Tíminn - 05.07.1975, Qupperneq 1
Stjórnlokar
Olíudælur
Olíudrif
Al
&>, H ■
Y ' 4/ A /’
■ j*
TARPAULIN
RISSKEMMUR
Landvélór hf
c
149. tbl. — Laugardagur 5. júli 1975 — 59. árgangur.
HF HORÐVR 6UNNARSS0N
SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460
Færrí einkabílar og betrí
almenningssamgöngur I
gamla miðbænum í Reykjavík
H.V. Reykjavik — Stærstu frávik-
in, sem tillögur okkar fela i sér
frá aðalskipulagi Reykjavikur-
borgar, eru þau, að bifreiðastæð-
um innan athugunarsvæðisins,
sem er gamli miðbærinn, verði
ekki fjölgað verulega, heldur
byggðum svæðum umhverfis það
og almenningssamgöngur innan
þess bættar stórlega — auk þess
sem við viljum ná fram þeirri
stefnubreytingu, að fólk verði
laðað til baka til búsetu innan
hverfisins og þá aðallega ungt,
bamlaust fólk og það fólk, sem
þegar hefur lokið uppeldi barna
sinna. Þannig viljum við skapa
manneskjulegt umhverfi fyrir þá
miöstöð sérverzlunar og þjón-
ustu, sem hverfið er, hlúa að þvi
sem uppvaxtarstað smáfyrir-
tækja og ná fram æskilega blönd-
uðu hverfi, sagði Gestur ólafsson
arkitekt, í viðtali við Timann i
gær, en hann starfar við Teikni-
stofuna i Garðastræti 17, sem lagt
hefur fram tillögur á fundi skipu-
lagsnefndar Reykjavikur um
varðveizlu og endurnýjun gamla
miöbæjarins i Reykjavik.
Tillögur Teiknistofunnar eru
unnar fyrir Þróunarstofnun
Reykjavikurborgar, og ná þær til
hverfis, sem takmarkast af
Skúlagötu að norðan, linu yfir
Skólavörðuholt að sunnan, Aöal-
stræti að vestan og Rauðarárstig
að austan.
1 greinargerð meö tillögum
Teiknistofunnar segir meðal ann-
ars, um bifreiðastæði á svæðinu:
,,í aðalskipulagi Reykjavikur
var lagt til, að gert skyldi ráð
fyrir einu bifreiðastæði á hverja
50 fermetra gólfflatar i öðrum
mannvirkjum en ibúðarhúsum og
einu stæði fyrir hverja ibúð. Sam-
kvæmt þessu þyrfti 10.019 bif-
reiðastæði fyrir athugunarsvæð-
ið, en á þvi eru nú einungis 3.357
stæði og þvi vantar þar 6.662
stæði. Miðað við 25 fermetra bif-
reiðastæði eru þetta um 16,5hekt-
arar, sem þyrfti undir ný bif-
reiðastæði. Samt sem áður eru
aðeins 8 hektarar lands á athug-
unarsvæðinu og meirihluti þessa
lands hefur þegar nýtingarhlut-
falliö 1,0 eða meir. Það er þvi ekki
auðvelt verk að sjá fyrir þeim bif-
reiðastæðum, sem aðalskipulagið
gerir ráð fyrir á þessu svæði og
telja verður algera nauðsyn, að
ný stefna verði mynduð i bifreiða-
stæðamálum á svæðinu i heild,
sem sé jafnframt nátengd skipu-
lagi almenningsflutninga.”
Utanlandsflugið
lamaðist vegna
vinnustöðvunar
flugvirkja í gær
Hundruð farþega strandaglópar
H.V. Reykjavik.Um klukkan
16.00 I gær stöövaðist eða
truflaðist verulega allt flug,
bæði innan og utanlands,
vegna vinnustöðvunar flug-
virkja, sem starfa hjá Flug-
leiðum, á Reykjavikur- og
Keflavikurflugvelli. Til
vinnustöðvunarinnar var
boðað fyrirvaralaust.
Sfðdegis i gær og i gær-
kvöld áttu fjórar millilanda-
flugvélar að lenda á Kefla-
vikurflugvelli og halda aftur
utan eftir stutta viðdvöl, þar
af tvær DC8-63 þotur á leið
til New York og Boeing þota,
sem var að koma frá
Grænlandi, á leið til Kaup-
mannahafnar. Ennfremur
stöðvaðist önnur Boeingþota,
sem átti að fara siðdegis i
gær til Palma á Mallorka,
meö rúmlega 100 farþega. Sú
vél átti að snúa þegar við til
tslands, með ferðamenn sem
dvalist hafa á Mallorka
undanfarið og i
Kaupmannahöfn biða svo
um 200 tslendingar eftir vél-
inni.sem þangaðátti að fara.
Vinnustöðvun þessi er af-
leiðing af ágreiningi milli
flugvirkja og Flugleiða h.f.
um túlkun á samningi flug-
virkja og flugleiða. Sam-
kvæmt kjarasamningi milli
Framhalci á bls. 3
Hundavinir í sókn!
JG-Reykjavik. Á fundi borgarstjórnar á
fimmudag var til umræðu tillaga Guðmundar
Þórarinssonar um hundahald í Reykjavik.
Urðu miklar umræður um tillöguna, er siðan
var felld að viðhöfðu nafnakalli með 11 at-
kvæðum gegn 4. Má því segja, að hundavinir i
Reykjavik séu i sókn, þvi að siðast, þegar
fjallað var um málið i borgarstjórn (1970) var
tillaga svipaðs eðlis felld með 14 atkvæðum
gegn 1.
o Alvarlegt ástand
í byggir igariðn-
aðinum á Akureyri
ASK-Akureyri. Alvarlegt ástand
virðist vera að skapast I bygging-
ariðnaði á Akureyri. Treg lána-
fy rirgreiðsla bankastofnana
veldur þvi meðal annars, að iðn-
fyrirtæki hefja ekki nýbyggingar
að ráði, að minnsta kosti ekki
svipað þvi sem gerzt hefur und-
anfarin ár. útborgun húsnæðis-
stjórnarmálalána, sem átti að
vera i júní hefur seinkað fram i
ágúst, cn fyrirtæki áttu þar tugi
milljóna ógreiddar. Verði ekki
Slitnað upp úr
síldarsamninga-
viðræðum við Svía
hægt að byrja á nægjanlegum
framkvæmdum nú þegar, er
fyrirsjáanlegur samdráttur i
greininni næstkomandi vetur.
Uppsagnir hafa átt sér stað hjá
Hibýli h/f, en þar var fimm laus
ráðnum verkamönnum sagt upp
störfum, en einnig mun starfs-
fólki hjá stærsta húsgagnafyrir-
tæki bæjarins hafa fækkað að
mun. Að sögn Ingimundar Arna-
sonar hjá Hibýli h/f skulda kaup-
endur ibúða fyrirtækisins þvi hátt
á sextándu milljón, en þar af eru
húsnæðisstjórnarmálalán um
einn þriðji hluti.
Hjá Smáranum h/f, sem er eitt
stærsta byggingarfyrirtækið á
Akureyri, fékk blaðið þær upplýs-
ingar, að þar sem fyrirtækið væri
með verk á vegum rikisins væri
ástandið mun betra en annars
hefði verið. Smárinn er nú að
ljúka gerð blokkar og að byrja á
annarri, og sagði Páil Þorgeirs-
son hjá Smáranum, að greinilegt
væri, aó fólk hefði mikinn áhuga á
Ibúðakaupum, en fjármagns-
skortur hindraði flesta i þeim á-
formum. Algengt væri, að fólk léti
skrifa sig niður sem hugsanlega
kaupendur, en gæfist upp þegar á
reyndi. Smárinn á nú um 13 millj-
ónir útistandandi i húsnæðis-
málastjórnarlánum, og sagði Pall
það skapa fyrirtækinu mikla erf-
iðleika að fá ekki greiðslur á um-
sömdum tima.
H.V. Reykjavik. „Viðræðum okk-
ar við Svia er nú lokið, án þess að
af samningum hafi orðið, enda
var nánast um könnun á mark-
aðnum og þeim verðhugmyndum,
sem hér eru uppi, að ræða. Reikn-
að er með að samræður verði aft-
ur teknar upp i haust, en það
verður erfitt um vik i þeim. I
fyrsta lagi höfum við ekki verið á
þessum markaði siðan 1971, i öðru
lagi er i boði sild úr Norðursjón-
um og frá Kanada, sem er mikið
ódýrari en okkar sild og i þriðja
lagi hefur saltsildarneyzlan hér
minnkað stórlega siðustu fimm
árin,” sagði Jón Skaftason, for-
maður sildarútvegsnefndar, i við-
tali við Timann i gær, en hann
hefur dvalizt i Sviþjóð undan-
farna daga, i þeim tilgangi að at-
huga möguleika á þvi að koma is-
lenzkum sildarafurðum inn á
markað þar.
„Þess utan bætist svo við,”
sagði Jón ennfremur, ,,að suð-
vesturlandssildin, sem við veið-
um núna, er mun smærri en
Norðurlandssildin, sem við
veiddum áður, en það er einmitt
stóra sildin, sem er i háu verði
hér og hana fá Sviar frá Kan-
ada.”
HEIMSÆKIR
KÓPASKER