Tíminn - 31.07.1975, Síða 1

Tíminn - 31.07.1975, Síða 1
Loðnustofninn gæti skaðazt illa ef mikið verður veitt af loðnu á næstunni BH-Reykjavik — Veiöar á þessari smáu og mögru loönu geta vart talizt hagkvæmar, et litið er til þeirrar fitu- og þyngdaraukning- ar, sem verður á henni þangað til á næsta sumri. Sem betur fer er árgangurinn 1974 mjög stór, þannig að hann mun tæplega biða verulegt tjón, þótt eitthvað verði veitt af honum nú. Ef hins vegar yrði um stórfelldar veiðar á hon- um að ræða á næstunni, gæti annað orðið upp á teningnum, enda eru veiðar á ókynþroska smáfiski viðurkenndar sem ein aðalorsök slæms ástands fiski- stofna almennt. Þannig komst Hjálmar Vil- hjálmsson, fiskifræðingur, að orði i viðtali við Timann i gær, er við 150 íbúða hverfi í skipu- lagningu uppi á Kjalarnesi BH—Reykjavik. — Vestanvert við Bergvik, vestan við þjóðveg og sunnan við sýsluveg að Brautarholti á Kjalarnesi er bú- ið að skipuleggja ibúðarhverfi á vegum Kjalarnesshrepps. Er þar gert ráö fyrir samtals 151 ibúð, sem skiptast þannig, að 112 ibúðir eru i einbýlishúsum og 39 ibúðir i raðhúsum. Enn- fremur eru á svæðinu fyrir- hugaðar 5 lóðir fyrir léttan iðn- að ásamt leiksvæðum og litilli verzlun. Bjarni Þorvarðarson, oddviti Kjalarnesshrepps, tjáði blaðinu i gær, að landsvæði þetta væri i eigu hreppsins, úr landi Hofs, og yrði hér um leigulóðir að ræþa. Módel af svæðinu verður til sýnis i Fólkvangi á Kjalarnesi næstu 6 vikur 4 fyrri kvöld vik- unnar kl. 8-10 e.h. og opið i fyrsta sinn i kvöld, ennfremur yrði uppdráttur af svæðinu til sýnis á skrifstofu skipulags- stjóra i Reykjavik. leituðum álits hans á loðnu- veiðunum fyrir Norðurlandi. Kvaðst Hjálmar vilja undirstrika það, að með þessu væri hann sizt að amast við tilraunaveiðunum, en eins og kunnugt er gildir veiði- bann til 1. ágúst, en þrir bátar hafa fengið undanþágu til loðnu- veiða fyrir Norðurlandi, þeir Guömundur RE, Eldborg GK og Arni Sigurður AK. Eldborgin hefur komið tvisvar til Siglufjarðar með loðnu, rúm- lega 15 tonn i fyrra skiptið, og 550 tonn i seinna skiptið. Guðmundur RE hefur að þvi er vitað var i gær, aðeins landað einu sinni, 5-6 tonnum, en fregnir af Arna Siguröi eru á 2. siðu. — Það var nokkru stærri loðna, sem Eldborgin landaði i fyrra skiptiö, sagði Hjálmar Vilhjálms- son, og reyndist fituinnihald þeirrar loðnu 10,3%. — Eins og kunnugt er hefur haffs hamlað loðnuleit hafrann- sóknaskipsins Árna Friðriksson- ar á djúpmiðum fyrir Norður- landi vestanverðu, sagði Hjálmar Vilhjálmsson að lokum, — svo að það er trúlegt, að fiskiskipin hafi enn ekki komizt á þær slóðir, þar sem von er á stærri og afurða- betri loðnu i veiðanlegu ástandi. BYRJAÐ A UNU FRÁ MJÓLKÁ TIL ÍSAFJARÐAR Gsal-Reykjavik — Vestfirðingar óttuðust mjög að ekkert yrði úr framkvæmdum við lagningu nýrrar raflinu frá Mjólkárvirkjun i Arnarfirði, áieiðis til isafjarðar, en þær framkvæmdir voru fyrir- hugaðar og fengizt hafði fjár- veiting að upphæð 51,3 milljónir kr. á yfirstandandi fjárlögum til verksins. Um tima var ákveðið af Raf magnsveitum rikisins að fresta þessari framkvæmd og var ástæöan fjárhagsvandræði raf- magnsveitnanna, en á fundi stjórnar RARIK á þriðjudag var ákveðið að hefja strax þetta verk, — og er iagning linunnar nú hafin. Að sögn Sverris Ólafssonar, yfirverkfræðings hjá Rafmagns- veitum rikisins verður ltnan lögð frá Mjólká að Gemlufalli i ár, en það er sú framkvæmd sem fjár- veiting hafði fengizt fyrir, — og kvað Sverrir stefnt að þvi að ljúka þvi verki fyrir áramót, og i siðasta lagi i byrjun næsta árs. Sarnkvæmt fjárlögum átti lagning linunnar frá Mjólkár- virkjun að Gemlufalli að kosta 51,3 milljónir króna, eins og að framan greinir, en sökum ýmissa verðhækkana og gengisbreytinga er talið að sú fjárhæð eigi eftir að tvöfaldast áður en verkinu lýkur. Kvað Sverrir nýjustu kostnaðar- áætlun hljóða upp á 100 millj. kr. A næsta ári mun svo að öllum likindum haldið áfram þessu verki og þá mun linan verða lögð inn Breiðdal tii ísafjarðar. Að sögn Sverris er heildarkostnaður við lagningu þessarar nýju raf- linu áætlaður 272 milljónir kr. Vestfirðingar voru að vonum óánægðir þegar þeim bárust upp- lýsingar um frestun á þessum framkvæmdum og stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga lýsti yfir undrun sinni á þeirri ákvörðun og kvað hana i mótsögn við yfirlýstan vilja Alþingis og óskir og þarfir Vestfirðinga, kvaðst stjórn Fjórðungssam- bandsins vænta fullnægjandi skýringa á þessari ákvörðun, frá stjórn Rafmagnsveitnanna. Eins og áður er frá greint er lagning linunnar nú hafin og verður verkinu hraðað sem kost- ur er. Fimm heilsugæzlu stöðvar boðnar út FERÐA B i ■ Tíminn hefur gefið út sér- stakt ferðablað: Ferða-Tim- ann, sem er 88 siður i sama broti og Heimilis-Timinn. t Ferða-Timanum cru leiðarlýsingar um allt landið ásamt viötölum við fóik um ferðalög og áningarstaði, kort af islandi og aug- lýsingar með nytsömum upplýsingum fyrir ferðafóik. - á Dalvík og Kirkjubæjar klaustri, í Búðardal, Bol- ungavík og Vík í Mýrdal BII-Reykjavik. Verið er að ganga frá útboðslýsingum vegna fimm heilzugæzlustöðva, á Dalvik, Búðardal, Bolungavik, Kirkju- bæjarklaustri og Vik i Mýrdal. Stærstu verkefnin, sem hafizt var handa við á liðnu ári voru heilsu- gæzlustöð á Höfn i Hornafirði og Akureyri, 1. áfangi. Þetta kom fram i viötali, sem Timinn átti i gær viö Jón Ingi- marsson, skrifstofustjóra i heil- brigðismálaráðuney tinu. Stefnt er að þvi að koma upp tvenns konar heilsugæzlu- stöövum, svonefndum Hl, þar sem starfaði a.m.k. eihn læknir, og H2, þar sem störfuöu a.m.k. tveir læknar. Annað starfslið væri svo ákveðið meö sérstökum reglugerðum. Heilsugæzlustöðv- ar meö einn lækni eöa H1 verða I Bolungavik, Kirkjubæjarkiaustri og Vik I Mýrdal, en H2 verða á Dalvik og Búðardal. A fjárlögum þessa árs er áætlað fé til þessara staða sem hér segir: Dalvik 16,8 millj., Búðardalur 10,0millj., Bolungavik 10,0 millj., Kirkjubæjarklaustur 6,9 millj., og Vik i Mýrdal 6,9 millj.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.