Tíminn - 04.10.1975, Qupperneq 5
Laugardagur 4. október 1975
ItMINN
5
1
m
Kaupfélaögin og
landsbyggðin
t forustugrein Dags 1. þ.m.
segir á þesa leiö:
„Bæjarstjdrina á Akureyri,
Bjami
Einarsson,
hefur skrifaö I
um byggöa-j
þróun i Sam-’
vinnuna.
Hann rekur j
fyrst hvernig
mörg einka-
fyrirtæki hafi 1
staðiö fyrir athöfnum á hinum
ýmsu stööum og á hinum
ýmsu vaxtarskeiöum, sem
dýrmætt afl I þróuninni. En
þessar „gullaldir” einstakra
landshluta hafa ævinlega
byggzt á timabundnum upp-
gripum, en síðan hafi fylgt
samdráttur f atvinnulifi,
venjulega þannig, að einka-
fyrirtækin hafi dregiö úr
rekstri jafnvel hætt eöa flutt
burtu og stundum hafi kaup-
félagið staðið eitt eftir. Hafi þá
komið í þess hlut að bjarga þvi
sem bjargað varö og byggja
upp staðinn og félagssvæðið.
Sem samtök fólksins á hverj-
um stað, segir bæjarstjórinn,
hafa kaupfélögin tekið þátt i
margvfsiegri uppbyggingu,
auk hinnar kunnu þjónustu viö
landbúnaðinn. Þau hafa tekið
þátt i flestu þvi, sem til heilla
hefur horft f viðkomandi
byggðarlagi, og það ekki fyrst
og fremst með tilliti til ágóða-
vonar. Dæmin um fiskvinnslu-
stöðvar, bila- og búvélaverk-
stæði og önnur þjónustu- og
framleiðslufyrirtæki eru svo
mörg, að óþarft er upp að
telja. Einnig eru þess mörg
dæmi, að kaupfélögin hafi
stutt efnilega athafnamenn
með framlögum til fyrirtækja
þeirra, jafnvel með minni-
hlutaþátttöku. Hefur kaup-
félagið þá i senn verið aflgjafi
og skapari trausts og festu.
Eitt skemmtilegasta dæmið
um slíkt er stofnun Flugfélags
Akureyrar.”
Lán Akureyrar
Dagur segir ennfremur:
„t sögu Akureyrar hafa
skipzt á skin og skúrir,” segir
B.E., „eins og f sögu annarra
byggðarlaga. Timi hákarla-
veiða leið og sildin kom i stað-
inn og hvarf aftur. Einstakir
athafnamenn hafa lagt mikið
af mörkum ti! eflingar bæjar-
ins. Sum einkafyrirtæki hafa
horfið af sjónarsviðinu, en
önnur hafa haldið áfram og i
dag eru mörg merkileg fyrir-
tæki rekin á Akureyri. En það
er lán Akureyrar, að i öllum
sviptingum íslenzks atvinnu-
lifs hefur bærinn átt gifurlega
sterkan bakhjarl, þar sem er
starfsemi Sambandsins og
KEA. Iðnaðarfyrirtæki sam-
vinnumanna hafa verið bæn-
um sú trausta undirstaða, sem
staðið hefur af sér öll hret. Ég
er ekki í vafa um, að ef þýðing
starfsemi samvinnufélaganna
fyrir þróun byggðar á tslandi
væri könnuð, kæmi i ljós, að
hún hefur ráðið úrslitum i að
byggð hefur haldizt á fjölda
þeirra staða sem nú eru lif-
vænlegir. Ég vil sjálfur taka
svo djúpt f árinni að segja, að
hefði samvinnufélaganna ekki
notið við, væri tsland þegar
orðið, eða að verða borgríki
við Faxaflóa.” Þ.Þ.
Heimsfrægt tríó með
tónleika í dag
The Lyric Arts Trio aftur hingað til lands
gébé—Rvik — t dag heldur „The
lyric arts trio” frá Kanada tón-
leika á vegum Tónlistarfélags
Reykjavikur i Austurbæjarbfói
kl. 14:30. A efnisskrá eru verk eft-
ir Luigi Cortese, Wallingford
Riegger, Henry Cowel, Harry
Somersog fleiri tónskáld.
Trióið er skipað þrem ungum
kanadiskum tónlistarmönnum,
sópransöngkonunni Mary Morri-
son, flautuleikaranum Robert
Aitken og pianóleikaranum
Marion Ross. Þetta trió er lfklega
einn mikilvirkasti tónlistarfull-
trúisem Kanada á nú á að skipa.
Frá 1974 hafa þau flutt verk eftir
kanadisk tónskáld, og ekki
einungis viðs vegar i heimaland-
inu heldur einnig erlendis.
Arið 1973 voru þau fulltrúar
heimalands sins á Listahátiðinni i
Reykjavik, en þaðan lá leiðin til.
Parisar. Þau voru boðin til Japan
I sambandi við heimssýninguna
1971. Hvarvetna sem trioið hefur
komið fram, hafa þau hlotið hina
beztu dóma og hafa allstaðar
veriö beðin um að koma aftur.
Mary Morrison
sópransöngkona
Robert Aitken
flautuleikari
Marion Ross
pfanóleikari
Lágmarksverð á kg. 26 kr.
A FIJNDI yfirnefndar Verðlags-
ráðs sjávarútvegsins á fimmtu-
dag voru ákveðnar eftirfarandi
reglur um verð á síld til heilsölt-
unar, til viðbótar verðákvörðun
neftidarinnar þann 19. f.m.
Við afhendingu á sild, sem er
heilsöltuð um borð i veiðiskipi,
gildir sú regla, að hver tunna,
sem inniheldur 95 kg af heilsalt-
aöri sild, reiknast 104 kg af
ferskri sild
Lágmarksverð á sild til heil-
söltunar skal vera það sama og
ákveðið var fyrir smærri sifd en
32 sm, þ.e. hvert kg kr. 26.00.
Sýning á myndum
sovézkra barna
Sýning á myndum sovézkra barna stendur nú yfir f húsakynnum
félagsins MtR, Menningartengsla tslands og Ráðstjórnarrfkjanna, að
Laugavegi 178. Á sýningunni eru 46 myndir, teikningar, litkrítarmynd-
ir, vatnslitamyndir og k'lippmyndir eftir 38 sovézk börn á aldrinum 7 til
13 ára. Margt manna hefur skoðað sýninguna undanfarna daga, en hún
verður opin um næstu helgi, á laugardag og sunnudag, kl. 14-18 báða
dagana. öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Dans. Mynd eftir Alik Pagiéf, 11 ára. — Ein af myndunum á sýningunni
f MlR-salnum, Laugavegi 178.
Athugasemd vegna fréttar um
meintan fjárdrátt
TIL þess að koma i veg fyrir
misskilning vegna fréttar
þeirrar um meintan fjár-
drátt á einni af stofnunum
Reykja vikurborgar, sem
birtist i blaðinu fyrir
skömmu, skal tekið fram, að
þar var um að ræða fyrrver-
andi gjaldkera á skrifstofu
borgarverkfræðings eins og
fram kemuribókun frá þeim
fundi borgarráðs, sem fjall-
aði um málið.
BERKIAVARNADAGUR
sunnudagur 5. október
Merki dagsins kostar 100 krónur og blaðið
„Reykjalundur" 200 krónur. Merkið gildir sem
happdrættismiði. Vinningur er sjónvarpstæki.
Afgreiðslustaðir merkja og blaða i Reykjavík og nágrent
S.Í.B.S., Suðurgötu 10, simi 22150.
Kvisthagi 17, simi 23966.
Fálkagata 28, simi 11086.
Grettisgata 26, simi 13665.
Bergþórugata 6B, simi 18747.
Langahlið 17, simi 15803.
Eskihlið 10, simi 16125
Skúlagata 64, simi 23479.
Hrisateigur 43, simi 32777.
Austurbrún 25, simi 32570.
Barðavogur 17, simi 30027.
Sólheimar 23, simi 34620.
Háaleitisbraut 56, simi 33143.
Háagerði 15, simi 34560.
Langagerði 94, simi 32568.
Skriðustekkur 11, simi 74384.
Tungubakki 14, simi 74921.
Fellaskóli.
Árbæjarskóli.
Seltjarnarnes:
Skálatún, simi 18087.
Kópavogur:
Langabrekka 10, simi 41034
Hrauntunga 11, simi 40958.
Vallargerði 29, simi 41095.
Garðahreppur:
Barnaskóli Garðahrepps.
Hafnarfjörður:
Þúfubarð 11.
Reykjavikurvegur 34.
Sölubörn komi kl. 10 árdegis. Há sölulaun.
S.Í.B.S.