Tíminn - 08.04.1975, Page 4
4
TÍMINN
Þriðjudagur 8. apríl 1975.
I '
Nýjar gerðir
Moskvits jbifreiða
Bifreiðaverksmiðiurnar, sem
framleiða Moskvitsjbifreiðir,
hafa lokið undirbúningi að
framleiðslu nýrra gerða smá-
bila: M-2138 og M-2140. Hér er
um að ræða alveg nýjar gerðir,
þar sem tæknibúnaður þeirra er
mun betri heldur en i hinum vin-
sælu Moskvitsj 408 og 412, en
sovézkir kappakstursmenn hafa
unnið marga kappaksturs-
keppni á þeim bilum, s.s. Lond-
on-Sidneykappaksturinn, Lond-
on-Mexikö og Evrópukeppnina
1974.
I hinum nýju gerðum af
Moskvitsj verður endurbætt
vél, sem gerir það kleift að ná
150 km hraða á klukkustund. Á
hún að þola 150 þús. km akstur
án meiriháttar viðgerðar. Þótt
hin nýja vél sé talsvert aflmeiri
(82 hestöfl) og endingarbetri, er
eldsneytisneyzlan hin sama, 7
litrar á 100 km.
Hinir nýju Moskvitsj bilar eru
einnig glæsilegir að útiliti og að
innanverðu. Baksætið er orðið
rýmra, og bilið milli afturhjól-
anna hefur verið aukið, en við
þaö verður billinn stöðugri á
vegi.
Auk M-2138 og M-2140 munu
verksmiöjurnar framleiða
Kombigerðir þeirra fyrir hægri-
handar akstur, sem ætlaðer eru
til útflutnings, jeppa og fl. gerð-
ir bifreiða.
Kunnuglegur
Kínverjí
Þessi skáeygði, sallafini náungi
er enginn annar en Peter
Ustinov i hlutverki kinversks
njósnara á Vesturlöndum. Usti-
nov leikur Kinverjann i kvik-
mynd, sem heitir Einn dinósár-
usanna okkar er týndur, og
fjallar um hóp ská njósnara, og
er Ustinov foringi þeirra. Þetta
er að sjálfsögðu gamanmynd.
Leikarinn segir, að það sé mikill
kostu að vera Kinverji, sérstak-
lega á morgnana, þegar maður
er að vakna, þá þarf maður ekki
að galopna augun.
Steingerð
sandeðla
Viö boranir i sifrera á eyjunni
Kolgujev i Barentshafi hefur
fundizt vel varðveitt steingerð
sandeðla sem lifað hefur fyrir
200 milljónum ára. Eðlan fannst
á 1114 metra dýpi, og þessi 1C
sentimetra langi steingervingur
koma heill upp i borkjarnanum.
Þessi fundur hefur glatt stein-
gervingafræðinga Sovétrikj-
anna mjög, vegna þess að
hingað til hafa aðeins fundizt
steingerð brot af þessari sand-
eðlutegund, en steingervingur
heils dýrs hefur ekki fundizt
fyrr.
— Att þú ekki viö vandamál ab
striða sem þú þarft að ræöa viö
mig, bróöir?
— Þaö er dauðaþögn þarna
inni. Eruö þér viss um aö þér
hafiö verið lifandi er þér komuö
inn?
DENNI
DÆMALAUSI
Viljið þiö heyra alveg nýja
ástæðu fyrir þvi, að ég borða
ekki gulrætur?