Fréttablaðið - 14.09.2005, Síða 7
Hinn 12. september árið 1959
lenti Luna 2, mannlaus geim-
flaug Sovétmanna, á tunglinu.
Var þetta í fyrsta skipti sem
tókst að senda manngerðan hlut
til tunglsins.
Ferðin tók tæpar þrjátíu og
fjórar klukkustundir og urðu
helstu niðurstöður þær að óhætt
væri að senda mannað geimfar
til tunglsins þar sem geislun
væri undir hættumörkum
Á þessum tíma var kalda
stríðið svokallaða í hámarki og
Sovétmenn því að vonum
hæstánægðir með að ná til
tunglsins á undan erkióvininum,
Bandaríkjamönnum.
Svo ánægður var reyndar
leiðtogi Sovétríkjanna, Níkita
Krúsjev, að hann sendi kollega
sínum og forseta Bandaríkj-
anna, Dwight D. Eisenhower, ná-
kvæma eftirlíkingu af hamrin-
um og sigðinni, einkennismerki
Sovétríkjanna, sem grafið var í
Luna 2 eldflaugina. Undir ein-
kennismerkið var ritað: „Sovét-
ríkin september 1959“.
Eisenhower var víst ekki sátt-
ur við sendingu Krúsjevs, en
það voru þó Bandaríkjamenn
sem síðast hlógu þegar Neil
Armstrong steig fyrstur manna
á tunglið tíu árum seinna. - jsk
S Ö G U H O R N I Ð
Sovétmenn fyrstir
til tunglsins!
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005 7
Ú T L Ö N D
News Corp, fjölmiðlaveldi Ástr-
alans Ruperts Murdoch, hefur
keypt bandaríska netfyrirtækið
IGN. Kaupverðið er 41 milljarð-
ur króna.
News Corp hefur undanfarin
misseri markvisst fært sig inn á
netmarkaðinn og keypti fyrr á
árinu annað netfyrritæki,
Intermix Media, á 35 milljarða
króna.
IGN rekur margar vinsælar
vefsíður í Bandaríkjunum, til
að mynda kvikmyndavefinn
rottentomatoes.com. Mark
Jung, sem verið hefur forstjóri
fyrirtækisins, mun halda starf-
inu áfram.
Eftir kaupin fá vefsíður í
eigu News Corp alls 70 milljón-
ir heimsókna í hverjum mán-
uði. - jsk
GEIMFERJAN LUNA 2 Luna 2 lenti á
tunglinu 12. september árið 1959. Luna
varð þar með fyrsti manngerði hluturinn til
að lenda á tunglinu.
Gordon Brown, fjármálaráð-
herra Bretlands, kennir Samtök-
um olíuframleiðsluríkja, OPEC,
um verðhækkanir á olíu. Brown
segir samtökin ekki hafa brugð-
ist við aukinni eftirspurn frá
Kína og hvetur þau til að veita
aðgang að umframbirgðum.
Fjármálaráðherrann telur að
svigrúm sé til að lækka verð og
vonast til að lækkana verði vart
innan skamms: „Ég spjallaði ný-
lega við fjármálaráðherra Sádi-
Arabíu og mun spjalla við helstu
olíuframleiðendur í landinu á
næstu dögum. Ég mun gera þeim
ljóst að þeir beri að stórum hluta
ábyrgð á því hvernig komið er,“
sagði Brown og bætti við: „OPEC
hefur alltaf reynt að
halda verði í hámarki
með því að lágmarka
framleiðslu. Samtök-
in bregðast seint og
illa við aukinni
eftirspurn.“
- jsk
Brown gagnrýnir OPEC
Murdoch flækist í netinu
RUPERT
MURDOCH,
EIGANDI
NEWS CORP
Vefsíður í eigu
News Corp fá
nú 70 milljónir
heimsókna á
mánuði.
Bandaríska stórfyrirtækið Disn-
ey hefur opnað skemmtigarð í
Hong Kong. Framkvæmdin kost-
aði um 115 milljarða króna.
Garðurinn er samvinnuverk-
efni yfirvalda í Hong Kong, sem
eiga 57 prósenta hlut, og Disney.
Það var varaforseti Kína, Zeng
Qinghong, sem opnaði Disney-
garðinn með mikilli viðhöfn að
viðstöddum fyrirmennum á borð
við Michael Eisner, forstjóra
Disney.
Forsvarsmenn Disney vonast
til að nýríkir Kínverjar af
meginlandinu leggi leið sína í
garðinn og gera ráð fyrir fimm
og hálfri milljón gesta fyrsta
starfsárið.
Ævintýrið fer þó ekki vel af
stað hjá Disney-mönnum og
hefur hvert áfallið rekið annað.
Öryggisverðir garðsins liggja
undir ámæli fyrir að neita starfs-
mönnum heilbrigðiseftirlitsins
um aðgang eftir að upp komu
þrjú tilfelli matareitrunar á veit-
ingahúsi í garðinum.
Þá hafa dýraverndunarsamtök
gagnrýnt forsvarsmenn Disney
harðlega eftir að upp komst að
meindýraeyðar hefðu verið settir
til höfuðs fjörutíu flökkuhundum
sem gert höfðu sig heimakomna
á svæðinu.
„Disney-menn verða að skilja
að um þá gilda sömu reglur og
aðra borgara,“ sagði embættis-
maður sem ekki vildi láta nafns
síns getið. - jsk
Disney-garður í Hong Kong
Bygging Disney-skemmtigarðs í Hong Kong kostaði 115 milljarða króna.
Disney-menn hafa glímt við margvíslega byrjunarörðugleika.
FYRIRMENNI VIÐ OPNUN SKEMMTIGARÐS Fjöldi fyrirmenna var við opnun skemmti-
garðs Disney í Hong Kong. Á myndinni má greina broddborgara á borð við Zeng Qinghong,
varaforseta Kína, Michael Eisner, forstjóra Disney, Mínu Mús og Andrés Önd.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/A
FP
Í október kynnir Og Vodafone
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
94
07
09
/2
00
5
BlackBerry® er fremsta þráðlausa samskiptatækið í dag og gerir
notendum mögulegt að vera í stöðugum samskiptum við viðskiptavini
og samstarfsmenn. Auk þess að vera GSM sími veitir BlackBerry
notendum aðgang að tölvupósti, dagbók, tengiliðalista og Vefnum, allt
í rauntíma.
Með BlackBerry er hægt að gera flest það sem þú gerir á
skrifstofunni, óháð stað og stund.
Blackberry® er hluti af MobileOffice, heildstæðu þjónustuframboði Og Vodafone fyrir viðskipta-
lífið sem gerir fólki mögulegt að miðla upplýsingum óháð stað og stund. Hraði, öryggi og einfaldleiki
eru einkunnarorð okkar í þeim lausnum sem við bjóðum fyrirtækjum.
» BlackBerry er alltaf tengdur og
tölvupóstur berst og er sendur
samstundis
» Stór skjár sem hentar vel við að skoða
viðhengi
» Aldrei þarf að uppfæra upplýsingar á
milli farsímans og tölvunnar
» BlackBerry uppfyllir ítrustu
öryggisstaðla
» BlackBerry er einstaklega vel
hannað fyrir kerfisumsjón
BlackBerry®
Mobile Office
FRÁ OG VODAFONE
Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Og Vodafone, Síðumúla 28, í síma 599 9500. Einnig er hægt að senda tölvupóst á 5999500@ogvodafone.is