Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 6

Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 MARKAÐURINN6 Ú T L Ö N D Jón Skaftason skrifar Svo virðist sem úrslit japönsku kosninganna hafi fallið í kramið hjá fjárfestum. Flokkur Junichiros Koizumi forsætisráðherra vann yfirburðasigur í kosningunum, sem haldnar voru um liðna helgi. Nikkei-225 vísitalan hækkaði um 1,6 prósent á mánudag og hefur ekki staðið hærra í fjögur ár og þá styrktist yenið gagnvart helstu gjaldmiðlum. Ekki spillti heldur fyrir að útlit er fyrir meiri hagvöxt á árinu en áður hafði verið spáð. Koizumi rauf þing og boðaði kosningar eftir að þingið felldi frumvarp hans um einkavæðingu póstþjónustunnar, sem er umfangsmikið fyrirtæki og rekur stærsta sparisjóð heims samhliða hefðbundinni þjónustu. Sérfræðingar segja sigur Koizumis gera honum kleift að hrinda í fram- kvæmd fyrirhuguðum umbótum á efnahagskerfi landsins. Hagvöxtur hefur verið afar hægur í landinu undanfarin ár. Japan er næststærsta hagkerfi veraldar á eftir því bandaríska. Í september kynnir Og Vodafone ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S O G V 2 94 07 09 /2 00 5 Mobile Office ™ FRÁ OG VODAFONE Vodafone Mobile Connect Vodafone Mobile Connect kortið gerir hvaða stað sem er að vinnusvæðinu þínu. Með Mobile Connect kortið í fartölvunni þinni ertu alltaf í þráðlausu netsambandi hvar sem þú ert og hefur ávallt aðgang að þeim gögnum og hugbúnaði sem þú þarft á að halda. » Þú getur alltaf skoðað tölvupóstinn þinn » Þú getur alltaf sent SMS » Þú kemst alltaf í hugbúnað og skrár um vinnuhlið þó að þú sért fjarri vinnustaðnum » Þú getur alltaf vafrað á netinu » Mobile Connect notar GPRS eða EDGE tækni, en EDGE eykur verulega flutningshraða í GSM kerfinu á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess hefur Og Vodafone sett upp gagnahraðal sem flýtir niðurhali og lækkar kostnað viðskiptavina. Mobile Connect er hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir viðskiptalífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og einfaldleiki eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum. Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is Hugbúnaðarrisinnn Oracle hyggst kaupa bandaríska hug- búnaðarfyrirtækið Siebel Systems. Kaupverðið er um 360 milljarðar íslenskra króna. Siebel sérhæfir sig í fram- leiðslu forrita sem auðvelda fyrirtækjum samskipti við við- skiptavini sína. Orðrómur hefur lengi verið uppi um yfirvofandi kaup Oracle á Siebel. Hlutabréf í Siebel, sem skráð eru á bandaríska hátæknimark- aðinn NASDAQ, hækkuðu um þrettán prósent er fregnirnar bárust. Bréf í Oracle féllu hins vegar um tæp tvö prósent. Með kaupunum á Siebel von- ast forsvarsmenn Oracle til þess að ná yfirlýstu markmiði sínu um tuttugu prósenta tekjuaukningu á ári hverju: „Með kaupunum á Siebel festum við okkur enn frek- ar í sessi sem fremsta hugbúnað- arfyrirtæki heims,“ sagði Larry Ellison, forstjóri Oracle. - jsk Ánægðir með Koizumi Hlutabréf hækkuðu og yenið styrktist í kjölfar kosningasig- urs Koizumis í Japan. Koizumi hyggst hrinda umfangsmikilli einkavæðingu í framkvæmd. ÁNÆGÐUR MEÐ LÍFIÐ Forsætisráðherra Japans hafði ástæðu til að vera ánægður eftir að flokkur hans vann mikinn kosningasigur í þingkosningum. Fjárfestar virðast sáttir við úrslitin og bjartsýnir á framhaldið. Oracle kaupir Siebel Systems Forsvarsmenn Oracle vonast til þess að með kaupunum nái þeir yfirlýstu markmiði sínu um tuttugu prósenta tekjuaukningu á ári hverju. LARRY ELLISON, FORSTJÓRI ORACLE Ellison telur að með kaupnum á Siebel Systems festi Oracle sig í sessi sem fremsta hugbúnaðarfyrirtæki heims. Fyrirtæki Land Gengi Gjald- (Gengi Breyting miðill gjaldmiðils) BTC Búlgaría 11,28 Lev 39,38 0,39% Carnegie Svíþjóð 94,25 SEK 8,28 4,19% Cherryföretag Svíþjóð 26,70 SEK 8,28 -1,79% deCode Bandaríkin 9,75 USD 62,55 1,88% EasyJet Bretland 2,91 Pund 114,28 0,72% Finnair Finnland 10,03 EUR 76,95 5,79% French Connection Bretland 2,45 Pund 114,28 -6,72% Intrum Justitia Svíþjóð 67,75 SEK 8,28 1,93% Keops Danmörk 15,90 DKR 10,32 2,04% Low & Bonar Bretland 1,10 Pund 114,28 1,12% NWF Bretland 5,45 Pund 114,28 0,89% Sampo Finnland 13,39 EUR 76,95 3,49% Saunalahti Finnland 2,65 EUR 76,95 1,63% Scribona Svíþjóð 15,70 SEK 8,28 4,02% Skandia Svíþjóð 41,20 SEK 8,28 -0,43% Miðað við gengi bréfa og gjaldmiðla á mánudag Ú T R Á S A R V Í S I T A L A 1 1 8 , 7 7 1 , 7 7 % Þýski bílaframleiðandinn Volks- wagen á í miklum vandræðum á Bandaríkjamarkaði, samkvæmt forstjóra fyrirtækisins, Wolf- gang Bernard. Tap af starfsemi Volkswagen í Norður-Ameríku nam á síðasta ári rúmum sextíu milljörðum króna og kennir forstjórinn harðri samkeppni og óhagstæðu gengi dalsins um ófarirnar. Bernard hyggst þó snúa vörn í sókn og segir að hagnaður verði af starfseminni innan þriggja ára: „Við ætlum að kynna fimm til tíu nýjar bifreiðar á næstu þremur árum og snúa stöðunni okkur í hag.“ Orð forstjórans virðast hafa haft róandi áhrif á fjárfesta því hlutabréf í Volkswagen hækkuðu í verði um rúmt prósent í kjölfar yfirlýsingar Bernards. - jsk Volkswagen tapar í Bandaríkjunum Forstjórinn segist ætla að snúa vörn í sókn. VOLKSWAGEN-BJALLA Volkswagen tapaði á síðasta ári sextíu milljörðum króna á starfsemi sinni í Norður-Ameríku.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.