Fréttablaðið - 14.09.2005, Qupperneq 1

Fréttablaðið - 14.09.2005, Qupperneq 1
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum Landsbankans. * Nafnávöxtun frá 01.08.2005–31.08.2005 á ársgrundvelli. Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is 410 4000 | landsbanki.is 8,1%* Peningabréf Landsbankans ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S L BI 2 91 39 0 8/ 20 05 iPod nano Hækkar öll viðmið Stjórnartíð Davíðs Efnahagsstjórn á góðæristímum James Liu Vildi framsækið fyrirtæki Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 14. september 2005 – 24. tölublað – 1. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 550 5000 Yfir þenslumörkum | Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,5 pró- sent í ágúst og nemur verðbólga nú 4,8 prósentum á ársgrundvelli. Verðbólguskotið kostar heimilin í landinu tæpa fimm milljarða króna ef miðað er við skuldastöðu þeirra í júlílok. KB í vandræðum | Norska fjár- málaeftirlitið gerir athugasemdir við störf Kaupthing Norge, dótt- urfélags KB banka. Skipt var um stjórn í Kaupthing Norge í kjöl- farið og tók Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, við stjórnarformennsku í dótturfélag- inu. Davíð í Seðlabankann | For- sætisráðherra hefur skipað Davíð Oddsson, formann Sjálfstæðis- flokksins og utanríkisráðherra, bankastjóra og formann banka- stjórnar Seðlabankans til sjö ára. Fráfarandi bankastjóri, Birgir Ís- leifur Gunnarsson, lætur af störf- um 1. október næstkomandi og tekur Davíð þá við stjórnar- taumunum. Greiðum skuldir | Fjármálaráð- herra ákvað í ljósi bættrar stöðu ríkissjóðs, meðal annars í kjölfar Símasölunnar, að greiða hraðar niður erlendar skuldir ríkissjóðs en áður var áformað. Actavis í Búlgaríu | Actavis hefur fest kaup á búlgarska lyfja- dreifingarfyrirtækinu Higia AD. Velta Higia er áætluð um 6,6 millj- arðar króna á þessu ári en gert er ráð fyrir að hún verði á bilinu 7-7,7 milljarðar á árinu 2006. Koizumi sigrar | Sigur Jun- ichiros Koizumi, forsætisráðherra Japans, í þingkosningum þar í landi mældist vel fyrir á mörkuð- um. Nikkei-225 vísitalan snar- hækkaði er úrslit voru kunn og jenið styrktist. Koizumi hyggst hrinda miklum einkavæðingar- áformum í framkvæmd. Tímaritið Euromoney: Íslenska bankaundrið „Vöxtur íslensku bankanna er ein af sigursögum síðasta ára- tugar,“ segir í grein tímaritsins Euromoney, sem fjallar um vöxt íslenskra banka í nýjasta hefti sínu. Blaðið segir að slíkur vöxtur veki upp spurningar um stöðug- leika bankanna og vandræði sem af vextinum hljótist. Blaðið segir forsvarsmenn bankanna blása á slíkar fullyrðingar og að þeir telji vöxtinn og starfsemina vel undirbyggða. Undir þetta sjónarmið tekur Paul Avery hjá Barclay's banka sem segir bönk- unum vel stjórnað og að kaup þeirra á erlendum bönkum séu vel útfærð og bankar sem keypt- ir hafi verið falli vel að starf- semi íslensku bankanna. Blaðið segir að bankarnir séu í jafnvægi og vel fjármagn- aðir nú um stundir. Á þá stöðu geti reynt blási vindar öðruvísi í efnahagslífi heimsins. Þá þurfi bankarnir það viðskipta- vit sem þeir hafi sýnt til þessa til að blómstra við erfiðari að- stæður. - hh Björgvin Guðmundsson skrifar „Það stendur til að opna tíu Rúmfatalagersverslanir í viðbót í Kanada innan árs,“ segir Nils Stórá yfir- maður Rúmfatalagersins í Eystrasaltslöndunum Lettlandi, Litháen og Eistlandi. Einnig standi til að opna fjórar verslanir til viðbótar við þær fjórtán sem fyrir eru í Eystrasaltslöndunum. Reksturinn á þessum stöðum gangi það vel að rúm er fyrir frekari vöxt. „Við opnum fyrstu verslunina í Búlgaríu í næsta mánuði,“ segir Nils og Rúmfatalagerinn sé með því að hasla sér völl á nýjum markaði í Austur-Evr- ópu. Þeir hafi í nokkurn tíma verið að skoða tækifærin í Búlgaríu og á næsta ári sé stefnt að því að opna búð í Rúmen- íu. Höfuðstöðvar Rúmfatalagersins verði þó áfram í Reykjavík. Nils segir búðirnar í Kanada og á Íslandi svipaðar hvað varðar stærð en þær séu aðeins minni í Lettlandi, Litháen og Eist- landi. Nú þegar rekur Rúmfatalagerinn fjórar versl- anir á Íslandi og stefnir á að opna nýja búð við Vest- urlandsveg innan skamms. „Á Íslandi og í Kanada rekum við búðir sem eru á milli tvö og þrjú þúsund fermetrar en milli fimmtán hundruð og tvö þúsund fermetrar í Eystrasalti.“ Jákup Jacobsen opnaði sína fyrstu Rúmfatalagersverslun á Íslandi í Kópa- vogi árið 1987 í félagi við Jákup N. Purk- hús. Ári síðar var verslun á Akureyri opnuð. Voru þetta með þeim fyrstu svokölluðu lágvöruverðsverslunum á Ís- landi, en til samanburðar opnaði Bónus í apríl 1989. Árið 2000 voru þeir félagar út- nefndir frumkvöðlar í íslensku atvinnu- lífi. F R É T T I R V I K U N N A R 8 12-13 10 Verðbólguskotið í september kostar heimilin í landinu tæpa fimm milljarða króna ef miðað er við skuldastöðu þeirra í júlílok. Verðtryggð útlán til heimilanna námu um 319,7 milljörðum króna í lok júlí samkvæmt tölum sem Seðlabanki Íslands tekur saman. Miðað við óbreytta upphæð þá hækka verðtryggð lán heimil- anna um 4,8 milljarða en vísitala neysluverðs hækkaði um 1,5 pró- sent milli ágúst og september. Sem hlutfall af verðtryggðum útlánum nema lán til heimila um 60 prósentum af heildinni. Verðtryggð lán fyrirtækja voru á sama tíma um 189 millj- arðar og hækka þau því um 2,8 milljarða vegna verðbólguhækk- unarinnar. - eþa Útrásarvístalan hækkar enn: Öll bréf hækkuðu Útrásarvísitalan hækkaði um 1,77 prósent milli vikna og mælist nú 118,78 stig. Öll bréf fyrirtækjanna í útrásarvísi- tölunni hækkuðu milli vikna þegar búið er að taka tillit til gengisbreytinga. Mest hækka bréf í finnska bankanum Sampo, um 38,88 pró- sent, en næstmest bréf í Skandia, um 23,17 prósent. Minnst hækkaði breska fyrir- tækið NWF, um 0,33 prósent. Gengi sex fyrirtækja lækkaði á mörkuðum en gengi krónunn- ar var útrásarfyrirtækjunum hagstætt og hækkaði mark- aðsvirði allra eigna í útrásar- vísitölunni. - hb Ætla að opna sautján verslanir til viðbótar Útlit er fyrir að verslunum Rúmfatalagersins muni stórfjölga næsta árið. Fyrirtækið ætlar að hasla sér völl í Austur- Evrópu og auka umsvif sín í Kanada og Eystrasalti. Verðbólgan í september dýrkeypt Hækkun vísitölu neysluverðs kostar heimilin fimm milljarða. 25 í Kanada (10) 14 í Eystrasalti (4) 4 á Íslandi (1) 1 í Færeyjum (1) í Búlgaríu (1) í Rúmeníu V E R S L A N I R R Ú M F A T A L A G E R S I N S ( N Ý J A R V E R S L A N I R Í S V I G A )

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.