Tíminn - 08.04.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 08.04.1975, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 8. apríl 1975. TÍMINN 13 Framsóknarfélag Húsavíkur: Tekin verði upp að nýju stefna fyrri stjórnar í byggðamólum — ella neyðist fjöldi fólks til þess að ja til Suðvesturlands flytji „Stjórn og fulltrúaráð Framsóknarfélags Húsavíkur varar við þeirri stefnu núverandi rikisstjórnar, að efla mjög fram- kvæmdir og stofna til geysi mikilla fjárfestinga við suð-vest- urhiuta landsins og við Faxaflóa, jafnframt þvi, sem naumt er skammtað til allra framkvæmda annars staðar á landinu.” Þannig er að orði komizt i ' ályktun, sem samþykkt var samhljóða á fundi stjórnar og fulltrúaráðs Framsóknarfélags Húsavikur fyrir skömmu. f ályktuninni segir ennfremur: „Veittir eru miklir fjármunir til hafnargerða i Þorlákshöfn og Grindavik. Stöðugt er fram haldiðgerð mikilla raforkuvera á Suðurlandi og raforka frá þeim einkum notuð og ætluð fyrir stór- iðjuver á Suðvesturlandi. Fyrir- huguð er málblendiverksmiðja við Hvalfjörð og hafnargerð þar, brúargerð yfir Borgarfjörð og miklar framkvæmdir á Miðnes- heiði samkvæmt nýlega gerðum samningi við Bandarikjamenn um hérstöðina þar. I frumvarpi um efnahags- aðgerðir, sem rikisstjórnin lagði fram fyrir nokkrum dögum virðist vera gert ráð fyrir, að enn verði dregið úr fjárveitingum Auglýsið r I Tímanum RAFSTILLING rafvélaverkstæði DUGGUVOGI 19 Sími 8-49-91 Gerum við allt í rafkerfi bíla og stillum ganginn OLDHAM RAFGEYMAR Stignir TRAKTORAR Amerísk ÞRÍHJÓL Póstsendum LEIKFANGAHÚSIÐ Skólavörðustíg 10 Sími 1-48-06 viða um land, þótt stórfelldar framkvæmdir eigi að vera á Suðvesturlandi. Stefna þessi hlýtur að leiða til þess, að fjöldi fólks flytji frá flestum landshlutum til Suð- vesturlands,og mun hún þannig stöðva þá hagkvæmu þróun i byggðamálum, sem vinstri stjórnin kom á. Stjórn og fulltrúaráð Fram- sóknarfélags Húsavikur skorar þvi á alþingismenn Framsóknar- flokksins I Norðurlandskjördæmi eystra að beita sér af aleflii fyrir eftirfarandi: 1. að samningurinn við Banda- rikjamenn, um byggingu ibúðarhúsa o. fl. i herstöðinni á Miðnesheiði, verði ekki látinn koma til framkvæmda. 2. að frestað verði öllum fyrir- huguðum framkvæmdum við málmblendiverksmiðju i Hv:alfirði og hafnargerð i sam- bandi við hana. 3. að auk Kröfluvirkjunar verði hafizt handa við virkjun fall- vatna norðanlands og að komið verði upp iðjuverum á Norður- landi til að nýta raforkuna frá þeim virkjunum. 4. að tekin verði upp að nýju sú stefna fyrrverandi rikis- stjórnar undir forustu Ólafs Jóhannessonar, að efla byggð á Islandi utan Stór-Reykjavikur og Faxaflóasvæðisins.” *r z ^OPAjv 0 Efni í skemmu Kauptilboð oskast i bárujárnsklæðningu, timburglugga og timburbita á 400 fermetra húsi, ásamt vinnupöllum, I þvi ástandi sem það nú er (skemmt af bruna) á norðanverðri lóð Landspitalans I Reykjavlk. Stálgrind hússins fylgir ekki I kaupum. Húsiö verður til sýnis miðvikudaginn 9. aprll n.k. kl. 2-5 e.h. og verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum. Tilboð verða opnuð á skrifstofu vorri föstudaginn 11. april 1975 kl. 11:30 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 Frá Landssambandi framhaldsskóla- kennara Umsóknir um vikudvöl i húsum LSFK i Munaöarnesi i sumar sendist skrifstofu samtakanna fyrir 20. april n.k. Nánari uppl. i sima 12259 frá kl. 15.30 — 18.30. Orlofsheimilanefnd LSFK. Sparið þúsundir ! VORUBIFREIÐA U |Á| mÍDIIJID njULPMnunn VERBTILBOÐ! STÆRÐ: 825-20/12 Kr. 22.470 825-20/14 26.850 900-20/14 ° 28.300 1000-20/14 34.210 1000-20/16 35.630 1100-20/14 35.900 1400-24/16 52.440 TEKKNESKA BIFRE/ÐAUMBOÐ/Ð Á ÍSLAND/ H/F AUÐBREKKU 44-46 SÍM/ 42606 Garðahreppur: Hjólbarðaverkstæöið Nýbarði Akureyri: Skoda verkstæðið ó Akureyri h.f. Óseyri 8 Egilsstaðir: Varahiutaverzlun Gunnars Gunnorssonar Auglýsíd iTlmanum FRAAASOKNARVIST OG ÐANS Þriðja og síðasta Framsóknarvistin af þriggja vista spilakvöldunum verður að Hótel Sögu fimmtudaginn 10. apríl Heildarverðlaun fyrir 3 kvoid: Spánarferð verða afhent um kvöldið Auk þess verða veitt góð kvöld verðlaun Húsið opnað kl. 20,00 Framsóknarfélag Reykjavikur Baldur Hólmgeirsson sf/órnar Ánægjuleg kvöldskemmtun fyrir alla fjölskylduna

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.