Tíminn - 07.08.1975, Page 1
NORRÆNI FJARFESTINGAR-
BANKINN Á NÆSTA ÁRI?
Gsal-Reykjavik- Nú liggja fyrir
ákveðnar tillögur ráðherranefnd-
ar Norðurlandaráðs um stofnun
norræns fjárfestingarbanka sem
myndi veita fé til samnorrænna
verkefna, og mun að öllum leik-
indum verða kallað saman auka-
þing Norðurlandaráðs til að ræða
stofnun bankans. Á morgun hefst
á Húsavlk þing forsætisnefndar
Norðurlandaráðs, en meiginverk-
efni þess þings verður að taka
endanlega afstööu til þess, hvort
ekki beri að boða til áðurnefnds
aukaþings um stofnun norræna
fjárfestingarbankans.
„Ég tel væntanlega stofnun
fjárfestingarbanka Norðurlanda
vera ákaflega mikið hagsmuna-
mál fyrir okkur íslendinga”,
sagði Ragnhildur Helgadóttir,
forseti Norðurlandaráðs, er Tim-
inn hafði tal af henni i gær. „Mér
sýnist að væntanleg stofnun
bankans komist næst þvi að hægt
sé að halda þvi fram, að efna-
hagsmálasamstarf Norðurland-
anna verði að veruleika”, sagði
hún. Kvaö Ragnhildur það engum
vafa undirorpið, að bankinn
myndi hafa mikla þýðingu fyrir
tsland, en hann myndi lána fé til
fjárfestingarverkefna sem hafL
sameiginlega norræna þýðingu
s.s. stóriðjuverkefna, sem fleiri
en eitt Norðurlandanna væri aðili
að.
„Þetta er það mikilvægt mál-
efni, að ráðið þarf að taka afstöðu
til þess á þingi, en það þykir of
langt að biða næsta reglulegs
þings ráðsins, sem verður ekki
haldið fyrr en um mánaðamótin
febrúar-marz á næsta ári, og það
er ætlunin að láta bankann taka
til starfa á næsta ári, ef málið
verður samþykkt”, sagði Ragn-
hildur.
Þjóöirnar fimm munu leggja
fram fé til bankans og mun hlutur
íslands verða 1%.
Að sögn Ragnhildar hefur enn
ekki verið ákveðið Itarlega á
hvern hátt bankinn muni starfa,
né hvar aðsetur hans verður, en
uppkast að starfsreglum hans
liggur fyrir Norðurlandaráði. andi stofnun bankans, mun verða
Aukaþingið, sem rætt er um varð- haldið I Stokkhólmi i nóvember,
ALYKTUN RANNSOKNANEFNDAR SJOSLYSA:
Eldvarnir um
í skipum eru
Stakkst á HÖfuðið
niður á lestarbotn
— 9 metra fall
ASK—Akureyri — í gærdag varð
....... þaðslys um borð i Helgafelli, sem
var á leið út Eyjafjörð, að háseti
féll niður um lestarop og niður á
botn lestarinnar, en það er um niu
metra fall.
borð
alls
ekki eins og skyldi
Slysið varð þeim hætti, að há-
setinn var að ganga frá lúgum á
fremstu lest skipsins, en missti þá
fótanna og stakkst á höfuðið niður
I lestina. Skipinu var þegar snúið
við til Akureyrar og maðurinn
fluttur á sjúkrahúsið. Að sögn
Akureyrarlögreglunnar var mað-
urinn handleggsbrotinn og hafði
auk þess hlotið áverka á höfði og
öxl, en ekki var nánar vitað um
liðan hans.
Gsal—Reykjavik — A siðasta
ári urðu 7 eldsvoðar I Islenzkum
skipum, þar sem skipin annað-
hvort sukku eða voru dæmd
ónýt. Kemur þetta m.a. fram I
skýrslu rannsóknanefndar sjó-
slysa fyrir árið 1974. „Tlðni
sllkra eldsvoða gefur tilefni til
að álykta, að eldvarnir um borð
I skipum séu ekki eins og skyldi.
Telur nefndin, að nánar þurfi að
hyggja að þessum máium I
næstu framtið”, segir I áiyktun
nefndarinnar.
1 grein, sem Jón H. Wium,
stýrimaöur ritar I skýrsluna um
eldvarnir I skipum, kemur
fram, að i október 1969 hafi
samgönguráðuneytið sett reglur
um eldvarnir I fiskiskipum, og
að samkvæmt þeim reglum sé
m.a. krafizt að reykköfunartæki
séu höfð um borö I skipum, sem
eru 500 brúttórúmlestir og
stærri. Segir Jón, að nú séu uppi
raddir um það, að fá þessi tæki
einnig i minni skip.
Jón bendir á, að hvergi sé á
það minnzt i reglunum, að þörf
sé fyrii; að einhver af áhöfninni
kunni með þessi tæki að fara og
segir, að hætta sé á, að tæki
þessi skapi falskt öryggi, ef eng-
inn af áhöfninni hefur hlotiö
þjálfun I meðferð þeirra. „Til
þess að reykköfunartæki skapi
það öryggi, sem til er ætlazt,
þyrftu að minnsta kosti tveir
menn af áhöfninni að hafa feng-
ið þjálfun i meðferð þeirra”,
segir hann.
Að lokum segir Jón I grein
sinni að I 31. gr. reglnanna sé
svo kveðið á um, að slökkviæf-
ingar séu eigi sjaldnar en þriðja
hvern mánuð og að þeirra skuli
getið I eftirlitsbók skipsins. Sið-
an spyr Jón: „Hversu margar
eftirlitsbækur Isl. skipa skyldu
geyma slikan fróðleik?
D
VARÚC
mSARE 0FHRERI
CAPTAW
Mynd og texti úr nýútkom-
inni skýrsiu rannsókna-
nefndar sjóslysa fyrir árið
1974.
POLYURETHAN (Plastefni) er mikið notað sem einangrun í
stálskip, Margir íslenzku skuttogararnir eru einangraðir
með þessu efni svo og fl, skip og bátar. Astæða þykir til,
að vekja athygli skipshafna á því, að þetta einangrunar-
efni er mjög eldfimt og reykurinn af því baneitraður.
Æskilegt væri að utgerðarmenn létu setja varúðarskilti á
áberandi stöðum, þar sem polyurethan er notað sem einangrun.
Myndin hér að ofan er tekin um borð í einum af skuttogurum
okkar og skyrir sig sjálf. Bráðlega er að vænta reglna um
að reykköfunartaeki skuli vera í öllum okkar skuttogurum.
Slysin um borð
í skuttogurunum
urðu af óvana
ENDURREIST GRJOTAÞORP
LOKKI MEÐ SÉRSTÆÐRI
ÞJÓNUSTU OG HLÝLEIKA
Gsal—Reykjavík — Sem kunnugt
er af fréttum urðu tlð slys um
borð I skuttogurum á siðastliðnu
ári, og var þá mikið rætt um
öryggismál skuttogaranna bæöi I
fjölmiðlum og á almennum vett-
vangi. A síðasta ári varð 21 bana-
slys á sjónum, þar af 9 dauðaslys
á togskipum yfir 100 brúttórúm-
lestir að stærð.
Þegar Timinn hafði tal af Þór-
halli Hálfdánarsyni, hjá rann-
sóknarnefnd sjóslysa, og rætt var
um slvsin á skuttogurunum, taldi
Þórhallur að þau hefðu i flestum
tilfellum stafað af ókunnugleika
skipstjórnarmanna. Kvað hann
það vart hafa komið sér á óvart,
þar eð nánast hefði verið um at-
vinnubyltingu að ræða, þegar
skuttogararnir komu hingað til
lands.
Fæða ótökin
á Vísi af sér
nýtt
síðdegisblað?
-------- 9
BH—Reykjavik — „Þar sem
Grjótaþorpið er i hjarta gamla
miðbæjarins, en langt frá þvl að
vera I miðjum bænum hvaö snert-
ir vegalengdir til helztu íbúða-
hverfa, má gera ráö fyrir þvl, að
verzlun og þjónusta verði þar
með mjög sérstæðu sniði. 1 stað
þess að lokka með þægilegum
bllastæðum og rúmgóöum húsa-
kynnum, lokkar Grjótaþorpið
meö vöruúrvali og hlýleika. Vlsir
að slikri þjónustu er nú þegar
fyrir hendi I hverfinu.”
Svo segir meðal annars i skipu-
lagstillögu að endurreisn Grjóta-
þorpsins i Reykjavik, en tillagan
liggur nú fyrir skipulagsnefnd
borgarinnar. 1 tillögunum kennir
margra grasa og nýstárlegra.
Þar er til dæmis gert ráð fyrir
þvi, að noröur undir Vesturgötu
verði byggður svonefndur „al-
menningur”, þar sem meðal ann-
ars er gert ráð fyrir að verði
nokkurs konar félagsheimili
Reykvikinga. Þangað gæti til
dæmis flutt einhver hluti eða
jafnvel öll starfsemi Félags-
málastofnunar Reykjavikur. Seg-
ir i skipulagstillögunum, að þörf
fyrir leiðandi afl i félagsmálum
sé augljós, ekki eingöngu fyrir
Grjótaþorp, heldur allan Miöbæ-
inn og Vesturbæinn.
Sjá teikningu í OPNU