Fréttablaðið - 23.06.2005, Qupperneq 27
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 8
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Góðan dag!
Í dag er fimmtudagur 23. júní,
174. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 2.55 13.30 00.04
AKUREYRI 1.28 13.15 00.59
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Grétar Sigfinnur Sigurðsson, fótbolta-
maður í Val, gerir ekki upp á milli
flíkanna í fataskápnum sínum og gæti
ekki lifað án sokkanna.
Þegar blaðakona spyr Grétar hvað sé
ómissandi í fataskápnum hans kemur
spurningin svolítið flatt upp á knattspyrnu-
kappann. „Ég held að ég gæti ekki lifað án
sokkanna minna,“ segir Grétar og hlær.
Þegar blaðakona vill fá frekari útlistun á
sokkasafni hans hlær hann og svarar.
„Þetta svar var eiginlega meira sagt til þess
að gera grín að spurningunni. Mér finnst
hún nefnilega frekar asnaleg. Ég kaupi
mikið af fötum en ég á ekkert eitt sem er í
uppáhaldi eða eitthvað sem ég er alltaf í. Ég
gef öllum flíkunum í fataskápnum jafnt
tækifæri og geri ekki upp á milli flíkanna
svo engin rifrildi skapist í fataskápnum.
Það eru allir jafnir í skápnum mínum.“
„Ég fylgist ágætlega með því sem er í
tísku en reyni ekki að eltast við tísku-
strauma. Ég kaupi það sem mér finnst flott
hverju sinni og fíla en ég reyni að hugsa
ekki of mikið um hvað er í tísku og hvað
ekki. Ég ligg í það minnsta ekki andvaka
yfir því hverju ég eigi að vera næsta dag og
á nóg á fötum sem ég get farið í strax þeg-
ar ég vakna á morgnana,“ segir Grétar Sig-
finnur Sigurðsson. lilja@frettabladid.is
Allir jafnir í fataskápnum
tiska@frettabladid.is
Fyrirsætan Heidi Klum og
eiginmaður hennar söngvarinn
Seal ætla að búa í Þýskalandi
og ala þar upp barn sitt.
Ástæðan er sú
að brauðið í
Þýskalandi er
gott fyrir rödd
Seal, en hann
segist vera með
fæðuofnæmi og
flestar brauðteg-
undir fari illa í
hann og skaði
röddina.
Vera Wang sem
er þekkt fyrir
hönnun sína á brúðarkjólum,
hefur nú hannað lúxus brúðar-
svítu á hóteli í Hawaii. Nóttin í
svítunni kostar um 250 þúsund
íslenskar krónur og á að vera
sérstaklega rómantísk. Vera
Wang er þá komin í hóp tísku-
hönnuða eins og Armani, Ver-
sace og Christian LaCroix sem
allir hafa hannað hótel.
Louis Vuitton hefur hefur
ákveðið að taka síðasta plássið
í október til að sýna vor- og
sumartísku sína fyrir árið 2006.
YSL Rive Gauche-sýningin hefur
yfirleitt verið haldin á þessum
tíma en Louis Vuitton vill sam-
eina þetta opnun á nýrri versl-
un á Champs Elysses sem
verður opnuð næsta dag.
Berkeley-hótelið
í London hefur
tekið upp á þeirri
nýbreytni að
bjóða upp á pret-
a-porter meðlæti
með kaffinu.
Bakkelsið er
sumsé búið til
samkvæmt
nýjustu tísku, til
dæmis er hægt
að fá smákökur í formi
kvenlíkama sem eru íklæddar,
þ.e. kremið líkist bikini frá
Gucci samkvæmt nýjustu
sumarlínunni.
Elton John hefur boðist til að
aðstoða tónlistarmanninn Pete
Doherty við að losna undan
eiturlyfjafíkn. Elton hefur áður
aðstoðað stjörnurnar Robbie
Williams og Donatellu Versace
að yfirvinna fíkn sína. Auk þess
hefur hann ítrekað áhuga sinn
á að syngja dúet með Kate
Moss, sem er kærasta Pete
Doherty.
Grétar fylgist ágætlega með tískustraumum en þegar kemur að því
að velja uppáhalds flíkina þá segir hann sokkana ómissandi.
LIGGUR Í LOFTINU
í tísku
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ o.fl.
KRÍLIN
Afmælið hans
brósa hlýtur að
vera fyrr en mig
minnti. Hann er
strax orðin svo
góður við mig!
Krukka eða krús
BLS. 7
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000 OG Á visir.is
Skáparnir á heimilinu geta oft
orðið að einhvers konar svart-
holi þar sem öllu er hent inn
og sumt virðist hverfa að eilífu.
Á sumrin leitast flestir við að
vera úti, en rigningardegi er
vel varið inni við að endur-
skipuleggja skápana og hver
veit nema maður finni sund-
fötin frá því í fyrra. Eflaust
lenda margir í vandræðum
með hillupláss eða finna leið
til að skipuleggja hlutina
þannig að auðvelt er að finna
þá. Með smá hyggjuviti og
nokkrum kössum er hægt að
breyta hvaða ruslaralega skáp
sem er í fyrirmyndarskáp sem
unun er að opna og horfa inn
í. Nokkrir góðir hlutir geta skipt
sköpum, eins og góðir kassar
og hilluhengi, en það þarf
bara að muna að mæla skáp-
inn áður en rokið er til og
kassarnir keyptir.
ÞÚ GETUR PANTAÐ
SMÁAUGLÝSINGAR
Á visir.is
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
Vel skipulagður skápur auð-
veldar manni að finna hlutina.
Tekist á við óreiðuna
ÞAÐ ER AUÐVELDARA ER AÐ FINNA HLUTINA Í VEL SKIPU-
LÖGÐUM SKÁP.
M
YN
D
G
ET
TY