Fréttablaðið - 24.10.2005, Page 8
8 24. október 2005 MÁNUDAGUR
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Sævarhöf›a 2 Sími 525 8000 www.ih.is Opi›: Mánudaga – föstudaga kl. 9:00-18:00 og laugardaga kl. 12:00-16:00
Primera
Ver›tilbo› 2.090.000.-
Me› nagladekkjum. Sjálfskiptur, cruise control
og bakkmyndavél í lit.
PRIMERA
NISSAN
EKKERT
VENJULEGUR
SKIPT_um stíl
1. Hvaða stöðu gegnir Guðjón Rún-arsson?
2. Um hvern söng Megas á menning-ardögum kirkjunnar á Suðurnesj-
um í gær?
3. Hver er forseti Norðurlandaráðs?
SVÖRIN ERU Á BLAÐSÍÐU 38
SKOTLAND Litli drengurinn sem
fannst hungraður og illa til reika í
íbúð í Leith á dögunum með látinni
móður er talinn hafa verið einn á
báti í allt að sex vikur, ekki í tvær
eins og fyrst var talið.
Lögreglurannsókn hefur leitt
í ljós að móðir drengsins, sem er
þriggja ára, sást síðast á lífi 1. sept-
ember og því útilokar lögregla ekki
að snáðinn hafi síðan þá dregið fram
lífið á kexi og safa sem var til í íbúð-
inni. Líðan drengsins er sögð furðu
góð miðað við aðstæður.
Drengur með látinni móður:
Sjálfala í allt
að sex vikur
Al-Kaída hvetur til mannúðar
Arabíska sjónvarpsstöðin al-Jaazera
birti í gær ávarp Ayman al-Zawahiri,
næstráðanda al-Kaída samtakanna, þar
sem hann hvatti múslima til að aðstoða
fórnarlömb jarðskjálftans í Pakistan.
Pakistönsk stjórnvöld hafa aðstoðað
Bandaríkjamenn í stríðinu gegn hryðju-
verkum og því vekur yfirlýsingin athygli.
PAKISTAN
STYRKUR Á laugardag var 15 styrkj-
um úthlutað úr sjóðnum Vildar-
börn Icelandair. Styrkinn fá lang-
veik börn og fjölskyldur þeirra til
að gefa þeim tækifæri til að fara í
draumaferðina.
Áslaug Thelma Einarsdóttir,
framkvæmdastjóri sjóðsins, segir
söfnun fyrir sjóðinn hafa gengið
vonum framar og í ár hefði alls
verið úthlutað 24 styrkjum.
Sjóðurinn er fjármagnaður með
beinum styrkjum frá Icelandair,
framlögum frá einstaklingum
innan Vildarklúbbs Icelandair en
stærstu framlögin koma úr mynt-
söfnun sem fer fram um borð í
flugvélum Icelandair. - sh
Vildarbörn Icelandair:
15 fjölskyldur
fá ferðastyrk
VARSJÁ, AP Pólverjar kusu í gær
Lech Kazcynski forseta sinn ef
marka má útgönguspár. Donald
Tusk, keppinautur hans, lýsti sig
sigraðan fljótlega eftir að spárnar
voru birtar.
Önnur umferð pólsku forseta-
kosninganna fór fram í gær en
í fyrri umferðinni sem haldin
var fyrr í mánuðinum fékk eng-
inn frambjóðendanna tilskil-
inn meirihluta atkvæða. Í gær
var kosið á milli þeirra Don-
alds Tusk og Lechs Kazcynski,
borgarstjóra í Varsjá. Fyrstu
útgönguspár í gær bentu til að
Kazcynski hefði borið sigur úr
býtum. Spá TVN24 sjónvarps-
stöðvarinnar gerði ráð fyrir
að 53,5 prósent kjósenda hefðu
kosið Kazcynski en aðeins 46,5
prósent Tusk.
„Í dag verð ég að viðurkenna
að mér mistókst,“ sagði Tusk í
ávarpi sínu til stuðningsmanna,
dapur í bragði. Jaroslaw, tví-
burabróðir Kazcynski, er leið-
togi flokksins Laga og réttlætis
sem sigraði í þingkosningunum
25. september. Jaroslaw lýsti því
hins vegar strax yfir að hann
myndi ekki verða forsætisráð-
herra næði bróðir hans kjöri sem
forseti.
Endanleg úrslit munu liggja
fyrir í dag. - shg
Síðari umferð pólsku forsetakosninganna fór fram í gær:
Kaczynski var kjörinn forseti
VÍGREIF VIÐ KJÖRKASSANN Lech og Maria
Kazcynski mættu snemma á kjörstað og
greiddu atkvæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STJÓRNMÁL „Meðaltalið sýnir
tuttugu prósenta óútskýrðan
launamun á körlum og konum sem
er hreint ótrúleg staða. Við lítum
á þetta sem mannréttindamál en
ekki aðeins sem skyldu hvers og
eins að biðja um hærri laun. Það er
bara ekki það einfalt,“ segir Katr-
ín Jakobsdóttir, varaformaður
Vinstri hreyfingarinnar - græns
framboðs, að loknum landsfundi
flokksins í gær. Eins og fram
hefur komið skilgreina vinstri
grænir sig nú sem róttækan flokk
feminískra sjónarmiða.
„Ungar konur voru mjög áber-
andi á þessum stærsta landsfundi
sem við höfum haldið,“ segir
Katrín einnig, en kosið var til
stjórnar flokksins og eru konur
þar í meirihluta.
Fundurinn samþykkti fjölda
ályktana og voru þar á meðal
ályktanir um breytingar á stjórn-
arskrá þar sem flokkurinn mæl-
ist til þess að reglur um sjálfbæra
þróun og umhverfismál verði
stjórnarskrárbundnar. Einnig vill
flokkurinn að réttur allra til heil-
næms vatns ásamt því að landið
verði án sýkla-, efna- og kjarn-
orkuvopna komi inn í stjórnar-
skrána. Steingrímur J. Sigfússon,
formaður vinstri grænna segir
að flokkurinn hafni því alfarið
þeirri ályktun sem landsfund-
ur Sjálfstæðisflokks sendi frá
sér að málsskotsrétti forsetans
verði fórnað fyrir óljós ákvæði
um þjóðaratkvæðagreiðslur: „Við
erum ekki tilbúin í einhverja
verslun um 26. grein stjórnar-
skrárinnar.“
Katrín segir að næst á dagskrá
sé að taka til við vinnu í umhverf-
ismálum.
Bæði Steingrímur og Katrín
voru ein í framboði til forystu í
flokknum og voru því sjálfkjörin
saj@frettabladid.is
Málskotið er ekki til sölu
Fimmtungs launamunur kynjanna er mannréttindamál segir Katrín Jakobsdóttir, varaformaður vinstri
grænna. Steingrímur J. Sigfússon segir flokkinn hafna því að málskotsréttur forseta verði aflagður.
FORYSTA VINSTRI GRÆNNA Steingrímur J. Sigfússon formaður og Katrín Jakobsdóttir vara-
formaður fagna undir lok landsfundar í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
BRETLAND Breska lögreglan hand-
tók um helgina mann sem við-
urkenndi í blaðaviðtali að hafa
verið í vitorði með mönnunum
sem myrtu 52 í sprengjuárásum í
Lundúnum 7. júlí.
Sunnudagsblaðið News of the
World greindi frá því í gær að lög-
regla í Dewsbury í Vestur-Jórvík-
urskíri hefði í fyrradag handtekið
Imran Patel eftir ábendingu frá
ritstjórn blaðsins, en Patel hafði
viðurkennt í samtali við blaða-
mann að hafa átt að taka þátt í
hryðjuverkaárásunum.
Að eigin sögn bað Mohammad
Sidique Khan, leiðtogi árásar-
mannanna, Patel um að slást í hóp
þeirra og hittist allur hópurinn á
heimili þess síðarnefnda til skrafs
og ráðagerða. Patel ákvað hins
vegar að hætta við þátttöku þegar
honum var sagt að barnaskóli ætti
að vera eitt skotmarkanna. Engu
að síður gerði hann lögreglu ekki
viðvart þar sem hann vildi ekki
koma félögum sínum í fangelsi.
Talsverður viðbúnaður var í
Dewsbury þegar maðurinn var
handtekinn og var gerð húsleit
á nokkrum heimilum í tengslum
við málið. Patel er sá eini sem er
í haldi vegna árásanna en fjór-
menningarnir sem frömdu þær
dóu allir í þeim.
- shg
Handtekinn vegna hryðjuverkaárásanna í Lundúnum:
Kvaðst vera vitorðs-
maður að árásinni
FRÁ TAVISTOCK SQUARE 52 biðu bana í hryðjuverkunum í Lundúnum í sumar og yfir 700
slösuðust.FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?