Fréttablaðið - 18.07.2005, Síða 1

Fréttablaðið - 18.07.2005, Síða 1
Sendir frá sér Plötu ársins HLJÓMSVEITIN ÉG ▲ FÓLK 30 MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 +11 +8 +9 +11 LÉTTIR TIL syðra í dag. Fremur stíf norð- austanátt og víða nokkur vindur. Rigning með köflum norðan- og austanlands í dag en annars þurrt og bjart syðra. MÁNUDAGUR 18. júlí 2005 - 192. tölublað – 5. árgangur Bindisleysið kostaði hann leigubíl Örnólfur Thorlacius, fyrrum rektor og kennari, var eitt sinn á leið fótgang- andi í skólann til að halda munnlegt stúdentspróf. Uppgötvaði hann þá að hann var bindislaus og þurfti að snúa við til að sækja bindi. Sökum tímaþröngar þurfti hann að taka leigubíl í skólann. TILVERAN 10 Loksins sigur hjá KR KR-ingar völtuðu yfir slaka Framara í Landsbankadeildinni í gærkvöldi og sigruðu 4-0. Við tapið færðust Framarar í botnsæti deildarinnar þar sem Þróttarar unnu frábæran útisigur á Fylki og lyftu sér upp í 7. sæti deildarinnar. ÍÞRÓTTIR 20 Blái hnötturinn á reiki Leikgerð byggð á barnabók Andra Snæs Magnasonar hefur vakið eftirtekt bresks leikhússfólks og lítið leikhús í London hefur lýst áhuga á því að setja verkið á fjalirnar. Höfundurinn er að vonum ánægður með athyglina og útilokar ekki að stærri leikhús taki við sér í kjölfarið og falist eftir Bláa hnettinum. FÓLK 30 Tók sporin me› skólasystrum á sal MAGNÚS SKÚLASON: FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG ● fasteignir ● hús Eiður smári stjórnar útgáfunni Stórveldi me› flrjá starfsmenn KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA AKUREYRI ▲ BAKSVIÐ 12 Byggðastofnun og framfarafélag ▲ VEÐRIÐ Í DAG SAMGÖNGUR „Þetta skapaði stór- hættu fyrir okkur alla leiðina norður og við misstum bílinn næstum út af tvisvar sinnum vegna þessa,“ segir Gréta Jóns- dóttir, en þau eiginmaður henn- ar lentu í tjörupytti þegar þau óku húsbíl sínum um þjóðveginn í Borgarfirði í fyrrakvöld. Voru þau hjónin á ferð norður á land en skammt frá Borgar- nesi gaf nýlagt malbik eftir með þeim afleiðingum að húsbíllinn sökk ofan í tjöru á stuttum kafla. Höfðu þau samband við lög- reglu sem brást skjótt við og tók að vakta umræddan kafla vegar- ins vegna hættu. Þarna fara jafnan margir um, oft á tals- verðum hraða. Vegagerðin hafði snör hand- tök þegar af fréttist og sendi mannskap á vettvang til við- gerðar en allmargir ökumenn lentu með bíla sína í tjörunni. Gréta segir að nánast vonlaust hafi verið að þvo tjöruna af og erfitt hafi verið að aka bílnum en það hafi tekist með því að aka afar varlega alla leiðina norður á Skagaströnd. Lögreglan í Borgarnesi sagði að svo virtist sem handvömm verktaka hafi valdið þessu en gleymst hafi að ganga frá vegin- um sem skyldi þegar verktakinn var við vinnu sína í gær. Vega- gerðin gerði hins vegar við veg- inn á skömmum tíma og engin hætta er nú fyrir hendi. -aöe Handvömm við vegaframkvæmdir á hringveginum: Bíllinn sökk ofan í tjörupytt Bló›i drifin helgi a› baki N‡li›in helgi var sú bló›ugasta í Írak frá flví a› rá›- ist var inn í landi› vori› 2003. Í fla› minnsta 170 manns hafa be›i› bana í árásum undanfarna viku. ÍRAK Upplausnarástand virðist ríkja í Írak og ekki verður séð að hernámsliðið hafi nokkra stjórn á landinu. Í það minnsta 170 manns hafa týnt lífi í sjálfs- morðssprengjuárásum undan- farna viku. Á meðan búa lands- menn sig undir að draga Saddam Hussein fyrir dóm en það vekur jafnframt ótta um að enn frekari átök blossi upp. Í gær bönuðu sjálfsmorð- sprengjumenn 22 í fjölmörgum árásum í höfuðborginni Bagdad og nágrenni hennar. Ein sprengjan sprakk á skrifstofum þar sem kosningar haustsins eru undirbúnar og þar fórust sex manns. Al-Kaída í Írak birti strax yfirlýsingu þar sem sam- tökin lýstu ábyrgð á hendur sér þar sem kosningarnar „væru ekki í samræmi við vilja Guðs.“ Í annarri árás hentu uppreisnar- menn tveimur líkum á götu og skutu síðan lögreglumenn sem huguðu að líkunum. Mannskæðasta árás helgar- innar var hins vegar gerð við sjíamosku í bænum Musayyib, skammt suður af Bagdad. Þar kveikti sjálfsmorðssprengju- maður á vítisvél sinni nærri ol- íubíl sem sprakk í loft upp með þeim afleiðingum að í það minnsta níutíu manns dóu og 150 slösuðust. Al-Kaída hefur einnig sagst bera ábyrgð á þeirri árás. Aðeins ein hryðjuverkaárás hefur kostað fleiri mannslíf síð- an Saddam Hussein var hrakinn frá völdum vorið 2003, hún var framin í bænum Hillah í febrúar- lok en þá biðu 125 manns bana. Yfir 170 manns hafa fallið fyrir hendi hryðjuverkamanna í Írak undanfarna viku og er skemmst að minnast ódæðisins á miðvikudag þegar 26 börn voru myrt með sprengju. Svo virðist sem uppreisnarmenn séu að breyta um aðferðir því flest- ar gagnaðgerðir lögreglu eru miðaðar við bílsprengjuárásir en ekki fótgangandi sprengju- menn. Dómari við dómstólinn sem fjallar um afbrot Saddams Hussein greindi frá því í gær að einræðisherrann fyrrverandi verði ákærður fyrir fjöldamorð á 150 sjíum árið 1982. Þetta verða fyrstu formlegu ákærurnar sem Saddam eru birtar og verði hann fundinn sekur gæti hann verið dæmdur til dauða. Fleiri ákærður eru sagðar í undirbúningi. Óttast er að réttarhöldin muni reita stuðningsmenn Saddams enn frekar til reiði með þeim afleið- ingum að hryðjuverk færðust enn í aukana. sjá síðu 8 / -shg SUBBULEGT Þeir bílar sem um Borgarfjörð fóru í fyrrakvöld lentu í tjörupytti en fyrir utan hættuna af slíku er afar erfitt að ná tjöru af bílum. RAPPAÐ AF LÍFI OG SÁL Bandaríski rapparinn Snoop Dogg hélt tónleika fyrir troðfullri Eg- ilshöll í gærkvöld. Kappinn var nokkru seinni á svið en aðdáendur hans bjuggust við en þegar hann loks hóf upp raust sína varð enginn fyrir vonbrigðum. Ekki hafa allir lýst yfir jafn mikilli ánægju með komu rapparans hingað til lands en af viðbrögðum tónleikagesta í gær að dæma var ekki að sjá að textar hans færu fyrir brjóstið á neinum. SAKLAUST FORNARLAMB Mariam Gassam, þriggja mánaða, var á meðal þeirra sem slösuðust í hryðjuverkaárásum í Írak í gær. M YN D /A P M YN D / G RÉ TA J Ó N SD Ó TT IR FR ÉT TA B LA Ð IÐ /H AR I

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.