Tíminn - 31.07.1975, Síða 4

Tíminn - 31.07.1975, Síða 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 31. júli 1975. Nú sleppur sá stóri ekki lenaur A alþjóölegri sýningu i Genf, þar sem kynntar voru nýjar uppfinningar, var m.a. þessi öngull, eða hvað á að kalla það, sem kvað vera ómögulegt fyrir nokkurn fisk að losna af, ef hann gleypir agnið á annað borð. Þótt þessi mynd sé skoðuð gaum- gæfilega liggur ekki i augum uppi i hverju hugvit uppfinn- ingamannsins er fólgið eða hvers vegna fiskurinn losnar ekki af apparatinu, en sjálfsagt er rétt með farið og ekki langt að biða þess, að veiðimenn hætta að segja sögurnar af þeim stóru sem þeir misstu. ☆ Karlafæla Söngkonan Louise O’Brien býr i New York og syngur þar á næturklúbbum og öðrum skemmtistöðum. Hún er oft ein á ferð i bil slnum á siðkvöldum vegna atvinnu sinnar og var orðin þreytt á sifelldu kvabbi karlmanna, sem vildu fá að sitja i hjá henni. Þeir voru si- veifandi henni og héldu auðsjá- anlega að hún væri i óskaplegu karlmannshraki og væri að leita sér að félaga þegar hún ók ein um stræti stórborgarinnar. Tók hún þá það til bragðs að klæða brúðu upp eins og ungan og myndarlegan mann og setti i framsætið við hlið sér. Þá fékk hún að aka i friði fyrir frekum og áleitnum karlmönnum. —■ Þessi talva vinnur verk 100 skrifstofumanna. Þú átt að vinna i nýju deildinni þar sem 150 skrif- stofumenn leiðrétta mistök henn- ar. — Ég vissi ekki að þú værir farinn að reykja Jónatan. — Þú með þina nizku. Til hvers er verið að kaupa ódýra ferð á skfðaslóðir á röngum árstima? DENNI DÆMALAUSI „Tommi kyssti Stinu I dag, þeg- ar hún leit undan.” Er hann að verða eitthvað verri.”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.