Tíminn - 31.07.1975, Blaðsíða 8

Tíminn - 31.07.1975, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Fimmtudagur 31. jiili 1975. Þarna er verið að byggja við gamalt steinhús við Oldugötuna. Arkitektinn og eigandi hússins hafa greinilega verið sammála um að varðveita „togarastílinn” á húsinu og fylgja hinum upphaflegu mark- miðum, þannig að viðbyggingin mun ekki skera sig frá gamla húsinu, heldurfalla aðþvi. Hróbjartur Hróbjartsson, arkitekt hefur reist þetta glæsilega hús á lóð, sem staðið hafði óbyggt alla tíð. Húsið er ekki einasta glæsilegt, heldur fer vel við umhverfið og þegar er byrjað að fullgera garðinn, þannig aö það verður strax orðið til prýði fyrir þetta hverfi. Fleiri ónotaðar lóðir Ef allrar nákvæmni er gætt, þá vantar þarna tvær hæðir á hús i Vestur borginni. Stækkunarmöguleikarnir eru a.m.k. augljósir. Framnesvegur 50. Þetta litla steinhús hefur nú verið stækkað. Stigi færður i nýreist stigahús, var áður i eldhúsinu. Húsið stækkað að grunnfleti og risið hækkar um einn metra, en baka til er þvf lyft i fulla hæð. Sigurjón Magnússon, byggingameistari annast verkið. Sigurjón Magnússon, byggingameistari annast framkvæmdir á Fram- nesvegi 50. Hann sagði, að húsið gæfi i engu eftir nýjum húsum, þegar endursmiðinni væri lokið. Það er nær að leyfa svona, en vera að kasta hundruöum milljóna I að kaupa lóðir og lönd I öörum sveitarfélögum. Ilann kvað það hafa veriö auðsótt mál fyrir eigandann að fá leyfi til stækkunar hússins. eru á Bergstaðastræti. Getur Reykjav stækkað inná ÞAÐ er staðreynd, að bygging- arland i eigu Reykjavikurborg- ar er að verða fullnýtt. Að visu er hugsanlegt að borgin kaupi t.d. Blikastaði og hefur bóndinn þar greint frá þvi að borgar- stjórinn I Reykjavik hafi þegar óformlega rætt þann möguleika að borgin kaupi téða jörð og telja kunnugir að kaupverðiö sé meira en einn milljarður króna, þótt opinberlega hafi ekki verið sett fram ákveðið kaup- eða sölutilboð i Blikastaði. Hitt er svo annað mál að þvi fer viðs fjarri að landnýting t.d. I gamla bænum sé nægjan- lega mikil. Vlða standa smáhýsi á ágætum lóðum, þar sem reisa mætti fjölda ibúða og auðar lóð- ir eru margar, þar sem aðeins þarf að grafa fyrir húsi. Sumar þessar lóðir hafa staðið óhreyfð- ar áratugum saman, meðan borgin stendur frammi fyrir auknum vanda sökum landleys- is. Fram til þessa virðist hafa rikt fremur íhaldssöm stefna hjá bygginganefnd borgarinnar og hjá borgarráði og borgar- stjörn um byggingar I gömlu hverfunum. Mönnum er iðulega synjað um byggingarleyfi, eða settar eru fram kvaðir, svo sem um húsastærðir og fl. sem gera nýbyggingu óhagstæðari en vera þyrfti. Hæðafjöldi, blla- stæði og fl. sem auðvitað á full- an rétt á sér innan vissra marka a.m.k. • Tveir möguleikar Það er enginn efi á því að I sumum bæjarhverfum a.m.k. þyrfti ekki að gera stórvægileg- ar breytingar á holræsa-, vatns- eða hitaveitukerfi þótt Ibúa- fjöldinn yrði aukinn verulega frá þvl sem nú er og skólar I gömlu hverfunum eru nægir. Það er þvi I rauninni allt að vinna fyrir borgina að byggt sé á sem alflestum stöðum í gamla bænum og kemur þá tvennt til greina, rýmkuð verði ákvæói um hæð húsa og frjálslegar verði farið með úthlutun leyfa til að hækka húsin, sem fyrir eru. Hin leiðin.er sú, að reynt verði með öllum ráðum að byggja á auðum lóðum, jafnvel settar reglur um hvers konar byggingaskyldu. Ennfremur mætti með opinberum aðgerð- um reyna að auðvelda sam- einingu lóða, þannig að unnt væri að byggja stórhýsi, eða reisa hús af hagkvæmari stærð með fjölda ibúða. Þetta gefur góða raun. Má t.d. nefna hús Búnaðarbankans við Hlemm þar sem nokkrar lóðir voru keyptar og sameinaðar i eina, svo unnt var að reisa banka- húsið án þrengsla og með næg- um (?) bifreiðastæðum. Borgin verður að verja hundr- uðum milljóna á ári til verk- legra framkvæmda, gatna- hol- ræsa- hitaveitu- og vatnsveitu- kerfa, ennfremur til lóðakaupa, sbr. Fifuhvamms'landið, og verður ekki séð að unnt hafi verið að anna eftirspurninni um lóðir undir nýbyggingar. A sama tima mætti reisa hundruð húsa (ibúða) í gömlu hverfun- Þetta litla hús stendur innilokað, annars vegar af járnverkstæöum Héöins og gömlu fjölbýlishúsi Reykjavlkurborgar. Hinum megin við Vesturgötuna eru Selbúðirnar, sem voru vistarverur fátækra um áratuga skeið. A þessu svæði mætti nvta verðmætt bveeincarland. sem nú er ónotað að mestu leyti. Gamalt hús viö Sólvallagötu. Þaö er ekki lengur búiö I þessu húsi og einhver sagði okkur, aö bráölega yrði reist þarna nýtt steinhús. Fyllist þá í þetta skarö og fleiri fbúðir bætast viö I skemmtilegu borgar- hverfi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.