Tíminn - 31.07.1975, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 31. júli 1975.
TÍMINN
11
Úmsjón: Sigmundur ó. Steinarsson- ~
Hrammur rússneska
bjarnarins of þungur
Rússneskir listamenn sýndu snilldarleik og yfirspiluðu fslenzka landsliðið á
Laugardalsvellinum í gærkvöldi og sigruðu 2:0
,,Mig langar til að
reyna eitthvað nýtt
sagði Guðgeir Leifsson, sem heldur til Belgíu á mdnudaginn
„Mig langar til aö reyna
eitthvaö nýtt, fara utan og vikka
sjóndeildarhringinn”, sagöi Guö-
geir Leifsson, einn bezti knatt-
spyrnumaöur islands, sem hefur
nú ákveöið aö taka tilboði
belgiska 1. deildarliösins
Chariesroi. — „Samningurinn,
sem félagiö bauö mér er mjög
góöur,” sagöi Guögeir um
samninginn, sem er til tveggja
ára. Guðgeir hefur æft og leikiö
meö Charlesroi undanfarna 10
daga og mun hann halda aftur til
Belgiu á mánudaginn kemur, en
1. deildarkeppnin þar hefst
seinnipartinn i ágúst.
Þaö verða þvi tveir Islendingar
sem leika i Belgiu næsta keppnis-
timabil, Guðgeir og Asgeir Sigur-
vinsson, sem hefur verið atvinnu-
maður hjá Standard Liege undan-
farin ár.Leikurinn gegn Rússum I
gærkvöldi á Laugardalsvellinum
var kveðjuleikur Guðgeirs að
sinni á íslandi.
— Þetta rússneska landslið er
albezta lið.sem við höfum leikið á
móti og það mcrkilega er, að
þessir strákar höfðu ekkert fyrir
þessu, sagði Guðgeir eftir leikinn
I gærkvöldi. Hins vegar voru
mörkin ekkert til að hrópa húrra
fyrir, — og ég tel, að við höfum átt
öllu hættulegri tækifæri, og með
smá heppni hefðum við átt að
geta skorað eitt til tvö mörk.
Það var eitthvað óöryggi i is-
lenzka liðinu i kvöld og við flýtt-
um okkur of mikið við allt, sem
við gerðum. Annars er engin
skömm að tapa fyrir þessu liði,
sem er áreiðanlega með betri lið-
um i heiminum i dag, sagði
Guðgeir að lokum.
Hrammur rússneska bjarnarins var of þungur fyrir
baráttuglaða islendinga á Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi, en þrátt fyrir 2:0 ósigur, getur íslenzk
knattspyrna samt vel við unað. Sovétríkin eiga frábært
fólk í ýmsum listgreinum, svo sem ballett, listafólk,
sem skarar fram úr. Sovézku knattspyrnumennirnir,
sem iéku á Laugardalsvellinum í gærkvöldi, voru sann-
ir listamenn í sinni grein, og er óhætt að fullyrða, að
aldrei hafi sterkara landslið leikið hér. I fljótu bragði
virtust sovézku leikmennirnir geta gert allt með knött-
inn, nema látið hann tala.
Sigur þeirra í gærkvöldi var þess vegna sanngjarn.
Hitt er svo annað mál, að bæði mörk þeirra lyktuðu af
heppni, sér i lagi fyrra markið, en þar var um sjálfs-
mark að ræða, sem Jóhannes Eðvaldsson skoraði.
I byrjun leiksins voru Is-
lendingar sterkari og þá léku þeir
að fullum krafti. Þeir fengu tvö
hættuleg tækifæri strax i byrjun,
sem mistókust bæði. Teitur
Þóröarsonátti skalla, eftir eitt af
Elmar Geirsson, Eintract Trier:
— Mörkin, sem við fengum á
okkur voru hálf leiðinleg, en það
verður að viðurkennast, að rúss-
neska landsliöið er bezta liðið,
sem við höfum leikið á móti á
þessu sumri, og raunar er liðið
eitt það bezta sem ég hef séð um
dagana. Að fá á sig tvö mörk gegn
jafn sterku liði er alls engin
niðurlæging, þó þvi sé hins vegar
ekki að leyna, að með smá heppni
hefðum við allt eins getað haldið
jöfnu. Eftir gangi leiksins tel ég,
að þessi úrslit séu nokkuð réttlát.
Það er ekkert vafamál að
Rússarnir hafa „stúderað” okkur
mun meira en önnur lið, sem leik-
ið hafa á móti okkur. Ég veit
raunar ekki hvað ég get sagt
meira, — en ég er alltént orðinn
vel þreyttur i fótunum.
GUÐGEIR LEIFSSON.... sést hér á fleygiferð meö knöttinn.
Guögeir átti ágætan leik i gærkvöldi, en þaö var kveðjuleikur
hans og síöasti leikur hans sem áhugamaöur. (Tímamynd Ró-
bert).
löngu innköstunum hans Guö-
geirs Leifssonar, sem markvörð-
ur Rússanna Prokhorov
Aieksandr varði glæsilega með
þvi að kasta sér niður. Stuttu
siðar kom svo Guðgeirmeð annað
innkast, sem skapaði mikinn
darraðardans inn i vitateig Rúss-
anna. Matthias Hallgrimsson tók
við sendingu Guögeirs og markið
blasti opið fyrir framan hann —
en skalli frá honum skall I stöng-
inni og knötturinn hrökk til Jó-
hannesar Eövaldssonar.sem stóö
aðeins hálfan metra frá marklin-
unni. En áður en Jóhannesi tókst
að spyrna knettinum yfir linuna,
tókst rússneskum varnarmanni
að bjarga.
Eftir þessa kröftuglegu byrjun
Islendinganna, þá fara Rússarnir
að taka völdin i leiknum og sýndu
þeir þá frábæran leik — þeir voru
hreinir listamenn með knöttinn
og yfirspiluðu íslendingana al-
gjörlega. Það var hrein unun að
horfa á þá leika. Þeir sóttu nær
stöðugt að marki tslendinganna,
en Arni Stefánsson, sem átti
snilldarleik i markinu, kom i veg
fyrir að þeim tækist að skora.
Fyrst bjargaði hann stórglæsi-
lega langskoti frá Osisnin
Nikolay.sem skaut þrumuskoti af
30 metra færi. Knötturinn stefndi
upp i samskeytin, en áður en hann
komst þangað, þá skauzt Arni
eins og köttur og sló knöttinn yfir
þverslá á siðustu stundu.
Arni mátti hafa sig allan við
stuttu siðar, þegar bezti maður
Rússanna og jafnframt vallarins
Minave Aleksandr stóð i opnu
færi fyrir framan islenzka markið.
Aleksandrþrumaði knettinum að
marki, frá vitateigspunkti — en
Arnisá við honum og skutlaði sér
flötum i loftinu og varði
meistaralega, eins og svo oft áður
i leiknum.
Rússarnir héldu áfram að
sækja i siðari hálfleik og þegar
siðari hálfleikurinn hafði staðið I
7 minútur kom óhapp, sem gaf
þeim mark. Kipiani David
brunaði þá upp hægri kantinn og
sendi knöttinn fyrir markið. Arni
virtist öruggur með fyrirgjöfina
og var á leiðinni út úr markinu til
að góma knöttinn, en þá kom Jó-
hannes Eðvaldsson við knöttinn,
sem breytti stefnu og skauzt fram
hjá Arna — og hafnaði út við
stöng algjörlega óverjandi fyrir
Arna. Framhald á bls. 15.
MATTHIAS HALLGRIMSSON...
stöng. (Timamynd Róbert).
sést hér senda knöttinn að marki meö kolispyrnunni, sem hafnaöi i