Tíminn - 05.07.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 05.07.1975, Blaðsíða 3
Laugardagur 5. júli 1975. TÍMINN 3 Færri bílar, betri almennings- samgöngur, meiri gróður og fleira fólk í gamla bænum H.V.—Reykjavík. t tillögum þeim, sem Teiknistofan Garða- stræti 17, hefur gert, um varð- veizlu og endurnýjun gamla mið- bæjarins i Reykjavik, er gert ráð fyrir að töiuvert veröi dregið úr notkun bifreiða innan þessa svæð- is. t greinargerð. sem fylgir til- lögunum, er skýrt frá þvi, að skortur á bifreiðastæðum innan gamla miðbæjarins sémun meiri, en mögulegt sé að bæta Ur — án þess að byggja þau neðanjarðar. í greinargerð sinni bendir Teiknistofan á nokkra möguleika til lausnar á vandamálinu og byggjast flestir þeirra á þeirri forsendu, að notkun einkabifreiða innan svæðisins verði takmörkuð verulega, en almenningssam- göngur bættar stórlega þess i stað. í tillögum sinum gerir Teikni- stofan ráð fyrir, að bifreiðastæð- um innan svæðisins verði fjölgað nokkuð, með þvi að nota núver- andi auð svæði, að byggt verði 2ja hæða bifreiðastæði I Grjótaþorpi, milli Fischersunds og Vestur- götu, að þak Eimskipafélags- hússins verði nýtt, byggt verði stæði neðanjarðar i Seðlabankan- um og byggt stæði á jarðhæð þar sem nú er Sænska frystihúsið. Með nýtingu þessara möguleika, auk ýmissa annarra, er talið mögulegt að fjölga bifreiðastæð- um innan svæðisins um samtals 743, sem er um niundi hluti þess sem þörf er á i dag. Til lausnar þeim vanda, sem þá verður enn við að glima, gerir Teiknistofan það að tillögu sinni, að komið verði á endurbættu og auknu almenningssamgöngukerfi innan svæðisins og eru i greinar- gerðinni raktar nokkrar leiðir i þvi sambandi. Eru þar tilnefndir möguleikar, svo sem beltisdrifn- ar gangstéttir, beltisdrifin farar- tæki af ýmsu tagi, farartæki á teinum, svo sem lestir og litlir bilar, rafdrifin farartæki, svo sem bilar, strætisvagnar, leigu- bifreiðir og fleira. Flestir þessara valkosta eru ómögulegir eða óhagkvæmir, af einhverjum orsökum, en lagt er til, að fáeinir þeirra verði at- hugaðir sérstaklega, með tilliti til hugsanlegrar notkunar i miðbæ Reykjavikur. Samið í Straumsvík: Prósenta en ekki krónutala FB-Reykjavik.Samið hefur verið við starfsmenn .i Alverinu I Straumsvik.en þeir eru i tiu mis- munandi stéttarfélögum. Þessir nýju samningar eru byggðir á grundvelli ASI samninganna frá 13. júni, en þó með þvi að notaður er prósentureikningur, en ekki ákveðin krónutala. Straumsvikurmenn hafa alltaf samið sérstaklega og utan við samninga ASI. Samningar tókust að þessu sinni eftir aðeins þrjá sáttafundi. Konan komin fram H.V. Reykjavik. Sólveig Friðfinnsdóttir, konan sem lög- reglan i Hafnarfirði lýsti eftir i gær, kom fram heil á húfi I gær- morgun og hafði hún dvalið hjá manni þeim, sem hún yfirgaf veitingahúsið Glæsibæ með siðastliðið sunnudagskvöld. Fyrstu fregnir af Sólveigu, frá þvi á sunnudagskvöld, bárust seint i gær, eftir að lýst hafði veriö eftir henni i útvarpi. Þá hringdi karlmaður til ættingja hennar, neitaði að segja til nafns sins eða hvar hann væri staddur, en bar þau skilaboð frá Sólveigu, að hún væri heil á húfi og kæmi heim til sin á föstudag. Sólveig hafði dvalið allan timann hjá manni þessum, en af einhverjum orsökum ekki haft samband við ættingja sina. Keflavíkurbílar skoóaðir innan húss framvegis S.F. Keflavik. Bifreiðaefíirlitið i Keflavik hefur nú tekið í notkun nýtt 200 fermetra stálgrindarhús, að Iöavelli 4, þar sem framvegis verður staðsett sú starfsemi, sem að bifreiðaskoðun lýtur. Eru Keflvikingar þvi fyrstir hér á landi til þess að fá bifreiðar sinar skoöaðar innanhúss, en fljótlega verður komið upp hliðstæðri aðstöðu viðar, til dæmis á Blönduósi. Byggingin i Keflavik er tekin á leigu og er talin verða fullnægjandi þessari starfsemi um nokkurt árabil, en töluvert skortir enn af tækjum til bifreiða- skoðunar. O Flugið deiluaðila, sem gerður var 12. mai siðastliðinn, áttu laun flugvirkja að hækka um 21% á tfmabilinu janúar-júni 1975 og auk þess skyldu laun þeirra taka breytingum eftir þá verðandi ramma- samninga ASI, semkvæmt ákveðinni reikningsreglu. Um túlkun þess ákvæðis — hver áhrif rammasamning- urinn ætti að hafa á laun flugvirkja —hefur ekki náðst samkomulag milli deiluaðila og hafa flugvirkjar hafnað þeirri tillögu Flugleiða að málinu yrði visað til annað hvort gerðardóms eða félagsdóms. Á fimmtudag barst Flug- leiðum bréf frá flugvirkjum, þar sem tilkynnt var, að ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra og hækkun sú, sem þeir fara fram á, greidd i gærdag, eða loforð gefið fyrir greiðslu hennar innan tveggja vikna, myndi Flug- virkjafélagið gera viðeig- andi ráðstafanir. I lok fundar, sem haldinn var með deiluaðilum i gær, án þess að samkomulag næðist, tilkynntu flugvirkjar að vinnustöðvum þeirra hæf- ist klukkan 16 sama dag. I framhaldi af þvi tilkynntu Flugleiðir h.f. Flugvirk jafélagir.'u bréf- lega, að fyrirtækið lýsti fullri ábyrgö á hendur viðkomandi flugvirkjum og Flugvirkja- félagi Islands, ef til truflana eða ólögmætra vinnu- stöðvana kæmi af hálfu flug- virkja og að það áski ldi sér rétt til að leita til dómstóla i þvi efni. Jafnframt tilkynntu Flug- leiðir, að ákveðið hefði verið, af þeirra hálfu, að visa deil- um þessum til Félagsdóms. Samkomulag náóist um miðnætti H.V. Reykjavik. skömmu fyrir miðnætti i gærkvöldi tókust samningar milii Flug- virkjafélags tslands, og Fiugieiða h.f. Vinnustoövun fiugvirkja var þá þegar af- létt, þannig að utanlandsflug gat hafizt um miðnætti. Inn- anlandsflug hafði ekki enn orðið fyrir truflunum af völdum vinnustöðvunarinn- ar. Samningurinn verður bor- inn undir féiagsfund I Flug- virkjafélagi islands I dag. Þar á meðal er farartæki, sem nefnist „Never-stop railway”, sem rennur stöðugt I hring á tein- um, semkomið er fyrir i mismun- andi hæð frá jörðu. Farartæki þetta er rafknúið og er fremur ódýrt i rekstri. Þá er bent á farartæki er nefn- ist „Carveyor”. Er þar um að ræða 4-10 sæta vagna, sem renna á gúmmibeltum. Þeir eru raf- knúnir og væru hentugir til lengri feröa innan miðbæjarins. I tillögunum er ennfremur bent á hugsanlega aukna notkun reiö- hjóla, sem væru hentug farartæki innan bæjarhlutans, auk þess sem Reykvikingar eru minntir á, að skór teljast einnig farartæki, og eru liklega allra farartækja ódýr- astir I rekstri. Auk þess sem tillögur Teikni- stofunnar fjalla um umferð og búsetu manna innan gamla miðbæjarins, ná þær einnig til varðveizlu og skipulags gróðurs innan hans. 1 þeim tilgangi voru talin öll tré innan svæðisins og þau flokkuð eftir skilgreindu mikilvægi þeirra. I tillögunum er gert ráð fyrir þvi, að varðveitt verði samtals 1.435 tré , af þeim 1.638, sem reyndust vera á svæð- inu. Auk þess er tillaga gerð um að trjágróður innan svæðisins verði aukinn verulega. Tillögur Teiknistofunnar um að laða beri fólk til búsetu i gamla miðbænum á ný, fela fyrst og A myndinni eru markaðar tiliögur Teiknistofunnar um hugsanlegar akstursieiðir strætisvagna umhverfis gamla miðbæinn f Reykjavik, en tillögurnar fela I sér mjög aukna þjónustu i almenningssamgöngum. t greinargerð með tillögunum er einnig bent á möguleika i samgöngum innan svæðisins. A myndinni eru ennfremur merkt sérstaklega þau svæði, sem lagt er til að verði tekin undir bifreiðastæði. Alls eru það niu svæði merkt 1—9. fremst I sér að tveim ákveðnum hópum fólks verði greidd gatan þangað: ungu, barnlausu fólki og þvi fólki, sem þegar hefur lokið uppeldisskyldum sínum. Tillög- umar fela I sér, að leyfi verði veitt fyrir rekstri ákveðinna teg- unda atvinnufyrirtækja innan svæðisins — það er þeirra, sem með góðu móti geta fallið inn i ibúðahverfi. Benda má á i þvi sambandi, að innan þessa svæðis eru nú fyrirtæki, sem ekki geta talizt samræmast þeirri stefnu, svo sem Sláturfélag Suðurlands og Völundur h.f., ásamt fleiri, og kæmi það væntanlega i hlut yfir- valda, að aðstoða slik fyrirtæki við að koma starfsemi sinni fyrir annars staðar. Framkvæmdastjóri samtaka norrænna búvísindamanna: ÓMETANLEGT AÐ HITTAST OG RÆÐA VANDAMÁLIN gébé—Rvik. — Fimmtándu ráð- stefnu Samtaka norrænna búvisindamanna lauk i Reykjavik i gær, en þá hafði ráöstefnan stað- ið siðan á þriðjudag. Við slit ráð- stefnunnar flutti forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn erindi, sem hann nefndi Hugleiðingar um land og þjóð. Siðan sleit formaður samtakanna, Sveinn Hallgrims- son ráöstefnunni, en erlendir full- trúar dvelja hér i nokkra daga i viðbót og munu þeir fara I ýmsar Rolf ólsson tekur á móti viður- kenningu fyrir ritgerð sina, af A. Hjortshoj-Nilsen, formanni hag- fræöideildar. Tímamynd G.E. Forseti tslands, dr. Kristján Eldjárn, flytur erindi sitt: Hug- leiðingar um land og þjóö. Tlma- mynd: G.E. skoöunar- og kynningarferðir um land allt. Mörg mál voru tekin fyrir á ráðstefnunni Og var unnið i mörgum starfshópum eða deild- um. — Þetta var svo sannarlega vinnu-ráðstefna, sagði Ottar Jamt, framkvæmdastjóri sam- takanna, og hafa fulltrúar haft nóg að gera þessa daga. Geysi- lega margir fyrirlestrar voru haldnir á ráðstefnutimanum. Ottar Jamt, framkvæmdastjóri samtakanna, sagði i viðtali við Timann, að i Samtökum nor- rænna búvisindamanna væru samtals 2.500 meölimir I Dan- mörku, Finnlandi, tslandi, Noregi og Sviþjóð. Samtökin starfa i ell- efu deildum, sem eru: I. Jarðveg- ur og áburður, II. Jurtarækt, III. Bithagar, IV. Jurtasjúkdóma- fræði og landbúnaðardýrafræði, V. Búfénaður, VI. Næringarefna- fræði, VII. Tækni, VIII. Ræktunartækni, IX. Land- búnaðarhagfræði, X. Kennsla og ráðgjöf, og XI. Umhverfisvernd. Otto Jamt sagði, að ráðstefn- urnar, sem haldnar eru fjórða hvert ár, væru yfirleitt mjög vel sóttar og væru eitt aðalatriði samtakanna, og mjög mikil áherzla lögð á undirbúning þeirra. Sagði hann, að nú hefði verið reynt i fyrsta skipti að breyta dagskrá ráðstefnunnar með þv í, að i stað þess aö deild- irnar hefðu áður unnið saman hver útaf fyrir sig, þá hefðu nú sex deildir unnið saman að sama verkefninu, sem var grasrækt. Hefði þetta gefizt mjög vel og yrði þvi haldið áfram á næstu ráð- stefnum. Þá sagöi Ottar Jamt, að ómetanlegt væri fyrir búvisinda- menn að koma saman og ræöa vandamál sin, sem væru mörg sameiginleg á öllum Norðurlönd- unum. Þeir skýrðu frá niðurstöö- um sinum — og þeir hafa engin leyndarmál á þessu sviöi hver fyrir öörum, og þvi er þetta mjög nytsamlegt i starfi þeirra, sagöi Ottar Jamt. — Þá sækja þeir bæöi styrk og hugmyndir hver til ann- ars á þessum ráðstefnum. — Viö þurfum aö geta nýtt náttúruauð- æfi okkar sem allra bezt, sagði hann, og verðum að hjálpa bænd- um i hinu margþætta starfi þeirra, til að þeir nái sem beztum gæðum. Fulltrúar ráðstefnunnar heimsóttu nokkra bæi i nágrenni Reykjavikur, auk tilraunastööva og sagði Jamt, að hann gæti óhræddur fullyrt, að þeir hefðu orðið fyrir miklum áhrifum eftir þær ferðir og haft mikla ánægju af. Jamt sagði, að allflestir er- lendu fulltrúanna heimsæktu nú Island i fyrsta sinni og ættu varla orð til að lýsa ánægju sinni yfir hve heimsóknin hefði i alla staði tekizt mjög vel. Þá fannst og ráð- stefnugestum sér mikill heiður sýndur er forseti Islands heiöraði þá með nærvist sinni, bæði viö opnun ráðstefnunnar og við slit hennar, þar sem hann hefði flutt mjög fróðlegt og athyglisvert er- indi. Þá er þess að geta aö iokum, að á föstudaginn, þegar ráðstefnunni var slitið, var Rolf Olsson frá Sviþjóð veitt viðurkenning fyrir beztu ritgerð i landbúnaðarhag- fræði,á Norðurlöndum, sem birzt hefur á timabilinu 1971-1974 og hlaut hann 1500 kr. sænskar. Formaður hagfræðideildar A. Hjortshoj-Nilsen afhenti Olsson viðurkenninguna. Sveinn Hallgrimsson, sem hefur veriö formaður samtakanna siðastliðin fjögur ár, sleit svo ráðstefnunni i Háskólabiói. Ottar Jamt, framkvæmdastjóri samtakanna. Timamynd: Róbert.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.