Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 78
30 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR Lárétt: 1 guð peninga og ágirndar, 6 gruna, 7 kyrrð, 8 húsgagnaverslun, 9 beita, 10 gerast, 12 nögl, 14 herbergi, 15 á fæti, 16 utan, 17 sog, 18 sundfæri. Lóðrétt: 1 forma, 2 handlegg, 3 skóli, 4 hljóðfærið, 5 tímabil dagsins, 9 hagnað, 11 sjávargróður, 13 ekki í lagi, 14 litu, 17 tveir eins. Lausn. 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Mótmæli í Sandgerði Aðsúgur gerður að heimili Leoncie „Eitt leikhús sem er ekki á West End, en hefur oft verið stökkpallur inn í stærri leikhús, hefur lýst yfir áhuga sínum á að setja Bláa hnött- inn upp í London,“ segir Andri Snær Magnason, höfundur barna- bókarinnar Blái hnötturinn og leik- gerðar samnefnds verks, um áhuga breskra leikhúsa á því að setja verkið upp í London. Jón Gunnar Þórðarson, bróðir Magnús Geirs Þórðarsonar leikhús- stjóra hjá Leikfélagi Akureyrar, boðaði til samlesturs í London fyrir tveimur vikum til þess að vekja áhuga breskra leikhúsa. Á samlestr- inum átti Vanessa Redgrave m.a. að koma fram en hún forfallaðist vegna veikinda bróður síns. Sam- lesturinn gerði sitt gagn og fóru leikhúsin í London að sýna áhuga sinn á Bláa hnettinum í kjölfarið. „Ég yrði mjög ánægður ef þetta ákveðna leikhús sem lýst hefur áhuga sínum vildi setja sýninguna upp en kannski gæti jafnvel eitt- hvað enn stærra leikhús haft áhuga en það kemur í ljós á næstunni,“ segir Andri. Blái hnötturinn er einnig á leið á fjalirnar í Finnlandi í borginni Lahti þar sem sýningin verður sett upp í leikhúsi sem rúmar 700 manns. ■ ANDRI SNÆR MAGNASON Segir að í það minnsta eitt leikhús í London hafi sýnt Bláa hnettinum áhuga í kjölfar samlesturs sem Jón Gunnar Þórðarson hélt í London fyrir tveimur vikum. Svör við spurningum á bls. 8 1 3 2 Harry Potter and the Half Blood Prince Í Fljótavík á Hornströndum Á Landsspítalanum Háskóla- sjúkrahúsi Hljómsveitin Ég hefur nú gefið út sína aðra plötu og ber hún heitið Plata ársins en þeir félagar hafa áður gefið út plötuna Skemmtileg lög. „Þessi plata er allt öðruvísi en sú fyrri og ekki lík henni nema að því leyti að sama fólk kemur að henni. Við höfum náttúrlega þróast pínulítið í gegnum árin og kannski eru fleiri textar á þessari plötu sem hægt er að taka mark á. Þessi plata er miklu meira verk,“ segir Róbert Örn Hjálmtýsson söngvari sveitarinnar. „Við spilum svona dillirokk. Eða nei, mig langar að þetta heiti sölupopp. Það verða allir svo reiðir ef tónlistin þeirra er kallað sölupopp svo segj- um bara að þetta sé sölu- popp. Ég veit ekki hvernig ég á að lýsa tónlistinni, dá- lítið eins ef The Suprem- es myndu hitta Bítlana og fara í partí með Led Zeppelin,“ segir Róbert hressilega en hann semur sjálfur lög og texta ásamt Baldri Sívertssyni. „Textarnir fjalla meðal annars um frekju bankanna og um það að passa peningana sína. Þetta er plata með skilaboð. Annars er ég að spá í að fara á Alþingi af því að ég er alltaf að semja lög. Og þingmenn semja lög svo ég gæti hentað vel sem gagnrýninn og glaður þing- maður.“ Platan er gefin út af fyrir- tækinu Sam-skeytin inn en Eiður Smári er að sögn Róberts stjórnarformaður útgáfunnar. „Við erum uppáhaldshljóm- sveitin hans Eiðs Smára. Það má alveg koma fram. Hann fílar okkur í botn. Annars hef ég alltaf séð aðdáendur okkar fyrir mér sem kannski starfsmenn í fiskvinnslu og með svona heyrnatól að hlusta á tón- listina. Eða svona blaða- strák eða s t e l p u með heyrnartól. Annars er þetta fyrir alla aldurshópa, skallapopp- arar munu dýrka þetta og þetta er fyrir feðga og mæðgur og fyrsta lagið heitir „Fyrir okkur öll“ einmitt af því að þetta er fyrir alla.“ Það tók strákana tvö ár að klára plötuna og nú taka við tónleikahöld og fleira. Þeir munu halda útgáfu- tónleika á Gauki á Stöng þann 23. júlí og þeir verða á Akureyri um Verslunarmanna- helgina. „Platan fæst bara alls staðar og hún kostar tvö- þúsundkall! Ég þurfti að berjast m i k i ð f y r i r því að l á t a hana k o s t a t v ö þ ú s - undkall en ekki tvö og fimm eða e i t t h v a ð . Svo þarf fólk bara að drífa sig því platan er að klár- ast.“ ■ ... fá aðdáendur Harry Potter sem létu sig ekki muna um að standa í biðröð til miðnættis til þess að koma höndum yfir nýj- ustu bókina um galdrastrákinn. HRÓSIÐ Fyrsta tölublað karlablaðsins b&bundir stjórn Þórarins Jóns Magn- ússonar er komið fyrir augu les- enda. Hann tók að sér að ritstýra í það minnsta tveimur tölublöðum eftir að Björn Jörundur Friðbjörns- son hvarf skyndilega úr stóli rit- stjóra. Nokkrar áherslubreytingar eru greinilegar og það er nokkuð ljóst að Þórarinn Jón hefur engu gleymt frá því hann ritstýrði Samúel og síð- ar Bleiku&Bláu. Bleikt&Blátt var und- ir það síðasta réttnefnt klámblað þar til Björn Jörundur tók við því og reyndi að gera það að hófstillt- ara karlablaði. Í þeim blöðum sem Björn Jör- undur ritstýrði skein vel í bert kvenmannshold en þess var gætt að hylja það allra heilagasta. Þórarinn Jón hefur hins vegar um-svifalaust fært b&b nær forveran- um og býður upp á ber brjóst á for- síðu og innan í blaðinu eru grófari myndir með tilheyrandi berum klof- um og skapahárum. Það vekur sér- staka athygli að einn myndaþáttur- inn í nýja b&b er kominn til ára sinna en myndirnar tók Bragi Þór Jósefsson á sínum tíma fyrir Þórarin Jón þegar hann stýrði Bleiku&Bláu. Samkvæmt lestrarkönn- unum dró þó nokkuð úr lestri á Bleiku&Bláu eftir að það varð b&b þannig að það verður óneitanlega fróðlegt að sjá hvort þar hafi skortur á allsber- um konum riðið baggamuninn og Þórarinn Jón muni þannig mað gömlum meðulum ná að rífa lestur- inn upp. [ VEISTU SVARIÐ ] Lárétt:1mammon,6óra,7ró,8tm,9 agn,10ske,12kló,14sal,15il,16án, 17iða,18uggi. Lóðrétt:1móta,2arm,3ma,4orgelið, 5nón,9akk,11þang,13ólag,14sáu, 17ii. FRÉTTIR AF FÓLKI 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI „Algengasta frjókornið á Íslandi er gras og það nær hámarki þegar líður á sumarið. Þetta er verst í kring- um verslunarmannahelgi en þeir sem eru að vinna í grasi geta fengið einkenni mun fyrr,“ segir Michael Clausen læknir. Fólk getur verið með ofnæmi fyrir mismunandi frjókornum og því eru sumir með slæmt ofnæmi á vorin en aðrir seinnipart sumars. „Fyrst á vorin er birkið algengasta frjókornið sem fólk finnur fyrir, en önnur frjókorn á vorin eru af ösp og víði,“ segir Michael. Á ýmsum vefsíðum er hægt að finna frjótölur sem Náttúrustofnun gefur frá sér og þar sést hversu mik- ið magn var af algengustu frjókornunum á nokkrum stöðum á landinu. Betra er að byrja meðferð snemma ef fólk á von á að vera innan um mikið af frjókornum því erfitt er að stöðva einkennin þegar þau eru orðin slæm. Einkenni frjókornaofnæmis eru „nefstíflur, nefrennsli, nefkláði, hnerrar, kláði í aug- um og tárarennsli, og kláði uppi í gómi,“ segir Mich- ael. Hægt er að fá ofnæmistöflur í apóteki sem eru ekki lyfseðilsskyldar og þær slá á einkennin en best er að leita læknis og fá greiningu. „Þetta er mjög mikilvægt ef um börn er að ræða, kvef hjá börnum gæti verið frjókornaofnæmi en þau eru svo hörð af sér að oft uppgötvast þetta seint,“ segir Michael. Michael segir að rannsókn hans frá árinu 2000 hafi leitt í ljós að ellefu prósent tíu ára barna á Íslandi séu með frjókornaofnæmi, en það er svipaður fjöldi og í nágrannalöndun- um. Erfðir hafa mest um það að gera hvort fólk fær frjókornaof- næmi en ofnæmið hef- ur farið vaxandi í hin- um vestræna heimi. „Sú kenning sem hefur orðið efst á lofti er hreinlætiskenningin, það er að segja að lík- aminn fær ekki nægi- lega mikið álag frá bakterium í upphafi því það er svo mikið hrein- læti í kringum okkur,“ segir Michael. Hann segir þó að sóðaskapur sé alls ekki æskilegur og að margir þættir spili inn í aukn- ingu á frjókornaofnæmi. MICHAEL CLAUSEN LÆKNIR OG SÉRFRÆÐINGUR Í OFNÆMISSJÚKDÓMUM BARNA SEGIR AÐ FRJÓKORNAOFNÆMI SÉ ALGENGT MEÐAL BARNA SÉRFRÆÐINGURINN LÆKNIR OG SÉRFRÆÐ- INGUR Í OFNÆMISSJÚK- DÓMUM BARNA Grasofnæmi nær hámarki kringum verslunarmannahelgina RÓBERT ÖRN HJÁLMTÝSSON Hljómsveitin Ég hefur verið starfandi í um þrjú ár og gefur nú út sína aðra plötu. Um er að ræða dillirokk eða sölupopp að sögn Róberts Arnar Hjálmtýssonar söngv- ara sveitarinnar. HLJÓMSVEITIN ÉG: SENDIR FRÁ SÉR PLÖTU ÁRSINS Skallapopparar munu dýrka þetta Blái hnötturinn á fjalirnar í London
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.