Tíminn - 20.09.1975, Side 6
6
TÍMINN
Laugardagur 20. september 1975.
Ármann Ö. Á f I I
Ármannsson: ArmannsfeU svarar
fyrir sig
VEGNA þeirra rakalausu fullyrð-
inga, sem hafðar eru eftir borgar-
fulltrúa Framsóknarflokksins,
Kristjáni Benediktssyni, i opnu
dagblaðsins Timans i dag,
19.09.75, var um vanefndir Bygg-
ingafélagsins Armannsfells h.f.
við byggingu Fellaskóla, viljum
við taka fram:
Hvað varðar fullyröingu
Kristjáns ,,þá er upplýst að Bygg-
ingafélagið Armannsfell hf. er á
eftir með þær framkvæmdir, sem
það er með fyrir borgina” þá veit
borgarfulltrúinn, eða ætti a.m.k.
að vita, að hér er ekki farið með
rétt mál.
Bf. Armannsfell h.f. skilaði
endanlega af sér heildarverkefni
við Fellaskóla i byrjun ágúst sl.,
mánuði áður en verkinu átti að
vera lokið skv. samningi og um
þrem mánuðum áður en þvi bar,
skv. áorðnum töfiim vegna verk-
falla o.fl. Varðandi fullyrðingar
um vanefndir fyrirtækisins 1973
hefur það mál áður verið skýrt i
blöðum, en er i stuttu máli
þannig: Samkv. samningi átti að
skila efri hæð unglingaálmu
1.10.73 en vegna erfiðrar veðráttu
veturinn 72/73 voru lögmætar taf-
ir þannig að verkið framlengdist
til 11. nóv. sama ár. Þar sem
nauðsynlegt var að hefja kennslu
i skólanum þegar i októberbyrjun
var gripið til þess ráðs af hálfu
borgarinnar að láta fyrirtækið
innrétta kjallara hússins og var
samningur þar um réttilega fyrir
um 10 milljónir króna, þar af voru
um 5 milljónir umfangsmikilla
breytinga á loftræstilögn og raf-
lögnum, sem rann beint til undir-
verktaka, en afgangurinn fyrir að
oinnrétta u.þ.b. 10 skólastofur.
Mér vitanlega er þessi kjallari
að fullu nýttur enn, enda þótt
unglingaálmu allri hafi verið
skilað til kennslu sl. haust og
neðri hæð þá ári á undan skv.
upphaflegum verksamningi. Það
er þvi gripið helzt til úr lausu lofti
að slá um sig með vanefndum Bf.
Armannsfells h.f. vegna Fella-
skóla.
Kristján Benediktsson veit
betur, en kannski telur hann til-
ganginn helga meðalið.
í tilefni af þeim aurburði, sem
hafður hefur verið i frammi i
Timanum og reyndar i öðrum
dagblöðum um óeðlilegan gróða
og forréttindaaðstöðu i samskipt-
um Armannsfells h.f. og
Reykjavikurborgar, látum við
fylgja hér með töflur, yfir þau
verk, sem félagið hefur á starfs-
ferli sinum unnið fyrir
Reykjavikurborg. Það skal
undirstrikað að öll þessi verk
hafa fengizt á frjálsum útboðs-
markaði, þar sem fyrirtækið
hefur verið lægstbjóðandi.
1 samræmi við þetta lýsum við
hér með öll skrif um óeðlilega að-
stöðu Bf. Armannsfells h.f. raka-
laus ósannindi og i þeim tilgangi
gerð að ófrægja fyrirtækið fyrir
almenningi og draga það inn i
pólitiskt hnútukast, sem er þvi al-
gerlega óviðkomandi.
Forráðamenn Bf. Armannsfells
h.f., fyrst Armann Guðmundsson,
byggingameistari, sem nú er lát-
inn, og siðan synir hans, hafa tal-
ið að félaginu hafi tekizt að spara
borgurum Reykjavikur álitlegar
fjárhæðir með starfsemi sinni.
Við leyfum okkur að fullyrða að
fyrirtækinu hafi tekizt betur en
öðrum verktökum borgarinnar að
standa við gerða samninga þegar
á heildina er litið, og vitum að
borgarverkfræðingurinn i
Reykjavik og þeir ráðamenn
borgarinnar, sem hafa fylgzt með
byggingum hennar gætu staðfest
það.
Vegna margumræddrar lóðaút-
hlutunar hefur Bf. Armannsfell
h.f. þegar skýrt það mál, m.a. i
Þjóðviljanum nú i dag og telur
þessi mál útrædd fyrir sitt leyti.
Suumburöwé A v*rkua, sen bygsing*félaglð ArBannafell-11.fr hefu*»'-?rB»lc»B»t -fyrir
Reykjaviltwborgl
tafla 1. Sananburður i koatnaðaréætlun Reykjavlkurborgar og tilböðBupphað Armannafells ■löaö við verðlag 1.11.1974:
verk upph.framkv. tilboðsupphæð k06tnaðaráætl.Rvlkurb. mismunur
Réttarholtssk61i,iþrh. 1964 78.540.000.- 90.789.000.- -12.249.000,-
Langholtsskóli 1966 55.590.000.- 60.945.000.- - 5.355.000.-
Armúlaskóli 1968 89.675.000.- 126.795.000.- -37.120.000.-
Breiðholtsskóli 1969 276.054.000.- 276.403.000.- + 349.000,-
Hjúkrunarheimili . 1970 156.578.000.- 179.153.000.- -22.575.000.-
Fellaskóli 1972 329.744.000.- 366.770.000.- -37.026.000.-
samtals: 986.181.000.- 1.100.855.000.- - 114.674.000.- 11,6%
tafla 2. Samanburður á tilboðsupphæð Armannsfells Armannsfell næst lægsta tilb. og nœst lægsta tilboöi m.v.v. 1.11.1974 mism. allt i milj.kr.
Réttarholtssk. 78,5 90,8 -12,2
Langholtsskéli 55,6 60,7 - 5,1
Armúlaskóll 89,7 100,4 -10,7
Breiðholtsskéll 276,o 284,6 - 8,6
HjúkrunarheÍBili 156,6 157,1 - 0,5
Fellaskéli 329.9 541.1 - 212.0
986.2 1234.7 -249,1 25,2»
1976 árcjerðin af Volvo
er komin til landsins
Gsal-Reykjavik — Volvo, árgerð
1976, er kominn til landsins, og
komu fyrstu bilarnir með m/s
Langá i fyrradag. Að sögn As-
geirs Gunnarssonar hjá Velti cr
1975-árgerðin af Volvo alveg upp-
seld hjá fyrirtækinu. Asgeir kvað
nýju árgerðina i ýmsu frá-
hrugöna 1975-árgerðinni, og
nefndi liann að iitaval væri m.a.
annaðen verið hefði á siðustu ár-
gerð.
Asgeir sagði, að ódýrasti billinn
af nýju árgerðinni kostaði 1870
þúsund. Veltir mun efna til bila-
sýningar um aðra helgi, 27.-28.
sept., þar sem hinar ýmsu gerðir
af Volvobilum af 1976-árgerðinni
verða kynntar.
Alþingi
seti
10.
október
Milljónahöllin viö Espigeröi
ÞAU mistök urðu i OPNU blaðs-
ins i gær, að birt var mynd af fjöl-
býlishúsinu Espigerði 4 og það
sagt vera „milljónahöllin við
Espigerði” sem Ármannsfell
byggði. Þetta er rangt, þvi Ar-
mannsfellsblokkin er Espigerði 2.
Timinn biðst afsökunar á þessum
mistökum. Myndin hér er af rétta
húsinu.
Borgarleikhús
Leikfélag Reykjavikur leyfir
sér að mótmæla þeim skrifum,
sem birtust um væntanlegt Borg-
arleikhús i Þjóðviljanum mið-
vikudaginn 3. september og laug-
ardaginn 13. september 1975, og
telja til vanhugsunar. Slikum
skrifum getur hvorki verið ætlað
að hafa né haft aðrar afleiðingar
en að vekja tortryggni hins al-
menna borgara, sem les frásögur
i blöðum, án þess að þekkja mála-
vöxtu til hlitar.
Bæði vegna þessara skrifa og
vegna umræðu um byggingu
Borgarleikhúss, sem Reykja-
vikurborg reisir i samvinnu við
Leikfélag Reykjavikur i nýja
miðbænum, vill Leikfélag
Reykjavikur gera grein fyrir eft-
irfarandi:
1. Leikfélag Reykjavikur hefur
barist fyrir þvi i meir en tvo ára-
tugi, að nýtt leikhús fyrir starf-
semi þess risi i Reykjavik. Allir
áfangar i byggingarmálum fé-
lagsins hafa verið nækilega
kynntirogræddir á almfflnum fé-
lagsfundum og allar endanlegar
ákvarðanir verið teknar þar. Auk
þess var málið jafnóðum borið
undir álit annarra sérfóðra
manna, bæði listamanna og
tækniroanna, svo sem úr Þjóð-
leikhúsinu og frá Sjónvarpinu. Þá
var einnig frá upphafi höfð náin
samvinna við fyrirtækið Theatre
Projects i London, sem hefur i
þjónustu sinni sérfræðinga á öll-
um sviðum i hönnun leikhúsa og
eru nefndir meðal farsælustu
leikhúsbyggingaaðila i heimi á
siðari árum.
2. Stefnt var að þvi i 20 ar að fá
leikhúsið reist i gamla miðbæn-
um. Þegar séð varð, að þar yrði
ekki unnt að gera ráð fyrir lóð
undir nútfmaleikhús, var sú á-
kvörðun tekin á félagsfundi Leik-
félags Reykjavikur að taka til-
boöi um lóð i nýjum miðbæ, þar
sem rými er nægjanlegt til að
uppfylla allar óskir um hag-
kvæmt leikhús. Þar hefur leik-
húsinu nú verið valinn staður.
3. Frá upphafi hefur verið
stefnt að þvi, að reist yrði leik-
hús, sem viðheldur sögu Leikfé-
lags Reykjavikurog er i tengslum
við starfsemi þess fram á þennan
dag, þ.e. leikhús, sem spannar
breidd i verkefnavali, allt frá si-
gildum leikverkum fyrri tima til
nútima verka og framúrstefnu-
verka, og hefur margar leiksýn-
ingar á dagskrá i senn (repertoir-
leikhús). Einnig var það ásetn-
ingur félagsmanna, að i húsinu
yrði sköpuð sú aðstaða að á hverj-
um tima yrði þar unnt að brydda
upp á nýjum sköpunarháttum og
túlkunaraðferðum i leiklist, — og
að þar mætti nýta þá reynslu,
sem Leikfélag Reykjavikur hefur
af leikhúsrekstri, og ekki sist að
halda þeim nánu tengslum, sem
rikt hafa milli listamanna og á-
horfenda i gamla húsinu við
Tjörnina.
Forseti Islands hefur samkvæmt
tillögu forsætisráðherra kvatt Al-
þingi til fundar föstudaginn 10.
október n.k., og fer þingsetning
fram að lokinni guðsþjónustu i
Dómkirkjunni, er hefst kl. 13.30.
4. Strax og vitað var að hægt
yrði að hefjast handa um að
teikna bygginguna, var um það
fjallað hvort efna ætti til sam-
keppni um uppdrátt leikhússins.
Sú ákvörðun var tekin á félags-
fundi, að farsælla myndi að ráða
arkitekta til að hanna húsið. Um
er að ræða mjög flókna og sér-
hæfða byggingu, sem fyrst og
fremst þurfti að hanna innanfrá,
þ.e. með hagkvæmni til leik-
húsreksturs í huga várðandi allan
innri búnað, og kreföist itarlegrar
könnunar og samvinnu við leik-
húsfólk, sem og við erlenda ráð-
gjafa um leikhúsbyggingar.
5. t ljósi ofangreindra atriða
voru stærðir ákvarðaðar, innri
skipan leikhússins og rými: á-
horfendasalur fyrir 500 manns,
með návist þeirra við leiksviðið i
huga, þ.e. 17 sætaraðir. (1 gömlu
Iðnó eru 14 sætaraðiri sal og 4 á
svölum, eða alls 18 sætaráðir).
Leiksvið, sem gerir ráð fyrir
itrustu rekstrarhagkvæmni i
framtið, rúmgóð hliðarsvið fyrir
leiktjaldageymslur: smiðaverk-
stæði, málarasalur, saumastofa
og hagkvæmar vistarverur
starfsfólks. Auk þess annar salur,
sem tekur um 200manns i sæti og
væri i senn hægt að nýta sem æf-
ingasal og leikhússal með breyti-
legu leiksvæði, þar sem nota
mætti hvers kyns aðferðir i flutn-
ingi leikrita, nýjum sem gömlum,
flytja til sæti og palla að vild. í
húsinu verður þvi að sjálfsögðu
hægt að sýna leikrit öðru visi en i
ramma hins sigilda leikhúss.
Ákvörðun Leikfélagsins beind-
ist þannig að þvi að mynda hóp
arkitekta og leikhúsmanna, sem
hefði alla möguleika á að kynna
sér á sem rækilegastan hátt allar
hliðar nútimaleikhúss.
Eftir að arkitektar höfðu verið
ráðnir, heimsóttu þeir, ásamt
tæknisérfræðingum, öll helstu ný
leikhús i Vestur-Evrópu, skoðuðu
þar ótal afbrigði af ýmsum til-
raunum, sem gerðar hafa verið i
leikhúsbyggingum siðari ára, og
ræddu við staðarmenn um hvað
hefði lánast vel og hvað miður.
Aðurnefnt fyrirtæki, Theatre
Projects i London, var ráðið sem
leiðbeinandi um tæknibúnað.
6. 1 einu og öllu hefur verið leit-
ast við að teikna leikhús, sem er
hagkvæmt i rekstri, býður upp á
alla möguleika sem þekktir eru i
leiklistarflutningi til þessa dags
og er ekki of flókið i tæknibúnaði,
skapar góða aðstöðu fyrir starfs-
fólk og hugar að velliðan áhorf-
enda.
Reykjavik, 18. september 1975.
i leikhúsráði, stjórn og varastjórn
Lejkféiags Reykjavikur
Vigdis Finnbogadóttir
leikhússtjóri,
Jón Hjartarson,
Baldvin Tryggvason,
Kjartan Ragnarsson,
Gissur Pálsson,
Steinþór Sigurðsson,
Steindór Hjörleifsson
formaður L.R.
Pétur Einarsson,
Þorsteinn Gunnarsson,
Asdis Skúladóttir,
Guðmundur Pálsson
framkv.stj. L.R. v