Tíminn - 05.06.1975, Page 12
12
TÍMINN
Fimmtudagur 5. júní 1975
Höfundur: David Morrell1
Blóðugur
hildarleikur
37
leið löng stund — eilífðartími, áður en hann hrapaði
fram hjá fyrstu greinunum, og sökk milli þéttra grein-
anna snarstanzaði á sterklegri grjágrein.
. Hann var altekinn doða, og gat ekki andað. Hann saup
hveljur og sársaukinn streymdi um líkama hans. Hjart-
slátturinn var ör. Hann var þess full fullviss, að hann
hefði orðið fyrir skoti.
Svo var þó ekki. Ofan við tréð heyrði hann vélardyn
þyrlunnar. Byssukúla hvein niður milli greinanna. Þá
komst hann aftur á hreyfingu. Hann var hátt uppi í
trénu. Riff illinn var enn skorðaður milli buxna og beltis.
Hann var enn hálflamaður eftir að hafa skollið harka-
lega ofan á riffilinn. Hann beygði höndina með miklum
kvölum og greip um byssuna. En hún haggaðist ekki. Yf-
ir höfði hans sveimaði þyrlan og skotmaðurinn bjó sig
undir annað skot. Rambo rykkti í byssuna og kippti henni
lausri. Ofsi hans var svo mikill, að greinin sem hann sat
á sveif laðist til. Hann missti jafnvægið og önnur mjöðm-
in nuddaðist upp við grófan trjábörkinn. Hann greip um
greinina fyrir ofan í örvæntingu. Það brakaði í henni og
Rambo hélt niðri í sér andanum. Ef hún brotnaði, myndi
hann falla niður úr trénu, fram hjá greinum þess og á
klettagrjótið langt fyrir neðan. Enn einu sinni brakaði í
greininni, en hún gaf sig ekki. Þá f yrst þorði hann aftur
að anda.
Þyrluhljóðið var nú breytt. Jafnt og stöðugt. Flugmað-
urinn hafði nú áttað sig. Hann hélt þyrlunni stöðugri.
Rambo vissi ekki hvort þeir gátu séð til hans í trénu eða
ekki. Þaðskipti heldur ekki miklu máli. Efsti hluti trés-
ins var ekki víðáttumeiri en svo, að ef skotmaðurinn léti
kúlnaregnið dynja, þá hlaut hann að hitta hann. Rambo
hafði ekki tíma til að flytja sig yfir á sterkari grein.
Næsta kúla gat gert út af við hann. Hann vann hratt og
f ullur örvæntingar. Hann ýtti til hliðar litlum greinum og
furunálum — svo svipaðist hann um eftir þyrlunni, þar
sem hún hékk suðandi í lausu lofti.
a
Hún var andspænis honum. Tæpa húslengd fyrir ofan
hann. Skotmaðurinn teygði f ram álkuna út um glugga á
flugstjórnarklefanum. Rambo sá kringlótt og nefstórt
andlit hans greinilega. Maðurinn bjósig undir að skjóta á
ný. Rambo tækist tæpast að miða. Hann þurfti aðeins
andartak. Hreyfingin var mjúk og ósjálfráð. Hann lyfti
byssuskeftinu upp að trjágreininni fyrir ofan sig, hag-
ræddi byssunni. Svo miðaði hann á mitt kringlótt andlit-
ið, rétt viðnefbroddinn. Hann þrýsti mjúklega á gikkinn.
Beint í mark.
Inni í flugmannsklefanum greip skotmaðurinn um
sokkið andlit sitt. Hann var steindauður, áður en hann
gat svo mikið sem opnað munninn og öskrað. Eitt andar-
tak hélt flugmaðurinn þyrlunni stöðugri eins og ekkert
hefði í skorizt. Svo sá Rambo, að hann leit skyndilega á
manninn við hliðsér. Beinflísar og hár voru út um allt.
Efsti hlutinn af höfði félaga hans var horf inn. Maðurinn
leit skelfingu lostinn á blóðslettur í skyrtunni sinni og
buxunum.Augu hans þöndust út og munnurinn skalf. í
næstu andrá fálmaði hann eftir öryggisbeltinu og greip
dauðahaldi f stýrissveif ina um leið og hann kastaði sér á
' gólf flugstjórnarklefans.
Rambo reyndi að koma á hann skoti úr trénu. Hann sá
ekki flugmanninn, en þóttist fara nærri um hvar hann
hírðist á gólfinu. Hann miðaði á þann hluta gólfsins, en
þá sveif þyrlan snögglega upp með klettunum. Skrúfu-
blöðin sluppu fram hjá klettahryggnum með þó nokkru
bili, en rishorn þyrlunnar var svo bratt, að aftasti hluti
hennar kræktist í klettabrúnina. Rambo var ekki viss, en
honum fannst hann heyra bresta í málmi gegn um mót-
orhljóðið, þegar vélin rakst utan í klettinn. Þyrlan virtist
stönzuð þarna fyrir f ullt og fast. Svo féll hún aftur fyrir
sig og hrapaði niður. Hún skall utan í klettavegginn.
Hljóðið var skerandi og það brast og brakaði f henni.
Þegar sprengingin kom, bognuðu skrúfublöðin og
brustu. Eldhnötturinn þeyttist upp með trénu ásamt
sjóðheitum málmflísum, en dó svo út. Það kviknaði f
yztu greinum trésins. Upp gaus bensínlykt og þefurinn
af brenndu holdi.
Rambo var þegar á hraðri ferð niður úr trénu. Grein-
arnar voru of sverar. Hann fór umhverfis trjábolinn og
athugaði hvar hann gæti smeygt sér niður. Hundgjamm-
ið var nú enn nær og villtara en áður. Það var eins og þeir
væru komnir f ram hjá hindruninni og upp á klettahrygg-
inn. Þessi stóri steinn hefði átt að tef ja leið þeirra mun
lengur. Rambo gat ekki skilið hvernig Teasle og menn
hans höfðu farið að því að komast svo skjótlega upp.
Rambo hélt fast um riffilinn og smeygði sér milli grein-
anna, gegnum hvassar furunálarnar, sem stungust í
hendur hans og andlit. Hann verkjaði í brjóstkassann
eftir fallið niður í tréð. Sársaukinn var slíkur, að hann
hélt að nokkur rif beinin væru brákuð eða brotin. En hann
gat ekki hugsað um slíkt nú. Gjamm hundanna var nú
nær. Hann varð að klífa hraðar niður tréð. Hann sneri
sér og renndi sér. Ytri skyrtan — ullarskyrtan — festist í
G
E
I
R
I
Fimmtudagur
5. júni
7.00 Morgúniítvarp. Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15: Svala Valdimarsdóttir
les þýðingu sína á sögunni
„Malenu I sumarfrli” eftir
Maritu Lindquist (3). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. Við sjóinn kl.
10.25: Ingólfur Stefánsson
segir fréttir af síldveiðiráð-
stefnu I London. Popp kl.
11.00: Gisli Loftsson kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 A frívaktinni. Margrét
Guðmundsdóttir kynnir
óskalög sjómánna.
14.30 Miðdegissagan: ,,Á
vigaslóð” eftir James Hilt-
on. Axel Thorsteinson les
þýðingu sina (13).
15.00 Miðdegistónleikar:
Dönsk tónlist. Konunglega
hljómsveitin I Kaupmanna-
höfn leikur „Ossian”-for-
leikinn eftir Gade, Johan
Hye-Knudsen stjórnar.
Tonny Nuppenau syngur lög
eftir Pedersen og Heise,
Friedrich Gurtler leikur á
pianó. Konunglega hljóm-
sveitin I Kaupmannahöfn og
einsöngvararnir Ruth Guld-
bæk og Niels Möller flytja
Sinfóniu nr. 3 op. 27 eftir
Carl Nielsen, Leonard
Bemstein stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.40 Litli barnatiminn.
Fóstrurnar Finnborg
Scheving og Eva Sigur-
björnsdóttir stjórna.
17.00 Tónleikar.
17.30 „Bréfið frá Peking” eft-
ir Pearl S. Buck. Málmfrið-
ur Sigurðardóttir les þýð-
ingu sina (5).
18.00 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Leikrit: „Anna Soffla
Heiðveig” eftir Kjeld Abell.
Áður útvarpað 1957. Þýð-
andi: Ásgeir Hjartarson.
Leikstjóri: Lárus Pálsson.
Persónur og leikendur:
Friíin, Inga Þórðardóttir.
Húsbóndinn, Þorsteinn ö.
Stephensen. Jón, sonur
þeirra, Baldvin Halldórs-
son. Leila, kona hans, Bryn-
dis Pétursdóttir. Anna
Soffia Heiðveig, Regina
Þórðardóttir. Karmach for-
stjóri, Ævar Kvaran. Frú
Karmach, Katrin Thors.
Hoff forstjóri, Haraldur
Björnsson. Aðrir leikendur:
Guðrún Stephensen,
Valdimar Helgason, Nina
Sveinsdóttir, Sigriður
Hagalfn, Lárus Pálsson og
Kristbjörg Kjeld.
21.05 Landsleikur i knatt-
spyrnu: Íslendingar-Aust-
ur-Þjóðverjar. Jón Ásgeirs-
son lýsir siðari hálfleik á
Laugardalsvelli
21.50 Erich Kunz og Vínar-
kammerkórinn syngja
stúdentalög. Hljómsveit
Rfkisóperunnar i Vin leikur
með, Franz Letschauer
stjórnar.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Tyrkjaránið” eftir Jón
Helgason. Höfundur les
(23).
22.35 Ungir pianósnillingar.
Fimmti þáttur: Pascal
Rogé. Halldór Haraldsson
kynnir.
23. Fréttir i stuttu máli. Dag-
skrárlok.
■
Auglýsícf
i Tímanum: