Fréttablaðið - 14.09.2005, Page 15
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 2005
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
90
09
/2
00
5
Í
SL
EN
SK
A
AU
G
LÝ
SI
N
G
AS
TO
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
2
94
90
09
/2
00
5
Landsbanki Íslands hf.
- Hluthafafundur
Dagskrá:
1. Tillaga um að skiptingar- og samrunaáætlun sem undirrituð var af stjórnum Landsbanka Íslands hf.,
Straums Fjárfestingarbanka hf. og Burðaráss hf. þann 1. ágúst 2005 verði samþykkt. Í því felst m.a. að
hlutafé í Landsbanka Íslands hf. mun hækka um 2.120.677.803 kr. að nafnverði, eða úr 8.900.000.000 kr.
í 11.020.677.803 kr., og verður sú hækkun innt af hendi til hluthafa Burðaráss hf. sem hluti endurgjalds
fyrir hluti sína í því félagi. Jafnframt leiðir af tillögunni að hluthafar í Landsbanka Íslands hf. eiga ekki
forgangsrétt til áskriftar að hinum nýju hlutum.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Boðað er til hluthafafundar þessa með fyrirvara um að hluthafafundur í Burðarási hf. sem fram fer kl. 13.00
þennan sama dag samþykki fyrirliggjandi skiptingar- og samrunaáætlun og tengdar tillögur.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á upp á hluthafafundi, skulu vera komnar skriflega í hendur bankaráðs eigi
síðar en föstudaginn 9. september 2005.
Skiptingar- og samrunaáætlun, ásamt ársreikningum Landsbanka Íslands hf., Straums Fjárfestingarbanka hf.
og Burðaráss hf. síðustu þrjú árin, endurskoðuðum efnahags- og rekstrarreikningum þeirra fyrir fyrri hluta
ársins 2005, greinargerðum stjórna félaganna, sameiginlegum efnahags- og rekstrarreikningum Burðaráss
og Landsbanka Íslands annars vegar og Burðaráss og Straums Fjárfestingarbanka hins vegar, sem og skýrsla
matsmanna og yfirlýsing samkvæmt 122. gr. laga nr. 2/1995 um hlutafélög, liggja frammi í aðalbanka
Landsbankans, Austurstræti 11, Reykjavík, hluthöfum til sýnis á sama stað, sjö dögum fyrir hluthafafundinn.
Einnig er hægt að nálgast fundargögn á vefsíðu Landsbankans, www.landsbanki.is.
Fundargögn verða afhent hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra á fundarstað frá kl. 14:00 á fundardegi.
Umboðsmenn eru beðnir um að framvísa gildu umboði við hluthafaskrá á fundarstað.
Bankaráð Landsbanka Íslands hf.
Hluthafafundur Landsbanka Íslands hf. verður haldinn í Ársölum á Hótel Sögu, Reykjavík,
á morgun, 15. september 2005, og hefst hann kl. 15:00.
410 4000 | www.landsbanki.is
GLATT Á HJALLA HJÁ EIMSKIPI Það var fjör í tjaldi Eimskips, dótturfélags Avion Group,
fyrir utan sjávarútvegssýninguna í Kópavogi um síðustu helgi. Viðskiptamönnum og öðrum
góðum gestum var boðið upp á léttar veitingar um leið og skeggrætt var um landsins gagn
og nauðsynjar. Á meðan harmonikkan var þanin var stiginn léttur dans eins og í öðrum
góðum samkvæmum. Góð aðsókn var að sýningunni og fjöldi fyrirtækja kynnti starfsemi
sína fyrir sýningargestum.
Fyrirtækið Annata hefur
flutt starfsemi sína í nýtt
hús við Mörkina 4 í
Reykjavík. Af því tilefni
héldu eigendur og starfs-
menn nýlega opnunarteiti
þar sem viðskiptavinum og
velunnurum var boðið að
kíkja í heimsókn og skoða
sig um.
Annata er hópur sér-
fræðinga í upplýsinga-
tækni sem hefur að mark-
miði að hjálpa viðskipta-
vinum að ná fram betri
rekstrarárangri.
Nýja húsnæðið er ríflega tvöfalt stærra en fyrra húsnæði fyrir-
tækisins í Síðumúlanum og aðstaða öll mun betri. Meðal annars hefur
verið tekin í notkun ný og fullkomin námskeiðsstofa og fundarrýmum
fjölgað. Vinnustöðvar í opnu rými verða um 25 talsins og möguleiki á
nokkrum vinnustöðvum til viðbótar.
Annata í nýtt húsnæði
EIGENDUR ANNATA HF. Frá vinstri: Sturla Geir Frið-
riksson, Birgir Ragnarsson, Þorsteinn Siglaugsson,
Jóhann Jónsson, Eyvindur Tryggvason, Matthías Svein-
björnsson, Marteinn Þór Arnar. Á myndina vantar
Björn Gunnar Karlsson.