Tíminn - 03.10.1975, Qupperneq 2
'' TÍMINN
„Skattar verði í samræmi
við raunverulegar tekjur"
Frétt Timans af bréfi þvi, sem
50skattgreiöendur i Bolungavik
sendu skattstjóra umdæmisins,
hefoir vakiö mikla athygli.
Stjórn og fulltrúaráö Starfs-
mannafélags Reykjavikurborg-
ar samþykkti nýlega á fundi
svolátandi ályktun af þessu til-
efni:
„Stjórn og fulltrúaráö Starfs-
mannafélags Reykjavikurborg-
ar fagnar frumkvæði 50 skatt-
greiöenda I Bolungavik, sem
fram kemur I bréfi þeirra til
skattstjóra Vestfjaröaumdæmis
og birt hefur veriö I fjölmiðlum,
en I þvi bréfi koma fram mót-
mæli gegn gildandi skattalög-
gjöf.
í framhaldi af samþykkt aöal-
fundar Starfsmannafélags
Reykjavikurborgar 8. marz s.l.
um bætta og endurskipulagða
skattálagningu og skattheimtu,
hvetur stjórn og fulltrúaráð
félagsins aöra launþegahópa I
landinu til þess, aö þeir láti
einnig þetta þýöingarmikla
hagsmuna- og kjaramál til sin
taka.
Sú krafa sé gerð til stjórn-
valda og Alþingis, aö skattbyrði
almennings veröi jafnan I hóf
stillt, og enn fremur aö fram-
kvæmdar skuli nú þegar raun-
hæfar úrbætur, I þvi skyni að
framlag þegna þjóöfélagsins til
hins opinbera veröi I sem rétt-
ustu hlutfalli viö raunverulegar
tekjur hvers og eins.”
Fjölbreytt vetrarstarf Æskulýðsráðs Reykjavíkur
Tvær nýjar félags-
miðstöðvar á döfinni
gébé-RvIk — Vetrarstarf Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur er um þess-
ar mundir aö hefjast og er mjög
fjölbreytt aö vanda. Fer starf-
semin fram aö Frikirkjuvegi IX, I
Tónabæ, Fellahelli, Siglunesi og
Saltvik. Auk þess eru tómstunda-
störf á vegum Æskuiýösráös I
skólum og hverfum höfuöborgar-
innar. Þegar eru um 170 fastá-
kveönir liöir i vetrarstarfinu, og
búizt er við mikilli þátttöku ungra
sem aldinna I vetur.
Félagsmiðstööin Fellahellir I
Breiðholti hefur nú sitt fyrsta
heila starfsár I haust. Þar fara
ALVARLEGT SLYS
Á MIÐUNUM
HHJ-Rvik. — Alvarlegt slys
varö á miðunum I gærkvöldi.
Háseti um borð i Ársæli Sig-
urðssyni II HF 12 varð á milli
gálga ofg hlera og meiddist
alvarlega. Var þegar haft sam-
band við Slysavarnafélagið og
beöið um að maðurinn yrði
sóttur i þyrlu og að læknir fylgdi
með þyrlunni. Fór bandarlsk
þyrla frá Keflavikurflugvelli á
vettvang og þegar síðast fréttist
var hún á sveimi yfir skipinu og
átti að reyna að ná manninum
um borð I vélina I körfu og flytja
hann á Borgarspitalann.
Slysið varð um hálfáttaleytið I
gærkvöldi og þá var skipið statt
um 25 sjómilur vestur af
Garðskaga.
HÁHYRNINGARNIR
BÁÐIR DAUÐIR
kryfja á annan þeirra
fram ýmiss konar námskeið I vet-
ur, t.d. I ljósmyndun, leir og
smelti, og einnig félagsmálanám-
skeið. Þá verður leikjasalurinn
opinn vissa tlma I viku hverri, og
er borðtennis þar einna vinsæl-
astur. Bæklingur hefur verið gef-
inn út um starfsemi Fellahellis I
vetur, og verður hann sendur til
allra Breiðholtsbúa. Auk þess,
sem hér hefur verið upp talið,
hafa ýmis félög og stofnanir feng-
ið inni i Fellahelli með starfsemi
sina, t.d. skátar KFUM og K.
Námsflokkar Reykjavikur,
Barnamúsikskólinn og fleiri.
Að Frikirkjuvegi 11 verða
klúbbár Æskulýðsráðs með
margskonar starfsemi og nám-
skeið haldin, auk þess sem skrif-
stofa ráðsins er opin þar daglega.
1 Saltvlk verður húsnæðisleiga og
útivistarþjónusta.
I Tónabæ verða dansleikir á
föstudögum, laugardögum og
sunnudögum fyrir unglinga, auk
þess sem salir þar verða leigðir út
til margskonar starfsemi, og
verður reksturinn þar þvl með
svipuðu sniði og undanfarin ár.
í Siglunes-klúbbnum verður
starfsemin lifleg að venju. Þar
verða flokkar I bátasmiðum I vet-
ur, námskeið verða haldin I sigl-
ingareglum, meðferð áttavita og
sjókorta og margt fleira.
gébé—Rvlk — Háhyrningarnir
tveir, sem ætlunin var aö láta Sæ-
dýrasafniö fá, drápust er verið
var aö flytja þá tii Þorlákshafnar.
Þaö var rannsóknaskipið Árni
Friðriksson, sem var meö há-
hyrningana I togi, en þar sem há-
hyrningar eru viðkvæmar skepn-
ur, munu þeir ekki hafa þolað
þessa niöurlægjandi aöferö og
drepist.
Það var Hamravlk KE 75, sem
fékk óboðna gesti, er skipið var að
sildveiðum undan Hjörleifshöfða i
fyrradag. Fimm háhyrningar
gerðu sig heimakomna við netin,
rifu þau og tættu. Sluppu þrlr, en
tveir óheppnir festust I netunum.
Voru þegar geröar ráðstafanir til
að reyna að ná háhyrningunum
lifandi og koma þeim ósködduð-
um I Sædýrasafnið I Hafnarfirði.
Arni Friðriksson var fengin til
að flytja háhyrningana til Þor-
lákshafnar, og voru þeir bundnir
ogviðsíðu skipsins. — Viö reynd-
um að koma þeim um borð, sagði
Sveinn Sveinbjörnsson fiskifræð-
ingur I gærkvöldi, en hann er um
borð i Árna, og notuðum við til
þess „sjúkrakörfurnar” sem við
köllum svo, en þvi miður tókst
það ekki og ákváðum við þvi að
draga þá til hafnar. Þeir drápust
svo á leiðinni.
— Við tókum stærri háhyrning-
inn um borð, en hann er um sjö
metrar að lengd. Ætlunin er að
láta kryfja hann til að komast að,,
hvaö varð honum að dauða, sagði
Sveinn, hinum fleygðum við. —
Sædýrasafnið I Hafnarfirði
verður þvi að biða enn um sinn
eftir háhyrningi.
Hinrik Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri Æskuíýðsráðs,
sagði á blaöamannafundi, sem
ráðið efndi til, að ætlunin væri að
efla starfið I hverfum borgarinn-
ar að mun, og I þvi sambandi
minntist hann á, að nú væri verið
að setja á stofn tvær félagsmið-
stöðvar til viðbótar I kjallara
safnaðarheimilisins I Bústaða-
sókn, og I Árbæ er I hönnun fé-
lagsmiðstöð, sem verður I Rofa-
bæ.
Þá sagði Hinrik að sumarstarf
Æskulýðsráðs hefði verið llflegt I
sumar, stangveiðiklúbbur var
starfandi og farið var I veiðiferð-
ir, þá var vélhjólaklúbburinn vin-
sæll, og farið var I kynnisferðir.
Reiðskóli var starfræktur I Salt-
vlk, og margar sjóferðir farnar á
vegum Sigluness.
Frumsýning hjá L. A.
A sunnudaginn verður
frumsýnt hjá Leikfélagi Akur-
eyrar leikritið Tangó eftir
Slavomir Mrozek. Þýðinguna
gerðu Þrándur Thoroddsen og
Bríet Héðinsdóttir, en leikstjóri
er Eyvindur Erlendsson.
Leikmynd er eftir Steinþór
Sigurðsson.
Tangó var fyrst sýndur hér á
landi fyrir tólf árum, hjá
Leikfélagi Reykjavikur undir
leikstjórn Sveins Einarssonar. I
þeirri sýningu fór Arnar Jónsson
með sitt fyrsta mikilsháttar hlut-
verk hjá L.R. hlutverk Arthurs,
sem Aðalsteinn Bergdal leikur I
þetta sinn. Júllus Oddsson mun
leika hlutverk Stómils, Sigurveig
Jónsdóttir — Elenoru, Gestur E.
Jónasson — Edda, Saga Jóns-
dóttir — öllu, Arni Valur Viggós-
son, — Efgenius frænda og
Kristjana Jónsdóttir — Ömmuna.
Tangó segir frá frelsisdýrkend-
um nokkrum, fjölskyldu sem
eftir mikið brambolt hefur tekizt
að þvi er þau sjálf segja, að brjóta
af sér hlekki fordómanna og úr-
eltrar hefðar og lifir „frjálsu
nútímalffi” eða listrænar
tilraunir og fyrirhyggjuleysi eitt
á stefnuskrá. Ungi maðurinn,
Arthur, sem eins og aðrir ungir
menn, er frábitinn þvi að sætta
sig við heiminn, eins og hann er,
vill aftur á móti hafa kjölfestu og
reglu i tilverunni og leggur þvi' til
atlögu við „þetta frelsisviti”.
Föður hans og f jölskyldu tekst þá
aö snúa allri hans siðbót upp i
fáránlegan skopleik lengi vel, en
leikurinn fær óvæntan og snöggan
endi „svo sem vænta mátti”.
Tangó er fyrsta frumsýning
L.A. á þessu starfsári.
Miðasala fyrir frumsýninguna
hefstá fimmtudaginn kl. 16.00 og
verður haldið áfram næstu daga
milli kl. 16.00 og kl. 18.00. Jafn-
framt verða seld áskriftakort
L.A. eins og venjulega i byrjun
leikárs. Áskriftakortin gilda á
fjórar til fimmsýningar, og eru
seld með 25-20% afslætti — 40-30%
fyrir skólahemendur.
t'östiidagur 3. október X975
Siglingaiþróttin er mjög vinsæl mebal ungiinga, en I Siglunesi eru þeim
kenndar bátasmlöar og öll meðferð bátanna.
Vetraráætlun FÍ gengin í gildi:
Fleiri vöruflutninga-
ferðir en nokkru sinni
— ferðum milli Reykjavíkur,
Húsavíkur og Sauðárkróks
fjölgað
1. OKTÓBER gekk vetraráætl-
un innanlandsfiugs Flugfélags
tslands I gildi. Áætlunin er I
aöalatriðum svipuð þvi sem var
s.l. vetur, en þó verða nokkrar
markverðar breytingar og nýj-
ungar. T.d. verða fleiri ferðir
milli Reykjavlkur og Sauðár-
króks og Húsavikur og fleiri
vöruflutningaferðir milli
Reykjavikur og annarra staða á
landinu. Enn fremur tekur
Flugfélag Norðurlands aö sér
flug frá Akureyri, sem Flug-
félag íslands annaðist s.l. vetur.
1 sambandi viö flug til ýmissa
flugvalla mun verða naldið uppi
ferðum til nærliggjandi byggð-
arlaga með áætlunarbifreiðum.
Þessi skipan mála hefur gefizt
vel á undanförnum árum.
Samkvæmt vetraráætluninni
verður farþegafluginu hagað
sem hér segir: Milli Reykjavik-
ur og Akureyrar verða þrjár
ferðir á dag, á mánudögum,
miðvikudögum, laugardögum
og sunnudögum. Á föstudögum
verða fjórar ferðir, en tvær
ferðir aðra daga. Til Vest-
mannaeyja verða tvær ferðir
alla daga. Til ísafjaröar verður
flogið alla daga, og til Egils-
staða verður sömuleiðis flogið
alla daga vikunnar. Til Patreks-
fjaröar verður flogið á mánu-
dögum, miðvikudögum og
föstudögum. Til Þingeyrar á
mánudögum og föstudögum. Til
Sauðárkróks verður flogið á
mánijdögum, miðvikudögum,
fimmtudögum og föstudögum.
Til Húsavikur verður flogið á
mánudögum, miðvikudögum,
föstudögum og laugardögum.
Til Norðfjarðar á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum.
Til Hornafjarðar á þriðjudög-
um, fimmtudögum, föstudögum
og sunnudögum. Til Fagurhóls-
mýrar verður flogið á fimmtu-
dögum.
Sem að framan greinir verða I
vetur fleiri vöruflutningaferðir
milli staða á landinu en nokkru
sinni fyrr. Tvær feröir I viku
verða með vörur til Akureyrar,
tsafjarðar, Egilsstaða og Vest-
mannaeyja. Enn fremur verður
vöruflutningaferð einu sinni I
viku frá Egilsstöðum til Akur-
eyrar, þaðan til tsafjarðar og
Reykjavlkur.
t sambandi við áætlunarflug
Flugfélags tslands til Akureyr-
ar mun Flugfélag Norðurlands
halda uppi flugi til staða á Norð-
austurlandi, til Húsavikur,
Raufarhafnar, Kópaskers,
Vopnafjarðar og Þórshafnar.
Enn fremur til Grimseyjar og
milli Akureyrar og Egilsstaða
og Akureyrar og ísafjarðar. Þá
mun Flugfélag Norðurlands frá
og með 1. nóvember halda uppi
áætlunarflugferðum milli Akur-
eyrar og Sauðárkróks og Akur-
eyrar og Siglufjarðar.
A slnum tima var tekinn upp
sá háttur I Reykjavlk og nokkr-
um hinna stærri kaupstaða, að
vörusendingum var ekið heim
til viðtakanda Enn fremur voru
vörusendingar sóttar til send-
anda. í framhaldi af þessu hefur
verið ákveðið að opna nokkrar
vöruafhendinga — og móttöku-
stöðvar. Þangað geta viðtak-
endur sótt pakka, og einnig
afhent smærri vörusendingar,
sem eiga að fara til annarra
staða á landinu. Stöðvarnar eru
sem hér segir: I Breiðholti I
verzluninni Straumnesi, Vest-
urbergi 76, I Arbæjarhverfi: I
verzluninni Garðarskjöri,
Hraunbæ 102, I Kópavogi: I
sendibilastöð Kópavogs við
Nýbýlaveg, Nýbýlavegi. I
athugun er að opna fleiri slikar
stöðvar og mun verða tylkynnt
um það þegar þar að kemur.