Tíminn - 04.10.1975, Qupperneq 1
SLÖNGUR
BARKAR
TENGI
Landvélarhf
aldek
TARPAULIN
RISSKEMMUR
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
SKULATÚNI '6'- SIMI (91)19460
— fiskifræðingar óska eftir viðræðum við stjórnvöld
um mólið
gébé Rvik — Dauða slldin sem
Skuld VE 263 fékk i net sin, er
skipiö var að veiðum austur af
Vestmannaeyjum sl. fimmtudag,
gæti verið frá báti, sem var á
sildveiðum á þessum slóðum um
sama leyti. — Þetta er þó ekki
fullkannað, sagði Jakob
Jakobsáon fiskifræðingur í gær,
og enn höfum við ekki fengið
sýnishorn af sildinni. Við höfum
rökstuddan grun um, að spær-
lingsbátar, sem eru að veiðum á
þessum slóðum, fái stundum sild i
vörpur sinar.sagði Jakob, og ekki
er bdizt við, að þeir komi með
sildina að iandi, en við höfum
engar beinar sannanir fyrir
þessu. Þá kvaðst Jakob vita
nokkur dæmi þess, að áhafnir
sildveiðiskipa fleygðu þeim afla
fyrir borð, sem þær gætu ekki
unnið. Hefur Jakob óskað eftir
umræðum um þetta mál við yfir-
völd sjávarútvegsins.
— Það er mögulegt að sleppa
sildinni án þess að drepa hana,
sagði Jakob. Sagðist hann vita
dæmi þess, að Eldborginni hefði
t.d. tekizt þetta.
Þá sagði Jakob að ef sildveiði-
skipin fengju stór köst, — en
veiöarfæri þeirra eru yfirleitt
mjög stórtæk, — gætu sjómenn-
irnir ekki unnið úr öllum aflanum
um borð. — Afkastageta er ákaf-
lega litil um borð i skipunum,
sagöi Jakob og hafa þvi sjómenn-
irnir neyðzt til að fleygja hluta
aflans, er þvi mikið misræmi
þarna i milli.
Kvað Jakob ástæðu til þess að
undirstrika við sjómenn, að ekki
yrði úr þessu bætt, nema þeir
slepptu sildinni, ..áður en þeir
þrengdu að henni og dræpu hana.
Annar kostur væri að breyta
reglugerðinni, sem kveður á um
að sildaraflinn skuli allur unninn
um borð.
AAikil ólga í skólunum:
KENNSLUKONUR
MÓTMÆLA
gébé—Rvik. — Fréttin um að
ákveðið hefði verið að mánaðar-
fri yrði i skólum borgarinnar 24.
október, á kvennafrídaginn, vakti
mikia ólgu meðal kennsiukvenna
I barna- og gagnfræðaskólum
borgarinnar. A.m.k. i einum
skóla var undirskriftum þegar
,safnað til að mótmæla þessari
ákvörðun.
— Þetta kom eins og reiðarslag
yfir alla og var ekki trúað I fyrstu,
sagði Elin ólafsdóttir kennari,
formaður Stéttarfélags barna-
skólakennara. Framkvæmda-
nefnd kvenna hefur nú sent
fræðslustjóra bréf, þar sem farið
er fram á að ákvörðun þessari
verði breytt og mánaðarfri
skólanna verði einhvern annan
dag i október. Fræðsluráð mun
taka mál þetta fyrir á mánudag
og er fastlega búizt við að ákvörð-
unin verði kvenfólkinu i hag.
Kristján J. Gunnarsson
fræðslustjóri sagði i gær, að
persónulega væri hann alls ekkert
á móti kvennafrideginum.
Ákvörðuninum aðhafa mánaðar-
friið 24. október væri þannig til
komin, að áður en fimm daga
skólavika gekk i gildi, hefði fyrsti
vetrardagur verið fridagur skól-
anna samkvæmt hefð, og þvi
heföi legið beinast við að hafa
siðasta sumardg fridag i staðinn.
Ætlunin hefði verið að hafa þann
dag fastan fridag i október i
framtiðinni. Kristján vildi ekkert
um það segja, hvort fræðsluráð
breytti ákvörðun sinni, en sagði,
að máliö yrði tekið fyrir á mánu-
dag.
Elin ólafsdóttir, formaður
Stéttarfélags barnaskólakenn-
ara, sagði, að ákvörðunin um
mánaðarfridaginn hefði kom-
ið mjög á óvart, og kvaðst
hún fastlega búast við þvi að
fræðsluráð yrði við þeirri beiðni
framkvæmdane&idar kvenna um
kvennafri, að breyta dagsetn-
ingunni.
Þá sagði Elin, að nýlega hefði
verið haldinn fundur i fulltrúaráði
stéttarfélagsins, en i þvi eru full-
trúar allra barnaskóla i Reykja-
vik sem eru tuttugu að tölu og
hefði tilgangur kvennafrisins ver-
ið útskýrður þar. Sagði hún, að
undirtektir hefðu verið mjög góð-
ar. Engin könnun hefur farið
fram meðal kennslukvenna um
þátttöku i kvennafriinu, en eftir
þeim undirtektum að dæma sem
málið hefur hlotið fram að þessu,
eru likur á þvi að þátttaka verði
mjög góð.
Stærsta þyrla Landhelgis-
gæzlunnar gjöreyðilagðist
Þyrlan stöðvaðist skammt frá skiðaskálanum, eins og sjá má á þessari mynd. t horninu er mynd af
vélinni, sem tekin var skömmu eftir að hún kom til landsins.
gébé Rvik. — Stærsta þyrla Land-
helgisgæzlunnar, Gná, hrapaði i
gærdag við Skálafell. Þetta gerð-
ist klukkan rúmlega tvö. Slys á
mönnum urðu engin, en þyrlan er
talin gjörónýt. Flugstjóri var
Björn Jónsson, en auk hans var
Ævar Björnsson flugvirki i þyrl-
unni i þessari siðustu ferð hennar.
Þvrlan var I litilli hæð, þegar
slysið varð, og átti það sinn þátt I
þvi að mennina sakaði ekki. Hún
rann niður fjallshliðina, en talið
er að girkassi litla hreyfilsins I
vélinni hafi bilað, og hafi það ver-
ið orsök óhappsins.
Gná var að flytja staura, sem
nota á við raflýsingu skiðabrekk-
unnar við Skiðaskála KR við
Skálafell i Mosfellssveit. Að sögn
sjónarvotta fór þyrlan, sem þá
var að flytja einn staurinn upp á
fjallið skyndilega að snúast, og
hafði þá litli hreyfillinn aftan til
stöðvazt. Steyptist þyrlan siðan
niður allt fjallið, missti staurinn
sem hún var að flytja og braut
annan á leið sinni niður.
. Að sögn Péturs Sigurðssonar,
forstjóra Landhelgisgæzlunnar,
mun bilunin i girkassanum hafa
valdið óhappinu, og hafa
skoðunarmenn þegar farið á stað-
inn og staðfest það álit.
Þegar var hafizt handa um að
bjarga úr þyrlunni nothæfum
tækjum og öðrum hlutum og ráð-
stafanir gerðar til að flytja hana
af staönum.
— Auðvitaö erum við stra?(
byrjaðir að hugsa um nýja þyrlu i
stað þessarar, sagði Pétur, þetta
var okkar stærsta og afkasta-
mesta þyrla og hinn mesti happa-
gripur hingað til.
Þrylan var að flytja staur upp á fjalliö, og var stödd þar sem efstu
staurarnir sjást á myndinni. Sjónarvottar á jöröu niöri, sáu, aö litli
hreyfill þyrlunnar stöövaöist og hún byrjaöi aö snúast og hrapa.
Stöövaöist þyrlan ekki fyrr en hún haföi runniö 200 m niöur hllöina.
Staurinn sem þyrlan var aö flytja sést á myndinni, ef vel er aö gáö. Auk
þess braut þyrlan einn staur á leiö sinni niöur fjalliö. Timamyndir :Ró-
bert.
Aðeins 2,5%
afla BÚR fyrsta
flokks
BH-Reykjavik.— 1 ræðu sinni á
borgarstjórnarfundi sl. fimmtu-
dag, upplýsti Páll Guðmunds-
son, borgarfulltrúi Framsókn-
arflokksins, að á siöast liðnu ári
hafi Bæjarútgerö Reykjavikur
tekið á móti um 12 þúsund tonn-
um af fiski. Þar af teljast aðeins
um 300 tonn, eöa 2,5% aflans, til
bezta hráefnis, sem unnt var aö
taka til vinnslu I neytenda-
pakkningar. Stafar þetta að
nokkru leyti af samsetningu afl-
ans, en talsverður hluti hans var
karfi, sem ekki er unninn I neyt-
endapakkningar. Hitt er þó
eftirtektarverðara, að hráefnið
var blátt áfram ekki talið hæft
til þeirrar vinnslu.
Þessar staðreyndir eru þvi
óhugnanlegri, að á sama tima
eru hraöfrystihús vestanlands
og austan komin með vinnslu
sina yfir 80% I neytendapakkn-
ingar á Bandarlkjamarkaö, og
byggist afkoma þeirra á þvi, að
svo sé, þar sem fiskur I neyt-
endapakkningum selst mjög
fljótt á einn dollar og tiu sent, en
fiskblokkin selst hægar og að-
eins á 56 sent.
Páll undirstrikaði I ræðu sinni
nauðsyn þess, að afkoma
Bæjarútgeröarinnar byggist á
sem beztu hráfefni, og mikil-
vægur liður I þvi væri aö koma
upp kæligeymslu yfir fisk I svo-
kallaðri Bakkaskemmu, sem er
I eigu borgarinnar, en flutninga-
skipaaðilar hafa nú á leigu og
segjast ekki geta rýmt.
Ræða Páls er birt I heild á
m----------------- O
Leyfi tekin af þeim
sem fleygja síld
gébé-RvIk — Matthlas Bjarna-
son sjávarútvegsráöherra sagöi
viö Timann I gærkvöldi, aö ekki
væri bannaö aö koma meö síld
aö landi, þótt óunnin sé. Sagöi
hann aö sildveiöiskip sem
fengju þaö stór köst, aö þeir
gætu ekki innbyrt allán aflann
og fleygöu honum, yröu um-
svifalaust svipt veiöileyfum, ef
fyrrgreint sannaðist á þau.
Mælar og tæki eru það full-
komin i þessum skipum, að
skipstjórarnir geta hagað köst-
um slnum að vild, sagöi ráð-
herra. Eins og kunnugt er.'sam-
þykktu Landsamband útgerðar-
manna, Farmanna- og fiski-
mannasambandið, Sjómannafé-
lagið og Fiskifélag Islands, sild-
veiðireglugerðina, en Sildarút-
vegsnefnd var á móti. Sildarút-
vegsnefnd sendi frá sér mót-
mæli I gær, varðandi þessa til-
högun um að sjómenn ynnu afl-
ann um borð i skipum sinum.
Ráðherra sagði, að sildarút-
vegsnefnd hefði ekki sannfært
sig umrað þeir væru með betri
úrlausn málanna en hinir aðil-
arnir.
Sagði ráðherra að ekki væri
bannað að koma með óunna sild
og salta hana á bryggjum lönd-
unarstaða eða frysta hana i
beitu.
SILDVEIDIREGLU-
GERÐINNI BREYTT?