Tíminn - 20.09.1975, Page 5
Laugardagur 20. september 1975.
TÍMINN
5
Gunnar Guðbjartsson, form.
Stéttarsambands bænda:
Ekki tilefni til
árekstra milli
stéttanna
Hörð barátta
Dagur á Akureyri gerir
landhelgismáiið að umræðu-
efni i forystugrein nýlega. Þar
segir:
„Þorskaflinn á miðunum
umhverfis tsland hefur farið
minnkandi undanfarin ár.
Með sömu þróun er þvi spáð,
að eftir fimm ár verði þorsk-
aflinn við tsland kominn niður
i 250 þús. t. á ári, eða mun
minna en útlendingar einir
veiddu á tslandsmiðum fyrir
hálfum öðrum áratug. Með
fiskifiota okkar, eins og hann
er nú, má fullnýta þessi mið og
gera sér vonir um aukið afia-
magn eftir 1980. Þessar niður-
stöður rannsóknarráðs
rikisins, nýlega birtar, sýna
Ijósara en allt annað þörfina á
útfærslu landhelginnar nú
þegar, svo sem ákveðið er, og
um leið má ölium vera ljóst,
að ekki var unnt að bíða eftir
niðurstöðum hafréttarráð-
stefnunnar.”
Lítill áhugi
á samningum
„Einhiiða útfærsla is-
lenzkrar fisk veiðilögsögu i 200
sjómilur á svo eindreginn
stuðning allra landsmanna, að
áróður um að hafna öllum
samningaviðræðum við er-
iendar fiskveiðiþjóðir um
undanþágur, á verulegan
hljómgrunn hjá þjóðinni.
Nokkrar erlendar fisk-
veiðiþjóðir hafa veitt með
undanþágu innan 50 milnanna
og sækja fast, að á ný verði
samið um undanþágur. ts-
ienzka ríkisstjórnin hefur
fallizt á samningaviðræður og
eru þær ýmist hafnar eða
framundan.”
Einörð afstaða
ASÍ
„Miðstjórn Alþýðusam-
bands tslands hefur skorað á
félagsmenn sina, vegna
siendurtekinna lögbrota
Vestur-Þjóðverja á tslands-
miðum.að starfa ekki að neins
konar þjónustu við vestur-
þýzku eftirlitsskipin i islenzk-
um höfnum, sem staðin hafa
verið að grófum njósnum. Er
þetta bæði svar við þeim at-
burðum, sem hafa verið að
gerast á miðunum að undan-
förnu, en einnig við löndunar-
banni Vestur-Þjóðverja á Is-
lenzkan fisk. Auk þessa hefur
Alþýðusamband tslands i
hyggju að setja uppskipunar-
bann á þýzkar vörur hér á
landi, ef fram heldur sem
horfir i sambúð rikjanna.
Þessi einarða afstaða hefur
vakið mikia athygli og er
stuðningur við ákvörðun
stjórnvalda og islenzkan
málstað.”
Hrakfarir Breta
Loks segir Dagur:
„Útfærsla fiskveiðiland-
helgi tslendinga nú, hin fjórða
I röðinni, hefur jafnan leitt til
harðra átaka við Breta og
endað með ósigri þeirra.
ögranir Vestur-Þjóðverja nú,
ásamt löndunarbanninu og
tollaþvingunum, sýna, svo
ekki verður um villzt, að
framundan eru þau átök, sem
skipt geta sköpum um lifsaf-
komu okkar litlu þjóðar. En
full samstaða þjóðarinnar er
meiri nauðsyn en nokkru sinni
áður.”
Vegna samþykkta stjórna
Verkamannasambands tslands
og Landssambands iðnverka-
fólks og þeirra umræðna, sem
orðið hafa i fjölmiðlum um sam-
þykktir siðasta aðalfundar
Stéttarsambands bænda, vill
stjóm þess taka þetta fram:
Engri samþykkt Stéttarsam-
bandsfundarins var beint gegn
hagsmunum launþega. Verðlag
landbúnaðarvara er ákveðið
samkvæmt sérstökum lögum af
nefnd þeirri, sem kölluð er sex-
manna-nefnd. Bændasamtökin
og ákveðin launþegasamtök
hafa rétt til að skipa sina þrjá
mennina hvert i þessa nefnd.
Undanfarin ár hefur oftast orðið
fullt samkomulag i sex-manna-
nefnd um verðlagninguna, og
svo var einníg nú i haust.
Stéttarsamband bænda gerir
ekki kröfu til að réttur neytenda
til þátttöku i' verðlagningunni sé
skertur.
Samkvæmt núgildandi lögum
skal verðlagning búvara við það
miðuð, að bændur fái sambæri-
leg laun við verkamenn og
iðnaðarmenn. Uppi hafa verið
ákveðnar kröfur um það, að
bændur yrðu sviptir þessum
rétti til launaviðmiðunar, en
bændur hafa talið hann vera
grundvallaratriði verðlagslög-
gjafarinnar.
Þrátt fyrir þetta ákvæði hafa
bændur ekki i reynd náð sömu
tekjum og viðmiðunarstéttim-
ar. Þó hafa bændur talið ákvæð-
ið um kaupviðmiðunina svo
mikilvægt, að þeir hafa sætt sig
við það einir stétta að gera
aldrei kröfur til hærri launa en
þeirra, sem samið er um i al-
mennum kjarasamningum, og
lúta auk þess gerðardómi um
kjör sin, náist ekki samkomulag
i sex-manna-nefnd.
Stjóm Stéttarsambandsins
harmar, að ýmsar umræður i
fjölmiðlum og villandi upp-
lýsingar um landbúnaðinn og
verðlagsmál landbúnaðarvara
skuli hafa vakið þá tortryggni
og þann misskilning, sem birtist
i áðurnefndum samþykktum.
Stjórn Stéttarsambandsins
telur, að samstarfið innan sex-
manna-nefndarinnar hafi verið
með þeim hætti, að það gefi
heldur ekki tilefni til árekstra
milli stéttanna, enda ljóst, að
hagsmunir þessara stétta fara i
mörgu saman.
-a.þ.
Gideonsfélagið 30 ára
Þann 30. ágúst s.l. voru 30 ár
liðin frá þvi að Gideonsfélag var
stofnað i Reykjavik. Vestur-ls-
lendingurinn Kristinn Guðnason,
sem dvalizt hafði um margra
áratuga skeið erlendis, heimsótti
þá ættland sitt. Ungur að árum
öðlaðist hann trú á frelsara sinn,
Jesúm Krist. Vestan hafs
kynntist hann Gideonsfélaginu,
þar sem hann gerðist virkur
meðlimur, sistarfandi til siðustu
stundar.
Upphaflega var félagið stofnað
af kristnum sölumönnum, sem
játuðu Jesúm Krist sem Drottinn
sinn og frelsara og viðurkenndu
Bibliuna sem innblásið Guðsorð.
Siðar bættust við verzlunar- og
kaupsýslumenn, og að lokum svo
kallaðir „professional” menn.
Tilgangur félagsins er að leitast
við að ávinna aðra fyrir Drottin
með lifi sinu og vitnisburði.
Þetta var verkefni, sem gagn-
tók huga Kristins. Greip hann
sterk löngun til þess að kynna
löndum sinum starf þetta, og ef
unnt væri, að stofna Gideonsfélag
hér á landi. Þeirra erinda kom
hann hingað sumarið 1945. Þá
komst hann i kynni við Ólaf Ólafs-
son kristniboða, sem reyndist fús
til þess að aðstoða Kristin i þess-
um efnum. Boðuðu þeir á fund
ýmsa þá menn, sem taldir voru
uppfylla inntökuskilyrðin og lik-
legir til þátttöku. Stofnfélagar
urðu 17, og eru 15 þeirra á lifi og
flestir starfandi af fullum áhuga
enn.
Fyrir 10 árum voru félags-
deildir stofnaðar á Akranesi og
Akureyri. Heildarfélagatalan á
öllu landinu er nú 104. Auk þeirra
verkefna, sem Gideonsfélagar
viðsvegar um heiminn hafa,
réðust islenzkir Gideonsfélagar
árið 1954 i það að úthluta Nýja-
testamentum til allra 12 ára
skólabarna á landinu. Fyrir
ábendingu margra skólastjóra og
kennara var árið 1967 byrjað að út
hluta til 11 ára barna. A þann hátt
var talið, að betur mætti hafa not
af Nýjatestamentunum við
kristinfræðikennsluna. Eftir að
úthlutun hefur farið fram i skól-
um nú i haust, munu um 95.000
Islendingar hafa fengið Nýja-
testamentið i hendur frá Gideons-
félögum. Má þvi ætla, að þau hafi
komizt til flestra heimila
landsii® Mörg börn minnast með
gleði og þakklæti þeirrar stundar,
þegar Gideonsfélagar heimsóttu
skólana þessara erinda. Það
sama verður og sagt um aðra þá
staði, sem fá Bibliur og Nýja-
testamenti, að við þvi sé tekið
með hlýju viðmóti og þakklæti til
uppörvunar fyrir þá, sem að
þessu starfa.
Til að minnast 30 ára starfs hafa
Gideonsfélagar efnt til félags-
móts i Skálholti. Lýkur þvi með
almennri guðsþjónustu i Skál-
holtskirkju kl. 14 e.h. Þar mun
biskupinn, herra Sigurbjörn Ein-
arson, prédika, en sóknarprestur-
inn,sr. Guðm. Óli Ólafsson, þjóna
fyrir altari. Enn fremur mun
Gideonsfélagi skýra i fáum
orðum frá starfinu.
Nokkrir erlendir Gideons-
félagar hafa tekið þátt i mótinu i
Skálholti. Ber þar fyrstan að
nefna M. A. Henderson, aðal-
framkv. stj. samtakanna, sem
aðsetur hafa i Nashville,
Tennessee. 1 mörg ár hefur hann
haft hug á þvi að heimsækja Is-
land, en vegna mikilla anna ekki
átt þess kost fyrr en nú. Hingað
kemur hann á leið sinni vestur um
haf, eftir að hafa heimsótt og
tekið þátt i Gideonsmótum i
Ástraliu, Kóreu, Thailandi og
viðar. Af frábærum dugnaði og
fórnfýsi hefur hann átt einna
drýgstan þátt i stjórnun og út-
breiðslu félagsins, sem nú starfar
i 107 löndum og telur um 47.000
meðlimi. Frá þvi að starfið hófst
fyrir 76 árum, hefur verið dreift
út um 150 milljónum eintaka af
Biblium og Nýjatestamentum.
Það gefst sérstakt tækifæri til
þess að hlýða á hann á samkomu i
húsi K.F.U.M & K. við Amt-
Hjúkrunarskóli íslands
óskar að ráða ritara
Umsóknir með upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist skólastjóra fyrir 26.
september.
mannsstig kl. 8.30 e.h. næstkom-
andi sunnudag. Odd Haanes, for-
seti Gideonssamtakanna i
Noregi, mun og ásamt konu sinni
verða gestir samkomunnar. Enn
fremur Astraliumaður að nafni
Fred Kollmorgan. Auk þess mun
Halldór Vilhelmsson syngja
einsöng. Sýnd verða sýnishorn af
þeim eintökum af Nýjatesta-
mentum, sem byrjað verður að
fara með i skólana strax daginn
eftir, auk annarra bóka, sem
Gideonsfélagar dreifa.
Til guðsþjónustunnar i
Skálholti og samkomunnar i
K.F.U.M-- & K. eru allir hjartan-
lega velkomnar, og þeim sem
þess óska, gefst tækifæri til þess
að leggja sitt af mörkum til út-
greiðslu Orðsins.
Verið hjartanlega velkomin.
Meistarasamband byggingarmanna
Landssamband íslenzkra rafverktaka
Samband málm- og skipasmiðja
Sameiginlegur
fundur um
verðlagsmál
verður haldinn í fundarsal vinnuveitendasambands
r
Islands, Garðastræti 41, þriðjudaginn 23. september
kl. 18.
AUGLYSIÐ
í TÍMANUM
Bændur
Kaupi sæti af gömlum sláttu- og rakstrar-
vélum.
Gunnar Einarsson
Kúrlandi 30, Reykjavik.
Simi 91-32819 og 83655.
Hey til sölu
Nokkurt magn af vel bundinni töðu.
Snæbjörn Sigurðsson
Grund, Eyjafirði.