Fréttablaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 1
SUÐURLAND
[ ÁFANGASTAÐIR Í ALFARALEIÐ ]
Stendur vörð um
þrjú gildi
Þingvellir
Bls. 2
Vel varðveittur
undir öskunni
Stöng í Þjórsárdal
Bls. 4
Baka
hverabrauð
Geysisstofa í Haukadal
Bls. 7
Þeir kalla mig
Miss Bölti
Hlíðar Skaftafells
Bls. 6
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Áfangasta›ir í
alfaralei›
SUÐURLAND
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Fréttasími: 821 7530
FREMUR HÆG NORÐLÆG EÐA
BREYTILEG ÁTT Í DAG Yfirleitt
úrkomulítið utan stöku þokubakka með
ströndum. Víða bjart. Veður 4
FIMMTUDAGUR
23. júní 2005 - 168. tölublað – 5. árgangur
Núna er lag
Árni Snævarr segir það hafa tekið Ís-
lendinga lengri tíma að
efna loforð sitt um aukin
framlög í þróunarhjálp
en þau ríki sem við ber-
um okkur helst saman
við. Nú sé hins vegar lag
til úrbóta.
UMRÆÐAN 24
Spjallað við kýr og
striplast í grasinu
Jónsmessan er
á morgun. Jó-
hannes skírari
á að hafa
fæðst þennan
dag og heitir Jónsmessan í höfuðið á hon-
um. Samkvæmt þjóðtrúnni á aðfaranótt
hennar, Jónsmessunótt, að vera mjög
sérstök og dulúðug. Fréttablaðið skoðar þá
siði sem tengjast Jónsmessunni.
JÓNSMESSA 38
Allir jafnir í
fataskápnum
GRÉTAR SIGFINNUR SIGURÐSSON
Í MIÐJU BLAÐSINS
● tíska ● heimili
▲
FJÁRLÖG Ríkisendurskoðun segir að
forstöðumenn og ráðuneyti bregð-
ist of seint við þegar ljóst sé að
rekstur stofnana kosti meira en
sem nemur fjárveitingum. Alvar-
legir misbrestir eru á framkvæmd
fjárlaga að mati Ríkisendurskoð-
unar og kemur það meðal annars
fram í því að um 120 ríkisfyrir-
tæki og stofnanir af 520 fara
meira en fjögur prósent fram úr
heimildum, en við þau mörk skal
grípa til sérstakra aðgerða sam-
kvæmt reglugerð sem í gildi er.
Þetta kemur fram í skýrslu sem
Ríkisendurskoðun birti í gær um
framkvæmd fjárlaga síðasta árs.
Ríkisendurskoðun leggur
áherslu á að ráðuneyti og for-
stöðumenn grípi til aðgerða strax
enda stefni ljóslega í óefni. Að
mati stofnunarinnar kemur til
greina að stöðva greiðslur til
stofnana þar til gripið er til við-
eigandi ráðstafana.
Fram kemur í skýrslunni að
stundum hafi forstöðumenn ríkis-
stofnana lagt til sparnaðaraðgerð-
ir en ráðuneytin þá beðið þá um að
staldra aðeins við. Þetta eigi sér-
staklega við þegar um sé að ræða
skerðingu á þjónustu sem geti
verið erfitt að réttlæta í pólitísk-
um skilningi. Af þessum sökum
telji forstöðumenn sig því vera í
góðri trú um að viðkomandi ráðu-
neyti sjái til þess að viðbótarfjár-
heimild fáist. Gangi það ekki eftir
geti stofnunin á endanum setið
uppi með óviðráðanlegan halla.
„Veikleikar í fjármálastjórninni
hafa leitt til þess að úgjaldaþróun
fjölmargra fjárlagaliða er með
þeim hætti að ekki verður við unað
lengur,“ segir í skýrslunni. Vakin er
athygli á að fjárlaganefnd hafi við
afgreiðslu fjárlaga óskað eftir að
ráðuneytin upplýstu um stöðu mála.
„Nánast undantekningalaust hafa
ráðuneytin ekki getað orðið við
þessari beiðni,“ segir orðrétt í
skýrslu Ríkisendurskoðunar. - jh
▲
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
Landlæknir:
Sjálfsvígum
fækkar
HEILBRIGÐISMÁL Sjálfsvígum karla
24 ára og yngri hefur fækkað
um rúmlega helming frá árabil-
inu 1999 til 2001. Í þeim aldurs-
hópi hefur sjálfsvígum fjölgað
mest. Ekki hefur orðið marktæk
breyting á sjálfsvígstíðni hjá
konum á þessu tímabili. Einnig
kom fram að mun fleiri konur
gera tilraunir til sjálfsvígs en
ungir karlar.
Þetta kom fram þegar Land-
læknisembættið kynnti í gær
nýja úttekt á tíðni sjálfsvíga.
Embættið setti fyrir þremur
árum af stað forvarnarverkefn-
ið Þjóð gegn þunglyndi. Hefur
það meðal annars beint starfi
sínu inn í framhaldsskóla lands-
ins. Samkvæmt úttektinni eru
margir þeirra sem eru þung-
lyndir með námsörðugleika.
Sjá síðu 18/ -jss
Það verður á laugardaginn
Ríkisendursko›un skammar
rá›herra vegna a›ger›aleysis
Hljómsveitin Mínus
Rokksveit Íslands hitar upp fyrir Foo
Fighters á Reykjavík Rocks.
FÓLK 50
LANDBÚNAÐARSTYRKIR Tollar á land-
búnaðarvörum munu hugsanlega
lækka um 50 til 70 prósent á
næsta ári í kjölfar nýs samnings
við alþjóðaviðskiptastofnunina
WTO sem landbúnaðarráðuneytið
vinnur nú að.
Þetta segir Ólafur Friðriksson,
skrifstofustjóri í landbúnaðar-
ráðuneytinu, en í nýrri skýrslu
efnahags- og framfarastofnunar-
innar OECD kemur fram að opin-
berir styrkir til bænda séu hlut-
fallslega hæstir á Íslandi. Sam-
kvæmt skýrslunni fá íslenskir
bændur 69 prósent tekna sinna í
formi opinberra styrkja.
„Inni í þessum stuðningi er
allur stuðningur til bænda, bæði
beingreiðslur og markaðsstuðn-
ingur sem er í formi tollavernd-
ar,“ segir Ólafur. „Það er tolla-
verndin sem hleypir þessu aðal-
lega upp,“ segir hann.
Hann segir landbúnaðarskil-
yrði afar erfið vegna legu lands-
ins og því sé stuðningur við
bændur hár en jafnframt séu
styrkirnir að hluta byggða-
tengdur stuðningur.
Hann bendir á að verið sé að
gera nýjan WTO-samning sem
hugsanlega verði kláraður í byrj-
un næsta árs. „Í honum verður
samið um umtalsverða lækkun
eða afnám tolla á landbúnaðar-
vörum og einnig lækkun á heildar-
stuðningi, en beinn stuðningur
hefur farið hlutfallslega lækkandi
á Íslandi á undanförnum árum,“
segir Ólafur.
Sjá síðu 8/ - sda
Innflutningur á erlendum landbúnaðarvörum:
Von til a› tollar lækki verulega
SÉRBLAÐ
Sendiráð Íslands -107,5 1.565,9 -228,1 -335,6
1. jan. Fjárheimild Afkoma 31. des.
Háskólinn á Akureyri -126,8 754,0 -107,8 -234,6
Framkvæmdasj. aldraðra -133,0 904,0 -60,6 -193,6
Heilbrigðisst. Suðurnesjum -76,4 1.046,3 -86,8 -163,2
Landbúnaðarhásk. Hvanneyri -37,2 193,3 -98,1 -135,3
Styrkir til fráveitna sveitarfélaga -75,3 220,0 -31,0 -106,3
St. Jósefsspítali, Hafnarfirði -50,9 550,3 -47,4 -98,3
Heilbrigðisst. Vestmannaeyjum -62,6 470,0 -31,0 -93,6
Embætti forseta Íslands -36,8 128,7 -48,6 -85,4
Yfirdýralæknir -54,9 377,6 -25,4 -80,3
HALLAREKSTUR TÍU VERST SETTU STOFNANANNA 2004
Taflan sýnir stofnanir sem hófu árið 2004 með uppsöfnuðum
halla og enduðu það með enn meiri hallarekstri.
Ríkisendursko›un átelur rá›uneyti fyrir a› fylgjast illa me› útgjöldum stofnana sinna. Í n‡rri sk‡rslu er
tala› um veikleika í fjármálastjórn hins opinbera sem ekki ver›i lengur una› vi›.
PRESTAR OG DJÁKNAR Í PRÓSESSÍU Prestar og djáknar gengu í prósessíu frá safnaðarheimili Dómkirkjunnar að kirkjunni sjálfri þar sem
messað var vegna upphafs prestastefnunar klukkan sex í gær. Mikið hefur verið rætt að undanförnu um rétt samkynhneigðra til hjóna-
vígslu og verður afstaða kirkjunnar til þess væntanlega rædd á þessari prestastefnu. Á meðal fjölmargra erlendra gesta voru séra Michael
Kurtz, prestur Vestur-Íslendinga í Winnipeg, og Richard Smith, biskup í sömu borg.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N