Tíminn - 08.04.1975, Side 17
Þriöjudagur 8. apríl 1975.
TÍMINN
17
Derby County
meistari?
Félagið stendur nú bezt að vígi í
bardttunni um Englandsmeistaratitilinn
DERBY COUNTY stendur nú bezt aö vlgi I baráttunni um Englands-
meistaratitilinn og má segja, aö Dave Mackay og strákarnir hans, séu
komnir meö aöra höndina á bikarinn. Derby á nú eftir aö leika fjóra
ieiki I 1. deildarkeppninni, þar af þrjá á heimavelli slnum Baseball
Ground. Everton, sem svo lengihefur haft forustuna I deildinni, á erfitt
prógram fyrir höndum —fjóra leiki og þar af þrjá á útivelli.
Nú er útséö, aö þaö veröa 5 liö meö 1 lokabaráttunni um Englands-
meistaratitilinn — Derby, Liverpool, Ipswich, Stoke, og Everton. Við
ætlum hér að sýna lesendum þá leiki, sem þessi félög eiga eftir að
leika:
LIVERPOOL (3)—Carlisle (H),Middlesborough (tJ) og Q.P.R. (H).
DERBY (4) — West Ham (H), Leicester (Ú), Carlisle (H) og Wolves
(H).
STOKE (3) — Sheffield United (Ú), Newcastle (H) og Burnley (Ú).
EVERTON (4)— Newcastle (Ú), Sheffield United (H), Chelsea (Ú)
og Luton (Ú).
IPSWICH (4) — Q.P.R. (H), Leeds (Ú), West Ham (H) og
Manchester City (Ú).
DAVE MACKAY framkvæmdastjóri Derby fær nafn sitt skráð í
ensku knattspyrnusöguna, ef honum tekst að gera Derby-liðið að
meisturum I ár. Menn muna enn eftir þvl, þegar hann stjórnaði Derby
til sigurs I 1. deild 1972 — þá fyrirliði liösins. En þá voru dagar hans
taldir sem knattspyrnumaöur og Tottenham lét þennan snjalla stjórn-
anda fara frá sér. Mackay hvarf slöan frá Derby — til Swindon. En nú
er hann kominn aftur á Baseball Ground og allt bendir til að hann
endurtaki afrekiö frá 1972.
inn i leik Chelsea-liðsins, hefur
svo sannarlega verið á skotskón-
um hjá nýja félaginu sinu, og það
sýndi hann gegn Newcastle —
hann kom Leicester á sporið, og
siðan bættu þeir Bob Lee og
Frank Worthington við mörkum,
áður en Garland innsiglaði stór-
sigurinn, með öðru marki.
TERRY CONROY, rauðhærði
Irinn hjá Stoke, hefur einnig verið
á skotskónum upp á siðkastið —
hann skoraði tvö mörk fyrir Stoke
gegn Chelsea. Conroyopnaði leik
liðanna, á Viktoriu-leikvellinum i
Stoke, með góðu skallamarki, og
siðan bætti fyrirliðinn, Jimmy
Greenhoff, við öðru marki.
Kórónan á leik Stoke-liðsins kom
svo tveimur min. fyrir leikslok,
þegar Conroy skoraði aftur, og
var þar með búinn að skora sitt 9.
mark i síðustu 5 leikjum Stoke.
DERBY var i sviðsljósinu, er
liðið náði jafntefli á útivelli —
Middlesborough. Leikmenn
Derby urðu þar fyrir þvi óhappi
að skora sjálfsmark, sem var nær
búið að kosta þá bæði stigin. En
þeir gáfust ekki upp við mótlætið,
og þegar Roger Baviessendi góða
sendingu á Kevin Hector, þá
þakkaði þessi marksækni leik-
maður fyrir sig og skoraði. Þar
með fóru leikmenn Derby með
eitt dýrmætt stig i pokahorninu
hjá Middlesborough og horfa þvi
björtum augum á framtiðina —
meistaratitilinn blasir nú við
þeim (sjá annars staðar á sið-
unni).
Q.P.R. sigraði Úlfana auðveld-
lega — 2:0 á heimavelli. Dave
Thomas og Don Givens skoruðu
mörk Q.P.R.
Heppnin var með leikmönnum
Manchester United, þegar þeir
mættu Dýrlingunum frá South-
ampton á The Dell I hafnarborg-
inni frægu á suðurströnd Eng-
lands. Stengurnar björguðu Unit-
ed og allir voru sammála um að
meistaraheppnin væri með Man-
chester-liðinu, þegar þeir sáu
landsliðsmanninn snjalla, Mike
Channon, misnota vitaspyrnu,
sem hefði fært Dýrlingunum
forustuna. Jafntefli blasti við,
þegar Skotinn Lou Macari gerði
út um leikinn og skoraði mark
fyrir United, þegar 14 min. voru
til leiksloka, og þar með var
MANCHESTER UNITEDbúið að
gulltryggja sig, og — tilkynnti
um leið komu sina aftur i 1. deild.
Nú er bara að sjá, hvaða tvö lið
fylgja liðinu upp i 1. deild, en
spennan er geysileg á toppnum i
2. deild.
VIC HALOM skoraði mark
Sunderland á Roker Park, þegar
„Fiskimennirnir” frá Hull komú
þangað i heimsókn.
MARKASKORARARNIR hjá
Norwich Phil Boyer og Te Mac-
Dougall, sendu knöttinn i netið
hjá Lundúnaliðinu Orient, sem
kom i heimsókn til Angeliu.
Bristol City vann góðan sigur á
útivelli, og City, ásamt Aston
Villa, Norwich og Sunderland,
berjast um þau tvö sæti, sem enn
eru laus i 1. deildinni.
STAÐAN
1. DEILD
Liverpool 39 18 11 10 55-37 47
Everton 38 15 17 6 51-36 47
Stoke 39 17 13 9 64-46 47
Derby 38 19 9 10 65-49 47
Ipswich 38 21 4 13 58-39 46
Middlesbro 38 16 12 10 51-37 44
Burnley 39 16 10 13 65-63 42
QPR 39 16 9 14 52-49 41
Sheff.Utd. 37 15 11 11 48-48 41
Leeds 38 14 12 12 50-42 40
Man.City 38 16 8 14 49-52 40
WestHam 38 12 13 13 55-52 37
Wolves 38 13 10 15 54-51 36
Newcastle 38 14 8 16 55-68 36
Coventry 38 10 15 13 48-57 35
Birmingh.. 38 13 8 17 50-55 34
Leicester 38 11 11 16 45-53 33
Arsenal 36 11 10 15 42-43 32
Chelsea 38 9 13 16 40-67 31
Tottenham 38 11 8 19 44-57 30
Carlisle 39 11 4 24 42-57 26
Luton 38 8 10 20 37-62 26
2. DEILD
Manch.Utd. 39 24 8 7 59-28 56
Sunderland 39 18 13 8 62-32 49
Aston Villa 36 19 8 9 59-31 46
Norwich 37 16 12 8 49-32 46
Bristol C. 38 19 8 11 43-28 46
Blackpool 39 14 17 8 38-25 45
WBA 37 16 9 13 48-38 41
Fulham 38 13 14 11 44-35 40
Hull 39 13 13 13 37-52 39
Oxford 38 14 10 14 38-48 38
Bolton 38 13 10 15 41-39 36
South’ton 38 13 10 15 47-50 36
Notts Co. 39 11 14 14 44-55 36
Orient 38 9 18 11 25-38 36
York 39 13 9 17 47-51 35
Portsmouth 39 12 11 16 41-48 35
Nottm.For. 39 11 13 15 41-51 35
Oldham 39 10 13 16 40-43 33
Bristol R. 39 12 9 18 38-58 33
Cardiff 37 9 13 15 33-52 31
Millvall 39 10 10 19 40-51 30
Sheff.Wed. 37 5 10 22 28-56 20
—hslm.
iBill Hodgson... sést hér á Kaplakrikavellinum I gærkvöldi. (Tlmamynd Gunnar)
KNATTSPYRNUPUNKTAR
Skozkur bjálfari
kominn til FH
SKOTINN Bill Hodgson verður
þjálfari FH-liðsins I sumar.
Hodgson, sem er þekktur knatt-
spyrnukappi á Bretlandseyjum,
kom til landsins sl. föstudag, og
tók hann þá strax við þjálfun ný-
Iiðanna I 1. dcild. Hann stjórnaði
fyrstu æfingunni á Kaplakrika-
vellinum á laugardaginn, og slð-
an aftur I gærkvöldi. Hodgson,
sem hóf sinn knattspyrnuferil hjá
skozka liðinu St. Johnston, lék
lengst af I Englaiuli, en þar lék
hann með Derby, Leicester, Shef-
field Wednesday, Rotherham og
York, þar sem hann var bæði
leikmaður og þjálfari samtimis.
Siðan hvarf hann aftur til Skot-
lands og útskrifaðist með mjög
góða einkunn frá skozka þjálfara-
sambandinu. Það verður gaman
að fylgjast með þvl, hvaða á-
rangri þessi snjalli Skoti nær með
nýliðana í sumar, en hann er ný-
liöi i Islenzkri knattspyrnu, eins
og landi hans Joe Gilroy, þjálfari
Valsliðsins.
TONY KNAPP hefur nú verið
endurráðinn þjálfari landsliðsins.
Knapp, sem náði góðum árangri
með liðið sl. keppnistimabil, hef-
ur einnig verið skipaður i lands-
liðsnefndina, ásamt Jens Sumar-
liðasyni og Arna Þorgrimssyni
frá Keflavik. Þeir eru nú þegar
byrjaðir að starfa, og fyrsta verk-
efni þeirra er að undirbúa lands-
liðið fyrir landsleikinn gegn
Frökkum i Evrópukeppni lands-
liöa, en hann fer fram á Laugar-
dalsvellinum 25. mai, og aðeins 6
dögum siðar leika A-Þjóðverjar
þar. Það verður þvi nóg að gera
hjá þremenningunum i landsliðs-
nefndinni á næstunni.
HARALDUR ERLENDSSON,
hinn snjalli leikmaður Breiða-
bliks, varð fyrir þvi óhappi að
nefbrotna i samstuði við leik-
★ Knapp verður
landsliðsþjálfari
★ Sigurganga
Eyjamanna
heldur áfram
★ Haraldur
Erlendsson
nefbrotinn
★ Gilroy fékk
óblíðar móttökur
ÖRN ÓSKARSSON . . . skorar
mark eða mörk f hverjum leik.
mann úr Haukum, þegar Blikarn-
ir léku gegn Hafnfirðingunum á
Kaplakrikavellinum á sunnudag-
inn I Litlu-bikarkeppninni. Hauk-
amir unnu mjög óvæntan sigur
(4:1) I þeim leik. Þór Hreiðarsson
opnaði leikinn og kom Blikunum
yfir, en Haukarnir gáfust ekki
upp og svöruðu með fjórum
mörkum — Loftur Eyjólfsson og
Steingrfmur Hálfdánarsonsin tvö
mörkin hvor.
EYJAMENN héldu sigurgöngu
sinni áfram á laugardaginn, en þá
kom JOEHOOLEYmeð strákana
sina I heimsókn til Eyja. Keflvik
ingar veittu Eyjamönnum mót-
spyrnu til að byrja með, en eftir
að örn óskarsson kom heima-
mönum á sporið — skoraði úr
vitaspyrnu, — var spurningin
ekki hvort liðið myndi vinna,
heldur hve mörg mörk Eyjamenn
myndu sköra. örn bætti öðru
márki við, og siðan skoraði
ólafur Sigurvinsson með skalla,
en hann er nú búinn að ná sér eftir
meiðslin lék sinn fyrsta heila leik
gegn Keflvikingum. Ekki skoruðu
Eyjamenn fleiri mörk, og lauk
leiknum þvi með sigri þeirra —
3:0. Snorri Rútssonvar rekinn af
leikvelli i leiknum, og léku Eyja-
menn þvi 10 um tima i síðari hálf-
leik.
JOE GILROY, þjálfari Vals,
fékk óbliðar móttökur uppi á
Skaga á laugardaginn, þegar
hann var að stjórna liði slnu i
meistarakeppni KSI. Eitt sinn,
þegar hann kom að hliðarlinunni
til að gefa sinum mönnum góð
ráð, réðst annar linuvörðurinn að
honum og sló á hendurnar á hon-
um með merkjaflagginu, — og
ekki nóg með það, heldur notaði
hann flaggið til að ýta i magann á
Gilroy. Þessi framkoma linu-
varðarins vakti athygli og furðu
manna, enda ekki á hverjum
degi, sem linuvörður notar
merkjaflaggið til að lumbra á
mönnum. Þessi framkoma linu-
varðarins við Gilroyer óafsakan-
leg með öllu, og jafnvel ósmekk-
leg. Ef linuverðir sjá eitthvað at-
hugavert við gagn leiksins, þá
eiga þeir að láta dómarann vita,
en ekki nota merkjafánann sem
barefli — hann er til þess að gefa
dómurum bendingar.
Vals-
menn
í ham
— lögðu Skaga-
menn að velli
VALSMENN byrjuðu keppnis-
timabilið meö þvi að leggja Is-
landsmeistarana frá Akranesi aö
velli I Meistarakeppni KSt.
Valsmenn, sem voru i miklum
INGI BJÖRN ALBERTSSON . . .
hefur tekið fram gömlu skot-
skóna.
ham, unnu sigur yfir Skagamönn-
um i fjörugum leik upp á Skaga —
2:1. Þeir byrjuöu leikinn af mikl-
um krafti og komust i 2:0 eftir
aöeins 13 min. Ingi Björn Alberts-
son, sem virðist nú vera búinn aö
taka fram gömlu skotskóna, átti
þátt i báöum mörkunum. Fyrst
einlék hann I gegnum vörn
Skagamanna — upp á markteigs-
horni, þar sem hann sendi knött-
inn til Kristins Björnssonar, sem
afgreiddi hann beint i netið.
Stuttu siðar skoraöi Ingi Björn
sjálfur, en hann skoraði þá með
viöstöðulausu skoti, eftir horn-
spyrnu frá Hermanni Gunnars-
syni.
Valsmenn óðu I marktækifær-
unum i byrjun, en þeim tókst
aðeinsaðnotfæra sér tvö af þeim.
Þegar liða tók á fyrri hálfleikinn
dróg heldur af þeim og Skaga-
menn náðu að minnka muninn —
Karl Þórðarson skoraöi. 1 siðari
hálfleik léku Valsmenn stifan
varnarleik og þeim tókst að halda
Skagamönnum I skefjum og
sigra.