Tíminn - 20.09.1975, Side 12
12
TÍIVPNN
Laugardagur 20. september 1975.
LÖ GREGL UHA TARINN
20
Ed McBain
Þýðandi Haraldur Blöndal
— Hvað þá, herra, kváði Miscalo — því þessa stundina
var hann einmitt að hella upp á könnuna.
XXX
Bert Kling var ástfanginn. Ekki var þetta heppilegasti
tími ársins til slíks. Það fer betur á því að vera ástfang-
inn, þegar blómin breiða blöð sín mót birtu og sól og
mildur vorblærinn gárar árflotinn. Það er aðeins eitt
gott við að vera ástfanginn í marz. Þetta eina er, að það
er betra að vera ástfanginn í marz en að vera alls ekki
ástfanginn. Þetta er haft eftir miklum gáfumanni.
Bert Kling var yfir sig ástfanginn af tuttugu og
þriggja ára stúlku, barmfagurri og glæsilegri. Hrokkið
hárið hlykkjaðist niður á mitt bak hennar. Augu hennar
voru blá eins og kornblóm. Hún var hávaxin, en náði hon-
um aðeins upp undir höku, þegar hún var í háhæluðum
skóm. Hann var yf ir s.ig ástfanginn af alvarlegri stúlku,
sem sótti kvöldskóla til að Ijúka prófi í sálfræði. Á dag-
inn vann hún fyrir sér með því að f jalla um umsóknir um
atvinnu hjá fyrirtæki á Shepard-götu. Hún var einbeitt
og ákveðin stúlka, sem ætlaði að Ijúka prófinu sínu og
vinna síðan sem sálfræðingur. Hún var líka svolítill
ruglukollur. I síðasta mánuði sendi hún sex feta hátt
hjarta, skorið út í við og málað hárautt, á lögreglustöð-
ina. Á það voru málaðir gulir stafir: Cynthia Forrest
elskar Bertram Kling leynilögreglumann. Er það glæp-
samlegt?
Félagar hans gerðu enn grín að honum fyrir þetta.
Cynthia Forrest var líka viðkvæm stúlka, sem fór að há-
gráta, þegar hún sá blindan mann leika á harmóniku úti
á götu. Hún gaf honum f imm dollara seðil — renndi hon-
um hljóðlaust í bollann hans og sneri sér svo að Kling og
grét við öxl hans. Ástríðufull stúlka, sem vafði sig að
honum á kvöldin og vakti hann oft klukkan sex að morgni
og sagði:
— Heyrðu lögga, ég á að fara að vinna eftir nokkra
klukkutíma. Hefur þú áhuga.
Og alltaf svaraði Kling: — Nei, ég hef ekki áhuga á
kynlíf i og þess háttar. Svo kyssti hann hana þar til hana
svimaði. Svo sat hann andspænis henni við eldhúsborðið
í íbúðinni hennar og dásamaði með sjálfum sér fegurð
hennar. Einu sinni kom hann roða fram í kinnar henni,
er hann sagði: — Á Madison Avenue er sölukona. Hún
heitir lluminada og er frá Puerto Rico. Þú ættir líka að
heita lluminanda, því þú fyllir herbergið af Ijósi, Cindy.
Það mátti með sanni segja, að Bert Kling væri ósjálf-
bjarga af ást. En nú var marz, og febrúarsnjórinn huldi
enn göturnar. Nöturkaldur vindurinn gnauðaði og borg-
arbúar sveipuðu sig loðfeldum. Mörgum fannst veturinn
hafa hafizt í september og myndi endast þar til í ágúst.
Þá var hugsanlega mögulegt að snjóa leysti, blóm
spryngju út og aftur yrði líft. Og þessi viðbjóðslegi
kuldavetur var auðvitað vel fallinn til umræðu um lög-
reglustörf. [ matartímanum hennar skundaði Kling með
hana í eftirtogi niður á lögreglustöð. Vindurinn barði á
þeim og kæfði rödd Klings, þegar hann reyndi að segja
henni frá hinum dularfullu kringumstæðum, sem tengd-
ar voru dauða Cowper lögreglufulltrúa.
— Já, það virðist sannarlega dularfullt, sagði Cindy.'
Hún hætti á að lyfta hendinni úr vasanum og grípa um
klútinn á höfði sér, sem var að losna í hamagangi vinds-
ins. — Heyrðu mig Bert, ég er orðin dauðþreytt á vetrin-
um. En þú?
— Jú, svaraði Kling. — Ég er að segja þér hver ég vona
að þetta sé ekki?
— Að hver sér ekki hver?
— Náunginn sem hringdi á stöðina. Náunginn sem drap
lögregluf ulltrúann. Á ég að segja þér við hvern ég vona
að við eigum ekki í höggi við?
— HVER er það, sagði Cindy.
— Heyrnarsljói maðurinn, svaraði hann.
— Hver þá, sagði hún.
— Það er náungi, sem við áttum í höggi við fyrir tæp-
um sjö eða átta árum. Hann gerði allt vitlaust hér í borg-
inni, þegar hann reyndi að ræna banka. Hann er einn sá
alslyngasti glæpaþrjótur, sem við höfum nokkru sinni
komizt i tæri við.
— Hver? sagði Cindy.
— Heyrnarsljói maðurinn, svaraði Kling á ný.
— Já, en hvað heitir hann?
— Við vitum ekki hvað hann heitir. Satt að segja náð-
um við honum aldrei. Hann kastaði sér í ána. Satt að
segja héldum við að hann hefði drukknað. En kannski er
hann aftur kominn á kreik, rétt eins og Frankenstein.
— Skrímslið hans Frankensteins, áttu við, sagði Cindy.
— Já. Rétt eins og skrímslið hans. Þú manst að þessi
mannsómynd, sem hann bjó til, átti að sögn að hafa far-
izt í eldi, en svo var raunar ekki.
— Ég man eftir því.
iii i jii h'\ i •!»;
iiiiilliMiilliil iihi illli iJII
LAUGARDAGUR
20. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ingibjörg Jónsdóttir
les siðasta lestur sögu sinn-
ar ,,í Bjöllubæ” (4). Til-
kynningar kl. 9.30. Létt lög
milli atriða. óskalög sjúkl-
ingakl. 10.25: Kristin Svein-
björnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 A þriðja timanum. Páll
Heiðar Jónsson sér um þátt-
inn.
15.00 Miðdegistónleikar.
Hljómsveitin Philharmonia
leikur, Alceo Galliera
stjómar. a. „Leikfangabúð-
in”, balletttónlist eftir
Rossini. b. „Lærisveinn
galdrameistarans”, scherzo
eftir Paul Dukas.
15.45 t umferðinni. Árni Þór
Eymundsson stjórnar þætt-
inum. (16.00 Fréttir. 16.15
Veðurfregnir).
16.30 Hálf fimm. Jökull
Jakobsson sér um þáttinn.
17.20 Popp á laugardegi.
18.10 Siðdegissöngvar. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar-.
19.30 Séð og heyrt i Armeníu.
Siðari þáttur Gunnars M.
Magnúss rithöfundar.
20.00 Hljómplöturabb. bor-
steinn Hannesson bregður
plötum á fóninn.
20.45 Undir verndarvæng.
Þáttur um breska hernám-
ið, m.a. rætt við Tryggva
Einarsson i Miðdal. Um-
sjón: Guðrún Guðlaugsdótt-
ir. Lesari með henni: Atli
Magnússon.
21.30. Gamli norskir dansar.
Blásarasveit Oslóborgar
leikur. Kjell Hagen stjóm-
21.50 Ljóð eftir Þórodd Guð-
mundsson. Helgi Skúlason
leikari les.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Laugardagur
20. september
18.00 Iþróttir. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
Hlc.
20.00 Fréttir og veöur
20.25 Dagskrá og augiýsingar.
20.30 Læknir i vanda. Breskur
gamanmyndaflokkur.
Brúðkaupsferðin. Þýðandi
Stefán Jökulsson
20.55 Steinunn Bjarnadóttir.
Leik- og söngkonan Stein-
unn Bjarnadóttir syngur
gamlar og nýjar gaman-
visur i sjónvarpssal. Undir-
leikari Arni ísleifsson.
Stjórn upptöku Tage
Ammendrup.
21.15 Lestin. (The Train)
Bandarisk biómynd frá'
árinu 1965. Aðalhlutverk
Burt Lancaster, Paul
Scofield og Jeanne Moreau.
Þýðandi Jón O. Edwald.
Myndin gerist i Frakklandi
árið ’44. Landið er hersetið
af Þjóðverjum, og þeir ætla
sér að flytja mikið af
verðmætum listaverkum úr
listasafni i Paris til Þýska-
lands. Franskir föðuríands
vinir vilja koma i veg fyrir
þessa flutninga og reyna
með ýmsum ráðum að tefja
lestina, sem flytur hinn dýr-
mæta farm.
23.20 Dagskrárlok.
AuglýsícT
:í Timanum