Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 15

Tíminn - 20.09.1975, Blaðsíða 15
Laugardagur 20. september 1975. TÍMINN 15 Hei&ar Ástvaldsson danskennari i gó&um félagsskap nokkurra danskennara sinna. Þaö eru systurnar Guörún og Edda Pálsdætur, sem sitja á hnjám hans, en hinar eru Guörún Jacobsen, Auöur Haraldsdótt- ir, Svanfriöur Jngvadóttir, Eygló Bjarnadóttir og Svanhildur Siguröardóttir. Tlmamynd: Róbert Tvítugur dansskóli — Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar kennir þúsundum nemenda í vetur gébé Rvik —Eigum viö að dansa? spuröi Heiöar Astvaldsson dans- kennari, um leiö og hann dreif nokkra blaöamenn og ljósmynd- ara út á dansgólfið til að kenna þeim einn nýjasta táningadans- inn, sem nú er aö ryöja sér til rúms. Nefnist hann Bump, sem kannski mætti þýða sem Dynkur? Dansinn er auðveldur og skemmtilegur, og jafnvel klunna- legum blaðamönnum tókst að læra hann á mettima. Dansskóli Heiðars á um þessar mundir tuttugu ára afmæli, og af þvi til- efni boöaöi hann til fundar með blaöamönnum og kynnti starf- semi skóians. Þaö var á Siglufirði, sem Heiðar byrjaði fyrst með skóla sinn, og síðar einnig á Akureyri. Hver staðurinn af öðrum bættist svo i hópinn, en kennslu i höfuð- borginni hóf Dansskóli Heiðars 1960. Fyrstu árin var Heiðar eini kennari við skólann, en i vetur verða fjórtán danskennarar hjá skólanum. Hvarvetna á landinu, utan Reykjavíkursvæðisins, kennir starfsfólk skólans dans á nám- skeiðum fyrir alla aldursflokka, og hafa nemendur hans verið á aldrinum 4 til 70 ára. Kennsla i Reykjavik fer fram á þrem stöð- um i borginni: í húsnæði skólans að Brautarholti 4 og 6, og i vetur hefst kennsla i eigin húsnæði að Drafnarfelli 4 i Breiðholti. Heiðar Ástvaldsson hefur um margt verið brautry ðjandi i dans- kennslu hér á landi, og má i þvi sambandi nefna, að skóli hans er sá fyrsti hérlendis, sem útskrifar kennara, og hefur hann þegar út- skrifað tiu. Þá sá hann um dans- kennslu i útvarpi i fimm ár. t skóla Heiðars er hægt að læra alla klassiska dansa, auk tizkudansa. Um þessarmundireru vinsælustu dansarnir Bump, sem áður er nefnt, og Hustler, og sagði Heiðar, að allar likur væru á að þessir dansar ættu eftir að slá i gegn. Þá sagði Heiðar, að áhugi fólks á dansnámi hefði aukizt mjög á þeim 20 árum, sem skólinn hefði 100 fermetrar á 3 þúsund kr. éTORKOSTLEG VERÐLÆKKUN 10 lítra fötur með PLASTMÁLNINGU d aðeins kr. 3.000 Innihaldið þekur 100 fermetra Litir: Hvítt — Beinhvitt — Beingult — Margir dökkir litir Allt á kr. 3.000 fatan Grípið tækifærið strax og sparið ykkur stórfé WV Voggfóiur- og mólningadolld Armúla 38 Roykjovlk Simor 8-54-66 & 8-54-71 VIKKNIi Opið tií kl. 10 á föstudögum starfað. Hann byrjaði með örfáa nemendur, en í vetur munu þús- undir nemenda á öllum aldri læra dans i skólanum. 1 skólanum er nú fólk, sem er á 12. ári i dans- námi og hefur dansinn sem áhugamál og iþrótt um leið. Margir stunda dansinn eins og hverja aðra iþrótt, og sagði Heiðar i þvi sambandi, að i mörgum nágrannalöndum okkar væri dans viðurkennd iþrótta- grein, en ætli það verði ekki nokk- ur bið á þvi, að ÍSI viðurkenni það? Eiríkur Helgason formaður TBK AÐALFUNDUR TBK var haldinn 15. sept. i Domus Medica. Ný stjórn var kosin eftir að fyrri stjóm hafði beðizt undan endur- kosningu. Nýju stjórnina skipa: formaður: Eirikur Helgason, varaformaður Helgi Einarsson, gjaldkeri: Sigurjón Tryggvason, ritari: Kristján Jónasson og á- haldavörður: Ingölfur Böðvars- son. Fyrrverandi formanni Tryggva Gislasyni voru þökkuð sérlega vel unnin störf i þágu fé- lagsins. Á fundinum voru veitt verðlaun fyrir unna sigra i keppni vetrarins. Tveir menn voru heiðr- aðir þeir Tryggvi Gislason fyrr- verandi formaður, sem veitt var gullmerki félagsins, sem er æðsta viðurkenning sem veitt er, og Haraldur Snorrason fyrrverandi gjaldkeri sem veitt var silfur- merki félagsins fyrir langt og ósérhlifiö starf i þágu TBK. Þá voru ræddar lagabreytingar og spunnust út af þeim miklar um- ræður. Akveðið var að kalla sam- an aukaaðalfund hið fyrsta þar sem ekki tókst að ljúka umræðum um málið. GEYMSLU HÓLF J Á GEYMSLUHOLFÍ / /J ÞREMUR STÆROUM. /ó» / I NÝ ÞJONUSTA VID Jv / J VIDSKIPTAVINI í S / h NÝBYGGINGUNNI Clj BANKASTÆTI 7 Sqiminnubankinn Héraðsmót framsóknarmanna I Kjósarsýslu verður haldið laug- ardaginn 4. október I Hlégarði, Mosfellssveit. Hefst það kl. 21. Ólafur Jóhannesson dómsmálaráöherra og Jón Skaftason al- þingismaður flytja ávörp. Sungin verða og leikin lög eftir Sigfús Halldórsson. Kátir félagar leika fyrir dansi. Sauðárkrókur Framsóknarmenn efna til flokksfundar I Framsóknarhúsinu á Sauðárkróki miðvikudaginn 24. september kl. 21. A fundinum mæta ólafur Jóhannesson ráöherra og Páll Pétursson alþingis- maður. FUF — Reykjavík Stjórn FUF I Reykjavlk verður til viðtals á Rauðarárstig 18, milli kl. 5og 7 þriðjudaginn 23. september. Stjórnin. Vetrarstarf Sinfóníu- hljómsveitarinnar að byrja SINF ÓN ÍUHLJÓMSVEIT ís- lands hóf æfingar fyrir starfsemi slna starfsárið 1975—’76 1. sept- ember. Um þessar mundir er unnið aðhljóðritun á Sögusinfóni- unni eftir Jón Leifs undir stjórn finnska hljómsveitarstjórans Jussi Jalas, en 24. september mun hljómsveitin fara f hljóm- leikaför til Vestfjarða. Stjórnandi veröur Vladimir Ashkenazy, og munu þau Guðný Guðmundsdótt- ir og hann skiptast á sem einleik- arar. Fyrstu reglulegu tónleikarnir á starfsárinu verða 9. október undir stjóm aðalhljómsveitarstjórans Karstens Andersens,, en einleik- ari er norski fiðlusnillingurinn Arve Tellefsen. Aðrir hljómsveit- arstjórar á starfsárinu verða Alun Francis, Bohdan Wodiczko, Vladimir Ashkenazy, Jindrich Rohanog Páll P. Pálsson. Meðal erlendra einleikara má nefna pianóleikarana Radu Lupu og Emil Gileis, óperusöngkonuna Elisabeth Söderström, cellóleik- arann Lynn Harreli, pianóleikar- ann Peter Toperczer og klari- nettuleikarann John McCaw. Is- lenzkir einleikarar verða þessir: Agnes Löve, Rut Ingólfsdóttir, Halldór Haraldsson og Guöný Guðmundsdóttir, Ennfremur tekur Filharmóniukórinn þátt i tvennum tónleikum, 11. desember með flutningi Carmina Burana eftir Carl Orff, og þ. 8. april sálu- messu eftir Verdi, með fslenzkum einsöngvurum að undantekinni Fröydis Klausberger óperusöng- konu, sem mun syngja sópran- hlutverkið i Sálumessu Verdis. Sala áskriftarskirteina er i full- um gangi, og eru nú allra siðustu forvöð fyrir fasta áskrifendur að Irýggjs sér sæti sin frá fyrra ári. Organleikari Organleikari óskast fyrir Kotstrandar- og Hveragerðissóknir. Skriflegar umsóknir sendist til Ólafs Steinssonar Bröttuhlið 4 Hveragerði. Nánari upplýsingar i simum 4363 og 4158. Hveragerði. Ódýrt barnaskrifborðsett Til sölu ódýrt barna- og unglingaskrif- borðsett tilbúin undir bæs og málningu. Eigum einnig örfá hjónarúm tilbúin undir málningu. Verð aðeins frá kr. 9720- Opið i dag. Trésmiðjan Kvistur Súðavogi 42. (Kænuvogsmegin) Simi 33177.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.