Fréttablaðið - 14.09.2005, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Tæknifyrirtækið Marorka hf.
kynnti á nýafstaðinni sjávar-
útvegssýningu nýja útgáfu af
vörunni Maren. Hin nýja vara,
Maren2, er hönnuð til að minnka
olíunotkun skipa og halda utan
um heildarkostnað skipa, hvort
sem er fiskiskipa eða flutninga-
skipa, við olíunotkun.
„Það er sífellt mikilvægara
fyrir skip, ekki síst í kjölfar
hækkandi olíuverðs, að halda
utan um orkubúskap skipa og
báta. Þessi nýja vara virkar
þannig að við reiknum út hvern-
ig orkukerfin um borð í skipum
eiga að vera stillt til þess að hag-
kvæmasta nýtingin eigi sér
stað,“ segir Jón Ágúst Þorsteins-
son, framkvæmdastjóri Mar-
orku.
Hann segir að endurgreiðslu-
tími skipa sem taka Maren2 í
notkun sé um 1-2 ár og oft má sjá
sparnað við olíunotkun á bilinu
8-12 prósent.
„Við fengum mjög góðar mót-
tökur á sjávarútvegssýningunni
og erum að vinna úr ýmsu hvað
það varðar,“ segir Jón. Hann
segir Marorku selja um sjötíu
prósent af vörum fyrirtækisins
til útlanda, einkum til Danmerk-
ur, Hollands og Kanada en fyrir-
tækið opnar söluskrifstofu í
Kanada á næstunni. - hb
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Einkaneysla jókst á öðrum árs-
fjórðungi um fjórtán prósent frá
sama tímabili í fyrra samkvæmt
útreikningum Hagstofunnar.
Aukning einkaneyslu milli ára
hefur ekki verið jafn mikil frá
því að Hagstofan hóf að gera
ársfjórðungsreikninga árið
1997. Sérfræðingar segja þetta
endurspegla þenslu í hagkerfinu
og birtist meðal annars í aukinni
verðbólgu. Eftirspurn heimil-
anna hafi aukist í kjölfar aukins
kaupmáttar og nýjum lánamögu-
leikum. Hagvöxturinn sé drifinn
áfram af hröðum vexti einka-
neyslu og fjárfestingum tengd-
um stóriðju.
Ef sundurliðun einkaneysl-
unnar er skoðuð milli annars
ársfjórðungs 2004 og 2005 sést
að kaup á ökutækjum aukast um
75 prósent. Útgjöld Íslendinga
erlendis aukast um 32 prósent
milli ára og kaup á húsbúnaði
um rúm 19 prósent. Guðjón K.
Guðmundsson, sérfræðingur hjá
Hagstofunni, bendir á að sterk
króna hafi lækkað verð á bílum,
vörum og þjónustu erlendis.
Landsframleiðsla á öðrum
ársfjórðungi 2005 jókst um 6,8
prósent miðað við sama tíma í
fyrra, sem jafngildir þá hag-
vextinum á tímabilinu. Lands-
framleiðsla er markaðsvirði
þess sem framleitt er á Íslandi
og nam hún 195,7 milljörðum
króna á öðrum ársfjórðungi árs-
ins. Í krónum talið hefur lands-
framleiðslan aldrei verið meiri á
föstu verðlagi í einum ársfjórð-
ungi. Landsframleiðslan allt árið
í fyrra var 885 milljarðar króna.
Tryggvi Þór Herbertsson,
forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Há-
skóla Íslands, segir
eðli hagvaxtar sem
drifinn sé áfram af
einkaneyslu ekki
eins ákjósanlegan og
hagvöxt sem byggir
á aukinni framleiðslugetu í hag-
kerfinu. Lítið þurfi að bregða út
af svo hann dragist hratt saman.
Tryggvi segir vöxt samneysl-
unnar, það er kaup hins opinbera
á vörum og þjónustu, um 4,4 pró-
sent milli annars ársfjórðung
2004 og 2005 og mikinn. Á tímum
sem þessum þurfi að skera niður
útgjöld hins opinbera til að
styðja við peninga-
málastefnu Seðla-
bankans. Vaxta-
hækkanir að öðru
óbreyttu virðast
ekki nægja til að
halda aftur af verð-
bólgu.
Einkaneysla hefur
aldrei vaxið hraðar
Neysla heimilanna hefur aukist mikið milli 2004 og 2005 og
drífur hagvöxtinn áfram. Skera þarf niður ríkisútgjöld til að
styðja við peningamálastefnu Seðlabankans.
„Þetta er ekkert sem við höfum
áhyggjur af,“ segir Baldur
Guðnason, forstjóri Eimskips,
um þá fyrirætlan fyrrverandi
starfsmanna að stofna flutninga-
fyrirtæki í samkeppni við gamla
vinnuveitendann. „Við erum búin
að vera að breyta áherslum í
Eimskip. Hjá okkur starfa um
1.500 manns og það er eðlilega
hreyfing á því. Hvort það fer á
annan vettvang eða í samkeppni
við okkur er bara lífsins gangur.“
Í síðasta tölublaði Markaðarins
var sagt frá því að Valgeir Guð-
bjartsson, fyrrum forstöðumaður
TVG Zimsen, sem er flutninga-
fyrirtæki í eigu Eimskips, væri að
undirbúa stofnun nýs fyrirtæki í
flutningsmiðlun. Hafa fleiri sagt
upp störfum hjá Eimskip til að
ganga til liðs við hann.
„Þetta hefur engin áhrif á
okkur. Það er fullt af litlum flutn-
ingsmiðlunaraðilum sem eru að
starfa á þessum markaði og
ekkert óeðlilegt við það,“ segir
Baldur. – bg
Virkjanaframkvæmdir við Kára-
hnjúka skila nú miklu góðæri á
Austurlandi og hafa heyrst radd-
ir um líta verði allt aftur til síld-
aráranna til að finna viðlíka góð-
æristíma. Ágústa Björnsdóttir,
útibússtjóri hjá KB banka á
Egilsstöðum, segir að bersýni-
lega megi merkja mun á efna-
hagsástandi íbúa á Egilsstöðum
og næstu byggðarlögum.
„Það er alveg augljóst að það
er betra atvinnuástand núna en
áður. Hér hefur auðvitað ekki
verið mikið atvinnuleysi en laun
eru að hækka og mikil sam-
keppni er um vinnuafl. Við finn-
um fyrir því að fólk er bjart-
sýnna og það eru miklu meiri um-
svif hjá fyrirtækjum,“ segir
Ágústa. - hb
AUKIN ÚTGJÖLD HEIMILANNA Útgjöld heimilanna vegna kaupa á vörum og þjónustu
hafa aukist mikið milli ára.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
St
ef
án
Actavis er byrjað að selja nýtt húðlyf til
fimmtán Evrópulanda og bætast fleiri lönd
við fyrir árslok samkvæmt frétt frá fyrir-
tækinu. Reiknar félagið með að húðlyfið, sem
heitir Terbinafine og er notað gegn sveppasýk-
ingum í húð og nöglum, verði söluhæsta húðlyf
Actavis. Sala þess komi til með að breikka lyfja-
úrval fyrirtækisins. Fyrstu pantanir námu um tíu
milljónum taflna.
Lyfið kom fyrst á markað í Bretlandi árið 1990
en einkaleyfi þess rann nýlega út.ÝÞað hefur verið
á markaði á Íslandi í nokkur ár. Framleiðsla og pökk-
un lyfsins fer fram hjá Actavis á Möltu. – bg
Húðlyf frá
Actavis
Marorka kynnir Maren2
MAREN 2 TEKINN Í NOTKUN Halldór
Ásgrímsson forsætisráðherra tekur fyrsta
eintakið af Maren 2 í notkun á sjávarútvegs-
sýningunni um helgina. Þórður Magnússon,
stjórnarformaður Marorku hf., fylgist með.
Góðæri á Austurlandi
FRÁ EGILSSTÖÐUM
Mikið góðæri virðist á Austurlandi og eru
meiri umsvif hjá fyrirtækjum en áður.
Engin áhrif á Eimskip
ÁHYGGJULAUS Baldur Guðnason segir eðlilegt að hreyfing sé á starfsfólki í fjölmennu
fyrirtæki eins og Eimskipi.
Einkaneysla: Reiknuð útgjöld
heimilanna vegna kaupa á
varanlegum og óvaranlegum
vörum og þjónustu. Íbúða-
kaup teljast ekki til einka-
neyslu heldur fjárfestinga.