Tíminn - 04.10.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 4. október 1975
TÍMINN
13
Kirkjusmlbin gæti ifka verið Sjálfstæðishús....
verkinu, fær hann til þess kirkju-
smið, og verður að ganga að afar-
kostum. Kaupið er nokkuð mis-
munandi, augu bónda, sál elzta
sonarins og þar fram eftir götun-
um. En ævinlega endar sagan
með þvi að bóndi verður að kaupa
sig frá kirkjusmiðnum með þvi að
finna nafn hans, og þegar hann
veit það, þá dettur kirkjusmiður
dauðurniður eða verður að steini.
— Kirkjusmiðin getur birzt i
margs konar myndum — til dæm-
is sem stöðuveiting. Maður, sem
lengi er búinn að biða eftir ákveð-
inni stöðu, fer til stjórnmála-
flokks til þess að fá hann „til að
byggja kirkjuna fyrir sig”. Og
hann finnur ekki nafn kirkju-
smiðsins og verður að láta augu
sin, og það er hörmulegt, þvi að
þá sér hann ekki lengur leiðina
framundan, en verður að notast
við annarra augu, augu flokksins.
Kirkjusmlðin gæti verið einbýlis-
hús. Maður er að byggja einbýlis-
hús og ræður ekki við það og leit-
ar til stjórnmálaflokks, og honum
fer svipað og þeim, sem þráði
stöðuveitingu.
— Kirkjusmlðin gæti llka verið
Sjálfstæðishús. Þegar forvigis-
mennirnir þreytast á að koma
byggingunni áfram, ráða þeir sér
kirkjusmið til verksins — og setja
að veði heiður og æru, augun sín,
eðasólina, sem birtu veitir. Nú er
smlði hússins að verða lokið, og
nú rlður á að finna nafn kirkju-
smiðsins. Ég er ekki frá þvi, að I
veði sé fjöregg Sjálfstæðisflokks-
ins.
Kannski nafn kirkjusmiðsins sé
Spilling.
Lýðhóskólinn í
Skólholti
AUGLÝSIR
Lýðháskólinn í Skálholti verður settur
sunnudaginn 5. október.
Skólasetning hefst með guðsþjónustu i
Skálholtskirkju kl. 13,30.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni i
Reykjavik kl. 12 á hádegi.
Lýðháskólinn í Skálholti.
0 llla fengið...
Hann sótti þá annan sjóð og bað
hana á að lita, en hún kvaðst ekki
mundu taka það fyrir hans hönd.
„Þessa peninga hefur þú saman
dregið fyrir ágirndar sakir i land-
skyldum og fjárleigum meirum
en ré'ttilegt er, fyrir því heyrir
slikt fé þeim manni eigi til með-
ferðar, er bæði mun verða réttlát-
ur og mildur.” Þá sýnir Koðráð
henni digran fjársjóð, fullan af
silfri. Þórdis vó þrjár merkur til
handa Þorvaldi en fékk Koðráni
aftur það, sem meira var. Þá
spurði Koðrán hana, af hverju
hún vildi heldur taka af þessum
peningum en hinum. Þórdis svar-
ar: „Því að þú hefur að þessum
vel komizt, er þú hefur tekið i arf
eftir föður þinn.”
— Ég hef verið að velta þvi
fyrir mér, sagði Guðmundur G.
Þórarinsson, hve mikill sannleik-
ur felst I þessari sögu, og hvort
þetta sé ekki nú að endurtaka sig
nú. Fjárframlagið I byggingasjóð
Sjálfstæðishússins hefur skapað
illt umtal. Hið illa umtal eitrar
geð þess, sem féð fær, eitrar
hugsun hans, sem hefur siðan af-
leiðingar á gjörðir hans.
Þá minnti Guðmundur G.
Þórarinsson á aðra sögu.
— Þessi saga er til á Norður-
löndum og viðar i nokkuð mis-
munandi búningi, en það er sagan
um kirkjusmiðinn. Sameiginlegt
öllum sögunum er það, að bóndi
vill endilega byggja kirkju fyrir
sjálfan sig, en þegar hann er orð-
inn úrkula vonar um að ljúka
Útboð
stjórn verkamannabústaða óskar eftir til-
boðum i málun 308 ibúða, úti og inni, i
Seljahverfi i Reykjavik.
Útboðsgögn verða afhent i Mávahlið 4,
Reykjavik, gegn 5.000.- kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð verða opnuð föstudaginn 24. okt.
1975, á skrifstofu stj. verkamannabústaða
Mávahlið 4.
Auglýsitf í Ttmanum
■H
M flm, Iffl!! 1! Hfl
I
HI.ii..
Stóru fjósin og
stóru togararnir..
Landfara hefur borizt bréf frá
K.G.,þar sem rætt er um blaða-
skrif og ummæli um stækkun
búa á Islandi. Bréfið er svo-
hljóðandi:
„Mjög gerist nú tiðrætt um
landbúnað, bæði i blöðum og út-
varpi. Einn sagði, að bændur
þyldu enga gagnrýni, en aðrar
stéttir teldu hana sjálfsagða.
Slikt er fjarri sanni. Hitt gera
þeir, sem eitthvað þekkja til
landbúnaðar, sér ljóst, að oft er
um þessi mál fjallað af miklum
þekkingarskorti og enn minni
sanngirni. Það gera sjálfsagt
allir hugsandi menn sér ljóst, að
þjóðin eyðir langt um efni fram.
Én það munu fáir fúsir til að slá
af kröfum sinum og minnka
eigin eyðslu. Þá er reynt að
finna einhvern „syndabukk”, að
kenna um ófarirnar.
Ýmsir halda þvi fram, að
landbúnaðurinn sé sá seki. Gylfi
Þ. Gislason sagði fyrir alllöngu
að landbúnaðurinn „væri hemill
á hagvexti þjóðarinnar”. Marg-
ir hafa siðan tekið i sama
streng, án þess að vart verði, að
þeir hafi að öðru leyti reynt að
gera sér grein fyrir hvernig
þjóðartekjunum hefur verið
varið. Þegar þingmennirnir
okkar greiddu samhljóða at-
kvæði um stórfellda kauphækk-
un sér til handa, var það gert á
þeim forsendum, að þeir þyrftu
að hafa svo góð laun að þeir
freistuðust ekki til að taka sér
önnur störf, en gætu einbeitt
kröftum sinum sem þingmenn i
þágu þjóðarinnar. En stóðu þeir
við það? Ónei, hagfræðingurinn
Gylfi Þ. sótti snarlega um
nýstofnað prófessorsembætti
við háskólann og fékk það.
Vafalaust eru það margir fleiri,
sem þiggja góð laun frá rikinu
fyrir fleira en eitt starf, en um
það er litið fengist.
Háskólamenn heimta marg-
falt kaup miðað við verkamenn
og bændur á þeim forsendum,
að þeir hafi eytt svo mörgum
árum við nám án þess að taka
kaup fyrir. Mér virðast það for-
réttindi, að fá að læra það sem
hugurinn kýs og njóta til þess
stórfelldra styrkja frá rikinu.
Þvi að hvað eru þessi svokölluðu
námslán annað en styrkir, þau
eru veitt til margra ára vaxta-
laust, og greiðast svo með ósköp
litlum krónum, miðað við það,
sem þó var, þegar lánin voru
tekin.
Þeir, er nú deila hvað harðast
á bændur, þykjast ekki ætlast til
þess, að þeir beri minna úr být
um en viðmiðunarstéttirnar.
Þeir eiga bara að stækka búin
og þá þurfa landbúnaðarvörur
ekki að hækka nema ósköp lítið,
þó að allar rekstrarvörur land-
búnaðarins hafi stórlega hækk-
að og dreifingarkostnaður auk-
ist i samræmi við almennt
kaupgjald.
Sviar stækkuðu búin og bænd-
um fækkaði. Árangurinn varð
sá, að þeir framleiða ekki nægar
landbúnaðarvörur handa sér,
þrátt fyrir öllu meiri rikisstyrki
en hér. Mundi þó ekki Island
þykja allmiklu harðbýlla land
en Sviþjóð.
Vandamál islenzks land-
búnaðar verða ekki leyst, frem-
ur en I öðrum harðbýlum lönd-
um, með takmarkalausri
stækkun búanna. Það óttast ég,
að verði eins með stóru fjósin og
stóru togarana, að þau sbgi til
sin fjármagnið en ennþá hafa
þau ekki sýnt sig i hagkvæmari
rekstri.
K.G.
Verksmiðíu-
útsala!
o
Verksmiðjur Sambandsins á Akureyri halda
ÚTSÖLU ÁRSINS
í húsakynnum Vefarans í
Skeifunni 3 A í Reykjavík
mónudaginn 6. október kl. 9—18
og næstu daga
Seldar verða lítið gallaðar vörur frá:
HEKLU
Buxur Peysur
Heilgallar
Skjólfatnaður
og margt fleira
IÐUNNI
Kvenskór
Kventöfflur Kvenstígvél
Karlmannaskór,
lítil og stór nr.
/ Karlmanna vinnuskór,
lítil og stór nr.
og margt fleira
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA GÆÐAVÖRU A GJAFVERDI
Ullarverksmiðjan Skóverksmiðjan Fataverksmiðjan
GEFJUN IÐUNN HEKLA
Skeifunni 3 A - Reykjavík
GEFJUN
Teppi
Teppabútar
Terelyne efni
Gluggatjaldaefni
Áklæði
Hespulopi
Loðband
Garn, margar gerðir
Efnisbútar ýmiskonar
og margt fleira