Tíminn - 31.07.1975, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 31. júli 1975.
TÍMINN
3
Hér sýnir Sigurður örlygsson llkan af Bernhöftstorfunni eins og hiin gæti litið út, ef henni vaeri sýndur
verðugur súmi. Timamynd Rúbert.
Fjölmenni á þjóðhátíð Vestmannaeyinga:
FAXARNIR FARA FJÓRTÁN
FERÐIR Á DAG TIL EYJA
Varðveizla
gamalla
bygginga
— sýningar og
fyrirlestrar í
Norræna húsinu
JG—RVK. 1 dag, fimmtudag,
verður opnuð sýningin HÚS-
VERND i Norræna húsinu, en
sýning þessi er haldin i tilefni
Húsfriðunarrúðs Evrúpu 1975.
Verður sýningin opin daglega frá
ki. 12.00-19.00 ailan þennan
mánuð.
1 Norræna húsinu er i rauninni
um tvær sýningar að ræða, is-
lenzku sýninguna, sem saman
stendur af ljúsmyndum, prentuð-
um textum, iikönum og húsa-
skrauti, og svo sýningu, sem
hingað er komin frá Norræna
sýningarráðinu. Ber hún heitið
„NORRÆNI TIMBURHÚSA-
BÆRINN”, en þar er gerð
skýrsla um varðveizlu gamaila
húsa, möguleika á varðveizlu
þeirra og niðurrif.
Loks er að geta, að sýndar
verða litskyggnur, þar sem
myndir eru af húsum á tslandi,
bæði gömlum og nýjum.
Þúr Magnússon þjúðminjavörð-
ur mun opna sýninguna, en hann
hefur ásamt Herði Ágústssyni,
skúlastjóra haft veg og vanda af
uppsetningu hennar. Við undir-
búninginn unnu auk þeirra, Júnas
Amar Einarsson, innanhússarki-
tekt, Leifur Þorsteinsson ljós-
myndari, Magnús Skúlason,
arkitekt, Sigurður Harðarson,
arkitekt, Sigurður örlygsson,
listmálari, auk starfsmanna Nor-
ræna-hússins. Að sýningunni
standa, auk Norræna hússins,
Torfusamtökin, Þjóðminjasafnið
og menntamálaráðuneytið.
Ráðgert er að flytja fyrirlestra
i sambandi við sýninguna. Mun
Hörður Ágústsson, skólastjúri
flytja þann fyrsta, 14. ágúst n.k.
Þjóðhátið Vestmannaeyinga
veröur haldin um verzlunar-
mannahelgina og verður með
myndarbrag að vanda. Margir
hyggja á ferð til Eyja af þessu til-
efni og hafa þegar pantáð far með
Flugfélagi íslands. Dagana fyrir
og um þjóðhátið eru fyrirhugaðar
margar aukaferðir, til viðbútar
við daglegt áætlunarflug, milli
Reykjavikur og Vestmannaeyja.
1 gær miðvikudag voru áformað-
ar 7 ferðir til Vestmannaeyja á
fimmtudag 9 ferðir, á föstudaginn
13 ferðir, á laugardaginn 7 ferðir
og á sunnudag 6 ferðir. Á mánu-
dag eru fyrirhugaðar 14 ferðir
milli Vestmannaeyja og Reykja-
vikur og á þriðjudag verður flogin
áætlun, en bætt við ferðum eftir
þörfum.
Sem fyrr segir, verður margt til
skemmtunar á þjóðhátið i Vest-
mannaeyjum. Þjóðhátiðin fer
fram á Breiðabakka og verður
settkl. 14.00föstudaginn, l.ágúst.
Að setningarræðu lokinni er guðs-
þjúnusta, en siðan hefst iþrótta-
keppni. Þá verður sérstök dag-
skrá fyrir yngri Vestmannaey-
inga og gesti þeirra. Kvöldvaka
hefstá Breiðabakka kl. 20.00. Þar
leikur lúðrasveit Vestmannaeyja,
Guðmundur Jónsson syngur,
Leikfélag Vestmannaeyja flytur
frumsamið efni i tilefni þjóðhátið-
arinnar og þjóðhátiðarkvartett
syngur. Auk þess koma fram
skemmtikraftar frá Reykjavík.
Hljómsveit Ingimars Eydals leik-
ur og sömuleiðis Dixielandhljúm-
sveit frá Vestmannaeyjum. Að
lokinni dagskránni hefst dans og
leikur hljómsveit Ingimars
Eydalsfyrir dansi. A miðnætti er
hin hefðbundna brenna. Að þessu
sinni veröur aðaluppistaða
bálkastarins mótorbáturinn Gisli
J. Johnsen, sem margir eldri
Vestmannaeyingar og fleiri muna
Blóðbankann
vantar blóð
BH-Reykjavik. — Skortur er
á blóði i blóðbankanum við
Barónsstig, þrátt fyrir góðar
blóðsöfnunarferðir undan-
farið. Mikil umferðarhelgi er
nú framundan, og eru menn
þvi vinsamlega beðnirum að
gefa blóö i dag.
Heimilis-
Tíminn í
sumarfríi
Útkoma Heimilis-TImans
liggur nú niöri vegna sumar-
leyfa. Næsta tölubiað
Heimilis-Timans kemur út
11. september.
vel, og sem lengi var i feröum
milli Stokkseyrar og Eyja. Dans-
að verður til kl. 04.00 um morgun-
inn.
Laugardaginn 2. ágúst hefst
dagskrá að nýju á Breiðabakka
kl. 14.00. Sigriður Ólafsdúttir flyt-
ur hátiðarræðu, en að þvi loknu
verðurfluttskemmtiefni, ný dag-
skrá og frábrugðin þeirri daginn
áður. Um kvöldiö verður dansað
og á miðnætti verður flugeldasýn-
ing. Sunnudaginn 3. ágúst hefst
dagskrá á Breiðabakka kl. 15.00.
Það er knattspyrnufélagið Týr,
sem sér um þjóðhátíðina að þessu
sinni og hafa Kristján Eggertsson
formaður þjóðhátiðarnefndar og
félagar hans lagt mikla vinnu i
skreytingu á hátiðarsvæðinu og
viö undirbúning allan.
FULLAR VERZLANIR
AF STÓRGLÆSILEGUAA
VÖRUM FYRIR
VERZLUNARAAANNA-
HELGINA
HLJOMSVEITIN CHANGE
LEIKUR í AUSTURSTRÆTI
í DAG FRÁ KL. 4 FYRIR
VIDSKIPT AVINI
> KARNABÆJAR
Dansað fram undir
morgun á bindindis-
mótinu að Galtalæk
— margvísleg skemmtiatriði
fyrir alla aldursflokka
Margt verður tii skemmtunar á
bindindismútinu að Galtaiæk hinn
fyrsta til þriðja ágúst. Hátiðin
hefst með dansleik að kvöldi
föstudagsins, en þá leika
hljúmsveitirnar Júdas og Dögg
fyrir dansi I stúru tjaldi, sem
komið hefur verið upp á staðnum.
Dansieikurinn stendur tii tvö um
núttina.
A laugardag verður mótinu
fram haldið og fyrsta atriði dag-
skrárinnar þann dag er
iþróttakeppni, sem hefst kl. 14.
Siðan verður góöaksturskeppni,
en formleg mótssetning fer fram
kl. 20 um kvöldið. Sveinn H.
Skúlason setur bindindismótið.
Þá lýsir Sigurjón Pálsson staðn-
um fyrir mótsgestum.
Um kvöldið verður enn dans-
leikur i tjaldinu og stendur þá til
klukkan fjögur um morguninn.
Hljómsveitir verða hinar sömu og
kvöldið áður. Þá verður einnig
dansað á palli og leikur
hljómsveit Ólafs Gauks fyrir
dansinum, en Svanhildur og
Agúst Atlason syngja. Sá dans-
leikur stendur til þrjú, svo að allir
ættu að geta tekið spor. Kl. 23 um
kvöldið syngur Sigrún Magnús-
dóttir nokkur lög i tjaldinu mikla
og á miðnætti verður varðeldur
og flugeldasýning.
Sunnudaginn 3. ágúst verður
dagskráin sem hér segir:
Kl. 13.30 messar sira Björn
Jónsson. Kl. 14.30 Róbert bangsi
og Hálfbræður skemmta. Kl. 15.15
Skemmtidagskrá fyrirbörn i um-
sjá Hljómsveitar ólafs Gauks,
Jörundar og Baldurs Brjáns-
sonar. Kl. 16.15 Barnadansleikur
á palli: Hljómsveit Ólafs Gauks
leikur fyrir dansi til kl. 17.30. Kl.
20.00 Kvöldvaka: 1. ölver
Karlsson, Þjórsártúni, flytur
ræðu. 2. Skemmtidagskrá með
þátttöku Hljómsveitar ólafs
Gauks, Svanhildar og Agústar
Atlasonar. 3. Töfrabrögð: Baldur
Brjánsson. 4. Eftirhermur: Jör-
undur Guðmundsson. 5. Ein-
söngur: Magnús Jónsson, óperu-
söngvari. 6. Sigrún Magnúsdóttir
syngur vinsæl lög með
gitarundirleik. Kl. 22.00 Dans-
leikur i stóra tjaldinu.
Hljómsveitirnar Júdas og Dögg,
ásamt söngkonunni Helgu Möller,
leika fyrir dansi til kl. 02.00. Kl.
22.00 Dansleikur á palli:
Hljómsveit ólafs Gauks, Svan-
hildur og Agúst Atlason leika
fyrir dansi til kl. 02.00.
Mótsgjald er kr. 1.500,- Ferðir
verða frá (BSl) Umferðar-
miðstöðinni i Reykjavik.