Tíminn - 06.05.1975, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 6. mai 1975.
TÍMINN
3
Tónleikar Pólýfónkórsins:
„FYLLTIST STOLTI YFIR
AÐ VERA ÍSLENDINGUR
n
2500 áheyrendur dolfallnir af hrifningu
SJ—Reykjavik. Pólýfónkórinn
hélt tónleika á sunnudagskvöldið i
St. Cuthbert’s Parish Church i
Edinborg I Skotlandi. Uin 2.500
manns voru á tónleikunum og
hvert sæti skipað. Kórinn flutti
Messias eftir Handel, páskavið-
fangsefni sitt hér á þessu ári, og
voru móttökur áheyrenda
frábærar, enda frammistaða
flytjenda með eindæmum góð, að
sögn áheyrenda, sem blaðið hafði
tal af.
Gunnar Reynir Sveinsson tón-
skáld, sem annaðist upptöku á
tónleikunum fyrir kórinn, kvaðst
hafa fyllzt af stolti yfir að vera ís-
lendingur, svo stórkostlegir hefðu
tónleikarnir verið. Að sögn
tónleikagesta hefðu aðeins 2-3 at-
vkinukórar getað flutt Messfas á
borð við Pólýfónkórinn, sagði
Gunnar Reynir. Hljómsveitar-
undirleik annaðist BBC Scottish
Radio Orchester. Tónleikarnir
voru haldnir i samvinnu við
skozkt listvinafélag og átti einn
erlendi einsöhgvarinn Neil
Mackie, tenór, hugmyndina að
ferð kórsins.
,,Þessi hestur selur
þúsund íslenzka
hesta fyrir okkur"
SJ-Reykjavík. Baldur, sjö vetra
alhliða gæðingur frá ræktunar-
búinu að Stokkhólma I Skagafirði
fór snemma I morgun flugleiðis
héðan áleiðis til Hoilands
og Þýzkalands, þar sem hann
tekur þátt I mótum fyrir Islenzka
hesta. Eigandi Baidurs er Sigur-
finnur Þorsteinsson, frábær
hesta- og tamningamaður og fer
hann utan með hestinum. Sigur-
finnur á einnig Núp, 14 vetra hest,
sem var dæmdur bezti gæðingur á
Islandi á landsmóti hestamanna
á Vindheimamelum I sumar og
hefur hlotið mörg verðlaun I
keppni. Telur Sigurfinnur Baldur
þeim kostum búinn að hann geti
komizt jafnfætis Núpi, og álitur
hann vel geta staðizt samkeppni
við Dag og Stjarna, sem nú eru
frægasti islenzkir hestar I
Evrópu. Væntanlega keppir Bald-
ur einnig í Evróppmóti Islenzkra
hesta síðsumars. Það er haldið
árlega og verður að þessu sinni i
Auslurriki.
Móðurætt Baldurs er grátt
hrossakyn frá Stokkhólma, en
faðirinn er rauður hestur frá
Kolkuósi, Stokkhólmarauður
Halldór Sigurðsson gullsmiður
rekur ræktunarbúið að
Stokkhólma og telur hann og
Sigurfinnur Þorsteinsson, að I
Baldri sé hrossaræktunin að bera
ávöxt.
— Mér er ekkert um að sjá svo
góöa hesta fara úr landi, sagði
Halldór, en við verðum að selja
hesta til útlanda til þess að geta
staðið undir ræktuninni. Hestur
eins og þessi kemur til með að
selja fyrir okkur þúsund islenzka
hesta.
Baldur kemur ekki til íslands
aftur, þar sem bannað er með
lögum að flytja hesta úr landi og
heim aftur. Hann verður þvi
annað hvort seldur, eða vistaður
yrtra þótt hann verði áfram i eigu
Sigurfinns. Baldur á fjóra bræður
I hesthúsi Halldórs Sigurðssonar
nálægt Elliðavatni, svo Sigurfinn-
ur hefur þá til að hugga sig við í
söknuðinum eftir er hann saknar
Baldurs þegar hann kemur heim
aftur.
Með sömu flugvél og Baldur fór
utan hrossahópur, sem Walter
Feldmann var að kaupa héðan.
Feldmann er kunnur unnandi is-
lenzkra hesta, og kann góð skil á
þeim. Hann er góður hestamaður,
og átti áður stóra erlenda hesta,
en seldi bá eftir að hann kynntist
islenzkum hestum. Hann hefur
kynnt islenzka hesta I Evrópu og
unnið mikið að aukinni ræktun og
þjálfun þeirra. — Það er gaman
að verzla við Feldmann, segir
Halldór Jónsson, sem um árabil
hefur selt og útvegað Feldmann
Islenzka hesta — flestir út-
lendingar kunna litil eða engin
skil á okkar hestum, en þvi er
gjörólikt farið um Feldmann. —
Þetta er fallegasti hrossahópur,
sem ég hef séð fara úr landi, sagði
-s
Halldór um hestana, sem Feld-
man kaupir nú.
Að sögn Halldórs er nú bezti
timi ársins fyrir hrossasölu úr
landi. Tamdir hestar kosta nú 60 -
150.000 kr. hér, og hafa ekki
hækkað i verði eftir siðustu
gengisfellingar. Verðið var orðið
mjög hátt áður, en er nú orðið enn
hagstæðara.
I Evrópu seljast Islenzkir
hestar á mun hærra verði, enda
er þá ýmis kostnaður komin á
verðið. Gæðingur á borð við Bald-
ur ætti að seljast á 500.000 kr eða
meira ytra, þótt of snemmt sé að
tala um verð á honum áður en I
ljós er kominn árangur hans' i
keppni ytra. Beztu sýningar-
hestar Islenzkir seljast nú á allt
upp I 750.000 kr ytra og hefur verð
á góðum Islenzkum hestum farið
hækkandi þar að undanförnu.
— Fallegasti hópur, sem ég
hef séð fara úr landi. ts-
lenzkir hestar sem Walter
Feldmann er að kaupa.
Timamyndir Gunnar.
Sjö bátar á rækju-
veiðar í Axarfirði
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að frá og með 6. mal skuli
rækjuveiðar leyfðar á Axarfirði.
Er hér um tilraunaveiðar að ræða
til þess að kanna nánar magn og
ástand rækjunnar á þessu svæði.
Hefur ráðuneytið þvl veitt sjö
bátum sllk veiðileyfi til mánaða-
móta, en Hafrannsóknastofnunin
lagði til, að bátafjöldinn á
svæðinu yrði takmarkaður.
Bátar þessir eru frá Kópaskeri,
Samið við Eyjamenn
BH-Reykjavik. — Jú, viö náðum
samkomulagi við atvinnurekend-
ur I nótt, sagði Jón Kjartansson,
formaður Verkalýðsfélags Vest-
mannaeyja. — Og nú biðum við
bara eftir fari heim til Eyja til
þess að leggja það undir félags-
fund.
Jón var ófáanlegur til að segja
nokkuð um samkomulagið fyrr en
um það hefði verið fjallað, og þvi
vitum viö ekki nánar um efni
þess. Samninganefndin mun samt
hafa komizt heim I gær, þvl að
þrjár ferðir voru síðdegis á veg-
um Flugfélagsins.
Samningafundurinn með sátta-
semjara var alllangur, hófst um
fimm-leytið á sunnudag og stóð til
klukkan 3 aðfaranótt mánudags,
er samkomulagið var undirritað
með venjulegum fyrirvara um
samþykki.
’Arskógsströnd, Dalvik og Ölafs-
firði. Tekið er fram i leyfisbréf-
um þessum, að ráðuneytið áskilji
sér rétt til þess að takmarka
fyrirvaralaust útgáfu veiðileyfa á
þessu svæði, m.a. við búsetu I
ákveönum byggðarlögum, og að
veiðileyfið veiti enga tryggingu
fyrir nýju leyfi eftir að gildistima
þess lýkur.
Þá hefur ráðuneytið einnig
heimilað rækjuveiðar á Grims-
eyjarmiðum á ný, þar eð at-
huganir, sem fram fóru á
svæöinu nú um helgina, bentu til
þess, að fiskgengd hefði minnkað
verulega á svæðinu. Ekki hefur
verið ákveðið hversu mörg
veiðileyfi verði veitt á Grims-
eyjarmiðum, en þau munu
væntanlega fyrstf stað verða sótt
af bátum frá Siglufirði og Húna-
flóa.
KVORTUÐU YFIR
SLÚÐURSÖGUM
VIÐ RÁÐUNEYTI
Gsal—Reykjavik. — A þeim
tlma er smyglmálið mikla og
Geirfinnsmálið voru efst á
baugi gengu margvíslegar
sögusagnir um hlutdeild
veitingahússins Klúbbsins I
þeim málum, og urðu þær radd-
ir æðiháværar á stundum. Þetta
varð til þess að eigendur
veitingahússins rituðu dóms-
málaráðuneytinu bréf, þar sem
þeir óskuðu eftir þvi, að
rannsókn yrði gerð, sem friaði
þá allri hlutdeild. Beiðninni var
neitað af ráðuneytinu, og að
sögn Baldurs Möllers, ráðu-
neytisstjóra varð bréf veitinga-
mannanna á engan hátt til þess,
að hafin var framhalds-
rannsókn I málinu.
Eigendur Klúbbsins ættu nú
að geta varpað öndinni léttar,
þvi að eins og fram hefur komið
i fréttum Tfmans, hefur
framhaldsrannsókn málsins
staðfest, það sem áður var fram
komið, að spfrinn var seldur
mörgum einstaklingum.
Baldur Möller sagði, að engin
fordæmi væru fyrir slikri
rannsókn sem veitingahúss-
eigendur hefðu óskað eftir, og
hefði ekki komið til greina að
verða við þeirra bón.
Borgararnir þyrftu að sætta sig
við slikar sögur og ekki væru tök
á þvi að hvitþvo neina aöila
sérstaklega I svona málum, —
sizt af öllu i Geirfinnsmálinu,
sem enn væri mönnum gjör-
samlega hulið.
Smyglaði út
af Vellinum
Gsal—Reykjavik. — A undan-
förnum mánuðum hefur Keflvik-
ingur einn stundað þá iðju, að
smygla áfengi og tóbaki út af
Keflavikurflugvelli og slðan látið
það I hendur dreifingaraðila I
Reykjavlk, sem selt hefur vöruna
til einstaklinga og vinnustaöa.
II
Togaraverkfallið:
„Hugmynd
að
tillögu
BH—Reykjavlk. — Við vorum að
ræða þessa hugmynd að tilboði,
sem við höfum fengiö frá útvegs-
mönnum, sagði Jón Sigurðsson,
forseti Sjómannasambandsins I
gær, er blaðið hafði samband við
hann. — Og við munum ræða
þetta áfram I fyrramálið, okkar I
milli. Annars er ekkert nýtt, og
ekkert ákveðið um það, hvenær
við hittumst hjá sáttasemjara
aftur.
Þaö var á sunnudaginn, að út-
vegsmenn komu með þessa ,,hug-
mynd að tilboði” og enda þótt
okkur heyrðist ekki á Jóni, að
lausn togaraverkfallsins væri á
næstu grösum, eru fulltrúar sjó-
manna bersýnilega að velta hug-
myndinni fyrir sér, en ekki vildi
Jón skýra frá þvi hvað fælist I
hugmyndinni.”
Ra nns ókn a r lögreg lu m en n I
Keflavik komu upp um smyglið
fyrir helgina og hefur Keflvlking-
urinn verið úrskurðaöur I gæzlu-
varðhaid.
Maður þessi vinnur á flugvell-
inum, og hefur keypt varninginn
af nokkrum varnarliðsmönnum.
Enn er ekki ljóst af hve mörgum
hann hefur keypt, né hvar þeir
hafa komizt yfir varninginn, en
þau atriði málsins eru nú til at-
hugunar hjá lögreglunni á Kefla-
vikurflugvelli.
Ekki kvaðst Valtýr Sigurðsson,
fulltrúi bæjarfógetans, geta upp-
lýst hversu mikiö magn hér væri
um að ræða, en sagði að þetta
væru nokkur hundruð af flöskum
og mörg hundruð karton af
vindlingum.
Tónleikar
í Kópavogi
Margrét Bóasdóttir, sópran,
heldur tónleika i sal Tónlistar-
skóla Kópavogs að Alfhólsvegi 11,
3ju hæð, miðvikudaginn 7.mai kl.
20.30. Undirleik annast
Guðmundur Jónsson pianó-
leikari.
Margrét er að ljúka burtfarar-
prófi við Tónlistarskóla Kópavogs
en hún hefur stundað nám hjá
Ellsabetu Erlingsdóttur.
Á efnisskránni eru m.a. verk
eftir Mozart, Dvorák og ’R.
Strauss. Einnig lög eftir Islenzk
tónskáld.
Ásgeir upplýsir
4 ný smyglmál
Gsal-Reykjavik — Eins og
kunnugt er af fréttum Timans
hefur Asgeir Friðjónsson, flkni-
efnadómari tekið að sér fram-
haldsrannsókn á splramálinu
mikla, sem upp kom I vetur. Við
rannsókn málsins hefur Ásgeir
upplýst fjögur önnur smyglmál I
Reykjavik og var það við rann-
sókn á dreifingu spirans, sem
áðurnefnd fjögur smyglmál
komu I Ijós.
Ekki kvaðst Asgeir geta sagt
til um það á þessu stigi, hve
mikið magn hér væri um að
ræða, en þessi fjögur mál virt-
ust ekki vera I beinum tengslum
við spíramálið mikla, sem svo
hefur verið nefnt.
Sagði Ásgeir að hér væri ekki
einvörðungu um að ræða smygl
á splritus, heldur einnig á öðr-
um áfengistegundum. Dreifing-
in virtist vera svipuð og i stóra
spiramálinu, þ.e. til vina, kunn-
ingja og vinnustaða.
Aöspurður sagði Asgeir, að
smyglið hefði verið flutt til
landsins á „hefðbundinn hátt”
þ.e.a.s. beint frá borði, en ekki
eins og I hinu smyglmálinu með
þvi aö kasta plastbrúsum i sjó-
inn.
Asgeir kvaðst eiga erfitt með
að segja til um það, hvenær
rannsókn lyki, þar eð örðugleik-
ar væru á að ná I suma aðila
vegna skipaferða og annars.