Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 3

Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 3
Laugardagur 20. september 1975. TÍMINN 3 Fyrsti samninga- fundur hjá BSRB BH-Reykjavik — Fyrsti viöræðu- fundurinn við fulltriía rikisvalds- ins var haldinn i fyrradag. Þar gerðist ekkert markvert. Þeir lögðu ekkert fram á mtíti kröfum BSRB, og það var ekki einu sinni ákveðið, hvenær næsti fundur yrði haldinn. Þeir upplýstu okkur um það, að þeir gætu ekkert á- kveðið i þeim efnum. Þannig komst Kristján Thorla- cius, formaður Bandalags starfs- manna rikis og bæja, að orði við Timann i gær, er við inntum hann frétta af samningamálum banda- lagsins við rikisvaldið, en um sið- ustu mánaðamót lögðu opinberir starfsmenn fram launakröfur sinar, svo sem skýrt hefur verið frá i' Timanum. — Annars er það markverðast af þessum málum, sagði Kristján Thorlatíius, að i fyrradag og i gær var haldin fjölmenn bæjarstarfs- mannaráðstefiia, þar sem for- ystumenn bæjarstarfsmannafé- laga komu saman til þess að bera saman bækur sinar i sambandi við kröfugerð i sérsamningum. Sérkröfur verða allar tilbúnar fyrir 1. október, og stendur undir- búningur þeirra nú yfir. Við inntum Kristján Thorlacius eftir fyrirhuguðum fundahöldum BSRB, og kvað hann bandalagið vera að undirbúa mikil fundahöld inæstamánuði til stuðnings kröfu sinni um verkfallsrétt og afnám kjaradóms. — Fundimir verða frá 3,—11. október, og eru þeir fyrirhugaðir 53 talsins, viðsvegar um landið. í lok þeirra verður svo með leyni- legri atkvæðagreiðslu könnuð af- staða félagsmanna til verkfalls- réttar og hve langt og hve hratt skuli ganga i þeim efnum. Af þessum 53 fundum verða 23 úti á landsbyggðinni. Sauðárkrókur: SAMNINGAR EKKI TEKIZT ENNÞÁ SKRÁ UAA RÉTTARDAGA SJ—Reykjavik — Réttir eru nú hafnar. I dag er réttað á þrem stöðum i Húnavatnssýslu, að Auðkúlu, Undirfelli og i Viðidals- tungu. Á morgun gefst Hafnfirð- ingum tækifæri til að bregða sér I réttir, og ekki væri úr vegi fyrir Reykvikinga, sem vilja sjá fé ný- komið af fjalli, að bregða sér i smáökuferð, en þá er Kaldárrétt. Eftirfarandi skrá yfir þær rétt- ir, sem eftir eru hér I nágrenninu, á Vestur- og Norðvesturlandi og sunnanlands, fengum við hjá Guðmundi Jósafatssyni hjá Búnaðarfélagi íslands: Melarétt I Fljótshverfi föstudag- inn 25. september. Silfrastaðarétt I Skagafirði mánud. 22. sept. Mælifellsrétt I Skagafiröi mið- vikud. 24. sept. Reynistaðarétt I Skagafiröi mánud. 22. sept. Skrapatungurétt A-Hún sunnudag 21. sept. Stafnsrétt A-Hún 24. og 25. sept. Fellsendarétt i Dölum þriðjud. 23. sept. Gillastaðarétt i Dölum sunnud. 21. sept. Brekkurétt i Norðurárdal mánud. 22. sept. Svignaskarðsrétt Mýrasýslu mið- vikud. 24. sept. Kjósarrétt þriðjud. 23. sept. Kollafjarðarrétt miðvikud. 24. sept. Hafravatnsrétt mánudag 22. sept. Gjábakkarétt mánudag 22. sept. Laugarvatnsréttþriðjud. 23. sept. Klausturhólarétt I Grimsnesi miðvikud. 24. sept. Olfusrétt fimmtudag 25. sept. Landréttir föstudag 26. sept. Sjómenn með ASÍ BH-Reykjavik. — Við munum fylgjast að, Alþýðusambandiö og Sjómannasambandið i væntan- legri samningagerð um kjör okk- ar manna, sagði Jón Sigurðsson, forseti Sjómannasambandsins I viðtali við Tlmann I gær, — nema að þvi leyti, að viö verðum eitt- hvað sér á báti hvað snertir sér- stöðu sjómanna I þessu tilliti. Þetta atriði tók ég mjög greini- lega fram á miðstjórnarfundi ASt i fyrradag, og var fullur skilning- ur á þvi. Við inntum Jón Sigurðsson eftir þvi, hvert væri næsta skrefið hjá honum og hans mönnum. — Við erum að undirbúa ráð- stefnu undir mánaðamótin. Hjá okkur er það nefnilega svo, að viö verðum að búa kröfurnar út fyrir bátasjómennina og segja samn- ingum upp fyrir 1. nóvembér, með 2ja mánaða fyrirvara. Framleiða ofna til súgþurrkunar gébé Rvik — Eins og Tlminn skýrði frá I vikunni, boðuðu verkalýðsfélögin á Sauðárkróki til verkfalls starfsfólks, sem vinnur við slátrun sauðfjár, ef ekki tækjust samningar við Kaupfélag Skagfirðinga. Verk- fallið á að hefjast 24. september. Slátrun hófst þann 16. þ.m., en ef samningar takast ekki, verður öll vinna stöðvuð i sláturhúsinu. Aætlað er að slátra um sjötiu þús- und fjár hjá K.S. i haust. Aðalágreiningsefnið liggur i til- færslum launa milli launaflokka, svo og ýmsum friðindum, svo sem fæði og kostnað við ferða- flutning sveitafólks, sem vinnur i sláturhúsinu. Helgi Rafn Traustason kaupfélagsstjóri sagði i gær, að málið væri á við- kvæmu stigi, og þvi vildi hann ekkert um það segja. Jón Karlsson, formaöur Verka- mannafélagsins Fram, sagði að ekkert hefði gerzt i málinu þessa viku, og að þeir biðu bú eftir á- kvörðun forráðamanna kaupfé- lagsins. —Við erum alltaf tilbúnir til viðræðna, sagði hann, — en vonum, að ekki þurfi að koma til verkfalls. SJ—Reykjavik — Það er auöveld- lega hægt að gera aðferðina, sem Jón Frlmann Jónsson I Blá- hvammi hefur við að nota hvera- gufu til súgþurrkunar, stórvirk- ari, sagði maður, sem hringdi á ritstjórn blaösins I gær. Hér á landi eru framleiddir mjög afkstamiklir ofnar, sem hægt er að nota við súgþurrkun og hagnýta hvort sem er heitt vatn eða gufu sem orkugjafa. Þórarinn Þorfinnsson, bóndi að Spóastöðum i Biskupstungum, fékk slikan ofn hjá Blikksmiðj- unni Vogi i Kópavogi nú i vor, og notkun hans hefur gefið mjög góðan árangur. Varö það kveikjan að þvi að fleiri bændur, sem hafa jarðhita i landi sinu, ætla að fá sér slika ofna. Þorgeir Bergsson hjá Blikk- smiðjunni Vogi sagði, að verðið á ofnunum væri mismunandi eftir stærð og aðstæðum og hvort nota ætti gufu eða vatn. — Mér datt ekki I hug að ein- hver notaði oliutunnu i þessum tilgangi, sagði Þorgeir Bergsson, — það var góð og óvenjuleg hug- mynd. Plastrækt tvö- til þrefaldar uppskeru SJ-Reykjavik — Kartöfluútsæði að norðan — úr Eyjafirði — hefur I flestum tilraunum okkar gefið 10—20% meiri uppskeru en kart- Fyrsti línu- róðurinn fró Isafirði GS-ísafirði. — Fyrsti linubátur- inn reri héðan að þessu sinni i fyrradag. Var það Guðný 1S 266, og fékk hún 4,2 tonn af góðum fiski I þessum fyrstaróðri vertið- arinnar. Rússneskt skip er inni á Isafirði þessa dagana, 4.500 lesta flutn- ingaskip, en það kom hingað með' 7—800 lestir af beitusmokki. Smokkfiskurinn er veiddur á Ný- fundnalandsmiðum, og þykir sumt smátt, sumir ekki stærri en þaö, að nota verður einn i beituna. Þorsteinn Tómasson heldur á kartöflu, sem var ræktuð undir plasti. Hrúgan t.v. er plastrækt — uppskera undan niu grösum, og til hægri er uppskera undan nlu grösum, þar sem ekki var notað plast. öfluútsæði af Suðurlandi, og virð- istþetta vera óháð ræktunarstað. Samanburðartilraunir hafa verið gerðar á þessu þrjú ár i röð og norðlenzka útsæðið virðist gefa um 20% meiri uppskeru hjá þeim kartöfluafbrigðum, sem hér eru algeng þótt þetta sé ekki algilt. Verið er að leita að skýringum á þessu, en mismunurinn virðist ekki stafa af sjúkdómi I kartöfl- unum. Hugsanlega er það einhver umhverfisþáttur sem veldur. Um þetta m.a. upplýsti okkur Þoráteinn Tómasson erfðafræð- ingur, er við hittum hann að máli á tilraunastöðinni að Korpu. Þor- steinn vinnur fyrst og fremst að jurtakynbótum, og hefur einnig gert ýmsar athuganir á kartöfl- um, ásamt fleiri starfsmönnum Rannsóknastofnunar landbúnað- arins að Keldnaholti. Að Korpu eru nú t.d. 60—70 að- fengin kartöfluafbrigði i prófun til að gera samanburð á þeim og kartöflutegundunum,sem hér eru algengastar, gullauga, Helgu og rauðum islenzkum. Þar er t.d. af- brigði frá Alaska til prófunar, sem á að þola nokkurra stiga frost án þess að grasið falli, en ekki hefur fundizt munur á þvi og t.d. gullauga hvað þetta snert- ir. Að Korpu hefur þó enn ekki fundiztkartöflutegund, sem hefur verulega kosti umfram þær, sem við höfum fyrir. Auk uppskeru- magns hafa þeir, sem tilraunum þessum sinna, áhuga á ýmsum öðrum þáttum, svo sem hvort kartaflan hentar vel til bökunar eða steikingar, en áhugi virðist vera að skapast meðal neytenda á þvi. Tilraunimar með kaftöfluaf- brigðin eru nýlega hafnar að nýju og árangurs ekki að vænta slrax. Að Korpu hafa einnig veriö gerð- ar tilraunir með ræktun kartaflna undir plasti, og er uppskeran tvisvar til þrisvar sinnum meiri en þegar plast er ekki haft yfir kartöflunum. Kartöfluuppskeran I sumar er almennt mjög léleg, hvort sem plast er notað eða ekki. Þó fékkst rúmlega tvisvar sinn- um meiri uppskera undan plasti en undan þeim grösum, sem ekki var haft plast yfir. Að Korpu er fremur lélegt land til kartöflu- ræktar, en það skiptir ekki máli við samanburðartilraunir. 1 fyrra var gott kartöfluár, og þá fékkst allt að þrisvar sinnum meiri upp- skera undan sama grasafjölda, þar sem plast var notað. Plast- rækt hefur fyrst og fremst kosti i för með sér á sólriku sumri. Plastið eykur jarðvegshitann og gefur aukna uppskeru, en auk þess betri flokkun og öruggari uppskeru. Þvi má bæta við, aö þessar kartöflur eru betri á bragðið, þar sem sterkjuhlutfallið er um 20% hærra en þar sem ekki er notað plast. Hægra megin er uppskera undan norðlenzku útsæði, en t.v. uppskera undan sunn- lenzku útsæði. Að Korpu sá- um við sýnishorn, þar sem munurinn var meiri, en þetta er u.þ.b. meðaltalsmunur á uppskeru undan sama grasafjölda, eftir þvi hvort um norðlenzkt eða sunn- lenzkt útsæði er að ræða. Tlmamyndir: Gunnar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.