Fréttablaðið - 18.07.2005, Side 71
MÁNUDAGUR 18. júlí 2005 23
Shaun Wright-Phillips á
lei›inni til Chelsea
Enski landsli›sma›urinn Shaun Wright-Phillips mun ganga til li›s vi› Chelsea
frá Manchester City á næstu dögum, en hann á a›eins eftir a› skrifa undir
samning vi› ensku meistarana.
FÓTBOLTI Enski landsliðsmaðurinn
Shaun Wright-Phillips er genginn
til liðs við Chelsea frá Manchester
City fyrir liðlega tvö þúsund og
fjögurhundruð milljónir íslenskra
króna, eða tuttugu og eina milljón
punda.
Wright-Phillips kom til
Manchester City frá Nottingham
Forest árið 1998, og hefur síðan
verið lykilmaður í aðalliði félags-
ins. Stuart Pearce, knattspyrnu-
stjóri Manchester City, var ekki
ánægður með brottför Wright-
Phillips frá félaginu, en sagði hann
jafnframt eiga glæsta framtíð fyr-
ir sér hjá Chelsea. „Það olli mér
vonbrigðum að hann skyldi vilja
fara, en ég er ekkert reiður við
hann út af því. Hann hefur æft vel
hjá félaginu og er kominn í fremstu
röð þess vegna. Ég bjóst alveg eins
við því að hann myndi fara, en lifði
þó í voninni um að hann yrði áfram
hjá Manchester City. Wright-
Phillips á eftir að verða einn af lyk-
ilmönnum Chelsea innan fárra ára
og á eftir að sanna sig sem einn af
bestu leikmönnum ensku úrvals-
deildarinnar.“
Margir góðir miðjumenn eru
hjá Chelsea. Sérstaklega hefur
verið samkeppni um stöðurnar
hægra og vinstra megin, þar sem
Arjen Robben, Damien Duff, Joe
Cole og Eiður Smári hafa allir
leikið í þessum stöðum. Þrátt fyr-
ir allar þessar stjórstjörnur er Pe-
arce viss um að Wright-Phillips
muni vinna sér inn sæti í liðinu.
„Það verður ekki hægt að líta
framhjá hæfileikum hans þegar
þjálfararnir sjá hvað hann hefur
upp á að bjóða. Það eru fáir leik-
menn í ensku knattspyrnunni sem
eru jafn magnaðir hægri kant-
menn og hann. Hann hefur mikinn
hraða, tækni og er góður skotmað-
ur. Hans besti kostur er þó sá að
hann leggur sig allan fram á æf-
ingum og í leikjum og er því fyrir-
myndaratvinnumaður, og
draumaleikmaður allra þjálfara.“
magnush@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
15 16 17 18 19 20 21
Mánudagur
JÚLÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 Keflavík og ÍBV mætast á
Keflavíkurvelli í Landsbankadeild
karla.
■ ■ SJÓNVARP
18.35 Gillette sportpakkinn á Sýn.
19.05 Landsbankamörkin á Sýn.
19.35 Landsbankadeildin –
11.umferð á Sýn.
22.10 Landsbankamörkin á Sýn.
22.30 Bestu bikarmörkin á Sýn.
23.45 Álfukeppnin á Sýn.
Alex Ferguson, stjóri Man. Utd:
Mourinho hefur
rétt fyrir sér
FÓTBOLTI Alex Ferguson, knatt-
spyrnustjóri Man. Utd, segir að
Jose Mourinho hafi hárrétt fyrir
sér varðandi mismunun í uppröð-
un leikja í ensku úrvalsdeildinni.
Mourinho gagnrýndi enska
knattspyrnusambandið kröftug-
lega fyrir helgi og sagði Arsenal
njóta sérstakrar meðferðar þegar
kæmi að leikdögum í Englandi
eftir að leikið hefur verið í Meist-
aradeild Evrópu. „Á næstu leiktíð
eigum við útileik í Englandi eftir
fyrstu fimm leiki okkar í Meist-
aradeildinni. Arsenal fær alltaf
heimaleik. Þetta er staðreynd en
enginn segir neitt,“ sagði Mourin-
ho og stimplaði David Dein, vara-
stjórnarformann Arsenal, sem
blóraböggulinn, en hann situr
einnig í stjórn enska knattspyrnu-
sambandsins.
Aðspurður um málið um helg-
ina sagði Ferguson að Mourinho
væri í fullum rétti til að gera at-
hugasemdir. „Þetta er alveg rétt
hjá honum. Ef horft er á leiki
Arsenal eftir Evrópukeppni sést
að félagið er sér á báti. Svona hef-
ur þetta verið í mörg ár,“ sagði
Ferguson.
„Það tók Mourinho aðeins eitt
ár að sjá þetta. Ég er búinn að
vera að kvarta undan þessu í sjö
ár en aldrei er hlustað á mig.
Kannski hlustað verði frekar á
Mourinho,“ bætti hann við.
ALEX FERGUSON Er alveg sammála kollega
sínum hjá Chelsea um afar hentuga leiki
Arsenal eftir Evrópukeppni.
Golf um helgina:
Au›unn stal
sigrinum í GK
GOLF Meistaramót flestra golf-
klúbba landsins fóru fram um
helgina og voru flest úrslit eftir
bókinni. Ragnhildur Sigurðardótt-
ir og Ólafur Már Sigurðsson unnu
mót GR nokkuð örugglega og hið
sama má segja um Heiðar Davíð
Bragason og Nínu Björk Geirs-
dóttur í Kili í Mosfellsbæ. Heiðar
Davíð setti vallarmet á þriðja
keppnisdegi er hann lék á 68
höggum.
Í golfklúbbnum Kili í Hafnar-
firði var talsverð spenna bæði hjá
körlum og konum en Auðunn Ein-
arsson fagnaði sigri eftir að hafa
náð forystunni af Sigþóri Jóns-
syni á síðasta hringnum.
Birgir Leifur Hafþórsson varð
í 40. sæti á opna Texbond mótinu
sem fór fram við Gardavatnið á
Ítalíu um helgina en hann lék á
samtals fimm höggum undir pari.
-esá
SHAUN WRIGHT-PHILLIPS Sést hér gefa adáendum sínum eiginhandaráritun eftir æfinga-
leik gegn Tranmere í síðustu viku. NORDIC PHOTOS/GETTY
Chelsea vann á sjálfsmarki
FÓTBOLTI Chelsea fór til heima-
lands Jose Mourinho í gærkvöldi
og lék við heimamenn í Benfica
sem eru nú Portúgalsmeistarar.
Leikmenn Chelsea voru ekki á
skotskónum en það var sjálfs-
mark portúgalska liðsins sem
skildu liðin að. Carlton Cole lék í
fremstu víglínu hjá Englands-
meisturunum og var í boltanum
er markið kom. Eiður Smári
Guðjohnsen kom inn á í síðari
hálfleik og átti fínan leik en Mo-
urinho leyfði mörgum leikmönn-
um að spila í gær eins og tíðkast
í æfingaleikjum sem þessum.
Leikurinn markaði endur-
komu Hernan Crespo til Chelsea
en hann tók stöðu Cole í síðari
hálfleik.