Tíminn - 31.07.1975, Side 9
Fimmtudagur 31. júli 1975.
TÍMINN
9
Þetta hús er á Reynimel. Fyrir áratug, eöa svo,var byggð heil hæö ofan
á þetta hús og hefur vafalaust verið og er skemmtilegasta ibúöin I hús-
inu. Á Melunum er fjöldi slikra húsa, sem vel þyldu eina hæö ofan á sig.
Eru þvi miklir möguleikar til þess að fjölga íbúðum á þessu svæði, þar
sem nægir skólar eru fyrir og önnur aðstaða, enda hverfið eitt hið eftir-
sóttasta i borginni.
Það yrði án efa sjónarsviptir að þessu litla fallega timburhúsi I Vesturbænum og hætt viö að litiö pláss
yrði fyrir tril una hja þeim.sem byggju i stóru fjölbýlishúsi, sem reisa má á þessari rúmgóðu hornlóð
Það er þvi ekki allt jafn jákvætt við að byggja innávið I borginni.
íkurbora
ifið?
Texti og myndir:
Jónas Guðmundsson
um þar sem litlu þyrfti að kosta
til, þótt ráðizt væri I byggingar.
Nú skal það viðurkennt, að
mörg eldri hverfin I Reykjavik
eru mjög vinaleg og skara á
vissan háttfram úr mörgu öðru,
sem hér hefur verið byggt, — en
við þvi er ekkert að gera, við
erum landlaust fólk i höfuð
borginni, og verðum þvi að nýta
það sem við höfum, áður en við
hefjumst handa um landakaup
fyrir óheyrilegt verð.
Landvinningastefna
Guðmundar G.
Þórarinssonar
Þá er einn möguleiki enn fyrir
hendi, en hann er sá að borgin
fari að dæmi Hollendinga og
stækki land sitt i sjó sæki það i
greipar Ægis, eins og svo margt
og má þar nefna stórmerka til-
lögu Guðmundar G. Þörarins-
sonar á alþingi i vetur, þar sem
hann leggur til að dælt verði
upp nýjum flugvelli I Skerja-
firði. Við þessa framkvæmd
ynnist mikið landrými fyrir
Reykjavik, það er flugvallar-
svæðið i Vatnsmýrinni, þar sem
reisa mætti fjölmenn Ibúða-
hverfi. Svipaðir möguleikar
gætu verið fyrir hendi á haf-
svæðinu milli Akureyjar, eða
vestur af örfirisey og Granda-
garði
Við höfum þannig ýmsa
möguleika til þess að nýta betur
það sem við höfum.
Ég er ekki svo fróður um
borgarmálefni að ég viti hvort
þau mál, sem hér er tæpt á, hafi
hlotið einhverja meðferð hjá
borgarstjórn, en allavega væri
ástæða til þess að fela einhverri
af stofnunum borgarinnar, eða
einhverjum ákveðnum aðila
„landnámsstjóra”-starf, þar
sem unnið væri að að draga
saman staðreyndir um gamla
bæinn i Reykjavik nýtingu borg-
arlandsins og hugsanlega land-
vinninga.
Dregið úr
þrýstingi
Þá vaknar sú spurning, hver
væri ávinningurinn?
Hann er margs konar. Þótt
vafalaust yrði að verja fé til
lóðakaupa, þá eru það hreinir
smámunir hjá þvi sem það kost-
ar að brjóta land, sem keypt er
fyrir stórar summur. Frjáls-
lynd stefna I byggingu gamla
bæjarins, myndi gera ná-
grannalönd Reykjavikur verð-
minni, þvi að það er ekki sama
hvort borgin mætir til landa-
kaupa I algjörri neyð, eða með
einhverja valkosti, en eins og nú
háttar vita allir að borgin
„verður” að kaupa lönd og
landsvæði, ef hún ætlar að
gegna hlutverki sinu og mæta
auknum fólksfjölda.
Stofnanir, eins og skólar
myndu nýtast betur og minna fé
þyrfti að leggja til skólabygg-
inga og alls konar húsnæðis, þar
á meðal verzlunarhúsnæðis,
sem til er, en verður ekki notað
vegna fámennis, yrði aftur að-
bært Allt þetta virðist augljós-
lega vera til framdráttar fyrir
höfuðborgina.
Þrátt fyrir allt
er enn byggt.........
En þrátt fyrir allt er enn
byggt i gamla bænum. Timinn
heimsótti þessa byggingar-
staði og fór i smá ferðalag um
borgina i leit að liklegum svæð-
um undir fjölbýlishús. Hending
réði hvaða staðir urðu fyrir val-
inu og staðirnir eru ekki valdir
með „annarleg sjónarmið”,
heldur til stuðnings þeim hug-
myndum, sem hér hafa verið
litillega ræddar.
Þetta fallega hús var reist á horni Sólvallagötu og Bræðraborgarstigs.
Þarna var fyrir litið timburhús, sem Gisli forstjóri Raforku átti og bjó í
fyrr á árum. TiIIit hefur verið tekið til næstu húsa og fellur hin nýja
bygging vel að umhverfi og er til sóma.
Hugsanlega mó nýta borgarlandið
stórum betur með aðgerðum og
frjólslyndi hjá byggingayfirvöldum
r m jpí^i
...
Verkamannabústaðirnir við Hringbraut. Um tima mun það hafa komið til oröa að reisa eina hæö ofan á
þessihús, en fremur rúmt er um þau. Ekki varð af framkvæmdum. Þaðmun hafa veriö Byggingafélag
alþýðu, sem reisti húsin. Ef til vill mætti finna leið til þess að framkvæma stækkun húsanna, þannig að
nýjar ibúðir fengjust. Þetta er sem sé möguleiki.
Hornið á Seljavegi og Vesturgötu. Stórhýsi gnæfa yfir gamlan steinbæ. Einhvern tfma siöar mun
verða byggt i þetta skarð og bætast þá við fjölmargar Ibúöir.
Gott dæmi um þann hrærigraut.sem sum borgarhverfin eru. Gamall fallegur bær frá skútutimunum i
sólarskugga frá fjölbýlishúsi. Nýlega hefur veriö byggt þarna I skarð, þar sem hús Hjartar úrsmiös stóð
iengi. Það færi vel á þviaðbyggja I þetta skarð við hentugleika, ef samstaöa fengistum það.