Tíminn - 04.03.1975, Side 11
Þriðjudagur 4. marz 1975
TÍMINN
n
„ÞAÐ KEMUR EKKERT
ANNAÐ TIL GREINA
— nema íslandsmeistaratitillinn",
segir Karl Benediktsson
„ÞAÐ kemur ekkert annað til
greina hjá strákunum en að
vinna titilinn”, sagði þjálfari
Vikingsliðsins, Karl Bene-
diktsson, eftir að Víkingar
höfðu lagt ÍR-inga að velli. —
„Tækifærið er nú fyrir hendi,
og þetta á að takast hjá okkur,
ef taugaspennan verður ekki
of mikil. Strákarnir leika góð-
an varnarleik.og markt'arzlan
er góð. Það á aðduga gegn Val
og FH”.
Vfkingur á eftir tvo leiki —
gegn FH 9. marz og Vals-
mönnum 12. marz. Valur, sem
er eina liðið sem getur ógnað
Víkingi, á eftir tvo leiki —
gegn Vfkingi og FH.
— SOS
„Ég hélt að þetta
væri ekki hægt"
— hrópaði Karl Benediktsson, þjólfari Víkings, þegar Viggó
Sigurðsson skoraði sigurmarkið gegn ÍR — 19:18
SIGURGEIR
í MARKIÐ
— fyrir Ragnar
Gunnarsson,
sem er
meiddur
Vfkingsmarkvörðurinn Sigur-
geri Sigurðsson mun taka
stöðu Ragnars Gunnrssonar
úr Armanni i landsliðinu gegn
Tékkum i Laugardalshöllinni i
kvöld. Ragnar getur ekki tekiö
þátt i ieiknum þar sem hann er
ekki búinn að ná sér eftir
meiðsii, sem hann hiaut á
hendi á knattspyrnuæfingu hjá
Armanni.
Landsliðið, sem leikur gegn
Tékkum i Laugardalshöllinni i
kvöld, verður þvi skipað þess-
um leikmönnum: Ólafur
Benediktsson, Val, og Sigur-
geir Sigurðsson. Aðrir leik-
menn: Einar Magnússon, Vfk-
ingi, Stefán Halldórsson, Vík-
ingi, Björgvin Björgvinsson,
Fram, Ólafur Jónsson, Val,
Viðar Simonarson, FH, Páll
Björgvinsson, Vikingi, Pétur
Jóhannsson, Fram, Bjarni
Jónsson, brótti, Ólafur
Einarsson, FH og Hörður Sig-
marsson, Haukum.
Leikurinn í kvöld hefst kl.
20.30, og hefst forsala að-
göngumiða kl. 17.00 — SOS
w'
W 77
as
~ fbúð □ ð vorðmæti
kt.4
t O KnuMlk-ArtOlA # I BfYKJAVfK
. ....... !>...■» ■■'.•’ t •»»*►
—■“?--------------—“
% '? , a . .
'"'"jíir,
MUNIÐ
ibúðarhappdrætti H.S.i.
2ja herb. ibúð að
verðmæti kr. 3.500.000.-
Verð miða kr. 250.
SIGURGEIR SIGURÐSSON.
„ÉG hélt að þetta væri ekki
hægt”, hrópaði Karl Benedikts-
son, þjálfari Vikingsliösins, þegar
Viggó Sigurðsson var búinn að
skora sigurmarkið gegn 1R, að-
eins 4 sek. fyrir leikslok. Staðan
var 18:18, þegar Viggó fékk knött-
inn fyrir utan punktalinu — hann
fann smugu i IR-vörninni, kastaöi
sér á milli tveggja varnarmanna
og skoraði sigurmark Vikings —
19:18. Stuttu siöar kallaði klukk-
an, og gifUrleg fagnaðarlæti brut-
ust út I hcrbúðum Vikinga, sem
halda nú um islandsmeistaratitil-
inn.
Viggó Sigurösson var hetja Vik-
ingsliðsins, hann skoraði 5 góð
mörk i leiknum, mörk, sem
tryggðu Víkingum sigurinn. Leik-
ur liðanna var mjög jafn til að
byrja með, og var staðan jöfn
framan af (11:11). Þá tóku Vík-
ingar sprett og skoruðu tvö mörk
(13:11), og þegar 12 min. voru til
leiksloka, voru þeir búnir að ná
þriggja marka forskoti, 15:12, og
sfðan 17:14. IR-ingar gáfust ekki
upp og jöfnuðu(18:18), þegar rúm.
min. var til leiksloka. En siðan
kom markið frá Viggó, sem
tryggði Vikingi sigur.
Það var enginn meistarabragur
á leik Vikings-liðsins, og stafaði
það af þvi, að IR-ingar tóku þá
Einar Magnússon og Pál Björg-
vinsson úr umferð i siðari hálf-
leik. Viggó Sigurðsson fór þá að
leika aðalhlutverkið hjá Vikingi,
og skoraði hann 5 mörk í siðari
hálfleik. Hann og Sigurgeir Sig-
urðsson, markvörður Vikings,
voru beztu menn liðsins. .
Mikil taugaspenna rikti i her-
búðum IR-liðsins og i byrjun
klúðruðu leikmenn liðsins þremur
hraðupphlaupum og nokkrum
sóknarlotum á klaufalegan hátt.
Beztu menn liðsins voru þeir
Gunnlaugur Hjálmarsson og Vil-
hjálmur Sigurgeirsson.sem sýndi
öryggi I vitaköstum.
Mörkin i leiknum skoruðu: Vik-
ingur: Viggó 5, Stefán 4 (4 viti),
Þorbergur 3, Sigfús 2, Skarphéð-
inn 2, Einar, Magnús og Páll eitt
hvor. ÍR: Vilhjálmur 8 (5 vfti),
Gunnlaugur 3, Guðjón 3, Ágúst 2,
Brynjólfur og Asgeir eitt hvor.
—SOS
Seigir eru
Ármenningar
Fóir dttu von á sigri þeirra gegn FH
VIGGÓ SIGURÐSSON.
FLESTIR höfðu talið FH-inga
sigurstranglegri i leiknum gegn
Armanni í fþróttahúsinu i Hafn-
arfirði á sunnudagskvöldið, eink-
um vegna þess, að landsliös-
markvörðurinn snjalli, Ragnar
Gunnarsson, gat ekki leikið með
Ármannsliðinu vegna meiðsla.
En margt fer öðru visi en ætlað
er. Ármenningar voru seigir, og
þeir voru staðráðiir i að selja sig
STAÐAN
Staöan er nú þessi i 1. deildar
kcppninni i handknattleik:
Víkingur..... 12 9 1 2 246:207 19
Valur........ 12 8 0 4 240:206 16
FH.......... 12 7 0 5 252:235 14
Ármann....... 12 7 0 5 206:213 14
Fram......... 13 6 2 5 244:246 14
Haukar....... 12 6 0 6 234:222 12
Grótta....... 13 2 2 9 254:308 6
ÍR.......... 12 1 1 10 215:254 3
Markhæstu menn:
Hörður Sigmarss. Hauk .. 110 (38)
Björn Péturss. Gróttu....86 (30)
Pálmi Pálmason, Fram ... 61 (19)
Einar Magnúss., Vikingi .. 59 (15)
Ólafur Jónsson, Val.......56 (0)
Halidór Kristj., Gróttu...52 (3)
Stefán Halldórss., Vikingi . 50 (19)
FRAMARAR VORU
AUÐVELD BRÁÐ
Valsmenn ndðu 10 marka forskoti í leiknum(20:l0), sem
lauk síðan með 22:18
Reykjavikurmcistarar Fram
voru auðveld bráð fyrir Vals-
menn, og Framliðið fór ekki i
gang fyrr en rétt fyrir leikslok.
En þá var það orðið of seint, þvi
að Valsmenn voru búnir að ná 10
marka forskoti. Þegar Framar-
arnir tóku við sér, sýndu þeir
stórgóðan handknattleik og náðu
að minnka muninn i 22:18 á sfð-
ustu 10 mfn. ieiksins. Páimi
Pálmason var drýgstur hjá
Fram-Iiðinu, hann skoraði 8
mörk.
Guðjón Magnússon, Ólafur
Jónsson og Gisli Blöndal léku
aðalhlutverkin hjá Val, sem
komst i 5:0 i byrjun leiksins, og
þegar fyrri hálfleik lauk, var
staðan 14:8 fyrir Val. Siðan kom-
ust Valsmenn i 20:10, og þá slök-
uðu þeir á, enda öruggur sigur i
höfn. Framarar léku á sama tima
góðan handknattleik.
Mörkin i leiknum skoruðu: Val-
ur — Guðjón 5, Gisli 4, Ólafur 4,
Gunnsteinn 2, Jón Pétur 2, Stein-
dór 2, Agúst, Stefán og Jóhann
Ingi eitt hver. Fram — Pálmi 8,
Stefán 4, Arnar 3, Sveinn, Sigur-
bergur og Arni eitt hver.
eins dýrt og mögulegt væri. Þeim
tókst lika að brjóta niður FH-liðið
og vinna sætan sigur — 19:18.
Skafti Halldórsson tók við hlut-
verki Ragnars og stóð sig mjög
vel I leiknum, varði hvað eftir
annað glæsilega. Lykilmenn að
sigri Armanns voru ungu leik-
mennirnir Pétur Ingólfsson og
Jens Jensson, ásamt Herði Harð-
arsyni. Það var Pétur, sem skor-
aði sigurmark Ármanns, rétt
fyrir leikslok, eftir að Ólafi
Einarssyni hafði mistekizt vita-
kast. Með þessum sigri Armanns
eru FH-ingar búnir að missa af
lestinni I baráttunni um meist-
aratitilinn i ár.
Mörkin i leiknum skoruðu: Ar-
mann: Hörður H. 7 (5 vfti), Jens
4, Björn 2, Pétur 2, Jón 2, Hörður
K. og Kristinn eitt hvor. FH: Þór-
arinn 5 (2 viti), ólafur 3 (1 viti),
Guðmundur 2, Arni 2, Gunnar 2 (1
vfti), Geir 2, Jón Gestur og Viðar
eitt hvor.
—B.R.
ÞROTTARAR A TOPPINN
Þróttarar hafa nú tekið forust-
una i 2. deildar keppninni i hand-
knattleik eftir að liafa sigrað
Keflavik .26:16. KA frá Akureyri
fylgir Þrótturum fast á eftir —
KA sigraði Þór 25:23 um helgina.
Staða efstu liðanna i 2. deild er nú
þessi:
Þróttur.....11 9 1 1
KA 12 9 12
KR.......... 12 9 0 3
Þór ....... 12 6 0 6
276:195 19
276:222 19
258:228 18
234:228 12
Baráttan verður á milli Þróttar
og KA, og eru Þróttarar sigur-
stranglegri.
Hörður setti nýtt
markamet
Slær hann gamalt
met Ingdlfs frd 1954?
LANDSLIÐSMAÐURINN örv-
henti úr Haukum, Hörður Sig-
marsson, sló markamet Axels
Axelssonar (106 mörk) á sunnu-
dagskvöldið, þegar hann átti
snilldarleik gegn Gróttu. Hann
skoraði þá 14 mörk og er nú orð-
inn langmarkhæstur með 110
mörk. Iiörður á örugglega eftir að
bæta þetta nýja met vcrulega, þvi
að hann á eftir aö leika tvo leiki
með Hauka-Iiðinu i 1. deildar
keppninni — gegn Fram og Hauk-
um. Nú, þegar Hörður er búinn að
slá metið hans Axels (i stórum ,
sal), getur hann farið aö spreyta
sig á gamla metinu hans Ingólfs
Óskarssonaar (Ilitlum sal) — 122
mörk, sem hann skoraöi i Háloga-
landsbragganum gamla 1964.
Ingólfur skoraði þá þessi 122
mörk i aðeins 10 leikjum I 1. deild.
Haukar áttu aldrei i erfiðleik-
um með Gróttu, og þegar leikn-
um lauk, var staðan 29:19 fyrir
Hauka. Mörkin i leiknum, skor-
uðu: Haukar: Hörður 14 (5 viti),
Elias 6, Þorgeir 2, Frosti 2, Hilm-
ar 2, Ingimar 2 og Arnór eitt.
Grótta: Björn 10 (3 viti), Arni 3,
Atli 2, Halldór og Magnús eitt
hvor.
—BR/SOS.
HöRÐUR SIGMARSSON.