Tíminn - 06.03.1975, Síða 15
Fimmtudagur 6. marz 1975
TÍMINN
15
Q Skipbrot
bandið við skipbrotsmenn, og
ekki náðist I þá fyrr en um miðjan
dag í gær.
Eins og áður segir, yfirgáfu
skipverjar skipið um sjöleytið
vegna versnandi veðurs, og um
hádegisbilið i gær voru 12 vindstig
á þessum slóðum og snjókoma.
Eftir hádegi í gær voru menn
jafnvel farnir að óttast um björg-
unarsveitarmenn, en þeir höfðu
enga talstöð, og gátu þvi ekki
gefið upplýsingar um gang ferð-
arinnar. Um kl. 2.30 i gær kom
björgunarsveitin þar að sem
skipbrotsmenn höfðu hreiðrað um
sig I gúmmfbátnum á sandinum.
Var ákveðið að halda upp á
Ingólfshöfða og láta fyrirberast i
björgunarskýlinu i nótt. Talið er
þó, að einhverjir björgunarsveit-
armenn hafi reynt að brjótast til
byggða i gærkvöldi.
Eins og áður er frá greint, var
björgunarsveitiná niundatima að
brjótast um 15 km leið yfir sand-
ana, og að sögn Hálfdans Henrýs-
sonar var ástæðan fyrir þessari
erfiðu ferð eingöngu aftakaveður
og ófærð. Sagði hann, að björg-
unarsveitarmenn hefðu orðið að
fara svokallaða vestari leið; sem
talin er vera um 5 km lengri en
sú, sem stytzt er.
Liklegt er, að skipbrotsmenn
hafi ekki viljað yfirgefa staðinn
vegna þess að veðrið var að
ganga niður, með það i huga, að
varðskipið reyndi að ná ísleifi á
flot i dag.
Að sögn Hálfdáns hefur komið
til tals að senda björgunarsveit-
armönnum og skipbrotsmönnum
talstöðvarbil frá Hornafirði,
hyggi þeir á langdvöl á Höfðan-
um.
Við spurðum Hálfdán, hvort
þeir hefðu verið farnir að óttast
um björgunarsveitina.
— Nei, það held ég varla, —
þetta eru kjarnorkumenn og eng-
in ástæða til að óttast um þá. Hins
vegar var veðurofsinn slikur, að
ferðin var mjög erfið og löng.
— Er ekki sjaldgæft, að björg-
unarsveitir ykkar hafi ekki tal-
stöðvar?
— Jú, vissulega, en ég get upp-
lýst, að það verður bætt úr tal-
stöðvarkostinum strax, og það
munu ekki liða margir dagar þar
til þeir hafa fengið talstöð i hend-
ur.
Að sögn Gunnars Ólafssonar
hjá Landhelgisgæzlunni hafði
ekki verið rætt um það i gær,
hvort reynt yrði að ná Isleifi á
flot.
Félagsmálaskóli
Framsóknarflokksins
Marz-námskeið
i fundarsköpum og ræðumennsku og stjórnmálum.
1. Laugardaginn 8. marz kl. 1.30.
Setning.
erindi: Fundarreglur og félagsstörf leiðbein-
andi.
kl. 4.30 erindi: Atvinnuvegirnir og efnahags-
lifið. Tómas Árnason alþingismaður.
2. Sunnudaginn 9. marz kl. 1.30
erindi: Flokksstarfið og skipulag Framsókn-
arflokksins. Þráinn Valdimarsson fram-
kvæmdastj.
kl. 4.30 erindi: Ræðumennska og málflutn-
ingur leiðbeinandi, málfundaræfing.
3. briðjudaginn 11. marz kl. 8.00
málfundaræfing.
4. Miðvikudaginn 12. marz kl. 8.00
erindi: Almenningur og skrifstofubáknið.
Vilhjálmur Hjálmarsson ráðherra.
5. Fimmtudaginn 13. marz kl. 8.00
málfundaræfing.
6. Laugardaginn 15. marz kl. 1.30
erindi: Þingflokkurinn og þingstörf. Þórar-
inn Þórarinsson alþingismaður
kl. 4.30 erindi: Framsóknarstefnan leiðbein-
andi.
7. Sunnudaginn 16. marz kl. 1.30
hringborðsumræður: Stjórnarsamstarfið og
stjórnmálaviðhorfin. Fyrir svörum verða:
Ólafur Jóhannessen Einar Ágústsson Halldór
E. Sigurðsson, Steingrimur Hermannsson.
Eftir hvert erindi verða frjálsar umræður og
fyrirspurnir. Leiðneinandi verður Jón
Sigurðsson. Námskeiðið verður haldið i húsa-
kynnum Framsóknarflokksins að Rauðarár-
stig 18 Reykjavik. Frekari upplýsingar eru
gefnar á skrifstofu flokksins þar, simi: 24480.
Tillaga um nýtt aðalskipulag
Reykjavíkurflugvallar
V,
iiW
yii
B.
Skíðaferð um páskana
FUF i Reykjavik hyggst standa fyrir skiðaferð til Húsavikur um
páskana, ef nægileg þátttaka fæst. Verði verður stillt i hóf.
Upplýsingar á skrifstofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18.
Ferðanefnd FUF.
Félag
framsóknar
kvenna
í Reykjavík
Fundur verður að Hallveigarstöðum fimmtudaginn 6. marzji.k.
Fundarefni: Sigriður Thorlacius form. Kvenfélagasambands ís-
lands flytur erindi: Hugleiðingar i tilefni af kvennaárinu og
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir bæjarfulltrúi i Hafnarfirði segir
frá Alþingi. Freyjukonur og Hörpukonur eru velkomnar á fund-
inn. Stjórnin.
Góufagnaður
FUF i Reykjavik heldur góufagnað föstudaginn 7. marz i félags-
heimili Fóstbræðra við Langholtsveg. Húsið opnað kl. 20.00.
Dans og miðnæturbingó.
Aðgöngumiðar afhentir á skrifstofu Framsóknarflokksins,
Rauðarárstig 18.
Félagar fjölmennið og takið með ykkur gesti.
Skemmtinefnd FUF.
Borgarnes og
nógrenni
Framsóknarvist verður spiluð i samkomuhúsi Borgarness föstu-
dagskvöldið 7. marz kl. 9 siðd. Siðasta kvöid þriggja kvölda
keppni.
Halldór E. Sigurðsson flytur ávarp.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Framsóknarfélagið.
Skaftfellingar
Þórarinn Sigurjónsson alþingismaður verður til viðtals laugar-
daginn 8. marz i félagsheimilinu Leirskálum, Vik i Mýrdai kl 14
^ tii 16. ____________________________________________ j
Hafnfirðingar og nógrenni
Gsal-Reykja vik — Flugmála-
stjóri boðaði fréttamenn á sinn
fund I gær og þar voru þeim
kynntar hugmyndir flugmáia-
stjórnar um nýtt aðalskipulag
Reykjavlkurflugvallar. Finnskur
verkfræðingur, Bertel Hellman,
að nafni, sérfræðingur I flugvall-
annálum hefur dvalizt hér á landi
við og við síðastliðin 10 ár, flug-
málastjórnarmönnum til aðstoð-
ar við mótun framtíðaráætlana
um Reykja vikurflugvöll. Nú
hefur verið kortlögð tillaga um
aðalskipulag flugvallarins, og
voru flugmálastjórnarmenn á eitt
sáttir um hagkvæmni tillögunn-
ar. A myndunum, sem hér fylgja,
má sjá breytingarnar á skipulag-
inu, samkvæmt tillögunni.
Agnar Koefod-Hansen flug-
málastjóri sagði, að Reykja-
vfkurflugvöllur væri að sjálf-
sögðu háður aðalskipulagi borg-
arinnar og þvi yrði það borgar-
yfirvalda að taka endanlega á-
kvörðun. Hins vegar sagði hann,
að það yrði þó sennilega gert i
samráði við flugmálastjórn. Agn-
ar tók það fram, að þótt búið væri
að kortleggja þessa tillögu um
nýtt skipulag, þá hefði flugmála-
stjórn ekki sett fram neina end-
anlega tillögu. Hins vegar mætti
gera ráð fyrir þvi, að borgar-
stjórn yrði send tillaga um aðal-
skipulag i vor.
Agnar sagði, að Reykjavikur-
flugvöllur yrði nákvæmlega jafn
lengi á þeim stað er hann væri nú,
og borgaryfirvöld óskuðu þess.
Kvað hann mikið hafa verið um
það rætt að færa allt flug til
Keflavikurflugvallar, en það væri
samdóma álit manna, að það væri
ekki framkvæmanlegt. '
Það kom fram á fundinum, að
flugmálastjórn telur fjárveitingu
til flugmála mun minni en nauð-
synlegt væri, og sagði flugmála-
stjóri, að til flugmála i ár yrði
varið rúmum 200 millj. króna og
væri það til allra framkvæmda.
Þá kom og fram að 70—80% af
þeirri fjárhæð yrði varið til
beinna öryggismála.
A efri myndinni má sjá framkomna hugmynd flugmálastjórnar um
nýtt skipulag Reykjavikurflugvallar, en hin myndin sýnir skipulagið
eins og það er nú. Þess skal getið, að allir hæöarpunktar eru ýktir.
Framsóknarvist verður haldin fimmtudaginn 13. marz kl. 20:30 i
Iðnaðarmannahúsinu. Þetta verður þriggja kvölda keppni.
Veitingar og góðir vinningar.
FUF Hafnarfirði.
Austur-
Skaftafellssýsla
Arshátið Framsóknarfélags Austur-Skaftfellinga verður haldin
að Hótel Höfn, Hornafirði, laugardaginn 8. marz kl. 20.00. Avörp
flytja: Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráðherra og
Halldór Asgrimsson alþingismaður. Þátttaka tilkynnist i sima
8265 og 8253.
Hveragerði — Ölfus
Aðalfundur Framsóknarfélags Hveragerðis og Olfuss verður
haldinn i Hótel Hveragerði föstudaginn 7. marz kl. 20:30.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Halldór Asgrimsson al-
þingismaður mætir á fundinum. Stjórnin.
Fræðslufundur Fuglaverndar-
félagsins
NÆSTI fræðslufundur Fugla-
verndarfélags islands verður i
Norræna luisinu fimmtudaginn
13. marz kl. 8.30 e.h.
Arnþór Garðarsson. prófesor i
náttúrufræði við liffræðideild Há-
skóla Islands. flytur fyrirlestur
með litskuggamyndum, sem
hann nefnir: Votlendi og vot-
lendisfuglar á lslandi.