirtingablaðinu, og
hafi þá ekki verið i gildi lög, sem
bönnuðu slika hækkun.
Lögreglustjóri vitnar siðan til
ýmissa lagaákvæða til skýringar
á þeirri meðferð, er mál Guð-
laugar hefur fengið hjá lögreglu-
stjóraembættinu.
Er búið að leggja
Flateyrarlæknis-
hérað niður?
FB-Reykjavik. — Frá þvi var
skýrt i útvarpsfréttum á miðviku-
dag, og haft eftir iandlækni, að öll
iæknishéruð i landinu væru nú
skipuð. Er Flateyringar heyröu
þessa frétt brá þeim heldur en
ekki i brún, þvi þeir vissu ekki til
þess, að búið væri að leggja niður
Flateyrarlæknishérað. Þar er nú
enginn læknir, en hins vegar
gegnir Þingeyrarlæknir
héraöinu.
Á Flateyri er ágætis læknis-
bústaður, heilsugæzlustöð og tvær
færar hjúkrunarkonur, og ætti að
vera eftirsóknarvert fyrir lækni
að koma til staöar, þar sem
aðstaðan er jafngóð og þar, aö
áliti Flateyringa.
Þingeyrarlæknir hefur eins og
fyrr segir gegnt héraðinu, og er
sizt að lasta hans störf. Að vetrar-
lagi er þó siöur en svo greiðfært
milli þessara tveggja staöa, og
hefur varðskip oft orðiö að flytja
lækninn á milli. Gerist slikt ekki
alltaf á stundinni, og getur þvi
liðið nokkur timi þar til læknir
fæst I annað hvort héraöið, komi
eitthvaö óvænt fyrir og hann er
þar ekki staddur.
Skuttogararnir tveir
eru móttarstólpar
atvinnulífsins
BH-Reykjavlk. — Atvinnuástand
á Siglufirði er mjög gott, aö þvi er
Bjarni Þór Jónsson bæjarstjóri
tjáði okkur. Þar hafa risið upp á
siðustu árum þróttmikil atvinnu-
fyrirtæki, sem hafa gjörbreytt at-
vinnulifinu, og ber þar sérstak-
lega aö nefna útgeröarfyrirtækið
Þormóð ramma, sem markað
hefur algjör þáttaskil i sögu
bæjarins.
Sagði Bjarni Þór okkur, að at-
vinnuleysið væri meö öllu úr sög-
unni á Siglufiröi, miklar fram-
kvæmdir væru á döfinni, og
mætti auk annars nefna mikið og
fullkomið fiskiðjuver á vegum út-
gerðarfyrirtækisins Þormóðs
ramma.
Otgerðarfyrirtækið gerir út tvo
togara, Stálvik og Sigluvik, og
enda þótt segja megi, að
rekstrarafkoma þeirra sé nokkuð
erfið, eru þeir engu að siður
máttarstólpar atvinnulifsins og
hafa stóraukið atvinnuöryggið.
Benti Bjarni Þór okkur á, aö
enginn kaupstaður á landinu hefði
á jafnáþreifanlegan hátt og Siglu-
fjörður fengið að kenna á þvi,
hversu sveiflukennt atvinnulifið
getur verið, og þvi væru skut-
togararnir öllum bæjarbúum
fagnaöarefni, sem menn geröu
sér ljóst, að yröi að standa vel að.
Fornt lyf og
nútímatækni
— til lækningar á psoriasis-útbrotum
Þegar jólaleyfi hófust I barnaskólum, efndi Umferðarnefnd og lögreglan i Reykjavik og lögreglan I
Hafnarfirði og Kjósarsýslu, til getraunar fyrir skólabörn, sem nefndist ,,í jólaumferðinni”. Var get-
raunaseðlum dreift til skólabarna á aldrinum 7-12 ára. Sendir voru út um 14000 getraunaseðlar. 1
Reykjavik voru vinningar 150 bækur. t Hafnarfirði og Kjósarsýslu voru vinningar 100 bækur. t Reykja-
vik var dregið úr réttum lausnum á miðnætti á Þorláksmessu og gerðu það skólastjórarnir Jón Árnason
og Kristján Sigtryggsson að viðstöddum lögreglustjóranum i Reykjavik Sigurjóni Sigurðssyni. A
aðfangadag heimsóttu einkennisklæddir lögreglumenn börnin, sem hlotiö höfðu vinning og afhentu
þeim bækurnar.
nordÍíIende
sjónvarpstækin eru með
SMÁRUM
Það er þess vegna sem þau endast
BETUR
en þau tæki sem eru með lömpum
Normende sjónvarpstæki
eru fyrirliggjandi í stærðunum 12" 14" 17" 20" og 24" — Einnig
lit-sjónvarpstæki 26" — Hagstætt verð og greiðsluskilmólar
LÆKNAR I rikisspitalanum I
Boston tilkynntu i siðustu viku, að
þeir og austurriskir samstarfs-
menn þeirra hefðu samhæft fornt
lyf nútímatækni, og teldu að með
þessu væri loks I sjónmáli raun-
veruleg lækning á psoriasis, sem
veldur fjölda fólks i öllum löndum
miklum þjáningum. Er sagt, að
þetta lyf gæti ekki aðeins eytt
psoriasis-útbrotum, heidur haldið
sjúkdómnum varanlega niðri. —
Fréttatilkynningu um þetta hefur
stjórn samtaka islenzkra
sjúklinga, sem haldnir eru
þessum kvilla, sent blaðinu.
Forn-Egyptar og Indverjar
beittu þeirri aðferð gegn sumum
húðsjúkdómum, að þeir létu
sjúklingana neyta dufts úr jurt,
sem óx i löndum þeirra, og fara
siöan I sólbað. Það er þessi
aðferð, sem húðsjúkdómalæknar
i Boston og Vin hafa endurnýjað.
Hin nýja læknismeðferð er fólgin I
notkun lyfs, sem nefnt er
methoxsalem og pressað er úr
egypzkri jurt, hinni sömu og
notuð var I fornöld, og óvenjulega
sterkri geislun með útfjólubláu
ljósi.
Læknarnir láta sjúklinga fyrst
taka inn methoxsalem-töflur, en
siöan eru þeir látnir I klefa á.
stærö við simaklefa, en veggir
hans eru þaktir sérstökum út-
fjólubláum geislapipum, fjörutiu
og átta að tölu. Þarna inni dvelst
sjúklingurinn i átta til þrjátiu
minútur.
Þar sem þessi lækningaaðferð
krefst bæði nákvæmni og sérstaks
tækjabúnaöar, er ekki búizt við
þvi að henni verði unnt að beita að
ráði fyrr en að ári liðnu. En þær
vonir, sem eru tengdar þessari
aðferð, eru byggöar á þvi, að
fimmtlu sjúklingar I Boston og
þrjátiu og fimm i Vin losnuðu viö
sjúkdómseinkenni eftir aö hafa
veriðmeöhöndlaðir á þennan hátt
i tólf skipti.
nordíHende
full af
tækninýiungum
Skipholti 19 — Sími 23-800