Fréttablaðið - 18.07.2005, Blaðsíða 4
KAUP
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
64,66 64,96
113,7 114,26
78,14 78,58
10,473 10,535
9,797 9,855
8,314 8,362
0,5771 0,5805
93,87 94,43
GENGI GJALDMIÐLA 15.07.2005
GENGIÐ
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
SALA
109,5038
4 18. júlí 2005 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL „Það má segja að
þetta sé viðunandi árangur og vel
innan skekkjumarka,“ segir Anna
Lilja Gunnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri fjárreiðna og upp-
lýsinga hjá Landspítala-Háskóla-
sjúkrahúsi.
Samkvæmt fimm mánaða upp-
gjöri er 67 milljón króna halla-
rekstur á spítalanum á þessu ári en
það er töluvert betri árangur en
undanfarin ár. Anna Lilja segir að
aðhaldsaðgerðir séu að skila ár-
angri en einnig séu núna að nást
fram að mestu þau samlegðaráhrif
sem stefnt var með sameiningu
sjúkrahúsanna tveggja, Landspít-
ala og Borgarspítala.
„Á móti komu tveir þættir sem
höfðu áhrif til hins verra varðandi
fjárhaginn. Annars vegar mikil
aukning innlagna vegna flensutil-
fella og dráttarvaxtagreiðslur eru
umfram áætlun vegna uppsafnaðs
greiðsluhalla undanfarinna ára.“
Hálfs árs uppgjör spítalans,
sem gefur mun skýrari mynd af
fjárhagsstöðunni en fimm mán-
aða uppgjörið, verður birt um
miðjan ágúst. -aöe
Tengsl á milli al-Kaída
og eins árásarmannsins
Hry›juverkama›ur á vegum al-Kaída hefur bori› kennsl á einn fjórmenning-
anna sem taldir eru bera ábyrg› á árásunum í Lundúnum. Lögregla útilokar
ekki a› árásarmennirnir hafi veri› leiddir í gildru af útsendurum samtakanna.
LUNDÚNIR Hryðjuverkamaður
frá al-Kaída í haldi Bandaríkja-
manna hefur borið kennsl á Mo-
hammed Sidique Khan, einn
fjórmenninganna sem taldir eru
bera ábyrgð á sprengingum sem
urðu 55 að bana í Lundúnum
þann sjöunda júlí að því er fram
kemur á netsíðu dagblaðsins
The Independent. Bendir það
enn frekar til tengsla al-Kaída
við hryðjuverkarárásirnar í
Lundúnum.
Hryðjuverkamaðurinn, Mo-
hammed Junaid Babar, var
handtekinn á leið til Bandaríkj-
anna af fundi á vegum al-Kaída.
Hann hefur játað þátttöku í
skipulagningu sprenginga í
Bretlandi og hefur veitt yfir-
völdum mikilvægar upplýsingar
um tengslanet hryðjuverkasam-
takanna.
Ekki er útilokað að útsendar-
ar al-Kaída hafi leitt fjórmenn-
ingana sem frömdu hryðjuverk-
in í gildru. Lögregla telur ekki
víst að mennirnir hafi í raun
ætlað að drepa sjálfa sig í árás-
unum heldur hafi þeir hugsan-
lega einungis ætlað að koma
fyrir sprengjum að því er fram
kemur í breska dagblaðinu
Sunday Telegraph. Útsendar-
arnir munu ekki hafa viljað taka
áhættuna á því að mennirnir
segðu frá öllu saman ef þeir
næðust.
Mennirnir fjórir greiddu allir
fyrir bílastæði og lestarferðir
fram og til baka áður en þeir
lögðu upp frá Luton-lestarstöð-
inni að King’s Cross snemma á
sunnudagsmorgun að því er
fram kemur í blaðinu. Þar
skiptu þeir liði og innan við níu-
tíu mínútum síðar sprungu þrjár
sprengjanna í mismunandi neð-
anjarðarlestum í borginni. Sú
fjórða sprakk hins vegar um
klukkustund síðar í strætis-
vagni við Tavistock-torg.
Pakistönsk yfirvöld yfir-
heyrðu í gær þarlendan kaup-
sýslumann en símanúmer hans
fannst í farsíma eins fjórmenn-
inganna. Maðurinn kveðst eiga
marga viðskiptafélaga í Lund-
únum en gat ekki skýrt tengsl
sín við árásarmanninn að því er
segir á fréttavef AP.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, undirbýr nú nám-
skeið fyrir múslimaklerki sem
niðurgreidd verða af ríkissjóði
og eiga að kynna þeim nútíma-
leg viðhorf til íslam samkvæmt
upplýsingum Sunday Telegraph.
Einnig verður stjórnendum
moska gert að herða eftirlit með
klerkum sínum en grunur leikur
á því að fjórmenningarnir hafi
orðið fyrir áhrifum frá
öfgasinnuðum múslimum í
moskum í Yorkshire og Buck-
inghamshire.
helgat@frettabladid.is
Árni Magnússon:
Gæti fari› fram
í NV-kjördæmi
STJÓRNMÁL Talið er hugsanlegt að
Árni Magnússon félagsmálaráð-
herra flytji sig um set og leiði
lista framsóknarmanna í Norð-
vesturkjördæmi í næstu alþing-
iskosningum, að því er fram
kom í fréttum Sjónvarpsins í
gærkvöldi.
Eiginkona Árna fer til náms
við Viðskiptaháskólann á Bif-
röst næsta vetur og hafa framá-
menn í Framsóknarflokknum
þegar rætt við Árna að því er
sagði í fréttinni. Árni staðfesti
að hafa heyrt umræðuna en
kvaðst ekki ennþá hafa tekið
þátt í henni. - ht
Á LANDAMÆRUNUM Langar raðir vöru-
flutningabíla mynduðust þegar Sýrlending-
ar lokuðu landamærunum við Líbanon eft-
ir erjur landanna á milli gær.
Grunnt á því góða:
Fiskimenn
teknir höndum
BEIRÚT, AP Líbanska lögreglan
skiptist á skotum við smyglara
meðan sýrlensk yfirvöld hand-
tóku líbanska fiskimenn í nýrri
hrinu landamæraátaka ríkjanna
tveggja. Bera átökin vott um vax-
andi ólgu í samskiptum ríkjanna
eftir að Sýrlendingar neyddust til
þess að láta af áratugalangri her-
setu í Líbanon í apríl.
Smyglararnir voru á leið til
Sýrlands með ólöglegan varning
þegar lögregla varð þeirra vör. Lí-
banskur lögregluþjónn særðist í
átökunum en smyglararnir sluppu
inn í Sýrland. Fiskimennirnir
voru innan sýrlenskrar lögsögu
þegar þeir voru handteknir. Afl-
inn var gerður upptækur. ■
MARGRÉT SVERRISDÓTTIR Hvorki er krafist
reynslu af fjölmiðlun né menningarlegrar
sýnar í auglýsingu um starf útvarpsstjóra.
Hollvinasamtök RÚV:
Óttast pólitík
MENNING Margrét Sverrisdóttir,
formaður Hollvinasamtaka Ríkis-
útvarpsins, óttast að nýr útvarps-
stjóri verði ekki ráðinn á fagleg-
um forsendum heldur pólitískum.
„Það eru ýmis sólarmerki á
lofti sem vekja okkur ugg. Til
dæmis er hvorki gerð krafa um
reynslu af fjölmiðlun né menning-
arlega sýn í auglýsingu um starf-
ið,“ segir Margrét sem þó tekur
fram að hún telji Þorgerði
Katrínu Gunnarsdóttur mennta-
málaráðherra hafa metnað fyrir
hönd Ríkisútvarpsins.
Samtökin skora á fólk með víð-
tæka reynslu af fjölmiðlun og
menningarlegan metnað að sækja
um starfið.
Umsóknarfrestur rennur út á
fimmtudag. - bþs
VEÐRIÐ
Tæplega 70 milljóna króna halli á rekstri Landspítala-háskólasjúkrahúss:
Flensan hleypti kostna›i upp
LANDSPÍTALI-HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Fyrstu
fimm mánuði ársins var hallarekstur á spít-
alanum um 67 millónir króna eða rúmar
níu milljónir í hverjum mánuði.
HRYÐJUVERKUNUM MÓTMÆLT Fjöldi fólks kom saman nærri Tavistock-torgi í gær til þess
að mótmæla hryðjuverkunum í borginni þann sjöunda júlí. Samkomuna hélt Félag
múslima í Bretlandi auk samtaka um að stöðva stríðið.
M
YN
D
/A
P
TYRKLAND
EKKI SJÁLFSMORÐSÁRÁS
Ekki er talið að um sjálfs-
morðsárás hafi verið að ræða
þegar lítil rúta var sprengd í loft
upp á fjölförnum ferðamannastað
við strönd Eyjahafsins í Tyrk-
landi á laugardag. Fimm létust í
sprengingunni, þar af bresk kona
og írskur unglingur. Talið er að
sprengjuböggli hafi verið komið
fyrir í rútunni.
LÖGREGLUFRÉTTIR
FERÐAMAÐUR BRAUST INN Í HÚS
Á SELFOSSI Ölvaður, erlendur
ferðamaður á fertugsaldri réðst
inn í hús á Selfossi aðfaranótt
sunnudags og meiddi þrettán ára
stúlku sem þar var. Stúlkan leit-
aði sér sjálf aðstoðar á heilsu-
gæslunni á Selfossi en var ekki
mikið slösuð. Maðurinn er nú í
haldi lögreglunnar á Selfossi.