Fréttablaðið - 14.09.2005, Page 2
Eggert Þór Aðalsteinsson
skrifar
„Talsmenn þess að Seðlabankinn
láti nú reka á reiðanum og skeyti
engu um verðbólguhorfur eru í
raun að dæma krónuna til
dauða,“ sagði Arnór Sighvatsson,
aðalhagfræðingur Seðlabankans,
á morgunverðarfundi Viðskipta-
ráðs í gær.
Hann á þar við þá talsmenn
sem vilja að Seðlabankinn víki
frá aðhaldssamri peningastefnu
til þess að lækka gengi krónunn-
ar og styrkja þar með stöðu út-
flutningsgreina.
„Seðlabankinn ræður ekki
raungengi krónunnar til lengdar,
þótt aðgerðir hans hafi áhrif á
nafn- og raungengi til skamms
tíma litið. Samkeppnisiðnaðurinn
verður því að búa við hátt raun-
gengi um nokkurt skeið.“
Arnór vill að þeir sem gagn-
rýni stefnu bankans tali skýrar
og spyr hvort þeir vilji hverfa frá
verðbólgumarkmiðum, ganga í
gjaldmiðlabandalag eða snúa
aftur til fastgengisstefnunnar
sem olli næstum því gjaldeyris-
kreppu fyrir fáeinum árum.
Hann segir að Seðlabankinn
hafi gefið sterklega til kynna að
vaxtahækkunarferlinu sé ekki
lokið og ætli sér að halda verð-
bólgu sem næst 2,5 prósenta verð-
bólgumarkmiði bankans þegar til
lengri tíma er litið. Óraunsætt sé
hins vegar að ætla að Seðlabank-
inn geti mildað þær sveiflur sem
eiga sér stað í hagkerfinu nú,
enda taki allar vaxtabreytingar
nokkurn tíma að hafa áhrif.
„Þróun efnahagsmála undan-
farið hálft ár bendir til þess að
ójafnvægið í þjóðarbúskapnum
nú sé meira en flestir gerðu ráð
fyrir í mars,“ sagði Arnór enn
fremur á fundinum. Óhjákvæmi-
leg aðlögun muni eiga sér stað.
Margt bendir til þess að vaxta-
breytingar erlendis muni hafa
mikil áhrif hérlendis og hefur
hann af því áhyggjur. Ein mesta
hættan sem steðjar að íslenskum
þjóðarbúskap er skyndileg
hækkun erlendra vaxta sem gæti
leitt til hraðrar aðlögunar á gengi
krónunnar og eignaverðs.
„Undanfarna þrjá áratugi
finnst meðal þróaðra þjóða að-
eins eitt dæmi þess að í kjölfar
eins mikils viðskiptahalla og nú
er til staðar hafi ekki fylgt um-
talsverður samdráttur.“
Vika Frá áramótum
Actavis Group 0% 7%
Bakkavör Group 0% 80%
Burðarás 4% 58%
Flaga Group 1% -33%
FL Group 0% 53%
Grandi 2% 14%
Íslandsbanki 0% 36%
Jarðboranir -2% 0%
Kaupþing Bank 1% 37%
Kögun -1% 20%
Landsbankinn -1% 88%
Marel 1% 29%
SÍF -1% -2%
Straumur 6% 48%
Össur 0% 15%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudag
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
G E N G I S Þ R Ó U N
Dæma krónuna til dauða
Aðalhagfræðingur Seðlabankans varar við miklum skelli og
gagnrýnir helstu gagnrýnendur peningamálastefnunnar.
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
Fjárfestingarfélagið Exista
hefur keypt hlutabréf Bakkavör
Group fyrir sex hundruð milljón-
ir króna á genginu 42,5. Þetta er í
annað skiptið á skömmum tíma
sem félagið eykur hlut sinn í
Bakkavör en dótturfélag þess,
Bakkavör S.a.r.l., er stærsti hlut-
hafinn með um 27 prósenta eign-
arhlut. Samanlagt eiga Exista og
Bakkavör S.a.r.l. 29,1 prósent
hlutafjár í Bakkavör.
Fleiri innherjar hafa verið að
kaupa bréf í Bakkavör, þar á
meðal Erlendur Hjaltason, for-
stjóri Exista. - eþa
Tæpir tuttugu milljarðar króna
eru í vanskilum hjá innlánsstofn-
unum. Það er samt bara rúmt eitt
prósent af heildarútlánum fjár-
málafyrirtækja á Íslandi og eru
íbúðarlán þar meðtalin sam-
kvæmt upplýsingum frá Fjár-
málaeftirlitinu. Um mánaðamót-
in júní og júlí námu heildarútlán
innlánsstofnana rúmum 1.800
milljörðum króna. Frá byrj-
un árs 2001 hafa heildar-
útlán aukist um 188 pró-
sent.
Þrátt fyrir þessar
tölur hafa fólk og
fyrirtækið staðið bet-
ur í skilum á lánum
sínum undanfarið
samanborið við
síðustu fjögur
ár. Frá síðustu
áramótum til
m á n a ð a -
móta júní og
júlí hefur
hlutfall van-
skila af heildarútlánum fjármála-
stofnana lækkað úr 1,6 prósentum
í 1,1 prósent samkvæmt upplýs-
ingum frá Fjármálaeftirlitinu. Í
byrjun árs 2001 var þetta van-
skilahlutfall 2,3 prósent.
Fyrirtæki standa betur í skil-
um en einstaklingar. Vanskila-
hlutfall fyrirtækja lækkaði úr 1,3
prósentum í 0,9 prósent á fyrri
helming þessa árs. Sama
hlutfall einstaklinga
lækkaði úr tæplega 2,6
prósentum í 1,8. Á
sama tíma í fyrra var
hlutfall lána einstak-
linga í vanskilum
4,6 prósent,
sem er tölu-
vert meira
en í ár.
Sama hlut-
fall fyrir-
tækja fyrir
ári var 1,7
prósent.
– bg
„Við opnuðum nýja Depo-verslun
í Ríga í Lettlandi í gær,“ segir
Jón Helgi Guðmundsson stjórn-
arformaður Norvíkur, sem er
eignarhaldsfélag Byko. „Þetta er
önnur Depo-verslunin sem við
opnun í Ríga og svo er stefnt að
því að opna þriðju verslunina
næsta vor.“
Fyrsta Depo-verslunin í Ríga
var opnuð í júlí síðastliðnum í sex
þúsund fermetra plássi. Jón
Helgi segir að búðinni hafi verið
vel tekið og tækifærin þarna ytra
séu mörg.
„Ef við teljum yfirbyggða
svæðið við verslunina með þá er
húsnæðið nálægt átta þúsund
fermetrar. Þetta hefur gengið vel
og við erum mög ánægð með
móttökurnar,“ segir Jón Helgi.
Húsnæðið undir nýju verslunina
er leigt af Rúmfatalagernum,
sem einnig er með starfsemi í
Lettlandi.
Depo-verslununum í Lettlandi
svipar til verslana Byko sem
flestir Íslendingar þekkja. Nor-
vík hefur verið með í ýmsum
verkefnum í Eystrasaltslöndun-
um og setur Depo-verslanirnar
upp í Lettlandi í samstarfi við
baltneskan fjárfestingarsjóð að
sögn Jóns Helga. – bg
Önnur Depo-verslun í Ríga
Jón Helgi í Byko ætlar að opna þrjár byggingavörubúðir í Lettlandi.
Exista kaupir
aftur í Bakkavör
Milljarðar í vanskilum
Fyrirtæki standa betur í skilum en einstaklingar.
Snörp lækkun hlutabréfa
Fátt ætlar að stöðva norska
hlutabréfamarkaðinn á þessu ári
með stærstu félögin Statoil og
Norsk Hydro í broddi fylkingar.
Þrátt fyrir að olíuverð hafi lækk-
að á síðustu dögum, eftir að það
fór í 70 dali á fatið, hefur gengi
Statoil aldrei verið hærra. Það
stendur nú í 160 norskum krón-
um á hlut en var í 95 í byrjun árs.
Norsk Hydro rauf 700 króna
múrinn í fyrradag og hefur
markaðsverðmæti félagsins
hækkað um helming á árinu.
Aðalvísitala norsku kauphall-
arinnar hefur hækkað um 23 pró-
sent frá því í byrjun júní síðast-
liðins og litlu minna en Úrvals-
vísitalan fyrir árið í heild. - eþa
Hlutabréf hafa lækkað snarpt
undanfarna tvo daga eftir að
verðbólgan hækkaði meira en
spáð hafði verið. Á föstudaginn
náði Úrvalsvísitalan hæsta gildi
frá upphafi þegar hún endaði í
4.748 stigum. Á mánudaginn
lækkaði vísitalan um rúm pró-
sent og meira en 1,7 prósent í
gær. Fór Úrvalsvísitalan um
tíma undir 4.600 stig í gær.
Öll stóru félögin höfðu lækk-
að talsvert eftir hádegisbil í
gær; Bakkavör um 3,5 prósent,
Landsbankinn og Straumur um
þrjú prósent og Burðarás um 2,5
prósent.
- eþa
DEPO-VERSLUNIN Í RIGA Fyrsta Depo-
verslunin var opnuð í Lettlandi í júlí í sum-
ar, önnur í gær og stefnt er að opnun þeirr-
ar þriðju næsta vor.
ARNÓR SIGHVATSSON Eina leið Seðlabankans til að spyrna fótum við frekari verðbólgu
er að hækka vexti frekar. Núverandi viðskiptahalli mun að öllum líkindum valda miklum
samdrætti.
ERLENDUR HJALTA-
SON, FORSTJÓRI EX-
ISTA Exista hefur tví-
vegis á skömmum tíma
keypt í Bakkavör og er
stærsti hluthafinn
ásamt dótturfé-
lagi sínu.
Engin lognmolla í Noregi
HELGE LUND, FORSTJÓRI STATOIL
Statoil hækkar enn þrátt fyrir að olíuverð
hafi farið lækkandi.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/G
VA