Tíminn - 05.07.1975, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.07.1975, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Laugardagur 5. júli 1975. Hér má sjá ýmis þau tæki, sem notuö voru á rjómabúinu. t horninu vinstra megin er strokkurinn, en fyrir miöri mynd smjörhnoðarinn. Timamynd: Róbert. RJÓMABÚIÐ AÐ BAUGSSTÖÐUM OPNAÐ SEM MINJASAFN — eina rjómabúið, sem varðveitzt hefur með öllum búnaði Gömul mynd af þeim Margréti Júniusdóttur rjómabússtýru, t.h. og aöstoöarstúlku hennar Guörúnu Andrésdóttur t.v. Á milli þeirra sér i strokkinn. Guðrún heldur á smjörhnif, sem notaöur var viö mótun smjörsins. Ljósmynd: Vigfús Sigurgeirsson. HJ—Reykjavik. A fyrsta ára- tugi þessarar aldar voru stofnuð rjómabú viðs vegar um land, til þess að nýta sem bezt höfuð- verðmæti m jólk ur in nar. Rjómabúin mörkuðu fyrstu vél- væðinguna i Islenzkum land- búnaöi, en blómaskeið þeirra var þó stutt. 1906 — sex árum eftir að hið fyrsta var stofnað — voru þau orðin 34, en siðan fóru þau að týna tölunni, og 1915 voru þau 24. Það rjómabú, sem lang- lengst var starfrækt var rjóma- búiö aö Baugsstöðum austan Stokkseyrar, en þar var starf- semi allt frain á árið 1952. Nú eru rjómabúin nær öll horfin og sá búnaður, sem þeim fylgdi kominn út i veður og vind. Eitt stendur þó eftir með öllum búnaði — rjómabúið að Baugs- stöðum, sem var endurvigt sem minjasafn þann 21. júni s.l., en þá voru 70 ár liðin siðan það fyrst tók til starfa. Að endur- gerð búsins standa Búnaðar- samband Suðurlands, Byggða- safn Arnessýslu og búnaðar- félög Stokkseyrar-, Villinga- holts- og Gaulverjabæjar- hrepps, en yfir þá þrjá hreppa náði starfssvæði búsins i sinni tlð. Það var á sjöunda áratug þessarar aldar, sem nokkur áhugahópur um varðveizlu Baugsstaðabúsins myndaðist og hvöttu þjóðminjaverðirnir dr. Kristján Eldjárn og Þór Magnússon sem skoðuðu búið i aprillok 1968 til varðveizlu þess i óbreyttu formi á staðnum, enda er þarna afar fagurt og skemmtilegt. Rjómaskálinn, sem er höfuðbygging búsins, stendur við Þórðarsker skammt frá Baugsstaðaá. Hann er báru- járnsklætt timburhús, nokkuð grafinn i jörð, og eru veggirnir að neðan út steinsteypu til varn- ar ágangi vatns. Skálinn er þri- skiptur, móttökuherbergi með suðupotti og ýmis áhöld, tunnur og önnur ilát. Þá er vinnuher- bergi, með hnoðunarvél, strokk og öðru sem tilheyrir. Austan á húsinu utanverðu er stórt yfir- fallshjól, og vatni veitt úr 1400 metra löngum vatnsveituskurði á hjólið. Hægra megin við mót- tökuherbergið er svo ibúðarher- bergi, búið húsgögnum og hitað með kaminu. Yfirfallshjólið i Baugsstaðabúinu er líklega hið eina sinnar tegundar á Islandi nú á dögum, og var það endur- smiðað af Ólafi Gunnarssyni á Baugsstöðum og Magnúsi Hannessyni á Hólum. Margrét Júníusdóttir frá Syðra-Seli i Stokkseyrarhreppi veitti rjómabúinu forstöðu frá 1928, þar til þvi var lokað 1952. Áður hafði hún veitt öðru rjómabúi forstöðu um tuttugu ára skeið og átti lengstan starfs- aldur allra íslendinga á þessum vettvangi. Margrét lét séreink- ar annt um að varðveita öll mjólkurvinnslutæki og er hún lézt fyrir fáeinum árum, tók að- stoðarstúlka hennar Guðrún Andrésdóttir upp merki hennar og hefur með þekkingu sinni og reynslu stuðlað að þvi, að rjómabúið tæki á sig sina upp- runalegu mynd. Fljótlega eftir að endurreisn búsins hófst, fékkst ríkisstyrkur til verksins — 50 þúsund krónur á ári nú f fimm ár. Einnig hafa hrepparnir og Búnaðarsam- band Suðurlands og Arnessýslu styrkt verkefnið, hver eftir sinni getu. Eitt stærsta tillag, sem borizt hefur frá öðrum aðiljum, er vinna og efni við legur og öxul vatnsaflshjólsins, sem Vélsmiðjan Héðinn gaf i minn- ingu Markúsar heitins Ivars- sonar forstjóra. Þá barst varð- veizlufélaginu einnig óvænt peningagjöf frá Búnaðarfélagi Hrunamanna. Erfingjar Margrétar heitinnar Júniusdóttur gáfu félaginu til eignar búið allt með munum og ennfremur var gerður samning- ur við landeigendur á Baugs- stöðum um endurgjaldslaus lóðarréttindi rjómabúsins. Framkvæmdum miðaði allvel eftir að endurreisnin hófst og lögðu margir hagleiksmenn hönd á plóginn. Þó mun ekki ofmælt, að mestan skerf hafi Sigurður Pálsson á Baugsstöð- um lagt fram, en hann hefur einnig verið nokkurs konar hús- vörður búsins siðustu árin. Frá þvi að endurbætur hófust fyriralvöru hefur stjórnað þeim þriggja manna nefnd frá áður- nefndum félögum. Helgi Ivars- son I Hólum, fulltrúi búnaðar- félaganna þriggja, Páll Lýðsson I Litlu-Sandvik fyrir hönd Byggðasafns Arnessýslu og Stefán Jasonarson fyrir Búnaðarsamband Suðurlands. 1 sumar verður búið opið gest- um á sunnudögum i júli og ágúst, og gefi góð reynsla tilefni til frekari opnana verður það tilkynnt siðar. HAFA TEKIÐ UPP BARÁTTU GEGN NÝNORSKUNNI — Rætt við Alt Nielsen, formann samtaka norskra útvarps- og sjónvarpsneytenda BH—Reykjavik. — Við tölum margar málýzkur I Noregi, ætli það séu ekki ein 10 afbrigði af málýzkum víðs vegar i landinu, en það skilja allir alla. Hitt er verra, að hluti landsmanna skuli hafa tekið upp svokallaða nýnorsku, sem nú er verið að þrengja upp á fólk með óþægi- legustu afleiðingum. Þetta er tilbúið mál og óeðlilegt, og það hefur afskaplega litið fylgi. Það er ekki tekið upp úr neinni sér- stakri mállýzku, svo að það vcrður að læra það frá grunni, og almenningi I Noregi er af- skaplega illa við þetta. Þess vegna höfum við tekið upp baráttu gegn nýnorskunni, og stefnum að þvi að cyða áhrifum hennar. Þannig komst að orði Alf Niel- sen, formaður neytendasam- taka norskra hlustenda, sem heitir Den norske lytterforen- ingen for radio og television, en Timinn hitti hann að máli fyrir nokkrum dögum, er hann var hér á ferð i viðskiptaerindum fyrir fyrirtækið, er hann starfar hjá, og bar áhugamál hans fljótt á góma. — Hlustendasamtökin eru sterkur félagsskapur, telur um 12.000 meðlimi,og báráttan gegn nýnorskunni er efst á stefnuskrá okkar, auk þess sem við höfum stuðlað að þvi að koma á stutt- bylgjuútsendingum fyrir sjó- menn fjarri heimalandinu. Það er oit erfitt að ná slikum stutt- bylgjusendingum, en við höfum stuðlað að þvi að fá þær bættar. Enn höfum við það markmið að koma i veg fyrir áróður i opin- berum fjölmiðlum, en á þvi sviði hafa t.d. kommúnistar verið drjúgir að lauma sér inn. Við biðjum Alf Nielsen að segja okkur frekar frá nýnorsk- Alf Nielsen unni, og hver hann telji helztu vandkvæðin við hana. — Allur almenningur i Noregi talar svokallað rikismál, það er dönskuskotið og inn i það hafa blandazt fjölmörg erlend mál, en þetta er nú það mál, sem vel- flestir tala, og 85% þjóðarinnar vilja ekkert annað mál. En 15% eða svo hafa hafið baráttu fyrir svokallaðri nýnorsku, og það er ekkert smáræðis brambolt, og i skjóli misskilinnar þjóðernis- kenndar, hreinsa málið af dönskum og öðrum erlendum áhrifum. Stjórnmálamenn, sér- staklega lengst til hægri og vinstri, hafa tekið þá upp á arma sina og dekra viðþá, þó að það sé nú ekki mikið um, að þeir noti nýnorskuna i málgögnum sinum. En hún verður uppi bæði i útvarpi og sjónvarpi. Börnin verða að læra bæði málin i skól- um — en vitanlega væri miklu heppilegra að kenna þeim eitt- hvert gagnlegt mál, segjum t.d. kinversku, sem hundruð mill- jóna manna tala. En þetta mál, nýnorskan verður mörgum fjötur um fót. Börnin dragast aftur úr og falla á prófum vegna þessa tilbúna máls, sem á sér raunar enga forsvarsmenn aðra en stjórnmálagosa, ofstækis- menn og þá, sem haldnir eru einhvers konar minnimáttar- kennd i þjóðfélaginu. — Menn eiga að fá að tala sina tungu, sem þeim er eðlileg, sagði Alf Nielsen að lokum, — og það er ekkert nema áróður, að nýnorskan nái nokkurn timann veruiegri fótfestu. Mönnum er illa við þetta tilbúna mál, sern bætist við það, sem fyrir er. Menn skilja mállýzk- urnar hver hjá öðrum, og það ætti að nægja okkur i Noregi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.