Tíminn - 10.09.1975, Síða 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
TARPAULIN
RISSKEMMUR
Landvélar hf
205. tbl. — Miðvikudagur 10. september—59. árgangur
J
HF HORÐUR GUNNARSSON
SKÚLATUNI 6 - SIMI (91)19460
Tímabært að setja hafn-
bann á eftirlitsskipin
segir utanríkisráðherra
Gsal-Reykjavik — Rikisstjórnin
ákvað á fundi sinum i gærdag, að
láta kanna mjög gaumgæfilega,
hvort ekki beri að setja hafnbann
á vestur-þýzku eftirlitsskipin,
eða njósanaskipin, eins og þau
eru nefnd manna á meðal, eftir að
upplýst varð, að þau láta togurum
sinum i té mjög nákvæmar upp-
lýsingar um ferðir islenzku varð-
skipanna og elti þau á tslands-
miðum. Að sögn Einars Agústs-
sonar, utanrikisráðherra munu
ráðuneytisstjórar og aðrir is-
lenzkir embættismenn kanna
málið itarlega á næstu dögum, en
Brunatjón á
mann lægst
hér á landi
Komið í veg
fyrir olíu-
mengun
í Hafnarfirði
OÓ-Reykjavik. óðum er nú verið
að tengja hitaveitukerfið við hús i
Hafnarfirði og verða oliukynd-
ingartæki húsanna þá náttúrlega
óþörf. Jafnhraðan og hús hefur
verið tengt hitaveitunni, sjá oliu-
félögin, sem áður seldu brennslu-
oliu I viðkomandi hús, svo um, að
olia verði ekki skilín eftir i tönk-
unum. Á þvi ekki að verða nein
hætta á, að mengun verði siöar af
afgangsoliu.
Sigurður Haraldsson, starfs-
maður Oliustöðvarinnar i
Hafnarfirði, sagði Timanum, að
reynt væri að fylgjast með þvi
hve mikil oliuþörf væri fyrir þau
hús sem fara á að tengja hitaveit-
unni. Þegar tenging hefur farið
fram, er þvi sem afgangs er dælt
upp úr tönkunum og fá húseig-
endur innleggsnótur fyrir þvi hjá
oliufélögunum. Einnig sjá oliu-
félögin um að taka tankana upp.
þar sem þess er óskað, en Hafn
firðingar virðast svolitið fast-
heldnir á oliutankana sina, að
minnsta kosti enn sem komið er.
Þótt Hitaveitan sjái um lagn-
ingu fyrir heita vatnið, verða hús-
eigendur að sækja um tengingar,
en nokkur misbrestur hefur orðið
á, að það hafi verið gert. Búið er
að setja heitt vatn i allar götur i
Norðurbænum og eru þeir, sem
ekki eru þegar búnir að leggja inn
tengingabeiðnir hvattir til að
gera það sem fyrst. t þessari
viku verður lokið við að hleypa
vatni á svokallað Álfaskeiðs4iverfj
en þar voru leiðslur lagðar i
fyrra. Hjá hitaveitunni i Hafnar-
firði fékk blaðið þær upplýsingar,
að starfsmenn hitaveitunnar sjái
um að koma lögn inn fyrir vegg
og að svokallaðri mælagrind, en
eftir það tekur húseigandi við og
verður hann að sjá um fram-
kvæmdir á öðrum lögnum i hús-
inu svo og útrennsli.
Gsal-Reykjavik — Tjónum og
slysum verður að halda undir
vissu marki og til þess þarf stöð-
ugt aðhaid. Árangurinn verður
aldrei fuilkominn eða 100%. Ef
meiriháttar bruni verður, leitar
sú spurning óþægilega á mann:
Hefði ég getað fyrirbyggt þetta
tjón? Eini tiltæki mælikvarðinn
er samanburður við nágranna-
þjóðirnar, en þar stöndum við vel
þessa stundina. Brunatjón á
mann á islandi er nú iægra en i
nokkru öðru landi, sem ég hef
skýrslur yfir.
Þessi eru niðurlagsorð erindis,
sem Bárður Damelsson, forstjóri
Brunamálastofnunar ríkisins,
flutti ekki alls fyrir löngu á full-
trúaráðsfundi Brunabótafélags
tslands að Höfn i Hornafirði, — en
erindið i heild er birt i' opnu blaðs-
ins i dag.
Bárður gerir i erindi sinu grein
fyrir þvi starfi sem áunnizt hefur
I brunavarnarmálum frá þvi
brunamálastofnunin var stofnuð
fyrir tæpum sex árum. 1 upphafi
var lögð áherzla á tvö atriði varð-
andi þessi mál, annars vegar
þjálfun og eflingu slökkviliða um
allt land og hins vegar að fram-
kvæma brunaskoðanir á stærri
áhættum hvarvetna á landinu,
með það fyrir augum, að öryggi
þeirra gegn eldi yrði aukið og
bætt.
Þegar stofnunin tók til starfa
voru aðeins 15 slökkvilið á land-
inu, sem hægt var að nefna þvi
nafni, en áttu samkvæmt lögum
að vera 55. A þessum tæpum sex
árum hafa verið keyptartil lands-
ins 57 slökkvibifreiðar og nær öll
byggðarlög sem talin eru þurfa
slökkvibil, hafa nú leyst það mál.
Þessi gífurlega aukning á
slökkvibilakosti landsmanna er
talið langstærsta átak i bruna-
vörnum á tslandi frá upphafi. 180
manns.frá ýmsum stöðum á land-
inu, hafa sótt námskeið hjá
brunamálastofnuninni og starfs-
menn stofnunarinnar hafa farið
fjölmargar eftirlitsferðir um land
allt.
Ljóst er, að stórlega hefur
dregið úr eldsvoðum hér á landi á
siðustu árum og er það engum
vafa undirorpið, að starf Bruna-
málastofnunar rikisins á þar
mjög drjúgan hlut að máli.
OPNU
ekki kvaðst ráðherra geta gefið
um það neinar upplýsingar, hve-
nær ákvörðunar i málinu væri að
vænta.
Þegar Timinn innti Einar
Agústsson eftir hans persónulegu
afstöðu til þessa máls, sagði
hann:
— Ég er þeirrar skoðunar, að
timabært sé að setja hafnbann á
eftirlitsskip Þjóðverja. Hins veg-
ar þykir mér rétt, að mál þetta
verði athugað mjög vel, svo ekki
verði flanað að neinu. Ég er þvi
algjörlega samþykkur ákvörðun
rikisstjórnarinnar, að láta sér-
fræðinga okkar athuga málið,
sagði ráðherra.
Aðspurður um það, hvort hann
teldi liklegt, að það verði ofan á,
að hafnbann verði sett á þýzku
eftirlitsskipin, vildi ráðherra ekki
ræða á þessu stigi.
I! »_i
- t •>•••
ASI SETUR AF-
GREIDSLUBANN
Á V-ÞJÓÐVERJA
Gsal-Reykjavik — Alþýðusam-
band tslands hefur ákveðið að
Iáta til skarar skrfða gegn Vest-
ur-þjóðverjum og hefur sam-
bandið óskað eftir þvi við öll sin
sambandsfélög, ,,að þau gæti
þess að engir félagsmenn þeirra
leggi hönd eða fót að neinskonar
þjónustu við vestur-þýzku eftir-
litsskipin, nema um sé að ræða
björgun sjúkra eða slasaðra
manna”, eins og segir i sam-
þykkt miðstjórnar ASt, sem
gerð var i gær.
Ljóst er, að þessi tilmæli mið-
stjórnar ASt þýða i raun af-
greiðslubann á v-þýzku eftirlits-
skipin, en i samþykkt mið-
stjórnarinnar frá þvi i gær, seg-
ir, að vegna sivaxandi land-
helgisbrota og yfirgangs v-
þýzkra togara innan islenzkrar
fiskveiðilögsögu og njósnaaf-
brota svokallaðra eftirlitsskipa,
samþykki miðstjórnin að beina
þvi til sambandsfélaga sinna, að
þau gæti þess, að engir félags-
menn þeirra komi nærri þjón-
ustu við v-þýzku eftirlitsskipin,
nema um neyðartilvik sé að
ræða. Jafnframt eru sambands-
félögin hvött til þess að stuðla að
þvi, að aðrir veiti ekki heldur
neina fyrirgreiðslu i höfnum
landsins.
— Þá lýsir miðstjórnin þvi yf-
ir, að verði viðskiptaþvingunum
af hálfu V-þjóðverja haldið
áfram, svo sem i formi
löndunarbanns á islenzkum
fiski, mun hún taka til yfir-
vegunar að beita sér fyrir upp-
skipunarbanni á v-þýzkum inn-
flutningi til landsins, segir i
samþykkt miðstjórnarinnar.
•. ■■ i,/; ~ v , > • ý ;
- aWtóa* • ™
.
.
x A -' ' ' ',
Heita vatnið
í borholunni
við Kröflu
sprengdi
af sér
öll bönd
0
Frá Afríku
til Islands
til að dansa
í Coppelíu
0