Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 13

Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 20. september 1975. TtMINN 13 Úrslit í þriðja Evrópumeist- aramóti ís- lenzkra hesta Tölt 1. Dagur, Islandi — frá Núpum 2. Funi, Þýzkalandi — frá Kaupvangi 3. Silfri, Þýzkalandi — frá Miðgrund Gefin voru 1-5 stig fyrir takt og 1-15 stig fyrir fegurð i reið. Hest- arnir komu inn á völlinn, 200 metra hringbraut (ca. 60x40 m). Þar riðu knaparnir bæði réttsælis og rangsælis i marga hringi og sýndu hægatölt, milliferðartölt og yfirferðartölt, samkvæmt skipun. Keppni lýkur þegar dómarar gefa merki um, að þeir séu búnir að dæma. Þessi keppni er erfið bæði fyrir hesta og knapa, og krefst mikillar nákvæmni. Fjölgangur 1. Funi, Þýzkalandi — frá Kaupvangi 2. Léttir, Hollandi frá Innrihólmi 3. Dagur, íslandi — frá Núpum Þessi keppni fór einnig fram á hringvellinum og á svipaðan hátt og töltkeppnin, þannig að i undan- úrslitum fengu hestarnir eink- unnir. Síðan var ætlunin að taka tlu beztu hestana út, en vegna þess að þrir fengu sömu einkunn, 10,11 og 12, kepptu 12 til Urslita á sunnudag, og var þeim raðað i röð en ekki gefnar einkunnir. Hest- amir komu I hringinn fimm i einu, og þar var knöpum sagt fyr- ir yfir hátalarakerfið, hvernig þeir ættu að riða, t.d. fara fetið, snúa siðan við þegar þess var krafizt — allir i einu — og halda áfram þangað til allir dómararnir höfðu gefið merki, en þá réttu þeir allir upp spjöld, með sinni einkunn. Þar með lá heildareink- unni fyrir þá gangtegund fyrir, og siðan koll af kolli, án þess að hestarnir fengju að stöðva. Hest- arnir fóru marga hringi, eðlilega oft á milliferð. Þarna kepptu bæði fimmgengir og fjórgengir hestar. Gefið var fyrir fetgang, tölt, brokk, stökk og skeið (það hafa fjórgengir hestar ekki), 1-20 stig hvert ganglag. Þessi keppni er erfið og nokkuð löng og krefst bæði þreks og þjálfunar. Skeið 1. Hreinn, Þýzkalandi — frá Gullberastöðum 2. Goldi, Þýzkalandi — frá Hagen 3. Hvinur, Islandi — frá Haugi. Skeiðiö, 250 metrar, fór fram á svipaðan hátt og hjá okkur, en að- eins tveir hestar hlupu samtimis. I seinni riðilinn var hestunum raðað eftir tima, þannig að beztu hestarnir lentu saman,— eða þeir hestar, sem voru likastir. Völlur- inn var grasigróið tún og heldur þungur. Hlýðnikeppni C 1. Funi, Hollandi — frá Kaupvangi 2. Ljósi, Þýzkalandi — frá Uxahrygg 3. Kópur, Hollandi — frá Hólmi Hlýðnikeppni B 1. Ljóski, tslandi — frá Hofsstöðum 2. Krummi, Hollandi — frá het-Steenfort 3. óðinn, Frakklandi Hlýðniæfingarnar fóru fram i gerði. C-keppnin er mun erfiðari en B. Þar bætist t.d. við afturfóta- snúningur, erfiðari krossgangur og mun erfiðari stökkæfingar. Hesturinn verður t.d. að hefja stökkið upp á vinstri fót eða hægri fót samkvæmt skipun. Hesturinn verður að geta gengið afturábak, farið á tölti i hring, sem er sex metrar i þvermál, en það er erfitt þar sem hann verður að taka mun styttri skref með þeim fæti sem innar er I svo litlum hring. Marg- ar fleiri þrautir urðu hestar og knapar að leysa. Hindrunarstökk 1. Þór, Sviss — Miðdal 2. Glaumur, Sviss — frá Lækjarbakka 3. Þokki, Austurriki — frá Semriach Völlurinn var 600 m. Á honum voru 10 hindranir, 80 sm háar og 2 metra breiðar, og þær staðsettar óreglulega á vallarsvæðinu, þannig að knapar þurftu svolitið að átta sig á brautinni. Dómarar dæmdu og gáfu 1-10 fyrir fegurð hestsogknapa (ásetu) ístökkinu. Frádráttarstig voru gefin fyrir óhlýðni og fall. Hesti var t.d. vis- að Ur keppni fyrir þrisvar sinnum sýnda óhlýðni. Eins var knapa visað Ut af, ef hann fór ekki yfir hindranir I réttri röð, án þess að leiðrétta það. Timinn réð þarna engu, en fegurð og öryggi öllu; Viðavangshlaup með hindrunum 1. Funi, Þýzkalandi — frá Kaupvangi 2. Eldo, Austurriki — frá Semriach 3. Silfri, Þýzkalandi — frá Miðgrund Hlaup þetta var tæpir 3000 metrar með mörgum hindrunum, 80 sm háum og 2 m breiöum. Svo löng hlaup eru ekki þreytt á kapp- reiðum hér. Þá voru þarna skurð- ir, sem hestarnir urðu að stökkva yfir, snarpar beygjur og á nokkr- um stöðum merki, þar sem hest- urinn varð að fara fetið ákveðna vegalengd. Ef hestur komst ekki yfir hindrun, mátti hann reyna við hana tvisvar aftur, og féll hann þá Ut, ef hann komst ekki yf- in Hestarnir fóru á stökki eða brokki, en á vissum stöðum varð aðfara eftir gefnum fyrirmælum. Leiðin lá niður bra ttar brekkur og eftir gilbotni, og oft varð að fara yfir lækinn I gilbotninum og hindranir, sem þar voru. Undir lokin fóru klárarnir upp úr gilinu og sögðu dönsku keppendurnir að hæöarmismunurinn væri meiri en næmi hæð Himmelbjergsins. Hlaup þetta var langt og erfitt og hestarnir mjög misvel þjálfaðir undir þetta erfiða hlaup. Ahorf- endur gátu ekki fylgzt vel með ' þessu hlaupi, vegna þess hve langt það var, en stóðu gjama þar sem brautin var hvað erfiðust. Hollendingar og Danir töluðu mikið um að fyrir þeirra hesta hefði þessi braut verið erfið. Is- lendingar tóku ekki þátt I þessu hlaupi. Fjölhæfnieinkunn 1. Fúni, Þýzkalandi, knapi Walter Feldmann jr. — frá Kaupvangi 2. Silfri, Þýzkalandi, knapi Klaus Beuse — frá Miðgrund 3. Glaumur, Sviss, knapi Heinrich Jud — frá Lækjarbakka Þeir sem óskuðu að talca þátt i þessari þriþraut, urðu að keppa i tölti, hliðniæfingum B eþa C og Knapar og hestar. viðavangshlaupi 3000 m. Einkunnir þær sem þeir fengu i þessum greinum voru siðan lagð- ar saman og réðu úrslitum. Þar sem Islenzku hestarnir voru ekki meö i þolhlaupinu, komust þeir ekki á blað i þessari keppni. Parareið 1. Dagur og Ljósi, knapar Reynir Aðalsteinsson og Susanne Ströh 2. Funi og Ljóski, knapar Feldmann og Albert Jónsson 3. Óöinn og Trölli, knapar Anne Claude Keiling og Dany Trautmann Par nr. 3 var frá Frakklandi. Auk keppnisatriða var sýnd parareið og Það var fallegt sýningaratriði. Knaparnir riðu tveir og tveir saman inn á völlinn og voru bilin á milli hestanna mjög jöfn. Þeir fóru með mis- jöfnum hraða, og stundum var riðið fram miðjan völlinn, og skildu þá pörin, fór hvor knapi i sina átt, og komu svo aftur sam- an. Þessisýning var skrautleg og vakti athygli. Allmörg pör tóku þátt f henni. Verner Bruun frá Danmörku sýndi þarna sex hesta reið. Hafði hann þrjá hesta á undan I taum- um, og auk þess þrjá til reiðar upp á Islenzkan máta. Fór hópur- inn ótrúlegustu sveigjur. I Dan- mörku hefur Verner sýnt svipuð atriöi, og þá með 10 hesta. I keppninni reið Verner annars Nökkva frá Dalvik. Söðulreið Tvær stúlkur, Ragnheiður Sig- urgrlmsdóttir og Sigurveig Stefánsdóttir, riðu kynbótahest- inum Hrafni frá Kröggólfsstöðum og Ljóska. Meðan þær Ragnheiður og Sigurveig riðu um völlinn I söðl- um, sýndu þrir piltar úr hópi landa þeirra hvernig þeir fara að þvi að jáma hesta. Heildarárangur 1. Funi, Þýzkalandi, knapi Feldmann jr. — frá Kaupvangi 271 stig 2. Silfri, Þýzkalandi, knapi Klaus Beuse — frá Miðgrund 228,10 stig 3. Glaumur, Sviss, knapi Heinrich Jud — frá Lækjarbakka 217,80 stig 4. Dagur, Islandi knapi Reynir Aðalsteinsson —frá NUpum 200,70 stig 5. Grákollur, Þýzkalandi knapi Bernd Vith — frá Skollagróf 183,53 stig Svo sem áður er sagt tóku 50 hestar þátt I mótinu. Sá yngsti var Háfeti frá Vik, 5 ára gamall. Sá elzti var 18 ára, Faxi frá Bæ, sem 14 ára gömul dönsk stúlka, Astrid Nilsen, reið i keppninni. Bræðurnir frá Islandi, sem stóðu sig svo vel i keppninni, Dag- ur og Hrafn, eru undan Herði frá Kolkuósi, eigendur þeir Páll Sigurðsson á Kröggólfsstöðum og Jón Pálsson dýralæknir á Sel- fossi. SÍSftw?' II - ■ íí::'! S Tvö ný rit frá STOFNUN ÁRNA MAGNÚSSONAR á íslandi GRIPLA I er safn ýmissa ritgerða og mun koma út árlega framvegis. Þetta fyrsta bindi hefur m.a. að geyma erindi sem flutt voru á alþjóðaþingi um isienskar fornsögur i Reykjavik 1973. Ritstjóri er próf. Jónas Kristjánsson. UTTERÆRE FORUDSÆT- NINGER FOR EGILS SAGA eftir Bjarna Einarsson er að stofni doktorsritgerð sem varin var við Oslóarháskóla 1971. Ritið fjallar um bókmenntalegar fyrirmyndir og upptök Egils sögu, um vinnubrögð söguhöfundar og um afstöðu hennar til annarra for- sagna. Bókaútgáfa Menningarsjóðs RAFKERTI GLÖÐAR- KERTI ÚTVARPS- ÞÉTTAR ALLSK. SAiyciii Ármúla 7 Sfmi 84450 Travel opportunity Au-Pair.—Successful American newspaper executive, 38, single, no children, seeks Au-Pair 18-35 Live luxurious apartment on Lake Michigan Nov.-April (Close to Univ. of Chicago), Luxurious Motorhome travel to Mexico and Central America (Nov.-April) to study Maya Indian Cultures and languages. Reply with photo in confidence to: Edward R. Shields, 4850 Lake Park Avenue, Apt. 1009, Chicago, IUinois 60615.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.