Tíminn - 06.05.1975, Qupperneq 6
6
TÍMINN
ÞriOjudagur 6. mai 1975.
Hvað er svo bobið I þennan flotta grip?
Timamyndir: Gunnar.
Á uppboði hjá lögreglunni:
GÖMLU HJÓLIN SELDUST
Á SVIPUÐU VERÐI OG NÝ
BH-Reykjavik. — Þaö var ekkert
óskaplega hiýtt i veðri I portinu
við lögreglustööina á laugar-
daginn, þegar fram fór uppboð á
alls konar óskiiamunum, sem
verið hafa í vörzlu lögreglunnar
úr hófi fram, án þess nokkur eig-
andi hafi að þeim fundizt. Allt
seldist, sem þarna var á boöstól-
um, enda mikið fjör i uppboöinu,
og sjálfsagt hefur ýmsum hitnað i
hamsiviðaðbjóða Imunina.enda
þótt naumast verði sagt, að allt
hafi verið gersemar, sem þar
hlaut eigendur. Hins vegar er
ekki kunnugt um að menn hafi
endurheimt eign sfna og orðið að
gjalda fyi o, en slfkt er reyndar
möguleiki^
Og peningarnir streymdu
til hans Jóns Jónssonar, sem
vissulega er enginn viövaningur
á slikum samkundum, en sat I
skjóli meö sigarettu I munnvikinu
oggleraugun áslnum staö_„skráöi
allt samvizkusamlega I píótókoll,
svo aö allt færi réttilega fram.
Mest var fjöriö i boöinu á farar-
skjótum á þrem eöa tveim hjól-
um. Þessir á þrem hjólum fóru
yfirleitt á eitthvaö um fimm
þúsund krónur, en þessir á tveim
fóru á allt upp I sautján þúsund
krónur. Þá er eftir aö vita, hvort
menn hafa grætt á viöskiptunum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Reiöhjólaverksmiöjunni örninn
kosta þrihjól, splunkuni og
gljáandi, kr. 4.100.00 Karlmanns-
reiöhjól, jafnný og gljáfægö, meö
bögglabera og bjöllu, kosta
19.940.00, og tjáöi
verzlunarmaöur þar okkur, aö
væntanleg væru ensk, fin hjól,
sem myndu kosta eitthvaö
svipaö.
Jón skráir allt i prótokollin.
LEITAÐ AN
ÁRANGURS
Gsal-Reykjavik — Þrátt fyrir
Itarlega og skipulagöa leit um
helgina aö Siguröi Þ. Ágústs-
syni, 53 ára, hefur enn ekkert
tilhans spurst. Siguröur fór að
heiman frá sér á föstudags-
morgun og kom þann dag ekki
i vinnu, svo og ekki til viðtals
við lækni sem ráðgert hafði
verið. A laugardagsmorgun
var auglýst eftir bil hans I út-
varpinu, og siðar var auglýst
eftir manninum sjálfum. A
laugardag fannst billinn
skammt frá Reykjanesvita og
fór þar fram mikil leit um
helgina, — en án árangurs.
Fræðslustarf um börn í umferð
Flest börn
slasast vor
og haust
212 börn urðu fyrir bifreiðum
ás.l.ári —84 börn slösuðust er
þau voru farþegar i bifreiðum.
1 mai og júni gengst
Umferöarráð, i samvinnu við
Umferöarnefnd Reykjavikur,
lögregluna, Leikvallanefnd
Reykjavikur og bifreiða-
tryggingafélögin fyrir fræðslu-
og upplýsingastarfi um börn i
umferð. Slysaskýrslur sýna, að
fjóröi hver vegfarandi, sem
slasast i umferðinni, er barn.
Arið 1974 slösuðust 296 börn I
umferðarslysum. Langflest eða
165 börn, voru gangandi vegfar-
endur, 84 voru farþegar i
bifreiðum og á reiðhjólum
slösuðust 47 börn. Plest börn
slösuðust á mánudögum og
föstudögum og meira en
þriðjungur barnanna slasaðist
milli kl. 14 og 17 á daginn.
Tilgangur þessa fræðslustarfs
er að kynna likamleg og sálræn
vandamál, sem börn eiga við að
striða sem vegfarendur. Það er
sannað mál, að börn hafa ekki,
fyrr en 8-12 ára gömul, þroskaða
sjón og heyrn, sem vegfarendur
þurfa að reiða sig svo mjög á i
umferðinni. Það er ekki hægt að
reikna með fullkominni nýtni
þessara skynfæra fyrr en við 12-
14 ára aldur. Þá verður einnig
gerð grein fyrir hversu mikil
áhrif skipulag ibúðahverfa hef-
ur á tiðni slysa á börnum i um-
ferðinni, og hvatt til þess, að
lóðir og leiksvæði verði gerð
þannig úr garði, að þau laði
börn til leikja, og að leiktæki séu
sett upp á sem flestum stöðum
sérstaklega þó við fjölbýlishús.
Einnig verður fjallað um börn
og reiðhjól og foreldrar hvattir
til þess að kaupa ekki of fljótt
reiðhjól handa börnum sinum,
eða að þeir sendi þau ekki út i
umferðina ein sins liðs á
reiðhjólum fyrr eú þau hafa
þroska og getu til.
Það hefur verið reynsla und-
anfarinna ára, að flest börn
slasast á vorin og haustin og þvi
verður reynt að hafa þessa
fræðslustarfsemi á þeim timum
ársins. Fræðslustarfsemin fer
að miklu leyti fram i fjölmiðl-
um. Einnig verða gefin út
fræðslurit um vandamál barna i
umferð, um leiki og leiksvæði
barna. Dreifimiðum og vegg-
spjöldum verður dreift.
Sjónvarpið hefur gert 40
minútna dagskrá um börnin i
umferðinni, stjórnandi upptöku
og höfundur er Sigurður Sverrir
Pálsson.
A vegum Leikvallanefndar
Reykjavikur verða á þessu
tímabili veittar upplýsingar um
þær gerðir leiktækja, sem á
boðstólum eru, svo og kostnað.
Einnig verða veittar upplýsing-
ar um barnaleikvelli borgarinn-
ar. Simi leikvallanefndar er
28544 kl. 09 til 10 og 13 til 14 alla
virka daga.
Kjörmarkaður KEA
nýtur vinsælda
gébé Rvik— 1 marz sl. var Kjör-
markaður KEA opnaður að
Gránufélagsgötu 28 á Akureyri,
en markaðurinn á að þjóna öllu
félagssvæði kaupfélagsins. Eru
þar á boðstólum, I smáum eining-
um, hátt á annað hundrað teg-
undir af helztu matvörum, hrein-
lætisvörum o.fl., selt með 10% af-
slætti frá smásöluverði.
Til þess að reyna að gera slikt
verzlunarfyrirkomulag mögu-
legt, verður allur stofnkostnaður,
svo sem innréttingar og verzl-
unaráhöld, að vera i lágmarki,
svo og alíur rekstrarkostnaður.
Þannig þurfa viðskiptavinirnir
sjálfir að koma með umbúðir um
keyptan varning, staðgreiða vör-
una, og sjá um hana heim.
Það var i október 1973 að
Birgðastöð Matvörudeildar hóf
sölu til einstaklinga á nokkrum
vörutegundum i stærri pakkning-
um með 10% afslætti frá búðar-
verði, Var þetta gert i tilrauna-
skyni og við erfiðar aðstæður, en
með það fyrir augum, að slik
fyrirgreiðsla yrði aukin af hún
reyndist vel. Nú hefur reynslan
orðið sú, að þessi þjónusta hefir
átt siauknum vinsældum að
fagna, og er orðin svo umfangs-
mikil, að ekki var lengur hægt að
veita hana i Birgðastöðinni og var
þvi starfsemin flutt og Kjörmark-
aðurinn opnaður þann 20. marz sl.
Markaðurinn er opinn frá kl. 1-6
e.h. á mánudögum til fimmtu-
daga, en frá kl. 1-7 á föstudögum.
AAeitillinn gaf hálfa milljón til kirkju í Þorlákshöfn
Sjálfstæðis-
flokkurinn:
For-
mannskjör
gébé—Rvik. — A landsfundi
Sjálfstæðisflokksins i gær-
kvöldi fór fram kjör formanns
og varaformanns flokksins.
Formannskjöri lauk á þá leið
að Geir. Hallgrimsson fékk
flest atkvæði eða 650, Gunnar
Thoroddsen hlaut 65 atkvæði
11 menn hlutu 4 atkvæði eða
færri. 19 seðlar voru auðir.
Þá fór varaformannskjör
fram og hlaut Gunnar
Thoroddsen flest atkvæði eða
631. Ragnhildur Helgadóttir
hlaut 64 atkvæði og 10 menn
hlutu örfá atkvæði hver. 24
seölar voru auðir og ógildir.
Kosningu i átta manna
miðsstjórn Sjálfstæðisflokks-
ins var ekki lokið þegar blaðið
fór i prentun.
TH.B,—Þorlákshöfn — Fyrir
nokkru heimsóttu félagar úr
Prestafélagi Suðurlands Þorláks-
höfn, ásamt nokkrum guðfræði-
nemum. Skoðuðu þeir staðinn
undir leiðsögn Gunnars Markús-
sonar skólastjóra Svans
Kristjánssonar sveitarstjóra og
Benedikts Thorarensen. Meðal
annars var staidrað við og litið á
nýbyggðan kirkjugarð, sem að
mestu er lokið. Um kvöidið var
efnt til samkomu i Barnaskólan-
um. Henni stýrði sóknarprestur
okkar Tómas Guðmundsson.
Hörður Ágústsson skólastjóri hélt
þar langan og fróðlegan fyrir-
lestur um kirkjubyggingar á ts-
landi, að fornu og nýju. Studdi
hann mál sitt afbragðs ljósmynd-
um og teikningum til skýringa.
Hörður svaraði slðan fyrirspurn-
um samkomugesta, og var af
erindi hans mikill og fjölbreyttur
fróðleikur.
Söngfélag Þorlákshafnar söng
þá nokkur lög og sálma undir
stjórn Ingimundar Guðjónssonar.
Eru nú senn tuttugu ár síðan Ingi-
mundur hóf að koma upp visi að
söngfélagi i Þorlákshöfn, og hin
siðari ár hefir hann gegnt organ-
istastörfum við Hjalla- og Strand-
arkirkjur en auk þess æft og
stjórnað Söngfélaginu, sem
sungið hefir við messur i fyrr-
nefndum kirkjum og i Barnaskól-
anum hér, þar sem messað er
vegna kirkjuleysis staðarins.
Þorlákshöfn vérður bráðlega 1000
manna bær, og eins og áður getur
hefir kirkjugarður, myndarlegt
mannvirki, nú verið sem næst
fullgerður.
Er þvi vaxandi áhugi á þvi hér i
Þorlákshöfn að kirkja megi risa
áður en langt um liður. Þvi voru
það gleðileg tiðindi þegar for-
stjóri Meitilsins, Rikharð Jónsson
kvaddi sér hljóðs á samkomunni
og skýrði frá þvi, að á aðalfundi
Meitilsins þ. 6/12, 1974, hefði
stjórn félagsins ákveðið að gefa
hálfa milljón króna til kirkju-
byggingar i Þorlákshöfn, og
minnast á þann hátt 25 ára
afmælis félagsins. Fögnuðu fund-
argestir þessum tiðindum og
færði sr. Tómas Guðmundsson
gefendum þakkir fyrir rausnar-
legt framlag til þessa þarfa máls
og form. sóknarnefndar Ingi-
mundur Guðjónsson veitti
gjöfinni móttöku. Landnámi
staðar sem Þorlákshafnar verður
seint lokið, en merkum áfanga er
náð, þegar kirkja og kirkjugarður
hafa risið á þessum stað, sem til
forna var á margan hátt tengdur
Skálholt.i og ber nafn hins
sögufræga og ástfólgna biskups.
Framhald á 19. siðu
Staða yfirlögreglu-
þjóns í Húsavík
er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er
til 1. júni n.k. Laun samkvæmt launakjör-
um rikisins.
Bæjarfógetinn i Húsavik
Sigurður Gizurarson.