Tíminn - 06.05.1975, Síða 1

Tíminn - 06.05.1975, Síða 1
TARPAULIN RISSKEMMUR HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATÚNI 6 -SÍMI (91)19460. f' ' Bílsturtur Dælur Drifsköft Landvélarhf STUDENTAFÉLAG HÁSKÓLANS ENDURREIST: NÝJA STJÓRNIN LEITAR AÐ „HORFNUM SJÓÐUM" Stúdentafélag Háskóla íslands, sem lagt var niður fyrir skömmu hefur nú verið endurreist. Sam- kvæmt lögum félagsins máttu 30 stúdentar boða til fundar. Það var gert og aðalfundur haldinn, þar sem kjörin var ný stjórn, en for- maður hennar er Garðar Mýrdal verkfræðinemi. Hin nýkjörna stjórn hyggst nú kanna fjárreiður fyrri stjórnar eða athuga ,,hver staða félagsins gagnvart horfnum sjóðum og öðrum eignum er „eins og það er orðað i nýútkomnu Stúdentablaði. Það var 24. marz s.l., sem Stúdentafélagið var lagt niður og rektorsembættinu falin umsjón meö nafni félagsins og eigum. Félagssjóðurinn, röskar 30 þúsund krónur, var ánafnaður Stúdentafélagi Reykjavikur og skyldi fénu varið til styrktar smiði gosbrunns umhverfis styttu þá af séra Sæmundi i Odda, sem stendur á lóð háskólans. SAMNINGAMALIN: Tíminn hálfnaður ekkert hefur gerzt BH-Reykjavik. — „Það er ckk- ert fréttnæmt, það hefur ekkert gerzt enn sem komið er,” sagði Snorri Jónsson, varaforseti AI- þýðusambands tslands, þegar blaðið hafði samband við hann í gær. „Sérfræðingar okkar eru að athuga ýmislegt i sambandi við kaupgjaldsvisitöluna, en það er ekkertaðsegjaumþaðennþá.” Erindi okkar við Snorra var að fá einhverjar upplýsingar varðandi undirbúning samn- inga, en eins og kunnugt er gild- ir samkomulag niu manna samninganefndar ASI, sem gert var 9. april sl., aðeins til 1. júni. Fyrir fjórum vikum var þvi heitið, að þessar 8 vikur skyldu notaðar vel til þess að undirbúa samninga. Nú er undirbúnings- timinn hálfnaður, tæpar fjórar vikur til 1. júni, en „það hefur ekkert gerzt”. FYRSTA ANNAÐ OG Þessi fleygu orð hljómuðu þó nokkrum sinnum I portinu hjá lögreglustöðinni á laugardaginn, en þá var lialdið uppboð á óskilamun- um, sem lögreglunni fannst hún vera búin að geyma allt- of lengi fyrir hirðulausa eig- endur. Þar fundu ýmsir fararskjótar nýja eigendur — fyrir þó talsvert verð. Timamynd: Gunnar „Þessi hestur selur þúsund islenzka hesta fyrir okkur.” Reisn og glæsileiki voru siðustu tilþrif Baldurs á ís- lenzkri grund. Sigurfinnur Þorsteinsson verður knapi á Baldri f keppni erlendis um hvitasunnuna. Timamynd Gunnar. Tónabær lokar vegna prófanna Gsal-Reykjavik — Maimánuður er mánuður prófa og þvi á skóla- fólk vart heimangengt á þeim tima á skemmtanir og rall. Tóna- bær, skemmtistaður unga fólks- ins i Reykjavik býður af þeim sökuin ekki upp á neinar skemmtanir i mánuðinum, og að sögn Ómars Einarssonar, for- stöðumanns Tónabæjar hefur skemmtistaönum verið lokað á undanförnum árum i maimánuöi. Ómar sagði, að foreldrar barna hefðu veriö óánægðir með að Tónabær væri opinn á þessum tima, og þvi hefði þótt rétt að loka staðnum bæði vegna þess, og eins vegna minnkandi aðsóknar i mai- mánuði. Þá nefndi Ómar, að eins væri hægt að merkja greinilega minnkandi aðsókn i aprilmánuði. Ómar sagði, að maimánuður væri notaður til að dytta að ýmsu, sem úr lagi hefði farið yfir vetrartim- ann, mála og snyrta húsakynnin og annað. Að sögn Ómars hefur sumar- timinn verið skipulagður, og meöal nýjunga i starfsemi húss- ins má nefna, að fimmtudags- kvöldin verða opin fyrir yngri gesti,fædd 1962ogsiðar og verður þá boðið upp á diskótek og skemmtiatriði. Tónabær hefur ekki staðið fyrir sérstökum skemmtunum fyrir svo unga gesti áður, en Breiðhyltingar hafa ver- ið með „opið hús” fyrir þá. Aðspurður sagði Ómar, að rekstur hússins gengi mjög vel og nefndi hann að drykkjuskapur færi ört minnkandi og ólæti að sama skapi. Sagði Ómar, að skapazt hefði gott samband milli starfsmanna og gesta. Verður síldarkvótinn í Norðursjónum miklu minni en í fyrra? gébé Rvik — Verður sildveiði- kvótinn f Norðursjó fyrir næsta ár ekki nema einn þriðji frá því sem var á slöasta ári? Þetta verður ein af tillögunum, sem lögð verð- ur fyrir Norðaustur Atlantshafs- fiskveiðiráöstefnuna, sem hefst I London 21. mai nk. Þá vilja Norð- menn friða sildarstofninn við Noreg algjörlega. Islenzku skip- in, sem nú þegar hafa hafið veið- ar I Norðursjó, hafa fiskað mjög treglega undanfarið, frá 8-21 tonn I ferð. Jakob Jakobsson fiskifræðing- ur sagði, að á fundi Alþjóða Haf- rannsóknaráðsins i marz sl. i Bergen, hefðu Norðmenn lagt það til.að sildin yrði algjörlega friðuð við Noreg. Reyndar hefðu þeir gert þetta að tillögu áður, en ekki hlotið undirtektir. — Fiski- fræðingar eru margbúnir að benda á hættuna á eyðileggingu sildveiðistofnsins i Norðursjó, og að snögg umskipti gætu orðið til hins verra, sagði Jakob. Þar hef- ur verið mjög hörð sókn i' nokkur undanfarin ár, er klak heppnaðist ár eftir ár, en siðastliðið ár kom fram mun lakari árangur en áð- ur. Kvótinn um sildveiðar i Norðursjó gildir frá 1. júli til 1. júlí, en siðastliðið ár var t.d. ts- lendingum leyfilegt að veiða 30 þúsund tonn, og er fyrstu skipin héldu til veiða I april I ár, voru um fjögur þúsund tn eftir af þeim Kvóta. — Sildin, sem mest hefur veiðzt i Norðursjó undanfarið er 3-4 ára gömul, en einnig veiðist mun yngri sild, sagöi Jakob, og hafa t.d.Danir veittnokkuðaf sild sem er á fyrsta og öðru ári. Alþjóða hafrannsóknarráðið mun þvi gera tillögu um það á fiskveiðiráð- stefnunni i London nú i mai, að aðeins megi veiða um 1/3 af þeim kvóta sem leyfilegur var siöast. Ekki er vitað alveg fyrir vist, hve mörg islenzk skip eru farin til veiða i Norðursjó nú, sagði Jónas Haraldsson skrifstofustjóri hjá L.t.Ú. Þó er hægt að áætla, að um eða yfir tiu skip séu byrjuð veið- ar, eða á leiðinni i Norðursjóinn, þau eru að tinast af stað eitt af öðru. Þá sagði Jónas að veiðin hefði veriðmjög treg hjá þeim.og aðeins þrjú skip væru byrjuð að selja. T.d. seldi Gisli Árni á mánudagsmorgun 16 tonn af sild og var meðalverðið 78,27 kr. eða i heild um 1.350.000.-, sem teljast veröur gott þó að aflinn hafi verið lltill.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.