Tíminn - 08.04.1975, Page 5

Tíminn - 08.04.1975, Page 5
Þriðjudagur 8. apríl 1975. TÍMINN 5 Iðnaðarmenn hjá KÁ löaðu niður vinnu Gsal—Reykjavik. — Allir iðnaðarmenn Kaupféiags Arnes- inga á Selfossi, að undanskildum rafvirkjum, lögðu niður vinnu á fimmtudagsmorgun I mótmæla- skyni við ákvörðun Odds Sigurbergssonar kaupfélags- stjóra, sem sendi Koibeini Guðnasyni, einum elzta starfs- manni fyrirtækisins, uppsagnar- bréf. Siðan hefur öll vinna legið niðri I kaupfélagssmiðjunum en alls taka þátt i þessu skyndiverk- falli um 60 starfsmenn K.A. Starfsmennirnir hafa hótað að hefja ekki störf aftur, fyrr en Kol- beinn Guðnason verði ráðinn aft- ur til starfa. Kaupfélagsstjórinn segir hins vegar, að það verði ekki gert. Ýmsar ástæður virðast liggja að baki skyndiverkfallinu, eins og fram kemur hér sfðar i fréttinni. Kaupfélagsstjórnin á eftir að taka afstöðu i málinu, en Timinn hefur það eftir einum starfs- manni K.A., að fari svo, að stjórnin styðji kaupfélagsstjór- ann i máli þessu, muni allir starfsmenn kaupfélagssmiðjanna segja upp störfum hjá kaupfélag- inu. Óhægt er um vik að segja til um lausn þessa máls, enda hefur heyrzt að mikil stifni riki nú á báða bóga. Þá hefur heyrzt, að þeir iðnaðarmenn K.A., sem ekki eru I verkfalli, þ.e. rafvirkjarnir, ihugi að feta i fótspor annarra iðnaðarmanna kaupfélagsins og leggja niður vinnu. Ég skrifaði bréf, og fékk uppsagnarbréf á móti — Ég skrifaði kaupfélags- stjóranum bréf út af ráðstöfun, sem gerð var fyrir hans atbeina. Ég skrifaði honum þetta bréf bæði sem starfsmaður fyrirtækis- ins, og ekki siður sen félagsmaður i Kaupfélagi Árnesinga. I bréfi þessu mótmælti ég ráðstöfun hans, sem ég taldi óréttláta, og það varð til þess að hann skrifaði mér uppsagnarbréf. Þannig mælti Kolbeinn Guðna- son, bifvélavirki á Selfossi, er Tíminn er peningar Timinn hafði tal af honum, en Kolbeinn er einmitt maðurinn, sem styrinn stendur að mestu leyti um, — að minnsta kosti á yfirborðinu. Kolbeinn kvaðst vera ófús til að tjá sig um áöurnefnda ráðstöfun, en sagði, að hún hefði bæði varðað vinnutilhögun og kjör hans og samstarfsmanna hans — sem starfsmanni likaði mér ekki þessi ráðstöfun, og jafnvel ennþá verr sem félagsmanni, — ég er algjör- lega mótfallinn þvi að fyrirtækið beiti ráðstöfunum, á borð við þá sem þarna var um að ræða. i — Svarið við þessu bréfi minu var hrein uppsögn, þrátt fyrir þá staðreynd, að ég hef unnið hjá fyrirtækinu um tæplega 35 ára skeið. Kolbeinn sagði, að vinnufélög- um hans hefði þótt þetta svo ósanngjarnt, að þeir hefðu lagt niður vinnu til að mótmæla upp- sögninni. Kærðum okkur ekki um að hafa manninn lengur — Þeir sitja bara úti og sleikja sólskinið, sagði Oddur Sigur- bergsson, kaupfélagsstjóri K.A. á Selfossi, þegarTiminn hafði tal af honum á föstudag, vegna skyndi- verkfalls starfsmanna kaup- félagssmiöjanna. Oddur kvað ástæðuna fyrir þvi, að manninum hefði verið sagt upp störfum hjá fyrirtækinu, einfald- lega vera þá, að þeir hefðu ekki kært sig um að hafa hann lengur. Sagði hann, að manninum hefði verið sagt upp með löglegum fyrirvara, og það hefði verið allt og sumt, sem gerðist. — Upp úr klukkan átta i gær- morgun kom sendiboði frá starfs- mönnunum til min, þerra erinda aö tilkynna mér að ef hann kæmi ekki með skriflega yfirlýsingu frá mér um það, að uppsögnin yrði dregin til baka, — þá myndi allur hópurinn leggja niður vinnu og ekki hefja störf aftur fyrr en mað- urinn hefði verið endurráðinn. Við inntum kaupfélagsstjóra eftir þvi, hvort komið hefði til álita að draga uppsögnina til baka. — Ég geri ráð fyrir þvi, að þaö geti dregizt. Meðan þessir menn eru ekki kjörnir sem löglegir stjórnendur fyrirtækisins á aðal- fundi verður það vart gert, sagði Oddur Sigurbergsson. Menntamálaráðuneytið, 2. april 1975. Námskeið í finnskri tungu og menningu Sumariö 1975 veröa haldin i Finnlandi nokkur nám- skeiö i finnskri tungu og um finnska menningu.Nokkur námskeiðanna eru sérstaklega ætluö þátttakendum frá hinum Norðurlandarikjunum en önnur einnig ætluð þátttakendum frá fleiri löndum. Námskeiðin eru ýmist ætluö fyrir byrjendur eða þá, sem áöur hafa lagt stund á finnska tungu. Þá er sérstakt námskeið ætlað nor- rænum bókasafnsfræðingum. Allar nánari upplýsingar um framangreind námskeið fást i menntamálaráöuúeytinu, Hverfisgötu 6, Reykja- vik. — Umsóknir um þátttöku þurfa að hafa borizt fyrir 30. aprll n.k. Við stöndum saman allir sem einn — Þessar aðgerðir, sem nú standa yfir, eiga sér langan að- draganda, en uppsögn Kolbeins varð til þess, að upp úr sauð, sagði Halldór Hafsteinsson, bila- málari, einn þeirra starfsmanna K.A. sem lagt hafa niður vinnu. Halldór kvaðst hafa byrjað vinnu hjá K.A. fyrir réttum fimm árum, og að á þeim tima hefði gengið á ýmsu. — Þegar ég var ráðinn, réð ég mig að sjálfsögðu upp á umsamin kjör. Meðal annars var um að ræða ákvæði um það, að kaup- félagið leyfði starfsmönnum sin- um að vinna á verkstæðinu fyrir hádegi á laugardögum, að sinum eigin bilum. Umrædd ráðstöfun Odds fól i sér, að þessu ákvæði var kippt út úr samningum. Halldór kvaðst lita svo á, að þessi ráðstöfun, fæli I sér beina kjaraskerðingu, fyrir starfsmenn verkstæðisins, þvi að nú væri ekki um annan kost að ræða en að fara með bilana inn á viðgerðar- verkstæði Kaupfélagsins og greiða fullt verð fyrir það verk, sem þar væri unnið. — Við stöndum fast á þvi að hefja ekki vinnu fyrr en Kolbeinn hefur verið ráðinn aftur og við stöndum saman allir sem einn. Ef með þarf segjum við upp störfum. Halldór nefndi, að þeir væru nýfluttir i nýtt húsnæði, þar sem allir ynnu undir sama þaki, en svo hefði ekki verið áður. Aður fyrr heföi aldrei náðst nein samstaða meðal starfsmannanna, en á þvi hefði orðið gjörbreyting, þegar i nýja húsnæðið kom. Jeppddekk VERÐTILBOD fil l.mai 7 fveim #/af fjórum dekkjum 5y af tveim mfLV ' dekkjum IV' TEKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ A ISLANDI H/E AUÐBREKKU 44-46 S/MI 42606 Garðahreppur: Hjólbarðavorkstæðið Nybardi Akureyri: Skoda vorkstæðið a Akureyri h.f. Osoyri 8 Egilsstaðir: Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar Er gólfkuldi á neðstu hæðinni? Má spara hita- kostnað með nýrri einangrun? Þér fáið svar við hinum ýmsu spurningum varðandi einangrunarvandamál hjá sér- fræðingum Superfos Glasuld a/s, sem taka á móti gestum á sýningunni hjá Arkitekta- þjónustu A.Í., Grensásvegi 11, Reykjavík: OPIÐ HÚS MIÐVIKUDAGINN 9. APRÍL og FIMMTUDAGINN 10. APRÍL KL. 13-15 M Superfos Glasuld Nalhan & Olsen hf

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.