Fréttablaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 23.06.2005, Blaðsíða 58
23. júní 2005 FIMMTUDAGUR > Við óskum ... ... Ólafi Inga Skúlasyni til hamingju með samninginn við Brentford og fögnum því að hann fái að spila fótbolta á næstu leiktíð en íslensku landsliðin þarfnast þess sárlega að atvinnumennirnir okkar fái að spila reglulega með félagsliðum sínum.Guðjón fær leikmann Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, hefur nælt í sinn fyrsta leikmann. Um er að ræða markvörðinn Kevin Pilkington sem kemur á frjálsri sölu frá Mansfield þar sem hann hefur verið síðustu fimm ár. Hann hóf þó feril sinn hjá Manchester United og spilaði þar sex leiki með aðalliðinu. sport@frettabladid.is 30 > Íþróttadeild Fréttablaðsins ... .... vill af gefnu tilefni taka fram að hún stendur við fyrri yfirlýsingar í garð þjálfara KR, Magnúsar Gylfasonar, og gefur lítið fyrir útskýringar hans á málinu. Magnús gaf ekki kost á viðtali eftir leik Grindavíkur og KR og hann hreint og beint neitaði að tala við blaðamann Fréttablaðsins á Hótel Loftleiðum þegar óskað var eftir viðtali. Sjöunda umfer› Landsbankadeildar karla fer fram í kvöld. Íslandsmeistarar FH taka á móti Skagamönnum og KR fær n‡li›a firóttar í heimsókn í Vesturbæinn. Heimavöllurinn mun halda FÓTBOLTI Heil umferð fer fram í Landsbankadeild karla í kvöld. ÍBV tekur á móti Val, Fram og Grindavík mætast í Laugardaln- um, Keflavík tekur á móti Fylki, KR fær Þrótt í heimsókn og Ís- landsmeistarar FH taka á móti Skagamönnum. Fréttablaðið fékk landsliðsþjálfarann fyrrverandi Atla Eðvaldsson til þess að spá í tvo athyglisverðustu leiki kvölds- ins – viðureign FH og ÍA og viður- eign KR og Þróttar. „FH-ingar hafa átt í basli með ÍA í gegnum árin en ég held að þeir klári samt dæmið í kvöld. Það verður erfitt en með eðlilegum leik á FH að vinna. Þeir hafa þar að auki heimavöllinn með sér,“ sagði Atli en hann telur að Ólafur Þórðarson þurfi ekki að óttast um starf sitt þótt illa gangi þessa dag- ana. „Óli er besti maðurinn í starf- ið fyrir ÍA og ég sé ekki neinn annan skila hans starfi betur.“ Margir bíða einnig spenntir eftir viðureign KR og nýliða Þróttar. Mikið hefur verið rætt og ritað um KR síðustu daga og pressan þar á bæ er mikil eins og oft áður. Þróttarar urðu fyrir áfalli er þeir töpuðu fyrir Hauk- um í bikarnum og verður forvitni- legt að sjá hvernig liðin mæta stemmd til leiks. „Þetta er áhugaverður leikur. KR-ingum tókst loks að skora eitt- hvað af mörkum gegn Leikni og verður gaman að sjá hvort þeir geti fylgt því eftir. Ég held að í þessum leik eins og hinum muni heimavöllurinn skipta miklu máli og því mun KR vinna þennan leik,“ sagði Atli Eðvaldsson. henry@frettabladid.is Anna Margrét Guðmundsdóttir, leik- maður Stjörnunnar í Landsbankadeild kvenna, átti heldur betur viðburðaríkar þrjár mínútur í leik Keflavíkur og Stjörn- unnar í fyrrakvöld. Þetta byrjaði allt á 63. mínútu er hún skoraði fyrsta mark Stjörnunnar en Keflvíkingar höfðu skorað þrisvar í fyrri hálf- leik. Leikurinn var varla byrjaður aftur er hún braut á sér og fékk gult fyrir og svo einungis mín- útu síðar braut hún aftur af sér. Dómarinn gaf henni sitt annað gula spjald og mátti hún yfirgefa völlinn. „Ég átti alveg skilið spjaldið sem ég fékk fyrir fyrra brotið,“ sagði Anna Margrét. „Ég var hins vegar ekki sátt við síðara spjaldið en gat ekkert sagt. Miðað við hvernig dómarinn dæmdi leikinn átti ég ekki von á síð- ara spjaldinu.“ Hún segir að það sé fremur fátítt að hún skori mörk, hvað þá safni spjöldum. „Ég skoraði eitt mark í fyrra- sumar og ég man ekki hvenær ég fékk síðast spjald,“ segir hún og sagði að þessi hraða atburðarás hefði vissulega komið henni á óvart. „Þetta fer sjálfsagt í einhverja metabók,“ bætti hún við. Landsbankadeild kvenna fer fremur vel af stað en sex umferðum er lokið af fjórtán. Breiðablik hefur fullt hús stiga og lítur út fyrir að Blikar og Valsstúlkur muni heyja einvígi um titilinn. KR-ingar og ÍBV eiga reyndar enn von en þurfa þá að vinna toppliðin. Stjarnan er í neðri hluta deildarinnar með sex stig ásamt tveimur öðrum liðum. „Deildin skiptist alltaf í tvo fjögurra liða hópa,“ segir Anna Margrét. ANNA MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR: STJÖRNUSTÚLKA SEM LÉT TIL SÍN TAKA Mark, gult og rautt á flremur mínútum Keppnisgjald: 1000 kr. hver keppnisdagur – 3000 kr. heildarkeppnin. Frítt í krakkakeppnirnar. Nánari upplýsingar á www.hfr.is. M IX A • fít • 5 0 7 6 3 Fimmtudaginn 23. júní kl. 23.00: Heiðmerkuráskorun (20 km – fjallahjól). Föstudaginn 24. júní kl. 19.00: Sundahöfn / Klettagarðar (45 km – götuhjól). Laugardaginn 25. júní kl. 11.00: Búrfellsstöð í Þjórsárdal (80 km – götuhjól). Sunnudaginn 26. júní kl. 11.00: Búrfellsstöð í Þjórsárdal (20 km – götuhjól). Keppnisflokkar: Meistarar (19 ára og eldri). Unglingar (13-18 ára ). Krakkar (9-12 ára) fimmtudagur og laugardagur. Ekki er skipt í flokka eftir kynjum. Hjólað um Ísland – Fjögurra daga keppni Virkjum eigin orku! Verðlaunafé fyrir sig ur í „Hjólað um Ísland“ er 70.000 kr. fyrir fy rsta sætið í meistaraflok ki og 30.000 kr. fyrir fyrst a sætið í unglingaflokki. FÓTBOLTI Forráðamenn Real Madrid hafa hafist handa við að lokka til sín Steven Gerrard, fyrirliða Liverpool, og eins og venjulega kjósa þeir að fara leiðir sem hinn almenni áhugamaður myndi telja heldur óvenjulegar. Aðferðin sem þeir nota er þó ekki ný af nálinni, því hún er talin eiga mestan þátt í því að félagið tryggði sér leikmenn eins Zined- ine Zidane, Ronaldo og David Beckham á síðustu árum. Aðferð- in er í raun sáraeinföld; félagið greiðir spænskum blöðum fyrir að hafa nafn Gerrards í sem flest- um fyrirsögnum og ekki skemmir fyrir ef eitt stykki mynd af kapp- anum fær að fljóta með. Áhrifin eru meiri en margur gerir sér grein fyrir, því eins og tilfelli Zidane, Ronaldo og Beckham sanna skal ekki vanmeta það vald sem fjölmiðlar búa yfir. Mest selda íþróttablaðið á Spáni er hið útbreidda Marca og hafa náin tengsl þess við Real Madrid fyrir löngu verið gerð op- inber. Í samvinnu við Real vinnur blaðið nú hörðum höndum að því að búa til yfirþyrmandi þrýsting, jafnt á leikmanninn sjálfan sem og Liverpool, í þeirri von að annar hvor aðilinn sannfærist um að best sé að Gerrard yfirgefi Anfield. Myndir af Gerrard höfðu prýtt forsíðu blaðsins í tvígang í þessari viku áður en ljósmyndarar blaðs- ins fundu hann um helgina á Ibiza, þar sem hann var staddur í lang- þráðu sumarfríi. Svo vildi til að Guti, miðjumaður Real Madrid, var staddur á sama stað á sama tíma og fékk ljósmyndarinn Gerr- ard til að stilla sér upp á mynd með Guti. Það þurfti ekki að spyrja að því – þriðja forsíðu- myndin varð að veruleika og að sjálfsögðu var gefið í skyn að Gerrard hefði verið að fá upplýs- ingar um Real Madrid frá Guti. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér hjá Gerrard, og svo virðist sem hann viti það hrein- lega ekki sjálfur. „Ég hef ekki heyrt af áhuga Real og vil ekki tala um málið,“ segir hann. For- ráðamenn Liverpool segjast munu gera allt til að halda fyrirliða sín- um, en þær fullyrðingar breyta þó ekki þeirri staðreynd að „fjöl- miðlaaðferð“ Real hefur hingað til skilað 100% árangri. vignir@frettabladid.is Forráðamenn Real Madrid eru í leit að leikmönnum: Beita fólskubrög›um til a› ná í Gerrard SÆTUR Í HVÍTU Svona gæti forsíðu- mynd Marca á morgun allt eins litið út. Þegar kemur að því að vinna fyrir Real er blaðinu ekkert heilagt enda fær það fínan pening auk einkaviðtala við leikmenn liðsins í staðinn. Myndin er samsett. FRÉTTABLAÐIÐ/NORDIC PHOTOS-GETTY IMAGES SAMSETNING/RÓBERT VARNARMÚR Auðun Helgason og félagar í FH-vörninni hafa spilað frábærlega í sumar enda hefur FH aðeins fengið á sig tvö mörk í Landsbankadeildinni. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI FÓTBOLTI Clive Allen, fyrrum leik- maður Tottenham Hotspur, og nú- verandi varaliðsþjálfari félagsins, fer fögrum orðum um Emil Hall- freðsson í umsögn sinni um leik- menn varaliðsins á heimasíðu félagsins nýverið. Þar segir hann meðal annars að Emil hafi orðið fyrir menningarlegu áfalli þegar hann kom til Englands, en hann hafi aðlagast vel. „Emil er sterkur, kraftmikill og í góðu formi. Hann er mikill karakter og leggur sig allan fram við æfingar á hverjum degi. Hann á nokkuð í land með að verða góð- ur leikmaður, en hann veit af því og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að hann verði góður spil- ari,“ sagði Allen sem sjálfur var ákafalega skæður sóknarmaður. - bb Allen um Emil Hallfreðsson: Mikill karakter og duglegur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.