Tíminn - 04.10.1975, Page 2

Tíminn - 04.10.1975, Page 2
TÍMINN Laugardagur 4. október 1975 \ Ármannsfellsmálið til umræðu á borgarstjórnarfundi: ,,Furðuleg óskammfeiíni að leyfa fyrirtækinu að hefja fram- kvæmdir áður en rannsókn lýkur" BH-Reykjavik. — Ég lýsi furöu minni á þeirri óskammfeilni, aö meöan Ármannsfellsmáliö er i Sakaddmsrannsókn skuli bygg- ingafélaginu leyft aö hefja framkvæmdir á lóöinni. t>aö eina eölilega i þessu máli er aö fresta framkvæmdum, þangaö til niöurstööur rannsóknar sakadóms liggja fyrir, og efa ég aö hlutur borgarinnar yröi sér- lega góöur, ef i Ijós kæmi, aö þessari ákvöröun um fram- kvæmdir þyrfti aö rifta. Og þaö skulu borgarfulltrúar Sjálf- stæöisflokksins hafa hugfast, aö þetta er ekki mál meirihluta eöa minnihluta hér í borgarstjórn. Þetta er mál reykvisks almenn- ings og meirihluta borgarráðs og borgarstjórnar. Málið er upplýst stig af stigi lír innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins, en ekki af okkur fulltrúum minni- hlutans, — allir meginþættir þessa máls hafa komið beint úr rööum Sjálfstæðisflokksins. Og muniö þaö, aö þaö erekki okkar æra, sem er I veði, heldur æra borgarfulltrúa Sjálfstæðis- flokksins. Þannig komst Kristján Bene- diktsson, borgarfulltrúi Fram- sóknarflokksins, að orði á borg- arstjórnarfundi sl. fimmtudag, þegar verið var að ræða þrjár tillögur fulltrúa minnihluta- flokkanna. Tillögurnar voru þessar: 1. Tillaga frá Sigurjóni Pét- urssyni og Kristjáni Benedikts- syni, svohljóðandi: „Borgarstjórn samþykkir að kjósa sjö manna nefnd, er hafi það verkefni að gera tillögur til borgarráös og borgarstjórnar um lóðaúthlutanir. Kjörtimabil nefndarinnar skal vera þaö sama og borgar- stjórnar.” 2. Tillaga frá Björgvin Guð- myndssyni: „Borgarstjórn Reykjavikur samþykkir, að sá háttur skuli tekinn upp .viö lóðaúthlutanir framvegis, að ávallt verði aug- lýst eftir umsækjendum. Skal regla þessi gilda bæði við út- hlutanir lóða undir ibúðarhús- næði og atvinnuhúsnæði. í aug- lýsingunum skal tilgreina hvaða lóðir komi til úthlutunar hverju sinni. Heimilt skal að vikja frá þess- ari reglu i sérstökum tilvikum, en þá þvi aðeins, að alger sam- staða sé um það i borgarráði.” 3. Tillaga frá Kristjáni Bene- diktssyni, sem hljóðar þannig: „Meöan rannsókn Armanns- fellsmálsins stendur yfir sam- þykkir borgarstjórn, að ekki skuli gefið út leyfi fyrir bygg- ingum á 5000 fermetra lóð þeirri neðan Hæðargarðs og austan Grensásvegar, sem Byggingar- félaginu Ármannsfelli hf. var úthlutað á fundi i borgarráði hinn 26. ágúst sl. Jafnframt samþykkir borgar- stjóm, að taka ekki á móti frek- ari greiðslu á gatnagerðargjaldi fyrir umrædda lóð, fyrr en rannsókn málsins er að fullu lokið og niðurstöður liggja fyrir.” t framsöguræðum þeirra Sigurjóns Péturssonar og Björgvins Guðmundssonar, sem fyrstir tóku til máls i þessum umræðum var það greinilega undirstrikað, að I dag væru lóðaúthlutanir i borginni póli- tiskar, og einn aðili, sem öllu réði. Lóöanefnd flytti enga til- lögu til borgarráðs fyrr en meirihlutaflokkurinn hefði farið þar höndum um og látið sinn vilja i ljós og tryggt stuðning meirihluta borgarráðs við Ut- hlutun komandi lóðar. Væri þessari pöliti'sku einokun beitt af miklu tillitsleysi, en ef til vill væri von til þess nú, að Sjálf- stæöisflokkurinn sjái aö sér og féllist á lýðræðislegri vinnu- brögö við lóðaúthlutun, er upp- ljóstraö hefði veriö um Ár- mannsfellsmálið. Kristján Benediktsson fjallaði sérstaklega um Armannsfells- málið, eins og tillöguflutningur hans gaf tilefni til. Þetta mál komst fyrst i bækur þann 19. ágúst með tillögu lóða- nefndar, svohljóðandi: Lögð fram tillaga lóðanefnd- ar, dags. i dag, um að Armanns- felli hf., Grettisgötu 56, verði gefin kostur á lóð neðan Hæðar- garðs og austan Grensásvegar að mörkum lóða við Bakka- gerði. Málinu frestað. En þessi frestur var ekki sér- lega langur, ekki nema vika, og þá verða töluverðar umræður I borgarstjórn, og tillögur bomar fram, og siðan bókanir. Svohljóðandi tillaga kom frá Sigurjóni Péturssyni, Alfreð' Þorsteinssyni og Björgvin Guð- mundssyni: Við undirritaðir leggjum til, aö lóð undir 23 ibúðir i blandaðri byggð á horni Grensásvegar og Hæðargarðs verði auglýst til umsóknar. Tillagan borin upp. Felld með 3:2 atkv. Bókun frá borgarráðsmönn- um Sjálfstæðisflokksins, svolát- andi: Reykjavikurborg hefur fylgt þeirri meginreglu að auglýsa nýjar byggingarlóðir til úthlut- unar. Borgarráð hefur þó i all- mörgum tilvikum einróma samþykkt úthlutun á stökum lóðum, án þess að þær væru auglýstar sérstaklega. Með til- liti til allra aðstæðna teljum við eðlilegt, að úthlutun án auglýs- ingar fari einnig fram að þessu sinni og greiðum þvi atkvæði gegn framkominni tillögu minnihlutans. Tillaga lóðanefndar borin undir atkvæði. Samþykkt. t bókun borgarfulltrúa Alberts Guðmundssonar telur hann eðlilegt, að Ármannsfell fái lóðina „vegna frumkvæða Ármannsfells um tillögur að skipulagi á lóð þeirri....” o.s.frv. Afgreiðsla málsins er lika rökstudd með tilliti til allra aðstæðna. Menn hafa naumast gert sér grein fyrir þvf, hvaða aðstæður var um að ræða, en þaö átti eftir að skýrast i um- ræðum i fjölmiðlum um þessar mundir. Og menn fara að velta fyrir sér, af hverju ekki hafi mátt auglýsa lóðina, og hvaða frum- kvæði hafi verið hér um að ræða. Þá kemur og i ljós, að framkvæmdastjóri byggingafé- lagsins og skipulagsstjóri eru ekki á einu máli I sambandi við störf ákveðins starfsmanns, sem vissulega kemur við sögu i málinu, og óvenjuleg er með- ferð málsins til lóðanefndar, að ekki sé meira sagt. Það er ljóst, að hér hafa allar viðteknar reglur um lóðaúthlut- un verið brotnar, en virkilegur skriður á þetta hneykslismál kemst ekki fyrr en á borgar- stjómarflokksfundi Siálfstæðis- manna er farið að arótta því að fulltrúum, að eitthvað sé ó- hreint i pokahorninu. Siðan kemur Visir með fréttina um, að Armannsfell hafi greitt milljón i húsbyggingarsjóö Sjálfstæðis- flokksins og málið tekur á sig nýjan svip. Mikil blaðaskrif verða og borgarráð samþykkir að kjósa rannsóknarnefnd i málinu. Með það vorum við minnihlutamenn tiltölulega á- nægðir, þótt ekki væri séð, hversu viðtæk rannsóknin myndi verða. En þá er það, sem borgar- stjóri kemur heim eftir að hafa misst af málinu, og þá finnst honum ekki nógu gott að láta rannsaka svona mál, nema Sjálfstæðisflokkurinn stjórni þeirri rannsókn, og enn tekur málið sveiflu, Sjálfstæðismenn visa þvi til sakadóms, þar sem málið er nú. Við lesum í blöðum, að gagnasöfnun standi yfir, en málið hafi enn ekki verið þing- fest. — Ég tel óeðlilegt, að bygg- ingaframkvæmdir hefjist á lóð- inni, á meöan málið er i rann- sókn. Þaö má vel vera, að út- hlutunin varði ekki við refsilög- gjöf, sem er flókin, en hún varð- Kristján Benediktsson borgar- ráðsmaöur: Hiö eölilega heföi veriö aö fresta framkvæmdum þar til niöurstaöa lægi fyrir. ar við þær siöareglur, sem við höfum tileinkað okkur, hver og einn, og hún er brot á þeim starfsreglum, sem myndazt hafa hjá borginni, sagði Kristján Benediktsson i lok máls sins. Albert Guðmundsson steig næstur i stólinn, og kvaðst fyrir- fram ekki hafa ætlað sér að taka þátt i þessum umræðum, ekki séð ástæðu til þess, en viðhorf hefðu breytzt. Auðvitað væri pólitisku valdi beitt i lóðaúthlut- unum eins og öðru. Borgarbúar hefðu bara slikt traust á Sjálf- stæðisflokknum, að hann mætti beita þvi. 011 vinna að þessum og öðrum borgarmálum væri pólitisk. Það væri ekkert öðru- visi staðið að þessari lóðaúthlut- un en öðrum lóðaúthlutunum á vegum borgarinnar. Þá væri kominn timi til að hleypa fersku lofti inn I raðir andstæðinganna ogleyfa einstaklingnum að ráða miklu meira en draga úr áhrif- um kerfisins. Þá talaði Albert mikið um rógburð og slefbera, og sagðist hafa verið kunnur að því að sparka ekki til baka, þó sparkað væri i hann, en nú ætlaði hann að gera það. 1 öllum slefburðin- um hefði alltaf vantað svar hans, sem hann gaf á hinum umtalaða borgarstjórnarflokks- fundi Sjálfstæðismanna við fyrirspurn Daviðs Oddssonar, og nú skyldi hann upplýsa það. — Svar mitt var þetta, sagði Albert Guömundsson: Ég mótmælti slefburði I blöðum andstæðinganna um þetta mál. Allir tóku þetta gott og gilt svar, fyrirspyrjandinn lika! Lokaorð Alberts verða liklega sumum eftirminnileg. Hann sagðist ekki hafa orðið fyrir ó- drengskap á knattspyrnuferli sinum og stjórnmálaferli, en slikur ódrengskapur sem þessi ætti ekki sinn lika i sögunni. — Þið eruð bara ekki búnir að átta ykkur á þvi, að Sjálfstæðis- flokkurinn er ekki i vörn, heldur I sókn, — og ég er í sókn! Ég hlakka til að hitta ykkur fyrir Sakadómi, kæru félagar! Næstur talaði Markús örn Antonsson og tilkynnti að meiri- hlutanum kæmi svona tillögu- flutningur um lóðanefnd ekkert á óvart. Þetta hefði gerzt áöur og alltaf verið fellt — og það yrði engin undantekning gerð á því að þessu sinni. Sigurjón Pétursson benti á, að lóöanefnd færi alls ekki eftir þeim starfsreglúm, sem borg- aróáð setti henni, og skýrði frá könnun, sem hann gerði hjá borgarverkfræðingi i sambandi við úthlutun lóða við Stóragerði á sl. ári. Þá upplýsti hann og þau atriði i bréfi, sem hann hafði fengið frá skipulagsstjóra, sem tækju af öll tvimæli um þaö, að Vifill Magnússon, arki- tekt Ármannsfells, hefði verið að störfum hjá skipulagsstjóra við skipulag þess svæðis, sem hann heföi verið sagður hafa unnið fyrir Ármannsfell, og væri hér um brot að ræða hjá starfsmanni borgarinnar, ef ekki annað þaðan af verra, er starfsmaður skipulagsdeildar hefði afhent skipulagsuppdrætti til fyrirtækis úti i bæ! Kvaðst Sigurjón vona, að sakadóms- rannsókn leiddi i ljós sannleik- ann i málinu, ekki aðeins i þessu máli starfsmanns skipulags- stjóra, heldur og tengsl lóðaút- hlutunarinnar og Sjálfstæðis- flokksins. Björgvin Guðmundsson geröi litiö úr þeirri fully rðingu, að Ar- mannsfelli hefði borið skýlaus réttur til lóðarinnar vegna langrar veru á biðlista og taldi fjölda aðila, sem væru og hefðu verið á slikum biðlista, m.a. byggingafélag starfsmanna stjórnarráðsins, sem borgar- stjóri hefði lofað lóö, en það varð af lóðinni, sem ungir Sjálf- stæðismenn þurftu svo endilega að fá fyrir nokkru, og enn er i fersku minni. Borgarstjóri, Birgir Isleifur Gunnarsson, kvaðst endilega vona, að rannsókn leiddi sann- leikann I ljós, og kvað Sjálf- stæðismenn mundu fella tillögu Kristjáns Benediktssonar. Þá sagði Kristján Benedikts- son þau orð, sem eru i upphafi þessa máls. Þorbjörn Broddason kvað þá ákvörðun, sem borgarstjóri heföi tilkynnt um að fella tillögu Kristjáns Benediktssonar, vera fullkomna óvirðingu við saka- dóm. Það lægi i augum uppi, að ef kæmi i ljós saknæmt atferli yrði það væntanlega látið ganga til baka að afhenda Armanns- felli þessa lóð. Hér hefur ekki verið getið ræðustúfs, sem Davíð Oddsson flutti, er hann svaraði fyrir- spurn Sigurjóns Péturssonar þess efnis, hvort væri þyngra á metunum hjá Sjálfstæðismönn- um það álit Daviðs, að upplýs- ingar þær væru marktækar, sem hann hefði byggt si'na um- töluðu fyrirspurn á, eða slef- buröartal Alberts um sama. Kvaðst Davið Oddsson alls ekki hafa ætlað sér að taka til máls, hann hefði fyrir löngu lýst yfir þvi, að hann telji að auglýsa beri lóðir sérstaklega, en Visis- viðtal við Svein R. Eyjólfsson hefði hann álitið marktækt og þvi komið fram með fyrirspurn sina. Þá er aðeins ógetið úrslita at- kvæöagreiðslu, en hún fór I öll- um þrem tilvikum 9 atkvæði gegn 6 og náði engin tillaga minnihlutamanna fram að ganga. Fjölbraut- arskólinn settur gébé-Rvfk—Fjölbrautaskólinn I Breiöholti verður settur I fyrsta skipti I dag klukkan tvö. Tala nemenda i skólanum verður um tvö hundruö og fimmtiu, að sögn skólastjórans Guðmundar Sveinssonar. Kennsla byrjar strax eftir helgina og verður kennt I byrjun á tveim hæöum I skólanum, i 4 kennslustofum á fyrstu hæð og átta kennslustofum á annarri. Þá sagöi skólastjórinn, að nú væri verið aö undirbúa fjórar stofur fyrir Fjölbrautaskólann i Fellaskóla, og ætti að nota þær fyrir verknámsdeild. Áskoranir Bolvíkinga og Borgnes- inga hjá skattrann- sóknastjóra BH-Reykjayík — óáiiægjualdan vegna s.kattálagninga magnast að heita má með hverjum deginum. Bolvikingar og Borgnesingar hafa þegar sent skattstjórum i viðkomandi umdæmum undir- skriftaskjal og farið fram á endurskoðun skatta I viðkomandi byggöarlögum vegna misræmis. Umfangsmiklir athafnamenn séu meö vinnukonuútsvör en almenn- ingur sé að sligast undan skatta- byrðunum. Þá hefur og verið haldinn al- mennur borgarafundur i Hvera- gerði, þar sem skattamál voru til meöferðar, og þess að vænta að á- lyktanir fundarins berist embætti rikisskattstjóra áður en langt um liður. Undirskriftaskjölin að vest- an hafa verið send rikisskatt- stjóra, og búizt við, að skattrann- sóknastjóri f jalli um þau á næst- unni. Fær ekki vínveitingaleyfi BH-Reykjavík — A fundi borgar- stjórnar sl. fimmtudag var sam- þykkt meðferð borgarráös frá 30. september á bréfi dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá 10. september. Var i bréfi þessu ítrekuð beiðni um umsögn borg- arráðs um framlengingu á leyfi til vinveitinga i veitingahúsinu Silfurtunglinu, Snorrabraut 37. Mælti borgarráð gegn erindinu. Rekstur Silfurtunglsins sem vinveitingastaðar hefur veriö mikill þyrnir I augum fólks I ná- grenni staðarins, sem ekki aöeins hefur verið svipt næturró sinni, heldur og orðið fyrir hvers konar ípíðindum af hátterni unglinea. sem steðjað hafa að staðnum og flykkzt út af honum eftir aö dans" leik lýkur. Er mörgum léttir að þvi, að borgarráð og borgarstjórn skuli hafa tekiö svo skelegga af- stöðu i málinu, og væntanlega linnir ófremdarástandi þvi, sem I nágrenninu hefur rikt af völdum staðarins. Banaslys í umferðinni gébé Rvik— A fimmtudagsmorg- un varð kona fyrir bifreið á Kringlumýrabraut. Gekk konan i veg fyrir bifreiðina, en ökumaður hennar náöi ekki aö stanza I tæka tið. Lenti konan á hægra fram- horni bifreiðarinnar. Slasaöist hún mikið og var þegar flutt a Borgarsjúkrahúsið, þar sem hún lézt skömmu siðar. Konan hét Steinunn Pálsdóttir 62 ára úr Kópavogi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.