Fréttablaðið - 23.06.2005, Page 20
Íslenskum eigendum
húsbíla skipta or›i›
hundru›um. Aukin
fljónusta fyrir flá á tjald-
svæ›um er ekki í bo›i
hvar sem er en ef vel er
skipulagt er hægt a›
gista eingöngu á tjald-
svæ›um me› öllum
helstu nau›flurftum.
Með þeirri sprengingu sem hefur
orðið á kaupum Íslendinga á felli-
hýsum, húsbílum og hjólhýsum síð-
ustu ár hefur orðið áberandi skortur
á hentugum svæðum fyrir tækin
enda velflest tjaldsvæði landsins
ekki útbúin með slík ökutæki í huga.
Samkvæmt könnun Fréttablaðsins
bjóða vel yfir 20 tjaldstæði víðs
vegar um landið alla helstu þjón-
ustu, sem ferðafólk á húsbílum
þurfa á að halda.
Upplýsingar af skornum skammti
Líklega er fátt leiðinlegra fyrir
ferðafólk á nýjum dýrum húsbíl
með öllum helstu þægindum að geta
vart notið þeirra vegna þess að
þjónusta er víða af skornum
skammti. Tæma þarf klósett reglu-
lega, aðgangur verður að vera að
vatni ef allt á að vera eins og best
verður á kosið svo ekki sé minnst á
að geta tengst rafmagni til að hlaða
rafhlöður og knýja ljós og raftæki.
Það kom því á óvart að upplýs-
ingar um þá staði þar sem ferðafólk
getur gengið að slíkri þjónustu vísri
liggja alls ekki á lausu. Ferðamála-
ráð, sem heldur úti stórum og mikl-
um ferðabrunni um landið fyrir inn-
lenda sem erlenda ferðamenn,
stendur sig að nokkru leiti vel. Á
heimasíðu þeirra eru upplýsingar
um öll tjaldsvæði landsins, alls 157
með formleg leyfi, og mörgum
þeirra gefin einkunn. Ferðamenn
finna hins vegar engar upplýsingar
er lúta að þjónustu við þá sem ferð-
ast með tjald- eða fellihýsi eða hús-
bíla. Engar upplýsingar er heldur að
fá á skrifstofu ráðsins.
Sama reyndist uppi á teningnum
þegar upplýsinga var leitað hjá upp-
lýsingastöðum fyrir ferðafólk. Að-
eins á þremur slíkum miðstöðvum
hafði starfsfólk almennt vitneskju
um þjónustu sem í boði var á tjald-
stæðum héraðsins.
Ferðafólki er bent á að verða sér
úti um tímaritið Áning 2005 sem
fæst gjaldfrítt á mörgum upplýs-
ingastöðum fyrir ferðamenn. Eru
þar einna ítarlegastar upplýsing-
arnar um tjaldsvæði landsins og þá
þjónustu sem þar er veitt.
Allt er þegar þrennt er
Segja má að fyrir húsbílaeigendur
sem skipta orðið hundruðum hér á
landi fyrir utan þann fjölda húsbíla
sem hingað kemur með Norrænu
hvert ár sé aðgangur að vatni, raf-
magni og aðstöðu til að tæma sal-
erni einna mikilvægast. Vitaskuld
er hægt að komast af án þess en það
er súrt til þess að hugsa fyrir þá
sem greitt hafa dágóðar upphæðir
fyrir þægindi og lúxus í nýjum hús-
bílum.
Sérstök stæði fyrir húsbíla eru
allvíða á tjaldstæðum landsins en ef
í harðbakka slær er hægt að leggja
hvar sem er og hefur það einmitt
verið raunin á nokkrum stöðum þar
sem þjónusta á tjaldsvæðum er tak-
mörkuð að ferðafólk leggur þá oft á
tíðum á vegum yfir nótt. Fullyrða
má þó að finna má öllum stað þegar
á tjaldsvæði er komið nema þá að-
eins að húsbílarnir séu of margir. Í
Ásbyrgi, sem er vafalítið einn allra
vinsælasti áningarstaðurinn hér-
lendis komast innan við tíu bílar í
einu í rafmagn og verða hinir að
gera sér að góðu að vera án.
Allnokkur tjaldstæði sem ekki
eru talin upp hér bjóða rennandi
vatn og í einhverjum tilfellum raf-
magn en ekki upp á tæmingu á
ferðaklósettum með góðu móti. Þó
skal ferðafólk ekki bera kvíðboga
fyrir að prófa hin 140 tjaldstæðin á
landinu enda margt annað í boði
víða eins og heitir pottar, aðgengi
fyrir fatlaða, sorpflokkun og sólar-
hringsgæslu á tjaldsvæðunum.
Betur má ef duga skal
Hjónin Sigrún Haraldsdóttir og Jón
Gunnar Þorkelsson gerðu gott betur
en láta sér nægja að kaupa sér hús-
bíl fyrir þremur árum síðan. Þau
hafa nefninlega búið í honum síðan
og ferðast í honum landa á milli
hvert ár. Þau koma þau árlega til Ís-
lands og sjá landið og aðbúnað fyrir
ferðafólk sannarlega með gests
augum.
Sigrún segir aðstöðunni almennt
áfátt á Íslandi en breyting sé að
verða til batnaðar. „Það má margt
betur fara heima á Íslandi. Merk-
ingum er áfátt og engar eru sér-
merkingar fyrir húsbíla eins og
tíðkast í öðrum löndum Evrópu.
Hvergi annars staðar er heldur
heimilt að leggja hvar sem er yfir
nótt en á Íslandi er í rauninni engar
athugasemdir gerðar við slíkt nema
á Seyðisfirði. Aðstaðan er misjöfn
og langt í land að hún sé svipuð og
erlendis en það er þó aðeins að
breytast enda sífellt fleiri sem
sækja landið heim á húsbíl.“
albert@frettabladid.is
20 23. júní 2005 FIMMTUDAGUR
Verð á sumarblómum hjá fjórum
stærstu söluaðilunum á höfuð-
borgarsvæðinu er að mestu það
sama og verið hefur undanfarin ár
og fer lítið eitt hækkandi ef eitt-
hvað er. Þó er kjörtími núna til
þess að versla litskrúðug blóm í
garðinn því verðið lækkar að jafn-
aði þegar líður fram á sumar og
svo er einnig nú.
Svo undarlega vill til þetta sumarið
að stjúpur eru einna ódýrastar
þegar keyptar eru í magni en þær
eru að jafnaði dýrastar allra sum-
arblóma. Engin ein skýring er til á
því að sögn garðyrkjufræðinga
sem leitað var til en allir vildu þeir
meina að samkeppni í sumar-
blómageiranum væri afar virk en
fjögur fyrirtæki eru stærst á því
sviði á höfuðborgarsvæðinu;
Blómaval, Garðheimar og gróðra-
stöðvarnar Mörkin og Storð.
Vernharður Gunnarsson, eigandi
gróðrastöðvarinnar Storð á Dal-
vegi, segir eftirspurn eftir blómum
svipaða og undanfarin ár. Verð sé
almennt það sama og það var.
Hann tekur þó fram að engar teg-
undir hafi hækkað í verði.
Í svipaðan streng tekur Helga
Steingrímsdóttir, garðyrkjufræðing-
ur hjá Garðheimum. Þau segja
sumarblóm seljast yfirleitt vel fram
í júlí en markaðurinn hafi tekið
seint við sér nú vegna tíðarfarsins
í vor sem var kaldara en undanfar-
in ár.
Ver›lag svipa› og í fyrra
VERÐKÖNNUN SUMARBLÓMIN Í GARÐINNÚTGJÖLDIN > Hvað kostar tíu mínútna símtal?
Síminn 113,50
Vodafone 102,50
Síminn 242,50
Vodafone 202,50
Síminn 152,50
Vodafone 152,50
*Venjuleg dagsgjaldskrá án allra tilboða eða afsláttarpakka
INNAN KERFIS
GSM í GSM
GSM í GSM
UTAN KERFIS
SÍMINN GSM í Vodafone GSM
Vodafone GSM í Síminn GSM
Í HEIMASÍMA
Síminn GSM í heimasíma
Vodafone GSM í heimasíma
og hagur heimilanna
Tjaldsv. í Laugardal, Reykjavík
Tjaldsvæðið í Borgarnesi, Borgarf.
Tjaldsvæðið Fossatúni, Borgarf.
Tjaldsvæðið á Tálknafirði, Vestfj.
Tjaldsvæðið Tungudal, Ísafirði
Tjaldsvæðið Hlíð, Mývatni
Tjaldstæðið Ásbyrgi, Norðurlandi
Tjaldstæðið Seyðisf., Austurlandi
Tjaldsv. Borgarf. Eystri, Austurl.
Tjaldsvæðið Hallormstað, Austurl.
Tjaldsvæðið að Höfn, Austurlandi
Tjaldsvæðið Egilsstöðum, Austurl.
Tjaldsvæðið á Djúpavogi. Austurl.
Tjaldstæðið Hveragerði, Suðurlandi
Tjaldst. að Kirkjubæjarkl., Suðurl.
Tjaldstæðið í Þorlákshöfn, Suðurl.
Tjaldstæðið að Laugarvatni, Suðurl.
Tjaldsvæðið á Hvammst., Norðurl.
Tjaldsvæðið að Laugarbakka
Tjaldsvæðið Alex, Reykjanesi
Tjaldsvæðið Bakkaflöt, Skagafirði
Tjaldsvæðið í Kjarnaskógi, Norðurl.
Hagur húsbílaeigenda
fer vænkandi
LITRÍKT SUMAR Fátt er meira uppörvandi en að
koma í vel snyrta garða sem litir og angan sumar-
blóma setja svip sinn á.
ÍSLAND ER LANDIÐ
Á kortinu má sjá þá staði þar sem eigendur húsbíla fá alla helstu þjónustu
sem þeir óska, svo sem aðstöðu til að tæma ferðaklósett, rafmagnstengingar
og rennandi heitt og kalt vatn. Afar mismunandi er hvaða þjónustu önnur
tjaldstæði bjóða upp á en á mörgum þeirra stendur til að auka þjónustu á
næstunni vegna aukinnar umferðar húsbíla.
1
2 3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21 221
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
12